Tíminn - 22.04.1950, Blaðsíða 6
6
TÍMINN, laugardaginn 22. apríl 1950
87. blað
TJARNARBÍD
Milli tveggja olda
(Mr. District Attorney)
Afar spennandi og viðburðarík,
ný, amerísk mynd. Aðalhlutv.:
Dennis O’Keefe
Marguerite Chapman
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum.
_____________________
Þjófurinn frá
Bagdad
Hin undurfagra ævintýramynd
úr Þúsund og einni nótt.
Aðalhlutverk:
Conrad Veidt
June Duprez
Sýnd kl. 3.
N Ý J A B í □
GAML'A BíÓ
| Allt í [hvssii fína -—-
(Stiting Pretty)
Ein af allra skemmtilegustu
gamanmyndum, sem gerðar
hafa verið í Ameríku á siðustu
árum. — Aðalhlutverk:
AUKAMYND:
Ferð með Gullíaxa frá Rvík
til London, tekin af Kjartanl
Ó. Bjarnasynl. (Litmynd.)
Sýnd kl. 7 og 9.
Næst síðasta sinn.
Draugaskipið
Hin gráthlægilega skopmynda-
syrpa með GÖG og GOKKE.
Sýnd kl. 3 og 5. ,
Sala hefst kl. 11 f. h.
----------
Engillinn í 10. götu
(Tenth Ave Angel)
Ný, amerísk Metro Goldwyn
Mayer kvikmynd.
Aðalhlutverkin leika:
Margaret O’Brien
Angela Lansbury
George Murphy
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
! '
- ____________________ *
Laun symlar-
innar
Mjög áhrifamikil, finnsk-sænsk
kvikmynd um baráttuna gegn
kynsjúkdómunum. Danskur texti
Kerstin Nylander
Kyllikki Forsell
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 7 og 9.
Ævíntýrið af Astara kon-
ungssyni og fiskimanns-
dætrunum tveim
Frönsk kvikmynd, gerð eftir
ævintýrinu „Blondine“.
Danskur texti. — Sýnd kl. 3 og 5
Sala hefst kl. 11 f. h.
II. KAFLI
Grímuklæddi
riddarinn
(The Lone Ranger)
Afar spennandi og viðburðarík
amerísk kvikmynd.
Síðari hluti
Hefnd grímuklædda
riddarans
Sýnd kl. 3, 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
i
SB
*
ÞJODLEIKHUSID
ÍSLANDSKLUKKAN
,■ eftit-
Halldór Kiljan Laxness
leikstjóri
Lárus Pálsson
Frumsýning í kvöld kl. 18.
U p p s e 11.
Sunnudag 23.
{ FJALLA-EYVINDUR
Mánudag 24.
NÝÁRSNÓTTIN
Aðgöngumiðar seldir í dag kl.
13,15—20. — Aðgöngumiða-
salan er í anddyri hússins,
sími: 80000
BÆJARBIO
HAFNARFIRÐI
Meðal mannæta
og villidýra
Sprenghlægileg, mjög spennandi
ný amerísk kvikmynd. Aðalhlut
verk leika vinsælustu grínleik-
arar, sem nú eru uppi:
BXJD ABBOTT
og
LOU COSTELLO
ásamt ljónatemjaranum Clyde
Beatty.
Sýnd kl. 7 og 9.
. Biml 11936.
Hitler
og Eva Braun
Stórmerk amerísk frásagnar-
mynd um nazistana þýzku og
stríðsundirbúning, þættir frá
Berchtesgaden, úr ástarævin-
týri Hitlers og Evu Braun.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð innan 12 ára.
Kalli óheppni
Sýnd kl. 3.
TRIPDLl-BÍÖ
lilagiiin
(PANHANDLE)
Afar spennandi, ný, amerísk
mynd, gerð eftir sögu eftir
Blake Edwards. Aðalhlutverk:
ROD CAMERON
CATHY DOWNS
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sími 1182.
Tökum að okkur allskonar
raflagnir önnumst elnnlg
hverskonar viðhald og við-
gerðir.
Raftækjaversl. LJÓS & HITI
Sími 5184. Laugaveg 79,
Rcykjavík
Auglýsingasími
| Tímans
| er 81300.
Odýr matarkaup i!
Saltað tryppakjöt
Fryst tryppakjöt
Hraðfryst folaldakjöt
Reykt folaldakjöt.
Samband ísl. samvinnufélaga
Sími 2678.
íiEKIST ASKBIi EADl B AÐ
TIMAIVIJM. - VSKBHTASIMI 2323.
WILLY CORSARY:
85. dagur
Gestur í heimahúsum
látlaust í eyrum hans. Allt í einu mundi hann eftir bréfinu,
sem hann hafði fleygt upp fyrir legubekkinn. Hann spratt
ó. fætur og sótti það.
Hann reif það upp skjálfandi höndum. Svo las hann:
Amsterdam, 6 september ....
Kærr'Ríkarður!
Það var heimskulegt af mér að segja þér þegar eins og
var. Ég skammaðist mín dálítið. En nú hefi ég sigrast á
þeim veikleika, og áður en ég fer, ætla ég að segja þér allt
Jaf létta. Mér finnst það skylda mín. Aannars misskildurðu
kannske atferli mitt, og ég veld þér óþörfu hugarvíli. En
sannleikurinn er þess: Fyrir nokkrum mánuðum fór heyrn
mín að bila, og þetta hefir ágerst stórlega. Ég hefi leitað til
lækna, en ég vissi fyrirfram, að það var gagnslaust. Margt
ættmenna minna hefir verið haldið þessum kvilla, og föður-
systkini mín hafa sagt mér margt af því. Ég vildi ekki SQgja
þér þetta. Ég hélt, að ég yrði brosleg í þínum augum.
. Ég man, að við fórum einu sinni saman í leikhús. Þann
sama dag hafði ég leitað til læknis. Á sviðinu voru tveir
heyrnarlausir menn, sem misskildu hvor annan. Lífði er
stundum kaldhæðið. Allir vemuðu af hlátri, þú líka. En ég
gat ekki einu sinni brosað. Andlegir jöfrar á borð við Beét-
hoven verða ekki hlægilegir, þótt þeir heyri illa, en eigi
venjulegt fólk hlut að máli, kemur enginn auga á, hve sorg-
leg örlög slíkt er — nema kannske læknar.
Þú hélzt sjálfsagt, að mér vöknaði um augu af kátínu.
En nú er ég farin að sætta mig við þetta. Ég ætla að læra
að skilja varahreyfingar fólks. Það verður í rauninni
skemmtilegt nám, og kannske kemst ég á þann hátt að
leyndarmálinu, sem aðrir missa af. Þarna færðu enn eina
sönnun þess, hve forvitin ég er — þú stríddir mér ekki svo
sjaldan á því. Svo eru lika til heyrnartæki, sem gera krafta-
verk. En fyrst um sinn ætla ég samt að hafa sem minnst
saman við fólk að sælda, og þess vegna ætla ég af landi
burt. Okkar kunningsskap er hvort eð er lokið. Sérðu ekki í
anda þig sjálfan, öskrandi í heyrnartækið, og mig koma með
te handa þér, þegar bú biður mig um að kyssa þig? Það
hefði orðið svipað með okkur og karlana á leiksviðinu. En
ég ann þér betra hlutskiptis, og þú átt betra skilið. Það væri
leiðinlegt fyrir þig að þurfa að segja við fólk: — Gerið svo
vel að tal hærra — konan mín er heyrnarlitil....
Ég þakka þér kynni okkar. Þú skalt ekki vorkenna mér,
þvi að ég er þegar farin að sjá hina broslegu hlið þessa
heilsubrests. Þú hefðir átt heyra mig tala við konu, sem er
jafn heyrnarsljó og ég, en hélt þó að hún skildi mig. Og svo
verður það þægilegt fyrir mig, að nú trufla útvarpstæki ná-
búanna mig ekki framar.
Ég óska þér alls góðs, Ríkarður, og skilaöu kveðju frá mér
til föður þíns. sem ætíð var mér góður. Ég vona, að þú verðir
mér ekki lengur reiður, er þú hefir lesið þetta bréf. Segðu það
við sjálfan þig, að þú sért ekki reiður við mig, hvíslaðu
því — þá, heyri ég það.
Sabína.
Klukkan tíu var hringt til hans. Hann heyrði yfirhjúkr-
unarkonuna segja:
— Ég held, að þér ættuð að koma.
Hann gat ekki svarað. Það var eins og hann gæti hvorki
hreyft legg né lið. Loks tókst honum þó að stama út úr sér
einhverjum þakkaryrðum.
Honum fannst vera orðið dauðahljótt í kringum sig. Það
var eins og hann væri snögglega orðinn heyrnarlaus. Hann
hljóp út i bifreiðaskýli föður síns og ók á fleygiferð í áttina
til sjúkrahússins. Gladíólurnar og rósirnar í görð-
um urðu að marglitum strikum, en angan þeirra var
sterkari en eimur af bensíninu. Það getur ekki verið satt,
sagði hann í sífellu við sjálfan sig. Það má ekki vera
satt. Ég vil það ekki. Örvænting og þrjózka börðust heiftar-
legri baráttu í brjósti hans, og hapn nísti tönnunum.
Læknirinn sat við rúm Sabínu og hélt utan um úlnliðinn
á henni. Æðaslátturinn varð æ veikari. Hann kinkaði kolli
og stóð upp, þegar Ríkarður kom og bauð honum að setjast
í sæti sitt.
Ríkarður settist og tók utan um smáa hönd Sabínu. Hún
var ekki lengur heit. Hún var þvöl og köld, og það lá við, að
hjartað stöðvist í brjósti hans, er hann fann það.
Lífið hefir alltaf leikið við mig, hugsaði hann, og ég hefi
öðlazt allt, sem ég óskaði mér.... Það er ekki gott og ekki
réttlátt. Fyrr eða seinna verð ég að jafna reikningana. Hann