Tíminn - 22.04.1950, Síða 7
87. blað
TÍMINN, laugardaginn 22. apríl 1950
7
Þjóðiii má ekki
bogna ....
(Framhald af 5. síðu.)
hafa orðið að viðundri víða!
úti um heim fyrir hóflausa'
fjársóun og bruðl. Slík dæmi
hjá jafn fátækri og fámennri
þjóð eru því miður of mörg
og hafa sejit smánarstimpil á
þjóðina. Flestir hafa haft
meira fé milli handa hinn
síðasta áratuginn, en þekkst
hefir hjá oss áður, en kapp-
hlaup virðist hafa verið um
að eyða fénu jafnótt og það
aflaðist. Vilja til sparnaðar
og aðsjálni í fjárgæzlu hefir
lítt gætt. i
Þegar alls. þessa er minnst
og margt fleira mætti nefna,
þarf engan að undra þótt
þröng sé í búi hjá þjóð vorri
nú. Við höfum lifað yfir efni
fram. Eina úrræði til úrbóta
er að kannast við það og gera
ráðstafanir í sambandi við j
það. Hver þjóðfélagsborgari
verður að gera sér ljóst, að
þau sjúkdómseinkenni, sem
nú ber á í atvinnu- og fjár-
hagslífi þjóðarinnar, verða
ekki læknuð nema með
sameiginlegu átaki og allir
verða að herða nokkuð að sér,
og þá. fyrst og fremst þeir,
sem bezta hafa aðstöðuna og
mest hafa grætt að undan-
förnu.
Góðir hlustendur! Þetta
þykir ef til vill ekki gleðileg-
ur sumarboðskapur, sem ég
flyt hér. — En ég tel sjálf-
sagt að segja tæpitungulaust
frá hlutunum eins og þeir
eru. Þótt ýmsir örðugleikar
séu fyrir hendi nú, og sumir
þeirra mjög alvarlegir, er á-
stæðulaust að vera með vol
eða víl. Þjóð okkar hefir kom-
izt í hann krappan fyrr og
staðið storminn af sér. Það
sem nú þarf að gera, er að
efla meginatvinnuvegi þjóð-
arinnar til lands og sjávar.
Að þvi verða allir sameigin-
lega að vinna.
Fólk hefir að undanförnu
flúið frá framleiðslustörfum
til annarra léttari og ómerk-
ari starfa. Hér þurfa að verða
straumhvörf. Þótt aflatregða
og markaðsörðugleikar hafi
kreppt að íslenzkum sjávar-
útvegi, þá er það ekki annað
en þekkst hefur áður. Fiski-
miðin höfum við enn, sem
vonandi tekst að nýta skyn-
samlega svo að þau, eins og
verið hefir, eigi með réttu
nafnið gullkista þjóðarinnar.
Nú spyrja fleiri ungir menn
eftir möguleika til þess að
reisa bú í sveitum, en verið
hefir um langt skeið. Hrað-
virkar skurðgröfur þurrka ár
hvert fleiri þúsund ha. af hin-
um ágætu íslenzku mýrum.
Landið skiptir um svip á fá-
um árum. í stað forblautra
fúamýra koma valllendis-
flákar, þar sem síðar verða
reist blómleg býli.
Þetta verður gert ,ef þjóð-
in vill, ef hún skilur það, að
eina vopnið, sem hún hefir í
höndum til þess að vernda
stjórnarfarslegt og fjárhags-
legt sjálfstæði, er efling at-
vinnuveganna.
Bjarni skáld Thorarensen
segir:
Fjör kenni’ oss eldurinn,
frostið oss herði,
fjöll sýni torsóttum
gæðum að ná.
Bægi sem Kerub með
sveipanda sverði
silfurblár Ægir oss
kveifarskap frá.
SERLEYFISLEIÐ
laus til umsóknar
Með því að fyrirhugað er að leysa ríkissjóð frá rekstri
áætlunarbifreiða, er sérleyfisleiðin Reykjavík-Akur-
eyri eða Akranes-Akureyri laus til umsóknar frá og
með 1. júní eða 1. júlí 1950 að telja.
Umsóknir skulu sendar póst- og símamálastj órninni
fyrir 10. maí næskomandi.
Upplýsingar um ferðafjölda, og annað viðkomandi
leiðinni, gefur póst- og símamálastjórnin.
Takiö eftir! (
Hvaða rit er myndarlegasta mánaðarrit landsins, 32 ::
iitprentaðar síður með mörgum myndum og fjöl- H
breyttu efni? ::
5AMVINNAN II
::
er glæsilegasta heimilisblaðið. I henni er að finna ::
fjölbreytt, skemmtilegt og fróðlegt lestrareíni, heppi- H
íegt til frístundalesturs á heimilunum um land allt. »
Vegna innflutningserfiðleika verður óhjákvæmilegt ||
að takmarka upplag Samvinnunnar töluvert í náinni H
framtíð. Það má því gera ráð fyrir því, að einungis H
íastir áskrefendur geti átt þess kost að fá ritið reglu- «
lega framvegis. H
Póst- og símamálastjórnin 19. apríl 1950 ||| SAMVINNAN
Atvinna
Stúlka óskast til að veita rekstri veitingahúss for- H
♦♦
stöðu. Komið getur til mála að tvær stúlkur taki sam H
eiginlega að sér að annast reksturinn. Upplýsingar gef
ur framkvæmdastjóri félagsins.
Kaupfélag Stykkishólms ||
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦••♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦«•♦♦■
’♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«
»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦«
Húseigendur í Reykjavík
Brunabótagjald húseigna í lögsagnarumdæmi Reykja
víkur fyrir árið 1950 til 1951 féll í gjalddaga 1. apríl.
Gjaldið ber að greiða í skrifstofu vorri Austurstræti
10A kl. 9 til 12 og 1 til 4.
Almennar Tryggingar h.f.
íslendingar munu enn til-
einka sér og hafa sem leiðar-
merki þessi karlmannlegu
orð skáldsins, láta erfiðleik-
ana stæla viljann, en ekki
bogna fyrir þeim.
★
f dag verður þjóðleikhús
vígt hér i höfuðborg vorri. Þar
rætist einn aj: óskadraumum
þjóðarinnar. Tuttugu ár eða
meir hefir tekið að reisa
þetta hús, sem á að verða í
framtíðinni ein meginstoð ís-
lenzkrar tungu — íslenzkrar
menningar. Allir íslendingar
gleðjast yfir þeim sigri, sem
hér er unninn og allir vona
að það menningarstarf, sem
þar fer fram á komandi ár-
um og öldum, svari til djörf-
ustu vona þeirra, sem mest
hafa beitt sér fyrir þessu máli.
Það er táknrænt að opna
þjóðleikhúsið á sumardaginn
fyrsta, þann dag, sem einna
* I
::
kostar aðeins kr. 25,00 árgangurinn og er því langódýr u
asta mánaðarrit landsins enda þótt það sé bæði stórt, H
fjölbreytt og skemmtilegt. H
✓ n
H Hvaða tímarit býður betri áskriftakjör en Samvinn- H
an? Aðeins kr. 25,00 á ári fyrir tólf 32 síðna litprent- H
u<5 hefti. Gjalddagi er 1. júlí ár hvert. í Reykjavík er «
áskriftaverðið innheimt með póstkröfu, úti á land ||
anast kaupfélögin, hvert á sínu félagssvæöi, innheimt- j|
una. »
SAMVINNAN
ráðleggur áhugamönnum aö tryggja sér áskrift að rit-
inyi strax í dag með því að senda meðprentaðan á-
skriftaafklipping útfylltan til Samvinnunnar, Sam-
bandshúsinu, Reykjavík.
ÁSKRIFTAAFKLIPPINGUR
Til Samvinnunnai, Sambandshúsinu, Reykjavík
Undirritaður óskar að gerast áskrifandi að Sam
vinnunni.
Nafn...........
Heimili.........
Kaupfélagssvæði
GÓÐ BÚJÖRÐ
í Vestur-Skaftafellssýslu
’ f
<> fæst til kaups eða leigu í næstu fardögum, sauðfjár-
beit ágæt og silungsveiði árið um kring og fleiri hlunn J [
indi. Upplýsingar gefur Eiríkur Ormsson, Sími 1467
bjartast er yfir í huga flestra
íslendinga.
Þjóðleikhúsið er eitt dæmi
um dugnað og stórhug þessar-
ar fámennu þjóðar, og hvað
hún héfir afrekað síðustu
áratugina. En með hverju
slíku átaki, hverju nýju
menntasetri, koma auknar
kröfur til framléiðslustétt-
anna, þörf fyrir meiri fram-
leiðslu til þess að standa
straum af hinum nýju verk-
efnum.
Sumardagurinn fyrsti er
sérstaklega helgaður börnun-
um. Það sýnir hve þjóðin ann
þeim degi og hve miklar von-
ir eru bundnar við komu sum-
arsins.
Síðustu orð mín að þessu
sinni eru þau, að þetta sumar
verði þjóðinni og hverjum
einstaklingi hennar gott og
gjöfult.
Gleðilegt sumar.
TILKYNNING
Innflutnings- og gjaldeyrisdeild Fjárhagsráðs hefir
ákveðið eftirfarandi hámarksverð á Coca-cola:
í heildsölu 3/16 ltr.............kr. 0.77
í smásölu 3/16 ltr...............kr. 1.05
Hámarksverð þetta gildir í Reykjavík og Hafnarfirði
en annars staðar á landinu má bæta við verið sam-
kvæmt tilkynningu Viðskiptanefndar nr. 28/1947.
Söluskattur er innifalinn í verðinu.
Reykjavík, 19. apríl 1950
Verðlagsstjórinn
!
Jörð til sölu
Jörðin Jarðlaugsstaðir í Borgarhreppi í Mýrasýslu
er til sölu. Jörðin er mjög góð sauðjörð. Ræktunarskil-
yrði góð. Mikill skógur og landrými mikið. Laxveiði í
Langá. Semja ber við Fasteignasölumiðstöðina, Lækj-
argötu 10B. Símar 6530 og 5592 eða eiganda jarðarinn
ar Erlend JónsSon, Leifsgötu 19. Sími 80517.