Tíminn - 06.07.1950, Blaðsíða 2
2
TÍMINN, fimmtudaginn 6. júlí 1050
145. blaði
I nótt
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni sími 5030
Næturvörður er í Ingólfs-
apoteki sími 1330
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Hekla fer frá Reykjavík kl.
21 í kvöld til Glasgow. Esja er á
leið frá Austfjörðum til Rvíkur.
Herðubreið fór frá Reykjavík
kl. 21 í gærkvöld austur um
land til Bakkafjarðar. Skjald-
breið fór frá Reykjavík kl. 20 í
gærkvöld til Snæfellsnesshafna,
Gilsfjarðar og Flateyjar. Þyrill
er norðanlands. Ármann fer
frá Reykjavík á morgun til Vest
mannaeyja.
Eimskip.
Brúarfoss er í Reykjavík. Detti-
foss fer frá Reykjavík um há-
degi í dag, 6.7. til Hull, Rotter-
dam og Antwerpen. Fjallfoss
fór frá Leith 3. júlí til Halmstad
í Svíþjóð. Goðafoss fór frá
Reykjavik í gærkvöld til Ham-
borgar. Gullfoss frá Leith 4.
júlí til Kaupmannahafnar.
Lagarfoss fór frá Akranesi 29.
júní til New York. Selfoss er
í Reykjavík. Tröllafoss fór frá
New York 30. júní til Reykja-
víkur. Vatnajökull er á Norður-
landi, lestar frosinn fisk til
New York.
Flugferðir
Ferðafélag: Islands
hefir ráðgert að fara 2
skemmtiferðir hiinginn í kring-
um land og leggja af stað 13.
júlí. Skipt verður um farartæki
á austfjörðum. nær alla leiðina
ferðast í bifreiðum, en þó líka
á bátum, ríðandi og gangandi.
Hver ferð tekur 13 daga. Ferð-
irnar verða því aðeins farnar
að sé nægileg þáttaka, en það
verður ákveðið þ. 10. þ. m. kl.
5 e. h. Allar upplýsingar á skrif
stofunni í Túngötu 5.
Snlka Vnlkn
%
(Framhald af 1. síðu.)
innar, eftir þvi sem þurfa
þykir.
Pétur Þ. J. Gunnarsson tók
það fram í viðtali við blaða-
menn í gær, að engin hætta
væri á, að Stef kæml í veg
fyrir þessa kvikmyndatöku,
eins og þegar kvikmynda átti
Fjalla-Eyvind. liann kvað
höfundinn, Halldór Kiljan
Laxness, hafa verið hinn sam
vinnuþýðastan á allan hátt.
Frumsýning ,verður sam-
tímis í París og Reykjavík í
nóvember og desmeber í
haust.
I slandsheftlð
(Framliald af 1. síðu.)
irnar, nýja list og loks er í
ritinu heimilislýsingar.
Er vert að geta þess, að rit
stjórinn Stig Björkman, sem
er góður íslandsvinur, hefir
farið allmikið út fyrir hinn
venjulega efnisramma rits
síns er hann gefur út þetta ís
lands-hefti, með að hafa í
því, ekki einupgis lýsingar á
íslenzkum heimilum, heldur
fjölbreytta mynd af íslandi,
menningu þess og sögu á öðr
um sv^ðum líka.
Tildrögin að því að þetta
hefti kemur út eru þau, að
á Norrænu list- og handiðn-
aðarmóti í Stokkhólmi 1948,
sem samband listiðnaðarfélag
anna og tímaritið Svenska
Hem efndu til, kom það til
tals að gefa slíkt hefti út.
Annaðist Þorleifur Kristófers
son ,starfsmaður hjá Reykja
víkurbæ um efnissöfnun og
undirbúning hér heima. En
Þorleifur tók þátt í umræddu
mótií Svíþjóð og hafði áður
verið kunnugur Stig Björk-
man ritstjóra Svenska Hem.
Nokkur eintök af íslands-
hefti Svenska Hem munu
verða til sölu í bókabúðum
hér í bænum í dag.
Loftleiðir h.f.
Innanlandsflug: 1 dag er á-
ætlað að fljúga til Vestmanna-
eyja kl. 13.30, til Akureyrar kl.
15,30. Auk þess til Ísafjarðar
og Patreksfjarðar.
Á morgun er áætlað að
fljúga til Vestmannaeyja, Akur-
eyrar, ísafjarðar og Siglufjarðar
Utanlandsflug: „Geysir“ kom
í gær kl. 15,00 úr áætlunarferð
frá Kaupmaftnahöfn.
Flugfélag fslands.
í dag ér áætlað að fljúga til
Akureyrar kl. 9,30 og kl. 16, 00.
Þá verður einnig flogið til
Blönduóss, Sauðárkróks, Kópa-
skers, Vestmanneyja, Reyðar-
Frá Akureysi er ráðgert að
íljúga til Siglufjarðar, Ólafs-
fjarðar og Kópaskers.
Á morgun eru áætlaðar flug-
ferðir til Akureyrar (2 ferðir),
Vestmannaeyja, Kirkjubæjar-
klausturs, Fagurhólsmýrar,
Hornafjarðar og Siglufjarðar.
Arnað heilla
Hjónaband
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af séra Jakop Jóns-
syni, ungfrú Guðný M. Páls-
dóttir frá Skagaströnd og Hjalti
Elíasson rafvirki. Heimili brúð-
hjónanna verður í Kamp Knox
D 2
Úr ýmsum áttum
Happdrætti Háskóla íslands
Dregið verður í 7. flokki mánu
dag 10. júlí. Menn ættu að at-
huga að endurnýja í tæka tíð
og að á laugardag verður um-
boðum yfirleitt lokað á hádegi.
Frá Rauða Krossi Islands:
Farangur barnanna á Silunga
polli á að vera kominn að Varð-
arhúsinu kl. 10 á föstudágsmorg
un, 7. júlí.
Börnin fara sama dag kl. 4
frá Varðarhúsinu.
M.s. Hekla
fer frá Reykjavík kl. 21 1
kvöld (ekki kl. 20 eins og áð-
ur var auglýst) til Glasgow.
Farþegar þurfa að vera komn
ir um borð kl. 20 og hafa þá
lokið við að láta tollskoða far
angur sinn.
Snyrtimennska mun vera
eiginleiki, sem íslendingum er
ekki gefinn í ríkum mæli. Þess
má allsstaðar sjá. dæmi. Um-
gengni við fjölda sveita bæja
tala sínu máli um skort á snyrti
mennsku. Skran og rusl í port-
um og á húsalóðum í kauptún-
um og kaupstöðum vitna um
hið sam^. Ðyngjur af sorpi, sem
ekið er ur sumum kaupstöðun-
um og kastað af handahófi með
fram fjölförnum þjóðvegum,
sýna, að sumstaðar eru yfir-
völd, sem ekki eru hátt hafin
yfir almenning á þessu sviði.
Breiður af dósum, bréfum og
flöskum og hverskonar hroða
á ýmsum fegurstu stöðum lands
ins koma upp um ferðafólkið
— það hefir ekki þá næmu
tilfinningu fyrir helgi landsins
og dýrð náttúrunnar, er ætla
mætti í skjótu bragði af því,
hve mikið það leggur í sölurnar
til þess að ferðast og sjá sig um.
Önnur grein á þessum sama
stofni íslenzks sóðaskapar og
hirðuleysis birtist í beinni
skemmdafýsn. Þeir, sem eiga
garðiönd eða gróðurreiti, kann-
ast við þann þátt í fari niðja
hinn^ norrænu konunga og
víkinga, er þetta land byggja.
Eigendur sumarbústaða slíkt
Prjónavél
óskast
Prjónavél i góðu lagi óskast
keypt. Helst sleðavél. Tilboð
-er greini verð sendist afgreið-
slu Tímans Lindargötu 9A,
merkt „Prjónavél"
hið sama. Umsjónarmenn frið-
aðra syæða og eigendur skóg-
lenda og annara fjöisóttra staða
einnig.
Umferðarmerki við vegi og
jafnvel í sjálfum bæjunum virð-
ast eftirsótt af þessu fólki, er
svala þarf skemmdafýsn sinni.
Þau eru beygluð og skæld og
jafnvel sundurskotin. Við Krýsu
vikurveginn, rétt sunnan við
Hafnarfjörð, eru umferðarmerk
in eins og gatasigti eftir þá,
er hafa leikið sér að því að
skjóta af rifflum yfir skranhaug
ana, eftir endilöngum veginum,
að því er virðist. Slíkt má sjá
víðar. Hvert skotgat er vitnis-
burður um menningarástand
þeirra, sem þar hafa verið á
ferð.
Ég minntist hér á dögunum
á salernin í veitingahúsunum
meðfram þjóðvegunum . Þar
speglar þjóðin enn hirðusemi
sína, umgengnismenningu og
þrifnað, bæði ferðamennirnir I
og veitingafólkið, sem hlut á
að máli. Um síðustu helgi kom!
ferðafólk í fjölsótt veitingahús
austanfjalls. Þar flaut saur og I
þvag út yfir gólfið. Ánægjulegt
dæmi um íslenzka siðmenningu!
J. H.
tltbreiiil Tíntanh
AUGLÝSING
um embætti verðgæzlustjóra
Samkvæmt lögum nr. 37, 27. apríl 1950, skal 7 manna
nefnd tilnefnd af stéttarsamböndunum gera tillögur
til ríkisstjórnarinnar um hver skuli skipaður Verð-
gæzlustjóri.
Þeir sem kynnu að vilja sækja um þetta starf eru
beðnir að senda umsóknir sinar til formanns nefndar
innar, Jóns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Alþýðu-
sambands íslands fyrir 1. ágúst n. k,
Reykjavík 5. júlí 1950
Verðgæzlunefnd
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem á margvís-
legan hátt sýndu okkur samúð og hjálpfýsi við andlát
og jarðarför
INGIRÍÐAR JÓNSDÓTTUR, HöU
Aðstandendur.
BLAÐGJOLD
utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar eru sem
hér segir:
Á mjólkursvæði Reykjavíkur og á Akureyri
kr. 115,00 árgangurinn.
Annars staðar á landinu kr. 90,00 áag.
Munið að blaðgjald ársins 1950 er fallið
í gjalddaga.
Innheimta Tímans
i
Lokað
vegna sumarlcyfa frá 10.—24. júlí
Davíð S. Jónsson & Co.
Vzð seljum:
30% og 40% ost
í heildsölu
Samband ísl. samvinnufélaga
Síini 2678
iiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiiiiiHiHiiiiiiiHiiiHiiimiiiiiiiiiinitiiiiimiuiitiiiiiuiiuMiuiiiiiiiiMiiiiiiiuiiiuiiUMimiiuuiiii
| Snúnings- og Múgavéiar |
| af hinum góðkunnu Massey-Harris gerðum, fyrir- |-
I Þggjandi.
:»»»»»»»»»»£