Tíminn - 27.07.1950, Side 1
----------------------------
Skrifstofur í Edduhúsinu
Fréttasímar:
81302 og 81303
Afgreiðslusimi 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
—-----------------------—->
34. árg.
Reykjavík, fimmtudaginn 27. júlí 1950
161. blað
Hafizt verður handa
um nýja Laxárvirk|un
Samkonuilag milli Akorpyrarbæjar ©g
ríkissjóðs um virkjaiiiaa sem ná cr að
hef Jast
Frá fréttaritara Timans á Akureyri.
Á næstunni verður hafizt handa um hina nýjú virkjun
við Laxá í Þingeyjarsýslu, en mál þctta liefir verið á döf-
inni nú um nokkurt árabil. Hefir náðst samkomulag milli
Akureyrarkaupstaðar og ríkisins um viðbótarvirkjun og
er atvinnumálaráðuneyíið nú búið að skrifa stjórn virkj-
unarinnar, þar sem heimild er veitt til hverskonar ráðstaf-
ana viðvíkjandi verkinu og óskað eftir að því verði flýtt
svo sem verða má.
Langur aðdragandi.
Undirbúningur að þessari
viðbótarvirkjun er hafinn
fyrir alllöngu síðan. í fyrra
var lokið við að byggja verka
mannaskýli fyrir austan,
gera nauðsynlegar vegabæt-
ur og flýta á annan hátt fyrir
aðalstarfinu, þegar það hefst
sem væntanlega verður mjög
bráðlega.
Þessarar viðbótarvirkjunar
er orðin brýn þörf, bæði fyrir
Akureyrarkaupstað, sem und-
anfarið hefir búið við ónógt
rafmagn og eins vegna sveit-
anna, sem nú er áformað að
fái raforku frá virkjuninni
við Laxá. Er áætlað að nú
verði reist viðbótarvirkjun
hjá gömlu aflstöðinni. Verð-
ur þessi nýja virkjun sam-
tals um 11500 hestöfl.
Samningar Akureyrar-
bæjar og ríkisins.
Hinn 12. þ. m. voru undir-
ritaðir samningar milli Ak-
ureyrarkaupstaðar og ríkis-
ins um hina væntanlegu virkj
Vonzkuveður á
síldarmiðUnum
í gær
Bsitaflotinn liggur
í landvari
í gær var vonzkuveður úti
fyrir Norðurlandi og ekki um
neina sildveiði að ræða. Báta
flotinn mun yfirleitt hafa
haldið sig í vari. Var svo
slæmt veður á austursvæðinu,
að síldarskip sem stödd voru
við Langanes komust ekki yf
ir Þistilfjörð til Raufarhafn-
ar, heldur héldu sig i vari.
Ekkert mun þó hafa orðið að
á síldveiðiflotanum í gær, eft
ir því sem bezt verður vitað.
í fyrrinótt komu fáein skip
til Raufarhafnar, flest með
litla síld. Þau sem komu með
mestan afla voru Valþór með
650 mál, Hilmir 476, Bragi
410 og Vörður 462. Önnur
með minna og flest aðeins
lítið.
un. Síðan hefir stjórn virkj-
unarinnar verið falið með
bréfi frá atvinnumálaráðu-
neytinu að hefjast handa um
verkið og henni veitt heimild
til að gera þær ráðstafanir i
sambandi við það , er þurfa
þykir, enda sé það gert 1 sam
ráði við bæjarstjórn Akureyr
ar. Leggur ráðuneytið áherzlu
á aö verkinu verði hraðað,
eins mikið og fært þyki.
Ný stjórn virkjunarinnar.
Hin nýja stjórn Laxárvirkj-
unarinnar er skipuð þremur1
mönnum kosnum af bæjar-1
stjórn Akureyrar, þeim drJ
Kristni Guðmundssyni, Stein
dóri Steindórssyni og Steini;
Steinsen. Tveir menn eru skip
aðir í stjórnina af ríkisstjórn!
inni og eru það þeir Jakob j
Frímannsson , og Iridriði
Helgason.
Stjórnin kom saman til
fyrsta fundar hinn 12. þessa
mánaðar, og var þar rætt um
ýmislegt viðvíkjandi hinum
fyrirhuguðu framkvæmdum,
svo sem tilboð og kaup á vél-
um. Á þessum fyrsta fundi
mættu þeir Sigurður Thorodd
sen verkfræðingur og Eiríkur
Briem rafveitustjóri ríkisins.
Hverjum verður falið
verkið?
Ekki er ennþá fyllilega á-
kveðiö hverjum verður falin
framkvæmd verksins. Stjórn
virkjunarinnar mun hafa lit-
izt vel á tilboð frá byggingar-
félaginu Stoð frá Reykjavik.
Munu Akureyringar fara
fram á ýmsar breytingar og
lagfæringar á tilboðinu, svo
sem það, að tryggt verði. að
(Framhald á 7. síðu.)
Einn þekktasti biaðamaður
íslendinga, Skúli Skúlason
ritstjóri, er sextugur í dag.
Hann varð stúdent tvítug-
ar að aldri, lagði síðan um
skeið stund á verkfræðinám,
náttúrufræði og landafræði,
en gerðist blaðamaður 1915.
Á hann því jafnframt sex-
tugsafmælinu þrjátíu og
fimm ára blaðamannsafmæli
á þessu ári.
Hann hefir lengi verið rit-
stjóri Fálkans, en dvalið lang
dvölum í Noregi og gegnt þar
blaðamennsku og ritstörfum,
enda er hann kvæntur
norskri konu.
Skúli hefir tekið mikinn
þátt í ýmsum félagsmálum,
meðal annars staðið árum
saman framarlega í Ferða-
félagi íslands, og formaður
Blaðamannafélags íslands
var hann í mörg ár.
Allir islenzkir blaðamenn
munu óska Skúla hjartanlega
til hamingju á þessum afmæl
isdegi og þakka honum gott
samstarf og ánægjulegar sam
verustundir.
Bretar heiðra
björgunarmenn
ilátíðlcg aíhöfn hjá brexka sendiherranum
í gær, er Sl.ysavarnaféla8inu voru færðar
gjafir, en iijjtirgunarmeim lilutu viður-
kenningu
t gær voru heiðraðir íslenzkir menn, sem unnu að björgun
skipshafnar af brezkum togara, er strandaði við Reykjanes
í aprílmánuði síðasíliðnum. Var halðin hátíðleg athöfn í
brezka sendiherrabústaðnum í gær, þar sem gjafir og heiðurs
viðurkenningar voru afhentar og ræður fluttar af hálfu
Breta og íslendinga.
Mikið af heyi úti
í Rangárþingi
Óþurrkar hafa verið í meg
inhluta Rangárvallasýslu í
nær tvær vikur, og eiga menn
orðið mikið af heyi úti. Eru
sumir bændur hættir að slá
um sinn.
Vestast í sýslunni mun
minna hafa vætt.
Langvarandi óþurrk
ar á Héraði
Margir bændur hafa
enn cngu náð inn
Sífelldir óþurrkar hafa
verið á Fljótsdaíshéraði í
þrjár vikur, og hafa sumir
bændur ekki enn getað hirt
eina einustu tuggu af heyi.
Þeir, sem fyrst byrjuðu slátt,
hafa aðeins náð inn litlu
einu, er búið var að losa,
áður en rigningarnar hóf-
ust. —
Taða liggur unðir skemmd
um í öllu héraðinu, og auk
þess hnekkir það vexti, að
heyið liggur flatt á túnun
um. Eru menn orðnir mjög
áhygjufullir af þessum sök-
um, og veldur þetta óhjá-
kvæmilega mjög mikilli rýrn
un á heyfeng, ef ekki gerir
góðan þurrk mjög bráðlega
Tún eru víðast hvar vel
sprottin á Héraði, og hætta
á að þau spretti úr sér, ef
túnasláttur dregst til muna
vegna óþurrkanna, en til-
gangslaust er að slá, ef ekki
gefur þurrk.
Strandaði í þoku
við Reykjanes.
Nánari tildrög þessarar við-
urkenningar, sem íslenzkir
björgunarmenn hafa orðið
aðnjótandi eru þau, að hinn
24. apríl síðastliðinn strand-
aði brezki togarinn Preston
North-End í þoku rétt við
Reykjanes. Hvassviðri var og
var talið að allir mennirnir
hefðu farizt, ef fljótlega hefði
ekki tekizt að bjarga.
Að björguninni unnu þrír
vélbátar íslenzkir: Fróði, Jón
Guðmundsson og Sæbjörg,
auk brezkra togara.
Giftusamleg björgun.
Björgun skipbrotsmanna
gekk vel og varð hin giftu-
samlegasta. Tókst íslenzku
bátunum að bjarga 18 mönn-
um af 22 manna áhöfn. Aðr-
ir aðilar björguðu hinum
fjórum, en einn þeirra lézt
þó siðar af völdum vosbúðar
Er talið fullvíst, að ef ekki
hefði tekizt að bjarga svona
fljótt hefðu allir af áhöfn-
inni farizt, enda mátti skip-
ið heita i kafi morguninn
eftir.
Fulltrúar Breta komnir.
Björgunarafrek þetta vakti
talsverða athygli í Bretlandi
og eru nú komnir hingað til
lands þrír skozkir menn til
að verðlauna og sýna þeim
sóma, er stóðu að hinni giftu
samlegu björgun. Tveir þeirra
eru fulltrúar tryggingarfé-
lagsins, en einn fulltrúi út-
gerðarinnar, sem átti tog-
arann.
í gær hafði svo brezki sendi
herrann boð inni, þar sem
hinir brezku gestir afhentu
gjafir sínar. Var það ávísun
til Slysavarnafélagsins. að
upphæö 100 sterlingspund.
Auk þess fá einstaklingar,
sem þátt tóku i björguninni,
31 heiðursskjal, eða skraut-
ritað ávarp, sem þakklætis-
og viðurkenningarvott.
Tveimur þessara manna
var í gær aíhent viðurkenn-
ingarávörpin. Voru þeir báð-
ir úr slysavarnadeildinni í
Grindavík. Eru það þeir Sig-
urður Þorvaldsson og Árni
Magnússon. Til fleiri var ekki
hægt að ná í gær, enda eru
flestir þeirra, sem heiðurinn
eiga að hljóta, bundnir við
skyldustörf í öðrum lands-
fjórðungi, nefnilega við síld-
veiðarnar fyrir Norðurlandi.
Munu brezku fulltrúarnir
fara til Norðurlands í dag og
afhenda þá viðurkenningar
til þeirra manna, sem hægt
verður að ná til.
„Góðar gjafir, en vináttan
meira virði.“
Séra Jakob Jónsson þakk-
(Framhald á 2. síðu.)
Saltað á Dalvík
í fyrradag barst síld til
söltunar á Dalvík í fyrsta
skipti á þessu sumri. Voru
bátarnir Edda og Nói, er með
hana komu.
Þrjár söltunarstöðvar eru á
Dalvík, og munu tvær þeirra
hafa fengið lítið eitt af sild
til söltunar.
i Mikið af smygl-
i vörum í Detti-
i fossi og Trölla-
fossi
| Við leit í Dettifossi, er
\ hann kom frá útlöndum á
} dögunum, fundu tollverðir
} falinn milli þilja ýmsan
} varning, sem ekki var gef-
} inn upp við tollafgreiðslu,
§ svo sem herrabindi, tesett,
} sykurtangir, ávaxtaskeið-
| ar og annan viðhafnar-
} borðbúnað, áfengi og 17600
} vindlinga. Málið er í rann-
} sókn.
} Er Tröllafoss kom síðast
; frá útlöndum fundu toll-
| verðir einnig við leit í hon
1 um 61 hálsfesti úr gull-
} pletti, 58 armbönd úr gull-
} pletti og 62 úrarmbönd úr
I gullpletti og stáli. Varning
| ur þessi var vandlega fal-
! inn. Einn skipverja gaf sig
I fram sem eiganda að þess-
} um varningi. Fékk hann
I kr. 4000.00 í sekt og varn-
! ingur gerður upptækur.
lllllUKIIIIilllllllllllllllllllllilllllllllllllimillllllliilili
”|||III#IIIllll11111*111lllllllllIllllllllll*IIIII•• llllllllllIIII |||||||||M,||||,,||„,|,|||||||||||||||||||||||||HllllllllllllilllllllltlttllllllllltllllllllllllllllllllllllllllllllM*llllltllllll