Tíminn - 23.08.1950, Blaðsíða 4

Tíminn - 23.08.1950, Blaðsíða 4
4. TÍMINN, miðvikudaginn 23. ágúst 1950. 183. blað. NÁTT Það jarðscgutímabil, sem við lifum á, cr kennt við þá lífveru, sem nú kallar sig herra jarðarinnar, manninn, enda mun engin einstök líf- verutegund nokru sinni hafa valdið meiri breytingu á um- hverfi sínu, og það bæði hinni dauðu og lifandi náttúru, en mannskepnan. Fyrsta stóra sporið í átt- ina til herraveldis yfir um- hverfi sínu steig maðurinn í upphafi isaldar, fyrir um 700 þúsundum ára, er hann tók eldinn í þjónustu sína, og með því spori er mannöld talin hefjast. Á meðan mað- urinn var á eldra steinaldar- stigi, þ. e. s. fram yfir lok ísaldarinnar, gætti fremur lít ið áhrifa hans á umhverfi sitt. Þó munu eldar hans oft hafa orðið orsök skógarbruna, og ísaldarmenn munu hafa átt þátt í útdauða nokkurra dýrategunda, t. d. mammúts- ins og irska risahjartarins. Mð byrjun yngri steinaldar, 4000—5000 árum fyrir fæð- ingu Krists, tekur vopna- og verkfæratækni stórum fram- förum og maðurinn tekur að rækta ýmsar jurtir sér til við urværis, akuryrkja hefst. Þar með aukast mjög áhrif hans á umhverfi sitt. Sem dæmi má nefna, að frjógreiningar danska grasafræðingsins Jo- hannes Iversens hafa leitt í ljós, að verulegar breytingar verða á gróðurfari Danmerk- ur á yngri steinöld, breyting- ar, sem ekki verða skýrðar með loftslagsbreytingum, en standa i sambandi við til- kvámu nýs þjóðflokks, sem stundaði akuryrkju og brenndi skóga og kjarrlendi áður en sáð var, þ. e. viðhafði þá ræktunaraðferð, sem köll- uð er sviðningsrækt. Næstu stigin eru uppfynd- ing bronsins og járnsins. Hinir miklu landafundir miðaldanna valda stórum breytingum á gróðri og dýra- lífi gamla og nýja heimsins. Jurta og dýrategundir úr gamla heiminum eru fluttar vestur um haf og breiðast þar út, en amerískar tegundir ber ast austur yfir Atlants ála. Með véltækni 19. aldarinn- ar margfaldast möguleikar mannanna til breytinga á um hverfi sinu og breytingarnar verða líka eftir því. Þetta er öld hinna stóru landnáma Evrópumanna i öðrum heims- álfum og með hverjum ára- tugnum minnka þau svæði, sem ósnortin eru af áhrifum hvítra manna. Ég ætla ekki að rekja hér nánar, hverjum breytingum hin lifandi og dauða náttúra hefur tekið fyrir tilverknað mannanna. í stuttu máli sagt hafa þeir gjörbreytt gróðri og dýralífi á flestum landsvæð- um og raunar einnig á stór- um hafsvæðum. Ýmsum æðri dýrategundum hefir verið út rýmt með öllu, t. d. úruxanum hér í Evrópu, mörgum tug- um fuglategunda hefir verið gjöreytt, og má okkur vera geirfuglinn minnisstæðastur en með útrýmingu hans hcf- um við sett eitt af þeim mörgu metum, sem íslending ar hafa sett, miðað við íbúa- tölu. Gróðri og landslagi hef- ur verið gjörbreytt á stórum svæðum, skógum og villtum ÚRUVERND Wftir dr, Signrð Þórarinssoii -------------;---- :-*-:-\ Á fundi Hins íslenzka náttúrufræðifélags, sem hald- inn var á síðastliðinu hausti og helgaður var 60 ára afmæli félagsins, fiutti dr. Sigurður Þórarinsson jarð- fræðingur erindi um náttúruvernd. Það hefir síðar birtst í Náttúrufræðinginum. Þar sem merkilegt mál er hér mjög vel reifað, tekur Tímann sér bessaleyfi til að birta erindið, og væntir þess, að menningarfélög og áhugamenn um nátíúruvernd gefi umræddu máli gaum og veiti því athygli hvort ekki sé sitthvað í þeirra byggðarlögum, er betur gæti farið í þessum efnum. v gróðri eytt, fallvötn beizluð, stöðuvctn mynduð og önnur þurrkuð út, heimsálfur að- skildar. Og nú stendur mað- urinn á þröskuldi nýrrar ald- ar, atómaldar, og hefur bók- staflega allt líf í hendi sér. Sú hugmynd, að grípa beri' til verndarráðstafana gegn breytingum manna á náttúr- 1 unni, er gömul. Hana má rekja allt aftur til heilags Franciscusar frá Assisi. Það er þó ekki fyrr en á 19. öld að byrjað er á raunhæfum ráðstöfunum til verndar nátt úrumenjum. Árið 1832 er frið- lýst svæði, um fjórir ferkíló- metrar að flatarmáli, kring- um laugarnar Hot Springs i ríkinu Arkansas í Bandaríkj- unum. Síðan líða fjórir áratug ir, þar til næsta svæðið er frið að, og var það hið náttúru- fagra svæði Yellowstone á landamærum Wyoming, Ida- ho og Montana, 8989 ferkíló- metrar að stærð, sem friðlýst var árið 1872 og gert að þjóð- garði, National Park, til þess, eins og segir í þjóðgarðalög- gjöf Bandaríkjanna, að nátt- úra þess megi varðveitast ó- spjölluð komandi kynslóðum til hugsvölunar. Þjóðgörðum í Bandaríkjunum fjölgaði brátt og eru þeir nú, að þjóð- garðinum á Hawaii meðtöld- um, 25, og eru 5 þeirra yfir 2000 ferkílómetrar: Yellow- stone, Yosemite, Grand Cany on, Glacier og Mt. McKinley. Þar að auki eru í Bandaríkj- unum yfir 60 s. k. National Monuments, minni, náttúru- vernduð svæði. Samanlagt eru náttúruvernduð svæði Bandaríkjanna meira en þriðjungur íslands að flatar- máli. Eftir bandarískri fyrirmynd voru þjóðgarðar stofnaðir í mörgum löndum og má með- al hinna stærstu og merkustu nefna Canadian National Park í Alberta, Parc National d’Albert í austurhluta Belg- ísku Congo, en í þeim þjóð- garði er hið mikla eldfjall Nyamlagira, og þjóðgarðana í Argentínu, Suður- Afríku pg Ástralíu. Þess er og skemmst að minnast, að í fyrra frið- lýsti stjórn Nýja Sjálands 1600 ferkílómetrá svæði syðst í landinu I þeim tilgangi ein- um að vernda frá útdauða fuglinn Takahe (Notornis Hochstetteri). (Takahe er skyldur keldusvíninu, á stærð við hænsn, en vængjavana. Hann hafði ekki sézt í marga áratugi og var talinn með öllu útdauður, er hann endur fannst fyrir tveimur árum.) í flestum eða öllum lönd- um á meginlandi Evrópu eru nú þjóðgarðar. Jafnvel í því þéttbýla landi Hollandi eru 55 friðlýst svæði, það stærsta þjóðgarðurinn Veluwezoom, er 39 ferk. í Svíþjóð eru þjóð- garðarnir 15 Þekktastur mun Abiskó, náttúrufagurt og gróð ursælt svæði við suðurströnd Tornetrásk,* sem friðlýst var 1910, en stærstur sænskra þjóðgarða (492 ferkílómetrar) er Muddus, einnig í Lapp- landi, friðlýstur 1942. Þjóðgarðarnir og hliðstæð svæði, sem friðlýst hafa ver- ið af einstaklingum, hafa haft allmikla þýðingu og m. a. forðað nokkrum dýrategund um frá útdauða, t. d. evrópska vísundinum. Brátt var þó sýnt, að slíkir þjóðgarðar nægðu ekki til verndar nátt- úrumenjum, og að þörf var á almennri náttúruvernd. Sá maður, sem talinn er hafa átt mestan þátt i að koma á skipu lagðri almennri náttúru- vernd, er þýzki náttúrufræð- ingurinn Hugo Wilhelm Con- ventz, f. 1855, grasafræðing- ur að menntun, og um þrjá- tíu ára skeið, 1880—1910, for- stöðumaður náttúrugripa- safnsins í Danzig. Árið 1906 var, fyrst og fremst fyrir at- beina hans, komið á fót þýzkri náttúruverndarstofnun, „Staatliche Stelle fiir Natur- denkmalplege in Berlin“, og varð hann fyrsti forstjóri hennar. Conventz fór í fyrir- lestraferðir til margra landa til að vekja áhuga fyrir nátt- úruvernd og skipuleggja frið- unarstarfsemina. Sérstakan áhuga hafði hann fyrir Nor.ð- urlöndum. Fyrirlestrar hans í Kaupmannahöfn 1905 urðu til j þess, að danskir náttúrufræð ingar mynduðu náttúruvernd arnefnd 1906, er leiddi til danskrar náttúruverndar- löggjafar 1917. Hann átti drjúgan þátt í því, að Svíar settu löggjöf um nátt- úruvernd í landi sínu 1909 og Norðmenn ári síðar. Þess má geta, að Conventz var einn hinn fyrsti erlendra náttúru- fræðinga, a. m. k. utan Dan- merkur, sem lét sig Hið ís- lenzka náttúrufræðifélag ein hverju varða. Þegar á fyrsta starfsári félagsins, haustið 1889, skrifaði hann formanni félagsins, Benedikt Gröndal, bréf og árnaði hinu nýja fél-! agi heilla, og hann sendi fél-; aginu vísindarit þegar á fyrsta starfsári þess. Nú munu flest menningar- lönd hafa náttúruverndar- j eða náttúrufriðunarlöggjöf, sem heimilar ríkissjórnunum' friðlýsingu eða aðrar ráðstaf ( anir til verndar náttúrumenj ^ um, lifandi eða dauðum, sam- | kvæmt tillögum náttúruvernd é (Framhald á 7, síðu.) I Á þessu ári hefir margt tíma- rita hafið göngu sína. Flest virð- ast þau gefin út í gróðaskyni og er efnið eftir því. Undantekning í þessum efnum er þó „Líf og list,“ sem tveir ungir mennta- menn, Steingrímur Sigurðsson og Gunnar Bergmann, standa að. Ritstjórarnir virðast hafa fyllsta vilja til þess að láta það ekki kafna undir nafni. Of- snemmt er hins vegar að dæma um, hvernig það tekst, en að ýmsu leyti er ekki illa af stað farið. í „Líf og list“ er fastur þáttur, sem nefnist: Á kaffihúsinu. í seinasta heftinu hljóðar megin- hluti hans á þéssa leið: „Einn sólbjartan hásumardag fyrir skemmstu stóðum vér sunn arlega í Tjarnargötu og virtum fyrir oss dýrð veraldar. Skyndi- lega heyrðist þungur dynur likt og af fótataki herfylkis á göngu. Og sjá, neðan Tjarnargötu kom hópur manna, nær tveimur hundruðum en hundraði, mis- litur söfnuður, konur og karlar, flest fólk með snotrar einkenn- ishúfur, sumt í skrýtnum þjóð- búningum, yfirleitt glaðlegt og frjálslegt. Fremstur gekk kol- svartur reykvískur lögreglu- þjónn, steinsteypt tákn allra jarðneska stofnana. Þetta voru þátttakendur í kristilegu stúd- entamóti á skrúðgöngu suður í háskóla, þar sem sex norrænir fánar blöktu við hún, fegursti systkinahópur meðal allra heims ins fána. Þetta var hressandi sjón, æska, gleði, litir, birta, og féll vel inn í mynd hinnar fögru veraldar, sem við oss blasti. Þannig kom oss þetta fólk fyr- ir sjónir, fagurtlitt og marglitt, enda komið af mörgum löndum. En hvað bjó því í huga? Það hópast saman vegna sameigin- legrar trúar, vegna þess að það telur sig, hver og einn, hafa fundið flís úr sama steini, sjálf- vizkusteininum. Það stendur á biblíulegum grundvelli. Það ef- ast ekki, það veit. Það er sælt og glatt, því að fyrir sérstaka náð hefir lausn alls vanda verið laumað í lófa þess, ásamt vega- bréfi til himnaríkis. Eins og atomfræðingar tala sín í milli mál, sem vér skiljum ekki, svo talar og þetta fólk tungumál, sem oss er hulið. Það talar sitt fagmál, það ræðir um hluti, sem skyn vort nær ekki upp í. Það er ekki vor sök. En vér fordæm- um ekki þetta fólk, heldur sýn- um fagurmáli þess umburðar- lyndi og tökum því ekki illa upp, þótt það sýni oss í fullri vin- semd, hvar helvíti er á landa- kortinu. Það er einkamál þess, hvernig það skipar lífi sínu. En hitt leyfum vér oss að hug- leiða, hversu undarleg mann- eskjan er og hve margvísleg. Hið mannlega á víst alltaf kröfu á samúð manns, og það mun vera mannlegt að vera rétttrúnaðar- maður á biblíulegum grundvelli. En vér getum ekki að því gert, að það magnast hjá oss mótþról, þegar vér hittum menn, sem þykjast ganga með vizkustein- inn upp á vasann. Það er þroska vegur að leita vizkusteinsins, en heimska að finna hann. Sá, sem hefir fundið hann (þ. e. telur sig hafa fundið hann), er búinn aö vera og getur snúið upp tán- um í eitt skipti fyrir öll án þess að missa nokkurs. Sú sjálfum- glaða vissa að hafa í vasanum bréf upp á guð (eða fullkomið mannfélagsskipulag) er andleg- ur dauði hvers þess, sem slíkt bréf fær. Sælir eru þeir, sem ef- ast, því að þeir munu aldrei finna vizkusteininn. Og nú verður oss allt í einu hugsað til Dungals prófessors. Trú og vantrú eru tvíburasyst- ur. Prófessorarnir tveir, Dungal og Hallesby, eru eins og tvö lóð, sem vega salt, sitt á hvorri meta skál. Dungal er að sínu leyti sami ofsatrúarmaðurinn í van- trú sinni eins og Hallesby í rétt- trúnaðinum. Sama sálgerð er í báðum, þótt ólíka stefnu taki vegna einhverra hluta, sem lík- legaNæri hægt að benda á, ef rannsakaður væri æviferill beggja, eins og Hekla er sama eldfjallið, þótt hún gjósi stund- um svörtum vikri og stundum hvítum og leggi ösku sína ýmist í norður eða suður eftir vindátt. Hin þykka bók Dungals, Blekk- ing og þekking, er gegnsýrð af þessari hamslausu ofsatrúuðu vantrú, sem undir eins kemur upp um höfund sinn, auk þess sem hún fyllir hvern þann mann leiða, sem ekki er gæddur á- þekku lundarlagi. Enn einn, sem hefir vizkusteininn í skjala- möppunni. Vér getum haft sögulega á- nægju af rökræðum miðalda- manna um litinn á fjöðrum Gabríels erkiengils. Vér tökum þetta sem eins konar frumstæða fuglafræði á vísindalausri öld. En vér sjáum ekki, hvað oss nú- tímamönnum skulu þykkar bæk ur til að sanna, að skólaspekin hafi farið vill vegar og draga að því líkur, að guð sé ekki til. Dungal getur skrifað eins mörg hundruð siður eins og hann vill til að sanna þetta fyrir sjálfum 1 sér, ef hann þarf þess með, því 1 að þessi mál verður hver og eihn | að gera upp við sjálfan sig, eftir því sem hann hefir persónu og j upplag til. En það er óþarfi að ' gefa slíkt út eins og prédikari. En sem sagt, ekki er ástæða til annars en vera umburðarlynd- ur við hina (van)trúuðu, prófess orana tvo, kannske, er það ekki sjálfra þeirra sök, að þeir hafa fundið vizkusteininn.“ Það er vel ef „Líf og list“ tekst að lifa eftir þeirri lífsreglu, sem hér er gefin, að binda sig ekki við ofþröngar kennisetn- ingar, að vera umburðarlyndur og viðurkenna sjónarmið ann- ara, þótt þau falli ekki alltaf saman við það, sem maður álít- ur sjálfur. Á slíkum grundvelli er hollt að lífið og listin hasli sér völl. Starkaður. Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og jarðarför föður okkar EINARS NIKULÁSSONAR Búðarhóli, Austur-Landeyjum . Börn hins látna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.