Tíminn - 23.08.1950, Síða 8
„ERIÆKT YVUUIT' í DAG
Spronfijufitntdurinn B-36.
„Á FÖRMM YEG1« t DAG
ÞinfirtiHahirhjja
I
Frakkar senda fót-
göngulið tii Kóreu
INforðiirlsoriiiu gerði hnrðar árásir vl8a á
vígiínumii í g'ær en varft ekki ágensft
Franska stjóruin ákvao í gær a3 senda dcild fótgcnju-
liðs íil IÍóreu. Verða í deildinni S00—1800 rnenn. Fundi þeim,
sem þessi áttvörðun var tekin á, síjórnaSi Auriol farseti
sjálfur.
Harðir bardagar á
suðurvíssíöðvunum.
í gœrmorgun hófu sveitir
norðurhersins harðar árásir
syðst á viglínunni í Kóreu og
sóttu í áttina til Fusan.
Tókst þeim aö sækja nokkuð
fram fyrst í stað, en þegar á
daginn leið, tókst stórskota-
liði Bandaríkjamanna að
stöðva sóknina og snúa vörn
í sókn. Hafði suðurherinn tek
ið aftur nokkuð af landi því,
sem hann missti í gærmorg-
un. —
Nokkur átök urðu á allri
víglínunni en vigstaðan
breyttist nær ekkert. Er auð-
séð að suðurherinn veitir nú
miklu öflugra viðnám en fyrr
og viðnámsþróttur hans vex
með hverjum degi.
Á austurströndinni sóttu
sveitir Suður-Kóreumanna
norður frá Pohang og eru nú
um 20 km. norðan við borg-
ina.
Bandarískar flugvélar vörp
uðu um 700 Icstum af sprengj
um á norðurherton og vegi og
iðjuver noi’ðan víglínunnar.
Nýtt met setí í sundi
ylir Eimarsund
Snemma í gærmorgun hófst
kappsund yfir Ermarsund frá
strönd B’rakklands. Hafði
brezka blaðið Daily mail heit-
ið 1000 punda verðlaunum
þeim karlmanni og þeirri
konu er fyrst stigi á land úr
sundi þessu, en auk þess
fengju þeir 250 pund hver,
sem lyki sundinu. í keppn-
inni tóku þátt 18 karlmenn
og sex konur. Fyrstur steig á
land Egyptinn Hassan og
hafði hann synt vegalengdina
á 10 klst.52 mín. og er það
nýtt Ermarsundsmet. Hann
hafði áður synt tvisvar yfir
sundið.
Austurrískur skíðakappi er
nú herforingi í Tíbet
RúíHe^ni1 stjjórninni að loita hjálpar vost-
urveldanna gogn árás frá kínverskuin
komniiinistinn
l'm þessar mundir er allmikið um það rætt að kínverskir
kommúnistar séu að undirbúa herför inn I hið ævaforna
og lokaða fjallariki Tíbet. Ætli þeir að taka landið áður en
brezk og bandarísk áhrif verði þar sterkari en nú er.
Skíðamaður herforingi.
Fyrir skömmu bárust frétt-
ir um það, að austurriskur
verkfræðingur og skíðakappi,
Heinrich Harrer að nafni
væri orðinn æðsti hershöfð-
ingi í Tíbet og réði yfir 10 þús.
manna her, sem aðeins er bú-
inn frumstæðum vopnum enn
sem komið er. Harrer þessi er
tengdasonur hins kunna heim
skautakönnuðar, Wegerners.
Minnir á „Horfin sjónarmið.“
Ævintýri Harrers minnir
helzt á skáldsöguna „Horfin
sjónarmið" sem gerist i Tíbet.
Þetta ævintýri hófst árið 1914,
er Harrer slapp úr herbúðum
í Indlandi og lagði land undir
fót upp í íjöllin. Hann hafði
áður ferðazt til Himalaja-
fjalia í visindaleiðangri, og
nú sjö árum síðar fann hann
þarna í fjöllunum sitt
„shangri-la“.
Með Harrer flúðu tveir aðr-
ir Austurríkismenn, en ann-
ar þeirra var drepinn af ræn-
ingjum við landamæri Tíbet.
Hinn komst til Lhasa ásamt
Harrer og hefir nú unnið um
skeið að leiðbeiningum við
(Framhald á 7. síðu.)
Jarðarför hins
myrta komm-
únistaleiðtoga
Jarðarför kommúnistaleið-
togans, ^sem myrtur var í
Belgíu á dögunum fór fram
í gær. Um 300 þús. verka-
menn i Suður-Beigíu gerðu
hálfrar stundar verkfall með
an á athöfninni stóð, aðallega
iir járn- og kolaiðnaðinum.
Folien forsætisráðherra hefir
ritað ekkju hins myrta sam-
úðarbréf og heitið því, að
belgíska stjórnin skyldi gera
allt sem i hennar valdi stend-
ur til að koma lögum yfir
morðingjann.
Iiestarnir hafa fengið hvíldina eftir vel unnið dagsverk. Þeir njóta hennar vel eftir erfiðið
fyrir sláttuvélinni. Tryppið, sem stendur naest á myndinni hefir verið lokað inni í húsi allan
daginn til þess að það elti ekki móður sína í slægjuna eða flækist fyrir sláttuvélinni. Nú er
það ánægt og klórar sér á kverkinni.
Járnbrautar verk-
fail í Kanada
í gær breiddist járnbrautar
verkfall mjög ört út í Kan-
ada og fara verkfallsmenn
fram á töluverða kauphækk-
un auk fleiri kjarabreytinga.
í gærkvöldi voru yfir 100 þús.
járnbrautarstarfsmenn búnir
að leggja niður vínnu og tal-
ið líklegt að verkfallið mundi
einnig breiðast til Bandaríkj-
anna.
Kanadiska stjórnin kvaddi
þingið saman í gærkvöldi til
að ræða um það alvarlega á-
stand, sem þessi verkfalls-
alda skapar.
Mikil aösókn að Þjóðminja-
safninu í sumar
Safnið flytnr bráfSlega í hin nvju húsa-
kynni, |iar seisi málvorkasafn ríkisins
vorður cinnig' til Inisa
í sumar hafa margir gestir komið að skoða þjóðminja-
safnið. Yfirleitt eru þó fæstir þessara gesta Reykvíkingar.
Meginhlutinn af þeim, sem sækja þjóðminjasafnið, er fólk
utan af landi, sem kemur til Reykjavíkur og svo útlendingar,
sem margir hafa verið hér á ferð í sumar.
Rætt um vestur-
þýzka herlögreglu
Patrick hernámsstjóri
Breta í Þýzkalandi var
staddur í London í gær og
tæddi við Bevin utanrikis-
ráðherra og fleiri starfsmenn
utaniíkisráðuneytisins brezka
Umræðurnar snerust aðallega
um þá tillögu Adenauers for-
seta Vestur-Þýzkalands að
stofna herlögreglu í Vestur-
Þýzkalandi jafnfjölmenna lög
reglu þeirri, sem Rússar hafa
komið á fót á hernámssvæði
sinu.
Nehru fer ekki
til Kína
Stjórn kommúnista í Kina
bauð Nehru forsætisráðherra
Indlands fyrir nokkrum dög-
um til Peking í opinbera heim
sókn. Nú hefir Nehru svarað
boðinu og þakkað það, en
kveðst ekki geta fekið því
vegna anna heima fyrir.
Vilja sitthvað sjá.
Útlendingarnir, sem koma
í þjóðminjasafnið hafa áhuga
á ýmsu. Nokkrir koma bein-
línis í þeim tilgangi í safnið
að sjá eitthvað sérstakt. sem
á safninu er að finna, eða
þeir búast við að geta séð þar.
Þeir, sem þannig koma, eru
þó heldur fáir og flestir þeirra
eru fræðimenn.
Meginhlutinn af útlending-
um fer í gegnum safnið, mis-
jafnlega vandlega, og skoðar
það, sem fyrir augum ber.
Margir skoða sérstaklega vel
ýmsa muni, sem unnir eru
1 með listrænu handbragði og
jsvo elztu fornmipjarnar, vopn
■ og annað slikt.
r f ..
Utanbæjarmenn sækja
safnið meira en
Reykvíkingar.
Það lætur einkennilega í
eyrum, að þjóðminjasafnið í
Reykjavík, skuli vera meira
sótt af fólki utan af landi,
sem er á ferð í bænum, en
borgarbúunum, sem heima
I eiga í nágrenni við það. Ef
I til vill ræður þar einhverju
| um, að þeim, sem í bænum
búa sýnist nægur timi fyrir
hendi, en aðkomufólkiö verð-
ur að nota tækifærið þegar
1 það er í bænum.
Mikil aðsókn að norska
safninu.
Norska deildin I þjóðminja-
(Framhald á 7. síðu.)
Þjóðverjar unnu
5:4
í gækvöldi keppti þýzka
liðið í annað sinn á íþrótta-
vellinum. Að þessu sinni við
Víking, er hafði styrkt lið
sitt með nokkrum aðkomu-
mönnum. — Leikar fóru þann
ig, að Þjóðverjamir unnu
með fimm mcrkum gegn
fjórum.
Leiðtogafundur
brezka verka-
mannaflokksins
Attlee forsætisráðherra
Breta hefir kvatt 24 helztu
léiðtoga brezka verkamanna-
flokksins á leynifund í dag og
verður þar rætt um vígbún-
aðinn og ákvarðanir Breta í
þeiih efnum. Er það talið höf-
uðverkefni þessa. fundar að
ieggja.á ráðin um það, hvern-
ig verkamannaflokkurinn
geti haldið þingfylgi sínu ó-
skertu um tillögur stjórnar-
innar í þessum efnum án þess
aö eiga á hættu að bíða ósigur
í einstökum atkvæðagreiðsl-
um.