Tíminn - 29.08.1950, Síða 1

Tíminn - 29.08.1950, Síða 1
~-------------------—7 Ritstjóri: Þórarinn Þórarinsson Fréttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarjlokkurinn Skrifstofur í Edduliúsinu Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslusími 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda 34. árg. Reykjavík, þriðjudaginn 29. ágúst 1950. 188. blað. Engin síBd í síðustu víku 23 þúsimd mál af ufsa veiddnst fyrir Norðurlandi. • í síðustu viku barst engin síld á land til síldarverk- smiðjanna norðanlands. Veiddist engin síld þar í herpi nót, alla vikuna. Margir bátar kcstuðu hins- vegar á ufsatorfur og náðu all mikilli veiði. Barst sam- tals á land rösklega 23 þús. mál af ufsa. Aflinn fór allur til bræðslu í verksmiðjunum. í síðustu viku var saltað í 1015 tunur, allt reknetjasíld, aðallega veidd við Norður- land. Heildar síldaraflinn er því um síðustu helgi svo til ekkert meiri en hann var um helg- ina næstu á undan. Heyskap víðast að ljúka vestan lands í Borgarfirði er heyskap víðast svo til lokið, þótt tíð sé enn með ágætum. Eftir aðeins að slá taisvert af há, sem látin verður í votheysgryfjur. Heyfengur manna á þessum slóðum er orðinn mikill og góður. Svipaða sögu er að segja alls staðar vestan lands. I* Frá fundi í öryggisráðinu, er það kom saman fyrir nokkru.' Schuman'htanríkisráðherra Frakklands heiisar Jabok Malik hinum rússneska, forseta ráðsins, en Trygve Lie sést á milli þeirra. , ~ ■I i- m r m r m I r M r * Þrjar heraðshatiðir Framsóknarmanna Um síðustu helgi voru haldnar þrjár héraðshátíðir, sem Framsóknarmenn gengust fyrir. Var ein haldin að Brún í Bæjarsveit í Borgarfirði, önnur að Hofgörðum á Snæfells- nesi og þriðja að Sælingsdalslaug í Dalasýslu. Voru þessar samkomur vel sóttar og fóru hið bezta fram. BMikill síldarafli beggja | megin við Reykjanes Milli 30 og 40 bátar stunda nú rekneta- veiðarnar. Um helgina var mikill síldarafli hjá Faxaflóabátunum í reknet. Virðist svo sem sildin sé nú fyrir alvöru komin vest- ur fyrir Reykjanes, og fengu bátar í Miðnessjó um 200 tunn- ur eftir lögnina í fyrrinótt. Kallaðir heim að norðan. Sex bátar frá Akranesi, sem stundað hafa veiðar fyrir Norðurlandi í sumar eru nú komnir heim til að taka þátt í reknetveiðunum í flóanum. Einn þeirra, Hrefna, er kom- in að norðan fyrir nokkru síð- an og hefir þegar veitt mikið af síld. Fimm bátar frá Har- aldi Böðvarssyni komu að norðan um helgina og eru þeir að búast til reknetaveiða. Einn bátur frá Vestmannaeyj um, Gotta, er leigður til Akra- ness og stundar þaðan rek- netaveiðar. Eru þannig sjö bátar byrjaðir, eða í þann veg inn að byrja reknetaveiðar frá Akranesi. Fjöldi aðkomubáta í Grindavík. í Grindavík hefir fjöldi að- komubáta fengið aðstöðu til að leggja upp síldarafla, því þaðan er stytzt á miðin, i Grindavíkursjó, þar sem einna mest hefir aflazt. Frá Grinda vík stunda þvi samtals um 20 bátar veiðarnar, þegar heima bátar eru meðtaldir. (Framhdd á 2. síöu.) Nýtt verð á dilkakjöti Framleiðsluráð landbún aðarins hefur sett nýtt verð á dilkakjöt frá deg- inum í dag að telja. Verður heildsöluverð á nýju dilka kjöti kr. 18.00 og smásölu verð kr. 20.90. íslendingar keppa Þrjú norsk íþróttafélög hafa boðið islenzku iþrótta- mönnunum af Brússelmótinu til Osló og munu þeir taka þátt í íþróttakeppni næsta laugardag. íslendingarnir voru komnir til Kaupmanna- hafnar 1 gærkveldi. Væntan- legir heim eru þeir næsta sunnudag eða mánudag. Torfi Bryngeirsson varð Evrópumeistari í langstökki fslendingar fengu 28 stig á mótinu og urðu áttnndu í röðinni að stigatölu í frjálsum íþróttum karla. Evrópumeistaramótinu er nú lokið. íslendingarnir þar koma heim með góðan orðstí og má segja, að íslendingar j hafi ekki farið betri -för til iþróttakeppni erlendis. Fengu i íslendingar tvo evrópumeistara og stóðu sig vel í mörgum greinum . Á laugardaginn fór fram úrslitakeppnin í langstökki og varð Torfi Bryngeirsson ev- rópumeistari. Stökk hann 7,32 metra, eða 10 centimetrum lengra en sá næsti. Er þetta stökk Torfa nýtt íslandsmet. íslenzka boðhlaupsveitin í 4x100 metra hlaupinu varð fimmta í röðinni í úrslita- keppninni á 41,9 sek. Ásmund ur Bjarnason varð fjórði mað ur í 200 metra hlaupi, í úr- slitaspretti. Af 23 þjóðum er þátt tóku í Evrópumeistaramótinu urðu íslendingar þeir 8. í röðinni. Frakkar urðu efstir, þar næst Svíar og siðan Bretar. Er þessi röðun miðuð við stigatölu þjóð anna. Torfi Bryngeirs- j son, sem sigraði á glæsilegu Is- landsmeti í lang- stökki á Briissel- mótinu og íærði íslandi 2. gull- stjörnuna þar. Samkoman í Borgarfirði. Framsóknarmenn i Borg- arfjarðar- og Mýrasýslu stóðu fyrir þesari samkomu, var hún haldin í nýju sam- komuhúsi í Bæjarsveitinni, sem nefnist Brún. Haukur Jörundsson, formaður Fram- sóknarfélags Borgarfjarðar- sýslu, setti samkomuna og stjórnaði henni. Ræður fluttu Bjarni Ásgeirsson, alþm. og Hermann Jónasson, landbún- aðarráðherra. Guðmundur Jónsson söng með undirleik Fritz Weisshappel. Þá var dansað. Hvammsbræður léku fyrir dansinum. Samkoman á Snæfellsnesi. Að þessari samkomu stóð Félag ungra Framsóknar- manna í Snæfellsnessýslu. Var það félag stofnað fyrir ári siðan og telur nú talsvert á fjórða hundrað meðlimi. Alexander Stefánsson, kaup félagsstjóri i Ólafsvík, sem er formaður félagsins, setti sam komuna og stjórnaði henni. Ræður fluttu Bjarni Ásgeirs- son, alþm. og Þráinn Valde- marsson. Þá söng Guðmund- ur Jónsson, scngvari með und irleik Fritz Weishappel. Vakti söngur Guðmundar mikla hrifningu og varð hann að (Framhald á 7. síðu.) Vígsla Óshlíðarvegar fór virðulega fram Vígsla Bolungarvíkurvegarins fór fram á Óshlíð á laug- ardaginn, eins og til stóð, þrátt fyrir kalsaveður, og var um eitt hundrað manns viðstatt helgiathöfnina. Flutti biskup landsins fyrirbæn við krossinn í hlíðinni, en bland- aðir kórar frá ísafirði, Hnífsdal og Bolungarvík sungu. Að þessari athöfn lokinni var haldið til Bolungarvíkur, og hófst þar samkoma í kirkj unni, þar eð ekki þótti fært að efna til útisamkomu vegna veðurfarsins. Var kirkjan troð full. Ræður fluttu Sigurgeir Sig urðsson biskup, Geir G. Zoega vegamálastjóri, Sigurður Bjarnason alþingismaður og Axel Tulinius lögreglustjóri 1 Bolungarvík, en kóra'rnir sungu milli þess að ræður voru fluttar. Að síðustu var þjóðsöngurinn sunginn. Að lokinni samkomunni í kirkjunni efndi hreppsnefnd in til samsætis. Var þangað boðið öllum þeim, sem unnið höfðu að vegagerðiívni um Óshlíð. Um kvöldið voru skemmti- samkomur á tveim stöðum í kauptúninu — í samkomu- húsinu og barnaskólanum — og var húsfyllir á báðum stð- um. Jafntefli viö Þjóöverjana 2 : 2 Síðasti kappleikurinn við þýzka úrvalsliðið fór fram á íþróttavellinum í ..gærkvöldi Kepptu úrvalslið úr Fram og Víking við Þjóðverjana. Leik- ar fóru þannig að jafntefli varð 2 mörk gegn 2.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.