Tíminn - 29.08.1950, Qupperneq 2

Tíminn - 29.08.1950, Qupperneq 2
2. TÍMINN, þriðjudaginn 29. ágúst 1950. 188. blað. 'Jtá kafi til heiia m Útvarpið Útvarpið í kvöld. Fastir liðir eins og venjulega. Kl. 20.20 Tónleikar: Píanókvint- ett í A-dúr eftir Dvorák. (plöt- ur). 20.55 Erindi: Stuartar á konungstóli Englands (Baldur Bjarnason magister). 21.20 Tón- leikar (plötur). 21.25 Frá 75 ára landnámshátíð tslendinga í Manitoba. 21.35 Vinsæl lög (plöt ur). 22.00 Fréttir og veðurfregn- ir. 22.10 Tónleikar (plötur): a) Rústir Aþenu eftir Beethoven- Liszt. b) Rhapsody In Blue eftir Gershwin. 22.35 Dagskrárlok. Hvar eru skipin? Ríkisskip. Hekla er á leið frá Reykjavík til Glasgow. Esja er væntanleg til Reykjavíkur í kvöld að vest- an og norðan. Herðubreið er.á Austfjörðum á suðurleið. Skjald breið fer frá Reykjavík í kvöld til Skagafjarðar- og Eyjafjarð- arhafna. Þyrill er norðanlands. Ármann fer frá Reykjavík í kvöld til Vestmannaeyja. Eimskip. Brúarfoss fer frá Reykjavík á hádegi í dag vestur og norður. Dettifoss kom til Akureyrar í gærmorgun, fer þaðan tii Rott- erdam og Hamborgar. Fjallfoss fer væntanlega frá Rotterdam 30. þ. m. til Leith og Reykjavík- ur. Goðafoss er á Norðfirði, fer þaðan til Akureyrar. Gullfoss fór frá Reykjavík 26. þ. m. til Leith og Kaupmannahafnar. Lagarfoss kom til New Yor 27. þ. m. frá Reykjavík. Selfoss fór írá Siglufirði 22. þ. m. til Bot- wood í New Founland og New York. Árnað heilla Hjónaband. Laugardaginn 26. þ. m. voru gefin saman í hjónaband af séra Jóni Thorarensen, ungfrú Guð- rún Kristjánsdóttir (frá Dals- mynni) og Erlendur Jónsson bif reiðastjóri. — Heimili þeirra er á Káranesbraut 4 Úr ýmsum áttum Thor Thors sendiherra á förum. Thor Thors sendiherra, sem dvalið hefir hér á landi undan- farið er nú á förum vestur aft- ur. Hann verður til viðtals i ut- anríkisráðuneytinu í dag kl. 10 til 12 f. h. 5000 kr. var stolið úr pcningaskáp í skrifstofu Ólafs Gíslasonar & Co„ í Hafn- arstræti aðfaranótt s.l. sunnu- dags. Hafði þjófurinn brotið upp dyrnar að skrifstofunni og rót- að i skúffum og hirzlum. Fann hann lykilinn að penlngaskápn- um, sem honum tókst að opna og tók þaðan um 5000 icr. Þjóf- urinn hafði einnig með sér lít- inn peningakassa, sem í voru kvittanir. Prentarar segja ekki upp samningum Hið íslenzka prentarafélag samþykkti með atkvæða- greiðslú í fyrradag, að segja ekki upp gildandi samning- um. Byggingaframkv. í Bolungarvík í Bolungarvík er unnið að byggingu myndarlegs læknis bústaðar og veglegs félags- heimilis og byrjað er að grafa fyrir verkamannabústað, einu tveggja íbúða húsi. Félagsheimilið er sameign hreppsins og allra menning- ar og stéttafélaga í byggðar- laginu, ungmennafélagsins, kvenfélagsins, verkalýðsfé- lagsins, skáta og sjómanna- dagsins. Hefir mjög mikið fé verið lagt fram með frjálsum samskotum, og félögin þau, sem nefnd hafa verið, hafa látið ágóða af skemmtunum og anna(rri starfsemi sinni ganga til félagsheimilisins. Þess er vænzt, að bæði fé- lagsheimilið og læknisbústað urinn komizt undir þak í haust. Allur bátafloti Bolvikinga hefir verið á síldveiðum norð anlands í sumar og gengið illa eins og öðrum, sem á síld veiðum eru. Trillubátar með einum eða tveimur mönnum á og litlir árabátar hafa farið á sjó, þegar gefið hefir og stundum aflað sæmilega, en ókyrrt hefir verið, svo að fiskigöng- ur hafa illa nýtzt af þem sök- um. Einn bátur frá Bolungar- Mikill síldarafli. (Framhald al 1. síSu.J Frystihúsin þar eru að verða full og- geta senn ekki tekið á móti meiri áfla til frystingar. Kemur þar einnig til að mikið er enn eftir í þeim af hraðfrystum fiski frá síð- ustu vertíð, sem ekki hefir ver ið afskipað. Byrjað var að salta síld í Grindavik, en því er hætt, vegna óvissu þeirrar er ríkir í markaðsmálunum. Telja síld- arsaltendur sig þurfa að fá 320—330 krónur fyrir sildar- tunnuna. Hins vegar er ekki talið liklegt að fást munu nema um 300 krónur með eðli legu móti. Munu slldarsaltend ur ætla að fara fram á, að fá eitthvaö af gjaldeyri fyrir síld ina til frjálsra afnota, eða að eftir verði gefin 8% skattur til hins opinbera. Síldarbræðsla í Keflavík. Það af síldinni i Grindavík, sem ekki hefir verið fryst, er flutt á bílum til síldarbræðsl- unnar i Keflavík. Þykir útvegs möjanum betra að láta síldina þannig til bræðslu fyrir á- Jcveðið og víst verð, en hætta á síldarsöltun og ótryggt verð. Fiskimjölsverksmiðjan í Keflavík hefir nú fengið til bræðslu um 1200 mál af sild, sem er af Grindavíkurbátun- um og einnig af afla Kefla- víkurbáta og Sandgerðisbáta. Frá Keflavik og Sandgerði stunda veiðarnar alls um 10 bátar, þannig að nú eru að síldveiðum í flóanum og Grindavíkursjó samtals milli 30 og 40 bátar. < f : JónasJónsson talar í Austurbæjarbíó miðvikudaginn 30. ágúst klukk- an 9 síðdegis. Aðgöngumiðar seldir við innganginn kosta 5 krónur. Efni ræðunnarj STRÍÐ OG FRIÐUR Skýringar 10 ráðherra í 5 löndum á gildi hlutleysis á stríðstímum. INGOLFSCAFE MATSALAN byrjar aftur — eftir sumarleyfi og lagfæringar á húsnæði — föstudaginn 1. sept. n. k. —. Hádegisverður kl. 11.30 til kl. 1,30. Kvöldverður kl. 6.00 til kl. 8.00 Kaffi og aðrar veitingar, fyrir og éftir hádegi, eins og venjulega. Veitingastjóri: Steingrímur Jóhannesson, yfirþjónn. o o o i r vík, Vísir, fór suður í Faxa- flóa til síldveiða þar. Lagði hann af stað að heiman á laugardag, og er nú kominn suður. HANGIKJOT Nægar birg'ðir fyrirliggjandi. Ný framlciðsla kemur I hverrl viku. REYKHÚS S.Í.S. Sími 4241. ornum ue^i Menningin og taugar manns Kold borð og faeit* ur rasitar sendum út um allan bs? SlLÐ & FISKBR. Það er fyrst nú á þessum síð- ustu tímum, að menn eru að vakna til aukins skilnings á þjáningum taugabilaðs fólks. Þrátt fyrir þetta eru þó margir, sem reyna að dylja taugabilun sína, því að þeir skammast sín fyrir þennan brest á heilsufari sínu. Þeim finnst þetta vera kvilli, sem kastar á sig skugga — kvilli, sem ekki má komast á vitorð almennings vegna þess, að hann er annars eðlis en til dæm is lungnabólga eða hjartasjúk- dómar. En það er nú samt staðreynd, að við erum öll taugabiluð að meira eða minna leyti, segir danski séríræðingurinn dr. Herman Reistrup í bók, er hann hefir rit að — „Það má lækna taugabil- un.“ Þessi sérfræðingur heldur því fram, að taugabilun fólks sé afleiðing þeirrar þróunar menn- ingarinnar, sem orðin er. Þenn- an þunga skatt verðum við að greiða til hennar. Eftir því sem þjóðfélögin hafa orðið fjölþættari og sambúðar- hættir mannanna flóknari, hafa komið fram fleiri og meiri tauga veilur hjá mönnunum. 'Smám saman hafa heilinn og tauga- kerfi mannsins komizt á það stig, sem þau eru nú á. Næmi taugakerfisins er orðið að of- næmi. Sjálf þróunin hefir það í för með sér, að nútímamaður hlýtur að vera að meira eða minna leyti taugaveiklaður. Svo segir sá vísi maður, og ekki skulum við, ófróðir ein- staklingar innan þessa mann- félags nútímans, leggja þar orð í belg. En ef til vill hefir sér- fræðingurinn rétt að mæla, og öll getum við vafalaust orðið sammála um það, að nútíma- menningin sé ekki svo lítið göll- uð. J. H. VEGAMERKI i samskonar og sjá má á þjóðtfegum landsins, framleið- | 5 I um við nú einnig fyrir sveitabæi. Sími 6570. — Reykjaví. ELDURINN gerir ekki boð á undan sér! Þeir, sem eru hyggniir tryggja strax hjá Samvinnutryggðngum BergurJónsson Málaflutningsskrifstofa Heima: Vitastfg 14. Laugaveg 65, sími 5833 íslenzk frímerki Notuð Islenzk frímerkl kaupl ég ávalt hæzta verði. JÖN AGNARS Frímerkjaveraiun P. O. Box 356 — Reykjavik Auglýsingasími Timans er 81300.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.