Tíminn - 29.08.1950, Blaðsíða 8

Tíminn - 29.08.1950, Blaðsíða 8
„ERLEAT YFIRLiT“ t DAG: Lundvinnlngasteina Rússa 34. árg. Reykjavík „A FÖRNmi YEGI“ t DAG: Menninqin oq tauqar ntanns 29. ágúst 1950. 188. blað. Hvorugumaöíla ágengt í Kóreu Her S. Þ. hratt hörðum á- rásum norðanmanna 2—3 km fyrir norðan Pohang. Norðan- menn telfdu fram tveimur herfylkjum, sem skipað var að taka borgina, hvað sem það kostaði, samkvæmt frá- sögn fanga, sem sunnanmenn tóku. "Norðanmenn gerðu margar tilraunir til að komast yfir Naktongána fyrir vestan Taegu, tókst það ekki vegna harðvitugrar mótspyrnu hers S.Þ. Á suðurvigstöðvunum hafa norðanmenn hafið mikla sókn í áttina til Masan. Hafa þeir þarna mikið lið, sem í gær reyndi að höggva fleyg í varn arlínuna, en tókst ekki. Vig- línan er því alveg óbreytt frá því fyrir helgi. Bandarísk flugvirki gerðu í gær miklar loftárásir á brýr, járnbrautarstöðvar og birgða geymslur í Norður-Kóreu. 600 lestum af sprengjum var varp að á staði í N.-Kóreu í gær. Afrek sænskra vísindamanna ■ i 'm ' r&h&.i r.&r „ Bif reiðaár ekstu r í Öxarfirði Tveir menn slnsasl nokkuð. Síðdegis á laugardaginn varð harður árekstur á veg- inum sunnan við Skinnastað í Öxarfirði milli stórrar áætl' unarbifreiðar og jeppa. Jepp inn var af Kópaskeri og á- ætlunarbifreiðin var eign Kaupfélags Norður- Þing- eyinga og heldur uppi ferð-1 um milli Akureyrarr og Rauf arhafnar. Var hún á leið til Raufarhafnar, þegar slysið varð. Á veginum þarna sunnan við Skinnastaði eru nokkrar hættulegar beygjur og blind horn, sem brýna nauðsyn ber til að laga, og varð árekstur- inn við eina slíka blinda beygju. Jeppinn skemmdist mikið og tveir menn, sem í honum voru meiddust tölu- vert, sérstaklega annar, sem skarst á höfði. Áætlunarbifreiðin skemmd ist einnig mikið, en engan sakaði i henni, enda voru þar ekki nema tveir farþegar. Ýms merk mál rædd á þingi Sambands ísl. sveitarfélaga Pin»i3 var Iiáð á Þingvöllum um hels'ina og lauk í fyrrakvöld. Þing Sambands ísl. sveitarfélaga var háð á Þingvöllum um síðustu helgi og ræddi ýmis merk mál, er varða málefni sveitarfélaganna. Þingið sátu um 90 fulltrúar úr öllum landsfjórðungum. auk nokkurra gesta, þar á meðal einum fulltrúa frá hverju hliðstæöra sambanda á Norðurlöndum. Það hefir vakið gífurlega athygli meðal vísindamanna, að þrír Svíar, þeirra á meðal Gösta Hággquist, prófessor í Karóiínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, hefir tekizt að tvö- falda litningatölu kanína og tvöfalda þannig stærð þeirra og þyngd. Venjulegar kanínur eru fimm pund á þyngd, en hið nýja afbrigði er tíu pund á þyngd eða jafnvel meira. Meðstarfsmenn Hággquists voru Allan Bane dýralæknir og Yngve Melander náttúrufræðingur, og hafa þeir unnið að tilraunum í þrjú ár. Sams konar tilraunir eru þeir að gera á svínum. — Getur uppgötvun þessi verið mjög þýðingar- mikil, reynist hún auðveld i framkvæmd. Má i því sam- bandi benda á, hversu mikil kjötaukning það yrði, ef tak- ast mætti að gera íslenzka sláturdilka tvöfalt vænni en nú er, án þess að fjárkynið sjálft þyrfti að stækka og verða stórum fóðurfrekara, nema hvað tekur til sumarhaga handa dilkunum. — Myndin hér að ofan er af tveimur kanínum af hinum nýju afbrigðum. Þingið hófst kl. 10 árdgis á laugardaginn og bauð for- maður sambandsins, Jónas Guðmundsson skrifstofu- stjóri fulltrúa og gesti vel- komna. Meðal gesta voru Steingrímur Steinþórsson, forsætis- og félagsmálaráð- herra og Páll Hallgrímsson, sýslumaður Árnesinga. Forseti þingsins var kjör- inn Jónas Guðmundsson en varaforseti Sigurður Ó. Ólafs son, Selfossi. Ritarar voru kjcrnir Karl Kristjánsson, bæjarstjóri Húsavík og Sig- urður Björnsson, oddviti Prest hólahrepps. Síðan voru kjörn ar fastar nefndir þingsins. (Framhald á 7. síðu.) Dæmdur fyrír landhelgisbrot Skipstjórinn á brezka tog- aranum Paynter frá Grimsby var dæmdur í 74 þúsund lcr. sekt fyrir landhelgisbrot af sjórétti Reykjavíkur. Var hann einnig dæmdur til að greiða málskostnað en afli og veiðarfæri gert upptækt. Skip stjórinn hefir áfrýjað dóm- inum. Varðbáturinn Víkingur tók togarann þar sem hann var að veiðum innan landhelgis- llnunnar s. 1. laugardag. HEFST Á MORGUN: ; Fundur norrænna utan- ’ríkisráðh. í Reykjavík Ráðherrar frá Danmörkh, Noregi, Svíþjóð o» fslandi sitja þennan ráðherrafuml Á morgun hefst hér í Reykjavík fundur utanríkisráð- herra, Noregs, Sviþjóðar, Danmerkur og íslands. Eru ráð- herrar hinna landanna þriggja væntanlegir hingað til lands árla dags í dag. Þetta er í fyrsta sinn, er þessi fundur er haldinn hér á landi, en utanríkisráðherra íslands hefir nokkrum sinnum sótt slíka fundi til hinna Norðurlandanna. Sendimaður farinn til Al as ka að safna fræi og græðlingum Belgískt lið fer til Kóreu Belgíustjórn hefir ákveðið að senda herlið til Kóreu til aðstoðar hersveitum S .Þ. þar. Hermálaráðherrann hefir sent út áskorun til hermanna að bjóða sig fram til farar- innar. Áskoruninni var sér- staklega beint til þeirra, sem vanir eru herþjónustu svo sem liðsforingja úr varaliði og fallhlííarhermanna. » í gærkvöldi fór einn af fremstu skógræktarmönnum okk- ar, Einar G. E. Sæmundsen, vestur um haf á leið til Alaska að sækja barrviðarfræ og græðlinga af Alaskaösp, á vegum Skógræktar rikisins. „Ég geri ráð fyrir að verða farinn að safna könglum vestur á Montagueeyju eftir eina viku,“ sagði Einar við tíðindamann Tímans í gær, skömmu áður en hann fór á flugvöllinn. Tegundirnar, sem sóttar verða. Auk græðlinga af Alaska- ösp, mun ég sækja fræ af sitkagreni, marþöll, fjalla- þin, fjailaþöll, Alaskasedrus, strandfuru, hvítgreni, runn- um ýAsum, og ef til vill elri og Alaskalerki. Af sumum þeirra tegunda er aðeins lít- ið eitt í uppeldi hér, en aðrar eru óreyndar. En margar eru álitlegar. Könglar barrtrjc.nna verða þresktir vestra, svo að fræ- sendingarnar verði ekki rúm- (Framhald á 7. síðu.) — Ferð minni er fyrst heit- ið til Juneau, sagði Einar enn- fremur, en þaðan fer ég til Cordova við Prins Williams Sound. Á Montagueeyju eru skógarhöggsmenn að starfi, og í slóð þeirra ætla ég að fara og safna könglum af þeim trjám, er þeir fella. Býst ég við að fá hjálpar- menn við söfnunina frá Cor- dova, en seinna fer ég lengra norður í land til þess að leita fleiri tegunda, og safna græð lingum af Alaskacsp. Þingmannsdóttur írá Krít stolið Lögreglan og herlið eyjunn- ar Krít í Miðjarðarhafí, leita nú að ungum manni, sem hef- ir numið á brott dóttur eins þingmanns þar. Ungi maðurinn varð ást- fanginn af dóttur þingmanns ins og vildi giftast henni, en faðir stúlkunnar stóð i vegi fyrir því að þau giftust. Tók þá ungi maðurinn það ráð að nema stúlkuna á brott. Ef hann næst, segist þing- maðurinn láta taka hann fast an fyrir mannrán. Krít er mjög fjöllótt og er talið að kærustuparið felist í fjöllun- um. Koma flugleiðis. Utanríkisráðherrarnlr þrír koma hingað flugleiðis og voru væntanlegir hingað í gærmorgun. Ferð þeirra seink aði, og var búizt við að flug- vélin, sem flytur þá hingað til lands, sem er frá ameríska fé- laginu AOA hafi komið til Keflavíkurflugvallar í nótt. Verða ráðherrarnir hér á landi til laugardags, en þá fara þeir af stað heimleiðis. Munu flestir þeirra fara með flugvél, en einn mun taka sér far með Dronning Alexand- rine. Fundirnir í Alþinsishúsinu. Fundir ráðherranna verða haldnir í samkomusal efri deildar í Alþingishúsinu. — Standa þeir yfir i tvo daga, á fimmtudag og föstudag. Hefj- ast þeir báða dagana klukkan 10. Ráðherrarnir dvelja hér á landi sem fulltrúar þjóða sinna, og mun íslenzka ríkis- stjórnin bjóða þeim að skoða sig um í nágrenni Reykjavík- ur. Fara þeir ef til vill einnig að Gfeysi. (Frapahald á 7. síðu.) ‘i.aa-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.