Tíminn - 03.09.1950, Qupperneq 5

Tíminn - 03.09.1950, Qupperneq 5
192. blað. TÍMINN, sunnudaginn 3. september 1950. 5. Sunnud. 3. scpt. Hákarlaveiði Nýlega hefir verið sagt frá því í dagblöðum í Reykjavík, að hákarlaveiði með nýrri aðferð, sé hafin við Reykja- nes. Hákarlinn er veiddur á svokallaða túnfiskastöng. Einn trillubátur stundar þessa veiði, en ekki er ólík- legt, að fleiri reyni, ef vel gengur. Þessi frásögn mætti minna menn á það, að hákarlaveiði var fyrrum mjög fast sótt hér á landi, einkum fyrir norðan, og margar sögur hafa verið sagðar af veiðiförum há- karlaskipanna í þá daga, enda veiðin aðallega stunduð að vetrarlági, eða snemma vors, og þá all fjarri landi. Hákarlslýsi var þá ein aðal- útflutningsvara landsmanna, og í hærra verði en þorska- lýsi, en auk þess var hákarl mikið notaður til manneldis innanlands. Jón Sigurðsson segir í „Varningsbók“ sinni um 1860, að hákarlinn sé „eftir sögn náttúrufræðinga,1 miklu fjölskipaðri kringum ísland, heldur en við hin önnur lönd í grennd við oss“ og hann sé „einn ábata-, mesti afli, þegar nóg af hon- j um gengur oss í greipar.“ — „Hákarlaveiðin er hin bein-! asta hvöt fyrir oss til að út- I vega oss þilskip“ segir hann ennfremur. Nú skortir ekki þilskipin hér við land, og bæði eru þau' stærri og sterkari en á 19. j öld. En hákarlaveiði er nú sáralítil. Þó er hákarlslýsið enn mjög verðmæt vara. Það er miklu auðugra að bæti- efnum en þorskalýsi. Auk þess er mikið verðmæti í há- karlinum eins og áður er sagt. Maður, sem unnið hefir að ( lifrarbræðslu og er kunnugur sjávarútvegsmálum, hefir j tjáð Tímanum, að sú aðferð, tíðkist nú, að blanda þorska- | lýsið með hákarlslýsi, til að auka bætiefnamagn þorska- j lýsisins. — Með þessu móti ^ sé hægt að selja þorskalýsið! mun hærra verði en annarsj fengist fyrir það erlendis. í þorsklifur er misjafnlega mik ið af bætiefnum, eftir því hvar þorskurinn veiðist og hvenær. En með því að blanda þorskalýsið með há- karlslýsi, eftir þörfum í hvert sinn, er hægt að tryggja nokkurn veginn jafnt magn af bætiefnum, og gera það allt að jafn verðmætri vöru. Þetta er út af fyrir sig mjög merkilegt mál. En það, sem vekja mun furðu margra í þessu sambandi, er það, að hákarlslýsið, sem notað er til blcndunarinnar, er ekki úr „íslenzkum“ hákarli, heldur er það keypt inn í landið, og það alla leið austan úr Asíu. Eða svo hefir Tímanum verið tjáð af manni þeim, er fyrr var nefndur. Hér mun vera um talsveröa fjárupphæð að ræða í erlendum gjaldeyri. Talið er, að þessi innflutn- ingur á hákarlslýsi austan úr Asíulöndum borgi sig á- gætlega. Verðhækkun þorska lýsisins af þessum ástæðum sé mun meiri en innflutn- ingnum nemur. En það er raunalegt, að við íslendingar, sem sjálfir eigum ágæt há- karlamiö, skulum þurfa á slíkum innflutningi að halda. ERLENT YFIRLIT: MacArthur og Truman Vorður Formósa eití liclzta deilucfnið í |»iu$>koMiite<>ii!iuiit í Bandaríkjimum? Um fátt hefir verið meira rætt í heimsblöðunum seinustu vik- urnar en átök þau, sem nú eiga sér stað í Bandaríkjunum um afstöðuna til Formosu. Þessi á- tök komu einna greinilegast í dagsljósið, er MacArthur, yfir- hershöfðingi Bandaríkjanna í Japan og Kóreu, afturkallaði að ósk Trumans forseta ávarp, sem átti að iesa frá honum á fundi uppgjafarhermanna í tíhigaco síðastl. mánudag. Ávarpið kom þó eigi að síður fyrir almenn- ingssjónir, því að MacArthur var búinn að láta senda það til blaðanna og eitt vikublaðið, sem koma átti út á mánudaginn, (U. S. NewsT and World Report) hafði verið látið í póst á laug- ardaginn og var því komið út um hvippinn og hvappinn, þeg- ar Truman fyrst skarst í leik- inn. í skjóli þessa hafa dagblöð- in síðan birt ávarpið, þótt það væri aldrei flutt á fundinum. Ástæðan til þess, að Truman fór þess á leit við MacArthur, að hann afturkallaði ávarpið, var fyrst og fremst sú, að þar er haldið fram annari stefnu en stjórn Bandaríkjanna hefir lýst yfir í Formosumálinu. Truman taldi sig ekki getað unað því að jafn háttsettur embættismaður og MacArthur héldi fram sjón- armiði, er ekki samrýmdist sjón armiði stjórnarinnar, því að af því gæti hlotist hættulegur mis- skjlningur. Það þykir sýna til- litsleysi MacArthurs og skort á samvinnu milli hans og stjórn- arinnar, að hann sendi henni •ekki afrit af ávarpinu, sem hann sendi til blaðanna. Stjórnin vissi ekki um efni ávarpsins fyrr en á laugardaginn, er henni barst um það fyrirspurn frá einu blaðinu, hvert álit hennar væri á því. Stefna stjórnarinnar. Rétt áður en þessi atburður kom fyrir, hafði Warren Austin verið búinn að gera grein fyrir því í Öryggisráðinu, hver stefna stjórnarinnar væri i Formosu- málinu. Það væri hvorki til-_ gangur stjórnarinnar að leggja Formosu undir Bandaríkin né að tryggja þeim bækistöðvar þar, heldur einungis að halda Formosu utan styrjaldarátaka. Því hefði sjöundi floti Banda- ríkjanna fengið fyrirskipun um að hindra að innrás yrði gerð þangað og eins að haldið væri uppi árásum þaðan á megin- landið. Bandaríkin teldu það skyldu sína að gæta Formosu þannig meðan hún tilheyrði Japan formlega, en Japan heyrði undir umsjón Banda- ríkjanna meðan ekki væri geng- ið frá friðarsamningum. Jafn- framt lýsti Austin yfir því, að Bandaríkin væru fús að fallast á það, að Formosa heyrði undir eftirlit Sameinuðu þjóðanna, unz framtíð hennar yrði endan- lega ráðin, en það ætti að gerast i sambandi við friðarsamning- ana við Japan. Líklegt þykir, að þessi stefna hafi verið ákveðinn í samráði við Breta, sem hafa hvatt til gætni í Formosumálinu. Þessi stefna er talin samrýmast vel viðhorfi Asíuþjóðanna, sem myndu líta það illu auga, ef Bandaríkin gerðu sig líkleg til að innlima Formosu með ein- um eða öðrum hætti. Hún er og í samræmi við þá stefnu, sem stjórnin hefir áður haft. Stefna MacArthurs. í áðurnefndu ávarpi Mac Arthurs, sem að vísu var aldrei flutt, kom sú skoðun óbeint fram, að Bandaríkin ættu að hernema Formosu. Því var lýst skilmerkilega, að hún væri nauð synlegur hlekkur í varnarkerf- inu gegn kommúnistum. Næðu kommúnistar yfirráðum þar, væri varnarkerfið rofið á þess- um stað. Af því myndi óhjá- kvæmilega hljótast styrjöld. Formosa mætti ekki tapast, hvað sem það kostaði. Það þykir fullvíst, að Mac Arthur hafi vitað, er hann samdi ávarpið, að þessi stefna var andstæð stefnu stjórnarinn- ar. Harriman, einkaerindreki Trumans forseta, var nýlega bú- inn að heimsækja hann, meöal annars í þeim erindagerðum að skýra fyrir honum afstöðu stjórn arinnar til Formosu. MacArthur virðist hafa metið það meira að koma skoðunum sínum á fram- færi en að taka tillit til stjórn- arinnar. Þingkosningarnar og Formosumálið. Það hefir komið í ljós, eftir að þessir atburðir gerðust, að Mac Arthur á marga fylgismenn í þessu máli. Þetta hafa hægri menn republikana fundið, því að þeir hafa tekið óskipta af- stöðu með honum og virðast nú hafa hug á að gera Formosu- málið og Austur-Asíumálin yfir- leitt að helzta deiluefni þing- kosninganna, sem fara fram eftir rétta tvo mánuði. Þessir ménn veitast nú harðlega að stjórninni og þó einkum Ache- Það ætti að vera metnaðar- mál þeim, sem forgöngu hafa í sjávarútveginum, að sjá svo um, að slíkt þurfi aldrei fram ar að koma fyrir — ef það á sér enn raunverulega stað, og Tíminn hefir fulla ástæðu til að ætla, að svo sé. Hákarlinn er sjálfsagt ekki eina fisktegundin hér við land, Sem ástæða er til að gefa frekari gaum en gert hefir verið. Það er nú að koma glöggt í ljós, að afla- magnið er ekki hið eina, sem máli skiptir. Ýmsar fiskteg- undir, sem hægt er að veiða hér við land, eru verðmætari en þorskurinn, þótt löngum hafi hann gefið góðar tekjur í þjóðarbúið. í Ameríku er t. d. hraðfrystur steinbítur, ýsa og karfi í mun hærra verði en hraðfrystur þorsk- ur, svo að ekki séu nefndar góöfiskstegundir eins og heil- agfiski. Margt bendir til þess að koma þurfi á meiri verka- skiptingu í fiskveiðunum en verið hefir undanfarið, og nýta þannig hinar einstöku fisktegundir svo sem bezt má verða. Það er áríðandi, að samtök útvegsmanna sé vel vakandi í þessum efnum og svo einstakir útvegsmenn eftir því, sem geta þeirra leyfir. Að sjálfsögðu ber hinu opinbera að veita þann stuðning, sem á þess valdi er, en frumkvæði og framtak verður fyrst og fremst að koma frá þeim, sem tekið hafa sér fyrir hendur aö reka útveginn, og forgöngumönn- um þeirra eða trúnaðarmönn um. Það er líka nauðsynlegt, að lánsstofnanir þjóðarinnar, séu sem víðsýnastar gagn- vart hverskonar nýbreytni, sem að því miðar að fram- leiða sem fjölbreyttasta og auðseldasta sjávarvöru, enda má ganga út frá, aö þær hafi á því fullan hug, þótt slíkt kunni að auka nokkuð á fyr- irhöfn þeirra og nauðsyn hag nýtrar þekkingar á hinu lif- andi starfi á sjónum. MacArthur son utanríkismálaráðherra og kenna honum um undanláts- semi við kommúnista og vera þannig valdann að óförunum í Kína og Kóreu. Kröfur þeirra um að Acheson sé vikið frá harðna stöðugt. Afstaða þessara manna er þó næsta óhæg til slíkra árása, því að þeir hafa baríst gegn auknum framlögum til hermála og verið móti ráð- stöfunum, sem mest hafa hindr að útbreiöslu kommúnismans, eins og Marshallhjálpinni og Atlantshafsbandalaginu. Margir republikanir fylgja stjórninni í þessu máli, en minna ber nú á þeim. I hópi slíkra manna er t. d. Wanden- berg og Dulles. Hinir ráða hins vegar flokksstjórninni og áróð- ursvélum flokksins og mest ber því á þeim, sem fulltrúum flokksins um þessar mundir. Þetta getur hins vegar breytzt eftir kosningarnar. En vafalaust er það óheppilegt, að kosningar skuli nú standa fyrir dyrum í Bandaríkjunum, því að það get- ur veitt ýmsum öfgaöflum að- stöðu til að stofna til meiri æs- inga í þessum málum, en góðu hófi gegnir. Það gefur hins veg- ar góðir vonir, að Truman for- seti og fylgismenn hans kjósa bersýnilega heldur að stefna kosningaaðstöðu flokks sins í hættu, en að víkja af þeirri braut, sem þeir telja þjóðinni og friðnum fyrir beztu. Utan Banda ríkjanna hefir hin einbeitta framkoma forsetans í deilunni við MacArthur aukið traust á forustu hans og þótt sýna, að hann hafi til að bera þá djörf- ung og karlmennsku, sem ekki (Framhald á 6. síðu.) Raddir nábúanna Mbl. minnist í gær á fjand- skap kommúnista við varnir lýðr æðisþj óðanna: „Þegar kommúnistar réðust á Suður-Kóreu í sumar, lustu flokksbræður þeirra hér á landi upp fagnaðarópi. Síðan hefir málgagn þeirra daglega flutt fregnir af Kóreustríðinu, þar sem ofbeldinu er sungið lof og dýrð. En í hvert sinn sem minnst er á hervarnir Vestur-Evrópu- þjóða í hinu sama blaði, þá er um þær talað eins og frá þeim stafi heiminum hin mesta hætta. Sannleikurinn er sá, að ef hægt er að tala um nokkra hættu sem stafi frá hervæð- ing Vestur-Evrópuþjóða eða lýðræðisþjóðanna yfirleitt, þá er það „hættan“ á því, að kommúnistum takist ekki að hleypa heiminum í bál, takist ekki að leggja hverja lýðræðis- þjóðina af annari undir sig. Og deildum kommúnistaflokks ins, — „Fimmtuherdeildum" Moskvavaldsins, takist aldrei að berjast í styrjöldinni, sem þeir vonast eftir að veröi háð, og sem á að koma heimsyfir- ráðunum í hendur kommún- istanna.“ Það er víst, að ekki er það sprottið af áhuga fyrir frið- inum, að kommúnistar vilja hafa lýðræðisríkin varnar- laus meðan ríki þeirra sjálfra vígbúast. Vanræktur markaður Einar Sigurðsson í Vest- mannaeyjum er í hópi þeirra manna, er einna bezt fylgjast með í verzlunarmálum íslend inga. í blaði hans, Víðir, eru tiltöluiega meiri fréttir um verzlun og viðskipti en nokkru öðru islenzku blaði. í Víði, sem kom út í gær, segir m. a. á þessa leið um markaðsmöguleika fyrir ís- lenzkan fisk í Bandaríkjun- um: „íslendingar gætu selt miklu meira af ýmsum teg- undum af frosnum fiski í Bandaríkjunum en þeir gera nú. Þorskur er eina tegund- in, sem þar er oftast á boð- stólum, ýsa, karfi, steinbít- ur, flatfiskflök og lúða selst alltaf jafnóðum og vantar stöðugt. í vetur voru saltaðar einar 300—400 lestir af ýsu og um 200 lestir af hinum auðselj- anlegu fisktegundum var fryst í umbúðir, sem ekki henta fyrir Amcríkumarkað- inn. Meginorsakirnar voru þær, að um tíma í vetur vant aði réttar umbúðir um þess- ar fisktegundir. Mörg frysti- húsin hafa líka lengi verið ófús á að hverfa frá fram- leiðslu í 7 punda blokkirn- ar. Nú liggur þessi fiskur ó- seldur í landinu. Sumt af hon um er verið að reyna að selja vestra fyrir 10 cent í stað 26 cent pundið, ef hann hefði verið í réttum umbúðum. Allur fiskur, sem fram- leiddur er núna fyrir Ame- ríkumarkað skilar heim fram leiðslukostnaði nema þorsk- urinn, hann gerir það tæp- lega.“ Þessi frásögn Einars gefur það ljóst til kynna, hve stór- lega það hefir verið vanrækt að vinna markað fyrir frysta fiskinn í Bandaríkjunum, þótt það sé okkur hagkvæm- ara að selja hann þar en víð- ast annars staðar, því að þar fæst fyrir hann frjáls gjald- eyrir, en víða er sala hans háð mjög óhagstæðum vöru- skiptum. T. d. mun hraðfrvst ur fiskur nú seldur til Aust- urríkis með þeim afarkost- um að taka verður í staðinn vörur þaðan, sem eru jafnvel allt að því 20—30% dýrari en annars staðar og mun hér og stundum um vörur að ræða, sem ekki er brýn þörf fyrir. Svo stórlega hafa markaðs möguleikarnir í Bandaríkjun um verið vanræktir, að ekki hefir verið reynt neitt að ráði að selja þangað þær fisktegundir, sem bezt er að selja þar, eins og karfa, lúðu o. fl. Augu manna virðast fyrst að ráði hafa opnast fyrir þessu eftir að amerísku sérfræðingarnir voru hér á ferð í vor. Og enn er haldið áfram af Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna að flytja fisk vestur í röngum umbúðum, þótt fyrir hann fáist ekki einu sinni hálft verð, miðað við fisk í réttum umbúðum, eftir því, sem Einar upplýsir. Sá aðili, sem fyrst og fremst er sekur um slóða- skapinn og sinnuleysið í þessum efnum, er Sölumið- stöð hraðf rystihúsanna, er haft liefir meginhluta af út- flutningi hraðfrysta fisksins á hendi. Ekki mun þó hafa á það skort, að umboðsmaöur hennar vestan hafs hafi reynt að opna augu forráða- (Framhalcí á 4. slðu)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.