Tíminn - 03.09.1950, Side 7

Tíminn - 03.09.1950, Side 7
192. blað. TÍMINN, sunnudaginn 3. september 1950. 7. Bær skemmist í eldsvoða S. 1. föstudag kom upp eld- ur í húsinu Melstað í Staðar- j hverfi í Grindavík. Húsið skemmdist mikið að innan, en ýmsu lauslegu tókst að bjarga úr húsinu svo sem rúm fötum og einhverju af hús- j gögnum. Fólk úr Járngerðar- staðarhverfi tókst að slökkva eldinn um það leyti, sem j brunalið, sem kvatt hafði verið símleiðis kom á vett- í vang. í húsinu bjó Sæmundurj Kristjánsson trésmiður með konu sinni og fimm börnum. Sæmundur var að vinna í Járngerðarstaðarhverfi er eldsins varð vart. Sent var eftir hjálp á næsta bæ. Var farið þaðan á vörubíl til Járn gerðarstaðarhverfis til að ná í hjálp. Flokkur Malans sigr ar í kosningum Flokkur dr. Malans, þjóð- ernissinnaflokkurinn vann mikinn sigur i nýafstcðnum kosningum i Suður- Afríku. Þjóðernissinnar fengu 15 af 18 þingsætum sem kosið var um, en flokkur Smuts fékk aðeins 3 kjörna á héraðsþing ið. í þessu héraði fengu þjóð- ernissinnnar alla 6 fulltrú- ana á sambandsþingið. Flokk ur Malans hefir nú 12 þing- sæta meirihluta i þinginu. Sigur Malans er talinn vegna góðrar kjörsóknar og kusu 90% af þeim sem voru á kjörskrá. Fiskiraniisóknir (Framhald af 8. siOu). ert tengdur „skreiðinni“ í okkar norðlægu hafsvæðum og meðfram ströndinni. Áður hafa íslenzkir og danskir vis- indamenn sannað, að Græn- landsþorskurinn haldi frá ís landi til Grænlands á vorinj og sumrin og aftur til baka á haustin og veturna. En á síðari árum hafa nýjar rann sóknir J.eitt í ljós, að þorskur inn heldur sig við Grænland allt árið og hrygnir þar. Það er að segja, að Vestur-Græn land hefir nú sinn eigin þorsk stofn. Yngsti fiskurinn heldur sig sunnar, sá eldri norðar. — Hvergnig stendur á þessu? — Þetta stafar vafalaust af því, að hitastig hafsins hefir aukist á seinni árum sökum hinna almennu veðurfars- breytinga, sem fram hafa far ið í norðurhöfum. Athuganir okkar í fyrra leiddu í ljós, að yngsta fiskinn og smæsta fyr irhittir maður á suður-grunn unum (banka), en stæsti og elzti fiskurinn heldur sig á norður-grunnunum. Þetta er mikilvægt bæði fyrir fiskiveið arnar og fiskimergðina. Við höfum einnig orðið varir við annað mjög mikilvægt fyrir- brigði þar vestra, sem sé það, að frá miðjum júlí streymir kaldur sjór frá Austur-'Græn lenzka pólstraumnum, og get ur hann flaett inn yfir fiski- grunnin, eða meðfram „eggj- um“ þeirra (brúnum). Fiskur inn forðast þá kalda sjóinn og sækir þá helzt upp frá botni. Er þessu fer fram, held ur fiskurinn sig nærri yfir- borði sjávar. Við urðum þessa fyrirbrigðis varir 1948, er við rákumst á stórar þorsktoríur með bergmálsdýptarmæli á 8—10 faðma dýpi. í fyrra var viðhorfið nokkuð á annan veg, er fiskurinn kom úr djúp inu upp á grynningarnar á 30—40 faðma dýpi. Það er al- veg vafalaust, að þessi ganga fiskjarins frá eggjunum er, mikilvæg fyrir fiskveiðar i j júlí-mánuði. Fram eftir ] hausti sækir fiskurinn út á1 vana-stöðvar sínar. Við munum einnig í ár. merkja þorsk við V,- Græn- land, segir Rasmussen. Sam- kvæmt veiðum, sem við hing að til höfum rekið, virðist fisk urinn vera mjög staðbundinn á hverju grunni. Við munum einnig halda áfram haffræði legum ranrisóknum á mikil- vægustu grunnunum. Með hitamælingum og öðrum tilraunum og athugunum j reyndum við að leiðbeina' fiskimönnum og aðstoða þá á ýmsa vegu. I í fyrra tókum við um 3000 sýnishorn af grænlenzkum þorski, og við vonum að geta tekið álíka margt í sumar. Yfirleitt vonum við að koma heim aftur með all mikilvæg- an árangur og rannsóknar- efni. — Haldið þér, að þessi mikla þorskmergð við Vestur Grænland muni vara lengi? — Já, vafalaust. Allt bend- ir i þá átt, að það muni verða árganur fullorðsins fiskjar, árgangur fullorðins fiskjar, við V,- Grænland. Þar er mik ill yngri fiskur, sem óefað mun stórlega auka græn- lenzku fiskimergðina. Og svo er hún mikil, að hún mun þola miklar veiðar. S.K.T. Nýju og gömlu dansamir 1 G. T.- húsinu sunnudagskvöld kl. 9 — Húsinu lokað kl. 10.30. Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30. Bútar úr íslenzkum efnum hentug- ir. fyrir drengjabuxur. Últíma Bergstaðastræti. Nýja fasteignasalan Hafnarstræti 19. Sími 1518. Annast sölu fasteigna, skipa, bifreiða og verðbréfa. Við- talstími kl. 11—12 og 2—5 virka daga nema laugardaga kl. 11—12. Fasteignasölu- miöstöðin Lækjargötu 10 B. Simi 6530 Annast sölu fasteigna, skipa, bifreiða o. fl. Enn- fremur alls konar trygging- ar, svo sem brunatryggingar, innbús-, líftryggingar o. fl. i umboði Jóns Finnbogasonar hjá Sjóvátryggingarfélagi ís- tands h. f. Viðtalstími alla virka daga kl. 10—5, aðra Wma eftir samkomulagi. LÖGUÐ fínpösning send gegn póstkröfu um allt) land. Fmpúsningsgerðin Reykjavik — Simi 6909 TlIVMNN á hvert islenekt heimill. I.O.G.T. Stúkan Víkingur nr. 104, heldur fyrsta fund hausts- ins næstk. mánudag 4. sept. kl. 8,30 í Góðtemplarahúsinu. I. Inntaka nýrra félaga. II. Hagnefndaratriði: 1. Kvartett syngur. 2. Erindi. 3. Pikkur og Pjakkur: Sam talsþáttur. 4. Upplestur. Félagar! Fjölsækið á þenn- an fyrsta fund haustsins og komið með innsækjendur. Æ. T. Jörð Jörð óskast til kaups eða leigu, helzt við sjó. Skipti á húseign æskileg. Tilboð send ist blaðinu fyrir 25. sept., merkt: „Haust.“ Dieseldráttarvélar Kf.ockner-Humbolt-Dentz A/G., dieselvélaverksmiðjan i Þý/kalandi * n zr ein elsta og stœrMa í sinni f/rein í keiminum, er nú aftur tekin til starfa og getum vér útvegað þessar landbúnaðar- diesel dráttarvélar frá henni, gegn nauð- synlegum leyfum. LOFTKÆLING ER MESTA FRAMFÖR í SMÍÐI DIESELVÉLA Á SÍÐUSTU 20 ÁRUM Aðalkostir loftkœlingarinnar eru: a) Engin frosthsetta. b) Vélarnar fljótari I gang í kulda. c) Minna slit á vélinni. þar sem hitinn er jafnari. d) Betri eldsneytisnýting vegna hærri brennsluhita. e) Vélarnar eru fljótar að hitna ofí henta því vel. þar sem oft þarf að nota þær stutta stund i einu. Leitið tilboða hjá oss. Aðalumboðsmenn á íslandi: Hamar h.f. Tryg'gvag'ötu — sími 1695 (4 línur).

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.