Tíminn - 07.09.1950, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN, fimmtudaginn 7. september 1950.
195. blað.
*
Jrá kctfi til heiía
Útvarpið
lítvarpið í kvöld.
Fastirliðir eins og venjulega.
Kl. 20.30 Útvarpshljómsveitin:
Amerísk alþýðulög. 20.45 Dag-
skrá Kvenréttindafélags Islands.
— Erindi: Nýjungar í klæðagerð
21.10 Tónleikar (plötur). 21.15
(frú Málfríður Einarsdóttir).
Iþróttaþáttur (Sigurður Sigurðs
son). 21.30 Sinfónískir tónleikar
(plötur): a) Fiðlukonsert eftir
Ernst Bloch. 22.00 Fréttir og veð
urfregnir. 22.10 Framhald sin-
fónísku tónleikanna: b) Gátu-
tilbrigðin op. 36 eftir Elgar. 22.40
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip.
Hekla kom til Reykjavíkur kl.
12 á hádegi í gær frá Glasgow
og Thorshavn. Esja var á Ak-
ureyri í gær. Herðubreið er í
Reykjavik og fer þaðan næst-
komandi föstudag austur um
land til Siglufjarðar. Skjald-
breið fór frá Reykjavík í gær til
Snæfellsness- og Breiðafjarðar-
hafna. Þyrill er í Faxaflóa.
Eimskip.
Brúarfoss kom til Hríseyjar í
gær. Dettifoss kom til Rotter- |
dam 5. þ. m„ fer þaðan í dag til |
Hamborgar. Fjallfoss fór frá j
Leith 2. þ. m., væntanlegur til
Reykjavíkur í dag. Goðafoss fór
frá Reykjavík kl. 14.00 í gær til
Hull, Bremen, Hamborgar og
Rotterdam. Gullfoss fór frá
Leith 4. þ. m., væntanlegur til
Reykjavíkur seinnipartinn í dag
Lagarfoss kom til New York 27.
ágúst, fer þaðan væntanlega í
dag til Halifax og Reykjavíkur.
Selfoss er í Gautaborg. Trölla-
foss kom til Botwood í New
Founland 2. þ. m„ fermir þar
2500 tonn af pappír til New York
Flugferðir
Loftleiðir.
Innanlandsflug: 1 dag er á-
ætlað að fljúga til Vestmanna-
eyja kl. 13.30. Til Akureyrar kl.
15.30. Til Isaíjarðar og Patreks-
fjarðar. Á morgun er áætlað að
fljúga til Vestmannaeyja, Akur-
eyrar, Isafjarðar og Siglufjarðar
Millilandaflug: „Vestfirðing-
ur“ Catalinaflugbátur Loftleiða
fer væntaniega árdegis i dag til
Marie-eyju, þar sem leiðangurs-
menn Lauge Koch hafa aðset-
ur. Er þetta síðasta ferðin sem
íarin verður þangað. Verða að
þessu sinni sóttir 17 leiðangurs-
menn. Þeirra á meðal er foringi
leiðangursins, Lauge Koch. —
Fiugstjóri á „Vestfirðing" er
Einar Árnason. — „Geysir“ milli
iandaflugvél Loftleiða er í Rvík.
Árnab Feilta
Hjúskapur.
Siðastliðinn laugardag voru
gefin saman í hjónaband ung-
frú Margrét Jónsdóttir, Tryggva
götu 20, Selfosá, og Ólafur Þor-
valdsson frá Öxnalæk í Ölfusi.
Heimili ungu hjónanna verður
að Tryggvagötu 20, Selfossi.
6/öð og tímarit
Heisluvernd,
tímarit Náttúrulækningafélags
íslands, 2. hefti 1950, er nýkom-
ið út, fjölbreytt að efni og vand-
að að frágangi. Ur efni ritins
má nefna: Liðagigt, eftir rit-
stjórann, Jónas læknir Krist-
jánsson. Kjarni málsins, eftir
Grétar Fells. Um barnatennur
eftir Margréti Bergmann, tann-
lækni. Náttúrleg lækning og
varnir krabbameins, og er það
síðasta greinin í greinarflokki
um það efni eftir Björn L. Jóns-
son. Húsmæöraþáttur: Grænar
blaðjurtir með hrásalatupp-
skriftum (Dagbjört Jónsdóttir).
Frásagnir af lækningu tveggja
krabbameins- og tveggja liða-
gigtarsjúklinga. — Ný krúsku-
uppskrift. Lífrænn og tilbúinn
áburður (tilraunir ). Brauðin og
fytinsýran. Spurningar og svör.
Reykingar og kvillasemi. Röng
næring orsök ofdrykkju. Varn-
arefni gegn sýkingu í hveitikími.
Félagsfréttir o. fl.
Úr ýmsum áttum
Þjófnaður.
Um helgina var stolið tveimur
hjólbörðum undan loftpressu,
sem var við Borgartún 4 hér í
bænum. — Ef einhver hefði orð-
ið var við þetta, er hann beðinn
að gera Rannsóknarlögreglunni
aðvart.
Salernispappír
er um þessar mundir ófáan-
legur í landinu, og geta verzlanir
hér í bænum engar vonir gefið
um, hvenær ný sending af þeirri
vöru komi.
Luxvpiðin í Laxá
í Þingeyjarsýslu
(Framhald af 1. síðu.J
verðmæti eru fólgin í íslenzk
um veiðivötnum. Þennan
nýja íslenzka lax ættum við
að geta flutt með flugvélum
nýjan á markað í stórborg-
um heimsins.
Samningstíminn útrunninn.
Á þessu ári er útrunninn
samningstími sá, sem áin
var leigð að þessu sinnl. Ekki
tnm i asmxzmxzitmmmmtmmu
Salka Valka
(Framhald af 1. síðu.)
daginn var stóð til, að Gull-
faxi færi þangað og fíytti
flokkinn til íslands, en sú
ferð var afturkölluð á sið-
ustu stundu. Nú er Gullfaxi í
Amsterdam, þar sem verið er
að skipta um hreyfil í vél-
inni, og er hálft í Hvoru bú-
izt við, að vélin fari þangað
til Parísar, ef franski kvik-
myndaflokkurinn er tilbúinn
að koma til íslands, áður en
mjög langt um líður. Enn er
þó allt í óvissu um þá ferð
Gulifaxa, hvort hún verður,
eða hvenær.
Áttu að koma I byrjun
ágúst.
Upphaflega var gert fáð
fyrir, að Frakkarnir kæmu í
byrjun ágústmánaðar, og
var samkomuhúsið og barna-
skólinn í Grindavík leigt
þeim fram í september. Nú
mun barnaskólinn taka. til
starfa um miðjan mánuðlnn,
og dagur styttist og allra
veðra er von, svo að líklegt
er að erfitt reynist um myrida
tökur í Grindavík.'En ætlun-
in var að taka þar aðaliega
þá hluti myndarinnar, sem
teknir verða úti, í islerizku
umhverfi. • .
Aðeins tveir komnir.
Fyrir nokkru komu hingað
tveir Frakkar, sem áttu að
hafa þann starfa að arinast
undirbúning kvikmyndatök-
unnar í Grindavík. Stóð. til
að reist yrði þar hluti af húsi,
eða útveggir, sem nota á Við
myndatökuna. -
Eitthvað af kvikmyndavél-
um er einnig komið til fánds
ins og eina bifreið er búið að
flytja hingað. til afnota 'fyr-
ir kvikmyndaleiðanguririn í
Grindavík. En það er allt og
sumt.
hefir verið tekín nein á- i hverjum. Þó munu einhverj-
kvörðun um það enn þá,! ar umræður þegar hafa farið
hvort áin verður leigð eða fram um það.
ornum vec^i
Kornvara og umbúðir
Undanfarin ár hefir verið
flutt hingað til iands mikið af
hveiti, grjónum, baunum og
annari kornvöru í smápokum og
jafnvel pökkum. Þessi vara hef-
ir þótt hentug til kaups, þar
sem komast má í búð daglega,
en geymslurými hins vegar mjög
takmarkað eða jafnvel að kalla
alls ekki neitt.
Þessi vörukaup hafa auðvitað
verið dýrari en ef keypt hefði
verið í heilum sekkjum, enda
hefir verzlunarstjóri tjáð mér,
að nú sé þessum smáskammta-
innflutningi á kornvörum lokið,
og muni næsta sending, sem
kemur öll verða í heilum sekkj-
um. Mun sú ráðbreytni vafa-
laust spara nokkurn gjaldeyri,
og er ekki nema gott um það
að segja.
En það er hængur á, sagði
þessi maður: Það eru ekki til
neinar umbúðir handa fólki,
þegar það kemur til þess að
kaupa kornvöruna úr sekkjun-
um. Þetta tvennt hefði þó þurft
að fylgjast að: Að horfið væri
frá innflutningi komvöru í smá
pokum og pökkum og séð væri
fyrir umbúðum, svo að unnt
væri að skipta heilsekkjunum,
því að óhugsandi er, að meira
en helmingur landsmanna og
sennilega ekki nema þriðjungur
geti komið því við að kaupa slík
ar vörur í sekkjatali. Svó sagði
þessi maður, og hann mun hafa
rétt að mæla.
Það er annars undarlegt, hve
oft vill við brenna, að okkar vísu
landsfeðrum gleymist að sjá
fyrir innflutningi ýmislegs smá-
varnings, sem ekki kostar.nema
lítið, en er þó svo nauðsynleg-
ur, að vandræði hljótast af, ef
hann vantar. J. H.
Ur endurminningum
Lucknersgreifa
Sigurður Haraldz ísienzkaði
Luckner grelfi er þekktur maður um allan heim.
Sæúlfurinn var gælunafn á honum, og hann var hreyk-
inn af því nafni. Þessa dagana er hann á ferð til Vest-
urheims, að rifja upp fornar minningar. Endurminn-
ingar greifans hafa aukið mjög á frægð hans og eru
mikið lesnar. Rithöfundirunn Lowell Thomas ritar
skemmtilegan og ítarlegan formála fyrir bókinni.
Hann segir m. a.: Vinur minn Luckner greifi er skrýt-
inn maður. Hann hefir ferðast um Bandaríkin síðast-
liðin tvö ár og haldið þar fyrirlestra, sem óhemju að-
sókn hefir verið að. Hann er líka allt það, sem þú get-
ur búizt við af aðalsmanni, sem strauk að heiman,
þegar hann var drengur, og fór til sjós. Sjómaður var
hann i mörg ár, en varð síðan liðsforingi í hinum
keisaraiega þýzka sjóher. í fyrra heimsstríðinu lagði
hann af stað frá Þýzkalandi á gömlu seglskipi, komst [
fram hjá Englendingum og sökkti mörgum skipum
Bandamanna á Atlantshafi og Kyrrahafi. Þá gáfu
Bandamenn honum nafnið „Sædjöfullinn“. Þessu hélt
hann áfram, þar tii að hann að lokum strandaði skipi
sínu á kóralrifi í Suðurhöfum.
Eitt sinn á þeim dögum, er hann var i siglingum,
vann hann sem tjaldmaður hjá indverskum fakírum
í Ástraliu, og af þeim lærði hann svolítið i sjónhverf-
ingalist, sem hann þreyttist aldrei á að leika.
Lowell Thomas segir: Margt kvöldið hef ég setið
við arininn og hlustað á Sæúlfinn segja sögur frá
dögum seglskipanna. Við fórum í skemmtisiglingar
kringum eyjarnar í Karabíska hafinu á hinu stóra
segliskipi hans, sem hann kallar heimili sitt, og á þessu
ferðalagi var góður tími til að segja sögur. Ég náði í
mikið af ævintýrum og aðalþráðinn af starfsferii hans
í bók mína: Endurminningar Luckners greifa.
Nú er bókin komin í íslenzkri þýðingu Sigurðar
Haralz. Þessi bók verður lesin. Hún er ein skemmtileg-
asta bókin, sem komið hefir lengi.
Bókaverzlun Ssafoldar
AUGLÝSING
um lausar lögregluþjónsstöður
í Reykjavik
Nokkrar lögregluþjónsstöður í Reykjavík eru lausar
til umsóknar.
Umsóknir skulu ritaðar á þar til gerð eyðublöð, er
fást í skrifstofu minni og hjá lögreglustjórum úti á
landi. — Umsóknarfrestur er til 20. þ. m.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 0. september 195#,
SIGURJÓN SIGURÐSSON.
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS