Tíminn - 16.09.1950, Page 8

Tíminn - 16.09.1950, Page 8
,4 FÖRXWt \EGI“ t DAG Horft jfffr landið 34. árg. Reykjavík 16. september 1950. 203. blað. Sænsku síldveiðiskipin selja íslendingum reknetin Rússarnir haga sér öðru vísin on allar aðrar þjwðir, sem stunda síldveiöar hér Mörg sænsk síldveiðiskip, sem nú eru hætt veiðum, eða í þann veginn að hætta veiðum eru nú inni á Sigluf jarðar- höfn. Er afli skipanna eftir sumarið heldur lítill. Mörg eru með um 200 tunnur og fáeinir með meira. Sænsku síldveiði skipin hafa gert mikið að því, að selja íslendingum reknetin. Kemur það sér mjög vel bar sem mikill skortur er á reknet- um til veiðanna í Faxaflóa. En þangað hafa netin af sænsku bátunum vcrið flutt að norðan. Magnús Guðmundsson, flugstjóri Dagfinnur Stefánsson, annar flugmaður Einar Runólfsson, vélamaður Ingigerður Karlsdóttir, flugfreyja KÓREUSTYRJÖLDIN: Herlið S.Þ. gengur á land við ínchonog sækir að SeouS Lamigöiiííiilirrsvritirnar höfðu tekið Kim- poe-flus’völlinii «}»' vwru 12 km. frá Seonl Það var staðfest í herstjórnartilkynningu MacArthurs í gærkveldi, að allmikill herstyrkur hefði verið settur á land við hafnarborgina Inchon á vesturströnd Kóreu. Lið þetta sótti inn i land og mætti lítilli mótspyrnu. Hafði það tekið Kimpoe-flugvöllinn og yar aðeins 2 km. frá Seoul þegar síðast fréttist. Það var snemma í gærmorg un eftir kóreönskum tíma. sem mörg bandarísk og brezk herskip sigldu inn í höfnina í Inchon og settu þar mikið iið á land. Er talið að um 250 skip smá og stór hafi verið í flota þessum. Varð lítil mót- spyrna þar, og tók liðið borg ina þegar. Voru settar á land skriðdrekahersveilit' og héldu þær þegar inn í land. Um há- degið tóku skr iðdrekaher- sveitir bæinn Kimpoe og iitlu síðgr komu flugsveitir Banda ríkjahers þangað og tóku flugvöllinn. Staðir þessir eru um 50 mílur að baki aðal- víglínunni. Lið á iand hjá Pohang. í gær gengu suður-kórensk ar hersveitir einnig á land á austurströndinni miili Yong- dok og Pohang. Sóttu þær til beggja þessarar borga og náðu Yongdok á sitt vald. Sóttu þær einnig fast að Pohang og áttu þar í höggi við hersveitir norðurhersins, sem létu undan síga. Ný sókn að Taegu. Allharðar orustur stóðu í gær norðan Taegu og varð norðurherinn að láta undan síga. Náði suðurherinn þrem mikils veröum hæðum á sítt vald. Allt benti til þess í gær- kveldi, að norðurherinn væri að undirbúa nýja sókn gegn Taegu og mundi hefja hana með morgni. lAiii luifa veltir |mih<»'ii IsLissi Þrjár konur geta komið miklu til leiöar, meðal ann- ars teppt samgöngur í Lond- on svo að horfir til til vand- ræða. 7500 strætisvagnabíl- stjórar í London eru i verk- falli í mótmælaskyni við þaö að strætisvagnafélagið réði þrjár konur til að aka strætis vögnum. Guðmundur Sívertsen, lof sigiingafræðingur Bolli Gunnarsson, loftskeytamaður Bifreið stolið og ekið út af Laust eftir miðnætti í fyrri nótt var bifreið, er stóð utan við bifreiðastöð Hreyfils, stol ið. Var það bifreiðin R-5944, leigubifreið á Hreyfli. Síðar um nóttina fannst bifreiðin, og hafði henni ver- ið ekið út af Laugarásvegin- um, og gegnum girðingu og lent á jarðföstum steini og stórskemmzt. Skömmu eftir að bifreið- inni var stoiið sá bifreiðar- stjóri hana utan við hús á horninu, þar sem Snekkjuvog ur og Nökkvavogur mætast. Sat þá maður unöir stýri, en stúlka var að ganga frá bif- reiðinni. Þessa stúlku biöur rannsóknarlögreglan í Reykja vík að gefa sig fram hiö fyrsta. Reknetabáíarnir liéidn út í gær Fáir Faxaflóabátar voru á sjó í fyrrinótt. Veður var hvasst síðdegis í gær og fram eftir nóttu. í gær var hins vegar komið sæmilegt veður og munu fléstir bátanna þá hafa farið út og látið reka í nótt. Þeir fáu bátar, sem voru á sjó í fyrrinótt fengu misjafn an afla, en yfirleitt sæmileg- an. Lítill afli hjá útlendingum. Sænsku sjómennirnir sem eru á Siglufirði láta illa yfir síldveiðunum í sumar. Hefir vertíðin hjá þeim verið rýr, þar sem mcrg skipanna hafa ekki fengið nema. um 200 tunnur síldar og sum minna eftir langan veiðitíma. Segja þeir að sömu sögu sé að segja um síldveiðiskip annarra þjóða við Norðurland í sum- ar. Mörg sænsku skipanna, eru farin heim, en þau síðustu munu nú vera í Siglufirði að búast til heimferðar. Eru þau allmörg. Lítil útlendingaverzlun í Siglufirði. Erlendir sjómenn hafa ekki verzlað mikið í Siglu- firði í sumar. Hvortveggja er að hér hefir fátt fengist og þeir ekki haft mikla peninga handa á milli. Eitt er það þó sem erlendir sjómenn kaupa mikið af í Siglufirði, en það eru gæru- skinn. Rússarnir öðruvísi en allir aðrir sjómenn. Rússarir haga sér öðruvísi en allir aðrir sjómenn og eru Siglfirðingar ákaflega undr- andi á ýmsu framferði þeirra. Þeir virðast vera hræddir og ófrjálsir ferða sinna, þegar skip þeirra koma i höfn. Á dögunum er rússneskt birgðaskip kom til Siglufjarð ar tók það miklar birgðir af vatni. Er vatn það eina sem Rússarnir fá hér á landi og kæra sig um. Meðan skipið var í Siglu- firði fengu skipverjar að fara í land i stórum hópum. Gengu þeir þannig fylktu liði um göturnar, en aldrei fór einn og einn sinna ferða eins og íslenzkir og aðrir erlendir sjómenn gera alla jafnan, eða þegar þeim bíður svo við að horfa. Læknir bráðkvadd- nr á læknaþingi Víðkunnur svissneskur berklalæknir, René Jeanneret átti að flytja fyrirlestur á þingi berklalækna í Kaup- mannahöfn. Hann kom full- hraustur til Danmerkur og var kominn í fundarsalinn. Tíu mínútum áður en hann átti að hefja erindi sitt, hneig hann örendur í fang konu sinnar í viðurvist fimm hundruð stéttarbræöra sinna. Virtist svo, sem rússnesku sj<ómennirnir yrðu í hvert sinn að sækja um sérstakt leyfi tll að fara i land og nöfn allra sem í land fóru skráð uppi í brú. Var þannig fylgst nákvæmlega og skrif- lega með hvað hver maður fór oft í land og var lengi f hvert sinn. Fyrsta verk hóps- ins er á skip kom aftur, var að fara í brúna og gefa kvitt- un fyrir því hvað lengi þeir voru í landi. Heyfengur í Stein- grímsfirði sæmil. Frá fréttaritara Tímans á Hólmavík. í gær var þurrt veður á Hólmavík og hefir verið svo flesta undanfarna daga, þótt þurrkur hafi varla getað tal- izt. Mjög lítið er nú úti af heyjum í Steingrímsfirði, og má sumarið hafa talizt allgott þar og heyfengur orðinn sæmilegur. Ástandið er hins vegar öllu verra á Ströndum bæði sunnar og norðar. Þoku bakkinn hefir legið við ströndina oftast í sumar og þurrkleysur haldizt vikum saman. Ástandið það er því mjög slyæt, bey litil og hrak in. Norður í Árneshreppi mun ástandið vera einna verst á þessum slóðum. Slátrun mun hefjast á Hólmavík á fimmtudag eða föstudag í næstu viku. Mjög sjaldan hefir gefið á sjó frá Hólmavík undanfarna daga og því lítið verið róið, enda er afialítið, þótt á sjó gefi. I'iil :ir fyrir slagsninl Rússneskur dómstóll hefir nýlega dæmt norskan sjó- mann í eins árs fangelsi fyrir að slá rússneskan hafnar- verkamann Skip það, sem sjómaðurinn var á, var statt í höfn einni við Svartahaf. Svííir nuka land- varnir Fréttir frá Svíþjóð herma að sænska stjórnin muni fara fram á að 100 milljónir sænskra króna verði variö til landvarna þar á þessu ári.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.