Tíminn - 28.09.1950, Blaðsíða 4

Tíminn - 28.09.1950, Blaðsíða 4
4. TÍMINN, fimmtudaginn 28. september 1950. 213. blað. Hiri nýja SturEungaöld Niöurlag. Fagfélögin. Löggjöf þjóðarinnar hefir verið þannig úr garði gerð, að fámenn fagfélög geta hve- nær sem er, skorið á lífæð þjóðarinnar. Þessi aðstaða er óspart notuð. Tekjuhæstu þjóðfélagsþegnar, blygðast sín ekki fyrir að gera óhæfi- legar kröfur á hendur þjóðfé- laginu, og verði það ekki við kröfum þeirra, þá skal skor- ið á lífæðina. Má t. d. nefna síðasta dæm ið, þegar örfáir þjónar og matsveinar í siglingaflotan- um ætluðu að stöðva alia siglingu til landsins. Bryta- staðan á skipum hefir þó hingað til sýnt góðan hagnað. Múrarar, rafvirkjar, tré- smíðameistarar og aðrir iðn- aðarmenn, hafa skammtað sér í skjóli misheppnaðrar iðnlöggjafar, allríflegan skammt af þjóðartekjunum. Ef einstakir þjóðfélagsborg- arar reyna að komast utan hjá okri þessara manna, er þeirra eigin lögregla á ferð. Fyrir óheilbrigðar starfs- aðferðir slíkra manna. má fullyrða, að ein af frumþörf- um mannsins, húsnæðið, hef- ir stórhækkað í verði og skap að framleiðslu landsins þung an bagga. Stýrimenn og skipstjórar hafa fagfélög og nota þá að-| stöðu sína, til að skera væna sneið af sameiginlegum tekj-J um þjóðarinnar. — Opin-j berir starfsmenn mega ekki gera verkfall. Háværar kröf- ur eru uppi meðal þeirra, um að öðlast þann rétt og fengju þeir hann mætti þjóðin vel vita hvers væri von. Stór hóp ur þessara manna gat kinn- roðalaust efnt til mótmæla- funda, gegn þeirri óhæfu, að um leið og laun þeirra væru hækkuð, þá skildi þess kraf- ist, að þeir ynnu 38^ klukku- stund á viku hverri, er teldi 6 virka daga. Slík óhæfa var óþolandi í augum þessara manna. Árangur stéttabaráttunnar. Niðurstaðan af allri kröfu- pólitíkinni og stéttasamtök- unum undanfarin ár, er því sú, að framleiðendurnir með fúslega veittri aðstoð stríðs- gróðabraskaranna hafa gripið til gengisfallsins, þess óyndis úrræðis, að svíkja sparsama manninn og skapa ótrú á sparnaði og skynsamlegum lifnaðarháttum. Auk þess er veitzt að gamalmennum, sem með einu pennastriki eru arðrænd af ævintýramönn- um þeim, sem með glæfrum sínum gerðu gengislækkunina óumflýjanlega. Braut gengis- fallsins getur þó aldrei orðið langær. Slíkt hefir sagan sýnt og er þar nærtækasta dæmið Þýzkaland, rétt fyrir Hitlerstímabilið. Undirstaða allra þjóðfélaga hlýtur ávallt að verða sú, að framleiðslan geti borið sig. Kröfur á hendur framleiðsl- unni umfram það, hljóta að leiða til algerrar glöjunar. Hin sjálfsagða lausn stéttaátaka . Allir munu játa að hverju þjóðfélagi sé fyrir beztu, að ekki tapist um of af verðmæt um, í átökum um skiptingu þj óðf élagsteknanna. Flestir sanngjarnir og rétt hugsandi menn, munu játa, að sjálfsagt er að vinna að Eftlr Ilannes Pálsson, Endirfelli því, að allir búi við mann- sæmandi lifskjör og hver og einn beri sem sanngjarnleg- ast út býtum fyrir vinnu sína. Flestir vilja vonandi vinna að því, að útrýma hverskon- ar fjárplógsstarfsemi og rán- dýrsframfæri í þjóðfélagi sínu. Eins og okkar þjóðfélags- háttum er hagað nú, þá er því víðs fjarri, að slíkur hugs unarháttur fái notið sín. Sá mikli fjöldi manna, sem í hjarta sínu vill náunga sín- um allt hið bezta, fær ekki notið sin. Þessum hóp manna er haldið tvístruðum með ýmiskonar áróðri ofbeldis- seggja og misindismanna.eins og alþýðu allri á tíma Sturl- unganna. Vill ekki almenn- ingur þessa lands taka upp rólega íhugun á því hvort gerðardómsleiðin eigi ekki að vera þrautalending varð- andi skiptingu þjóðartekn- anna? Bændur lands vors hafa sýnt þann þroska og mann- dóm að visa veginn. — Þeir hafa fallist á gerðardómsleið ina gagnvart verðlagi sinn- ar vinnu. Þarna hafa bændurnir vís- að veginn. Verði ekki þessi i leið farin, er alveg ljóst að von er mikilla tíðinda. Ekkert þjóðfélag getur til lengdar sætt sig við það, að fámennar hagsmunaheildir geti bókstaflega stöðvað allt athafnalíf i landinu, án til- lits til þess, hvort kröfur þeirra eru sanngjarnar eða ekki. Inn í vinnulöggjöfina þarf að setja það ákvæði, að hafi verkfall ekki verið leyst inn- an viss tíma, þá skuli skip- aður gerðardómur.Gerðardóm ur þarf líka að ná til hvers- konar verðlags i landinu, svo sem matvöru, húsnæðis o. s. frv. Gerðardómur í vinnudeil- um hefir verið illa séður af verkalýðsfélögum. Foringjar þeirra hafa túlkað gerðardóm inn, sem tæki atvinnurek- enda. Slík túlkun er alröng. Mik- ill meiri hluti manna er það vel gerður, að hann misnotar ekki ábyrgðarstarf. Auk þess verða menn að gera sér það Ijóst að verkalýðsforusta, und ir forustu þeirra manna, er telja það eitt nauðsynlet að eyðileggja allan einkarekstur, semur aldrei á þann hátt, að neinn atvinnurekstur geti þrifist. Kommúnistar trúa því, að þeir geti skapað para- dís á jörðu með sinum þjóð- félagsháttum. Þeir geta dá- ið píslarvættisdauða fyrir sin ar hugsjónir eins og Stefán, sem grýttur var. Hungurvofan er þeirra bezta vopn, þess vegna verða lang- varandi vinnudeilur ávallt vatn á þeirra myllu, og það jafnt þó vinnudeila tapist hjá launþegum. Sanngjörn hlutaskipti allra þjóðfélagsþegnanna, á grund velli einkaframtaksins, er vilji flöstra íslendinga.Gerðar dómsleiðin mun bezta leiðin til að ná þeirri lausn. — ís- lenzka þjóð! Láttu ekki „at- vinnupólitíkusa" og ofstækis- fulla villutrúarmenn trufla dómgreind ykkar. Látið ekki nýtt Sturlungualdartímabil hefjast með þjóð vorri. Skuggavaldurinn í Mánudagsblaðinu Eftir Sólmund Elnarsson Úr skuggafylgsni sínu er Ajax að skjóta örvum sínum að bóndanum á Sandi í Kjós, Oddi Jónssyni, en flestar geiga þær á fluginu og fara fjarri marki, sem er að von- um, því að hann stendur á glerhálku vanþekkingarinn- ar og hnýtur um hnjóta ó- kunnugleikans. Hmsögn hans um eigin lyndisfar mitt, þakka ég hon um með jöfnum vinarhug og þeim, sem hann ber til mín; má hann svo velta vöngum yfir skapgerð minni, að eigin vild og geðþótta, því mun ég að engu svara. Dæmi því, og spurningu, er hann beinir til mín, þar sem hann stendur í vígamóði í sínu eigin garðshliði. vil ég svara þannig: Oddur á Sandi hefir aldrei tekið gjald, hvorki af akandi, ríðandi né gang- andi mönnum, sem átt hafa erindi að Sandi, svo samlík- ingin verður endileysa ein. Hvort ég vildi borga eða ekki borga kemur þessu máli ekki við. Dæmið sem hann státar með í garðshliðinu, er glöggur vottur þess, að hann hvorki þekkir né skilur það, sem hann er að skrifa um. Hann hefir hlaupið frumhlaup að manni fyrir ímyndaðar sak- ir og höggvið klámhögg, vegna sinnar eigin fljótfærni og van hyggju. Sé Ajax þessi sæmi- lega siðmenntaður maður, ætti hann að biðja Odd á Sandi fyrirgefningar fyrir frumhlaup sitt og ósæmileg- an rithátt, og lofa jafnframt að veitast ekki oftar að ó- kunnum, saklausum mönn- um eftir sögusögnum einúm saman. Væri mér Ijúft að styðja að því, að hann fengi slíka fyr- irgefningu, ef ég fyndi merki þess, að hann hefði hug á að bæta ráð sitt og þora að skríða fram úr skugganum. Sjómannaskólanemi ' óskar eftir herbergi í ná- grenni Sjómannaskólans. j Æskilegt væri ef hægt er að j fá fæði á sama stað. Þeir sem I vilja sinna þessu láti Áskel Einarsson í síma 81300 vita I sem gefur nánari upplýs- ’ ingar. Nýja fasteignasalan Hafnarstræti 19. Sími 1518. Annast sölu fasteigna, skipa, bifreiða og verðbréfa. Við- talstími kl. 11—12 og 2—5 virka daga nema laugardaga kl. 11—12. Reykvíkingar hafa tekið hinni fyrirhuguðu rafmagnshækkun með furðulegu langlundargeði. j Nú er þó Pétur Jakobsson kom- inn í baðstofuna og vill gera þessa hækkun að umtalsefni. Hann segir: „Það eru sólarlitlir dagar núna piltar, sagði Axlar-Björn á sinni tíð. Sagt er, að þá hafi þó skin- ið sól í heiöi daglega. Þessir sólarlitlu dagar endurtaka sig í ríki mannanna. Með nokkr- um rétti má nú segja, að sólar- litlir dagar séu í Reykjavík um Þessar mundir. Þó skín sól í heiði daglega. Heldimmir skuggar dýrtíðar og at- vinnuleysis leggjast yfir borgina okkar. Hungur- vofan er á næsta leiti og teygir sinn mikla hramm yfir okkur, byrgir fyrir sól og sumar, og veldur okkur áhyggjum. Dýrtíð in orsakast m. a. af gengisfalli íslenzku krónunnar, sem lög- leitt var s. 1. vetur, en atvinnu- leysið má rekja til aflabrests og óhagstæðrar utanríkisverzlunar. Um verðlag erlendra vara get um við víst lítið ráðið. Innlend framleiðsla er eðlilegt að hækki vegna hækkandi verðs á er- lendum efnum, sem nota þarf í þarfir framleiðslunnar s. s. fóð- urbætir, erlendur áburður, bú- vélar o. fl. Er verðhækkun þess ara vara eðlileg afleiðing af lækkun gjaldmiðilsins. Ef til vill hefir ekki verið hægt að komast hjá gengislækkuninni. Hins mátti þó vænta að forráðamenn ríkis og bæja væru á verði til að hamla á móti vöruhækkun og vaxandi dýrtíð, eftir því, sem föng frekast leyfðu. Þó virðist manni önnur hafi raun in á orðið. Bæjarvöldin okkar, meiri hlúti bæjarstjórnar Reykjavíkur, hef- ir nú samþykkt stórfellda hækk un á rafmagni borgarbúa og stórfellda hækkuji á hveravatn inu frá Reykjum, sem notað er til að hita mikinn hluta borgar- innar. Er hækkun rafmagns 48% og hækkun hveravatns- ins 55%. Þetta er alvarlegur skattur.sem ég held að menn hér í borginni séu ekki farnir að gera sér fulla grein fyrir. Má nú segja, að skattar og dýr- tíð í borginni okkar mergsjúgi hvert mannsins barn, svo að við eyðilegging liggi. Vitað er, að útsvör til bæjar- sjóðs hér eru orðin það há, að þau tilsvara, að hvert manns- barn í borginni verði að greiða 1000 krónur, allt frá barninu í > stofunni. vöggunni og til hins karlæga I gamalmennis. Þetta er alvar- leg upphæð, og henni vert að gefa gaum. Fleiri tekjustofna hefir bærinn, t. d. húsagjöldin, ióöaleigurnar. Maður skildi nú ætla að fjár- hagur Reykjavíkur væri nú góð ur, og það er hann án efa. Manni kemur það því kynlega fyrir sjónir þegar bæjarstjórnar meirihlutinn samþykkir að skatt leggja borgarana á eyðslu raf- magns og heitavatnsins, svo sem orðið er. Bæjarstjórnar- meirihlutinn hefir, mér vitan- lega ekki, rökstutt þörfina fyrir þessari hækkun og allra sízt knýjandi þörf. Bæjarstjórnarmeirihlutinn verður að gæta þess, að hon- um er falin forusta bæjarmál- anna af skattborgurum bæjar- ins, kjósendunum. Kjósendurnir hafa treyst því, að þessi flokk- ur, sem fer með völdin í bæn- um mundi búa vel, búa betur en aðrir flokkar, þegnamir njóta góðs af góðri fjármála- stjórn og skattar og dýrtíð lækka, eða verður haldið í skef j um. Ef þetta nú bregst og stuðn ingsmenn þessa flokks sannfær ast um, að bæjarstjórnarmeiri- hlutinn hækki skatta á borg- urunum fram yfir brýnustu nauðsynjar eða búi ósparlega að fé skattborgaranna, þá get- ur svo farið að langlundargeði borgaranna verði nóg boðið og þeir felli þennan bæjarstjórnar meirihluta og feli öðrum að fara með bæjarmálin. Þar sem nú þessi hækkun er ekki komin til framkvæmda, vildi ég gera þá tillögu að kall- aður væri saman borgara-fimd ur hér í bænum til að ræða þetta mál og fara þess á leit við bæjarstjórnina að breyta þessari fyrirætlun sinni, helzt að öllu leyti eða þá að meira eða minna leyti. Bæjarstjóm- inni yrði vitanlega boðið á þenn an fund. Gæti hún ekki rök- stutt knýjandi þörf fyrir þess- ari hækkun, þá félli hún frá henni. Vildi bæjarstjómin hvorki sanna knýjandi þörf fyrir hækkunina né heldur falla frá framkvæmd hennar, þá er að taka því, en gera þá upp reikninga við bæjarstjórnar- meirihlutann við næstu bæjar stjórnarkosningar“. í þetta sinn er ég sammála Pétri, þótt ég hafi stundum ver ið honum ósammála hér í bað- Starkaður. Sjómannaféiag Reykjavíkur Allsherjar- atkvæðagreiðsla Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur hefir samþykkt, að allsherjaratkvæðagreiðsla skuli viðhöfð um kjör fulltrúa til 22. þings Alþýðusambands íslands. Kosning hefst um næstu helgi. Framboðslistar, með sextán aðalfulltrúum og sextán til vara, ásamt með- mælendum 100 — eitt hundrað — fullgildra félags- manna, séu komnir til kjörstjórnar í skrifstofu félags- ins í Alþýðuhúsinu fyrir kl. 12 á hádegi föstudaginn 1. október. Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.