Tíminn - 28.09.1950, Side 8

Tíminn - 28.09.1950, Side 8
„ERIBIVT YFIRLIT“ Í ÐAG: Herstyrhur Sovétríkjjtinna 34. árg. Reykjavík 28. september 1950. 213. blaff. Langt komið vinnu við karí- öfiuuppskeru í Hornafirði Lang'varantli |mrrkar í vor ««' rlgnniííar í siimar tlrwgu úr vexti ^arihivaxía í Hornafirði cr nú unnið að upptöku kartaflna og cr vöxtur heidur fyrir neðan meðallag. Kenna menn um óhagstæðri veðráttu. Þurrkum miklum og langvarandi framan af sumri, en síðan látlausri rigningartið, þar til í byrjun september. Mikið kartöflumagn. Kartöfluræktin í Horna- íirði er heldur meiri í ár eh undanfarið og kemur mik- ið kartöflumagn þar upp úr görðum í haust, þó ekki sé eins vel sprottíð og ákjósan- Jegt hefði verið. Uppskeran er hins vegar nokkuð laus við alla sjúkdóma og má það þó merkilegt heita, þar sem mygla sækir mjög á kartöflu ræktina í veðráttu eins og þeirri, er verið hefur þar eystra í sumar. Almennt fóru Hornfirðing- ar ekki að taka upp úr görð- um sínum fyrr en fyrir viku og er það í seinna lagi. Kemur það aðallega til af því, að vegna hins erfiða tið- arfars í sumar um sláttinn, urðu menn að taka til ó- spilltra málanna við að ljúka heyskapnum í byrjun sept- ember, þegar brá loksins tií þurrka. Hefir verið allgóð tíð eystra þar til nú að heldur virðist vera að breyta til með veður. Gulrófur vel sprottnar Gulrófnarækt er mikil í Hornafirði í ár og eru þær vel sprottnar. Yfirleitt taka menn rófurnar ekki upp að ráði fyrr en kartöfluuppsker- unni er lokið, sem væntan- lega verður í byrjun næstu viku. Næturfrosta hefur að- eins gætt örlítið í Hornafiröi þrisvar eða fjórum sinnum, en ekki komið að sök við garð ræktina. 300 tunnur mest á býli Þó að garðrækt sé viða mik il í Hornafirði, hafa menn yf irleitt ekki stórar samfelld- ar breiður undir i ræktun- inni. Þeir sem rækta mest hafa þó allmikið undir og munu stærstu kartcflufram- leiðendurnir i Hornafirði fá um 300 tunna uppskeru í haust. En langsamlega flest- ir eru þó ekki með nema 50— 100 tunna ræktun. Kartöflu upptckuvélar eru viðast hvar notaðar, dregnar af jeppum, eða dráttarvélum, en vélar sem sekkja eru aðeins til á stöku stað, en hafa lítið eða ekkert verið notaðar sem slík ar. Hafa þær ekki gefizt nógu vel og má vera að óhentug dráttartæki valdi þaf nokkru um. Lúðuveiðar Bátar frá Hornafirði stund uðu lúðuveiðar um skeið fram an af sumri. Veiddu þeir sæmilega og var aflinn fryst ur hjá kaupfélaginu til sölu á Bandaríkjamarkaði. Þegar líða tók á sumarið fóru þess ír bátar norður til rekneta- veiða en eru nú við rekneta- veiðar í Faxaflóa. Her S.Þ. í sókn á öllum vígstöðvum Seoul er nú algerlega á vaJdi herja S. Þ. og voru fán- ar Suður-Kóreu og S. Þ. dregn ir samtímis að hún á öllum ríkisbyggingum í borginn í gær. í herstjórnartilkynn- ingu Mac Arthurs segír, að nú hafi algerlega verið lokað öll um undankomuleiðum norður hersins norður fyrir Seoul. þar sem allar járnbrautir og aðalvegir séu á valdi herja S. Þ. norður frá borginni. Her sveitir S. Þ. hafa nú náð sam an á miðjum skaganum og er nú sótt hratt að Taejon. Á austurströndinni þar sem her S. Þ. sækir norður hefir hann mætt harðastri mótspyrnu og var búizt við að senda þyrfti þangað vara- lið til að styrkja hann og tryggja áframhaldandi sókn á þessum slóðum. Járnbrautarstarfs- mönnum kennd kurteisi Nú á að kenna öllum lest- arþjónunum í Vestur-Þýzka- landi að umgangast. farþeg- ana af þeirri kurteisi, sem frekast er unnt að krefjast. Járnbrautarstjórnin í Mun- chen og Frankfurt hefir for- ustuna i þessu máli. Allir lestarþjónar og vagnstjórar í Vestur-Þýzkalandi verða að fara á fimmtán daga nám- skeið, og kjcrorð þess verður: „Háttvísi, hvort sem við- skiptavinurinn hefir rétt eða rangt fyrir sér“. Reynist þetta námskeið ekki nógu vel til þess, að starfsmennirnir hagi sér eins og vera ber, verða þeir að láta af störfum í farþegalest um en eiga þess kost að starfa við flutninga- og gripavagn- ana. | Bílnum var sökkí I 1 Sjómaður einn kom til I I Kaupmannahafnar fyrir i 1 fáum dögum. Hann hafði [ i verið í siglingum eriendis [ | í hálft annað ár. Hann | I sagði blöðunum þessa i [sögu: | — Við lágum í amerískri | [ höfn fyrir hálfu öðru ári. ? i Þá keyptum við tveir gaml [ [ an bíl fyrir tuttugu og i i fimm dollara. Ilann hafði [ [ v erið smíðaður árið 1939, [ i og þetta var indælasta far i i artæki, því að smávegis [ [ sem að honum var, höfð- ; i um við nógan tíma til að [ [ lagfæra í tómstundum [ i okkar á sjónum. Þegar við ; ! komum í höfn, og fengum [ [ landgönguleyfi, var bílln- | I um okkar sveiflað upp á | ^ bryggju, og við ókum af; | stað í kynnisferð. I En svo var haldið heim 1 | til Danmerkur. Við urðum i 1 að borga toll og söluskatt, | | ef við áttum að koma með [ Í bilinn okkar að landi. Og i I daginn sem við sigldum f Í fyrir Skagann, lyftum við | | gamla bílnum okkar yfir | Í borðstokkinn, drukkum fá | I eina kveðjubjóra og hjugg i [ um síðan á böndin, sem | I héldu honum uppi. Og þar | i með hvarf hann í hafið. i Styður tillögur Bandaríkjamanna Schuman utanrikisráð- herra Frakka flutti langa ræðu á allsherjarþinginu i New York í gær. Lýsti hann þar algeru fylgi Frakka við tillögur Achesons utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna um eflingu Sameinuðu þjóðanna. Aðalatriði tillagna þessara er það, að stofnaður verði sérstakur her, sem öryggisráð S. Þ. hafi til umráða hvenær, sem til þarf að taka, og verði hægt að beita her þessum til fyrstu hernaðaraðgerða, ef skyndileg árás er gerð á eitt- hvert meðlimaríki S. Þ. Fyrirmyndarskóli í torsott- asta skólahverfi landsins Ra'tt við iMagmis Þórarinsson, skólastjóra ú Skjöldólfsstöðum á Jökuldal Þegar sagt hefir verið frá skólamálum á Austurlandi, sýningum á skólavinnu eða kennarafundum undan- farin ár, hefir oft verið minnzt á heimavistarskólann á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal. Þar hafa kennarahjón veitt forslöðu skóla í langsamlega víðáttumesta skólahéraði landsins við mjög erfiðar aðstæður með þeim ágætum, að eftirtektarvert þótti á margan hátt. — Tíðindamaður blaðs ins hitti Magnús Þórarinsson, skólastjóra á Skjöldólfsstöð- um, snöggvast að máli. Hann er nú að láta af störfum á Skjöldólfsstöðum en taka við heimavistarskólanum i Fljótshiíð. landi, Magnús? — Jú, svo má kalla. Hann var annar tveggja, sem fyrst voru settir á stofn. Skólinn að Skorrastað í Norðfirði tók til starfa sama haust. Mér fannst, að mikið væri i húfi, að þessi byrjun tækist slysa- laust því að ég leit svo á, að góðir heimavistarskólar væru helzta úrræði dreifðustu byggðanna í fræðslumálun- um. Færi byrjunin hins veg- ar út um þúfur, var hætt viö, að sú ótrú á þessu skólafyrir komulagi mundi skapast, að aðrar sveitir leggðu ekki út i það sama. Þess vegna reynd- um við að gera eins og við gátum þrátt fyrir erfið skil- yrði. Fyrsti heimavistarskól- inn á Austurlandi. Skólinn á Skjöldólfsstöðum tók til starfa 1947. Magnús Þórarinsson kennari og kona hans, Anna Sigurpálsdóttir, tóku þá við honum og gerðu hann þegar að ágætu vetrar- heimili fyrir þau 20 börn, eða þar um bil, sem þangað áttu að sækja. Skólahúsið var þá aðeins hálfbúið og vantar raunar mikið á það sé full- búið. Eins og gefur að skilja voru erfiðleikarnir margir. Allan vetrarforða, jafnt af matvörum sem skólavörum varð að draga að sér á haust nóttum, vegna hins mikla langræðis og vetrarríkis á þessum slóðum. Skólahéraðið var líka hið viðáttumesta, sem til er á landinu, náði yfir allan Jökuldal allt innan frá Aðalbóli, og einnig tald- ist Möðrudalur á Fjöllum til þess. Þrátt fyrir þetta tókst skólastjóranum og konu hans að koma á fót skólaheimili, sem til fyrirmyndar mátti telja á margan hátt, og ýmis legt, sem þaðan kom, svo sem vinnubókargerð og handa- vinna barna vakti óskipta at hygli á sýningum. — Var skjólinn á Skjöld- ólfsstöðum ekki fyrsti heima vistarbarnaskólinn á Austur- Um 10 þúsund fjár slátrað í Hornafirði Sauðfjárslátrun byrjaði í gær í Hornafirði hjá Kaup- félagi Austur-Skaftfellinga þar. Gert er ráð fyrir að slátr að verði þar samtals um 10 þús. fjár, eða nokkuð svipað og verið hefir undanfarin ár. Sláturtíðin í Hornafirði stendur þrjár til fjórar vik- ur, eftir því hvernig gengur. t-- Atlanzhafsráðið samþykkir stofnun Evrópuhers Atlanzhafsráðið, sem verið hefur á fundum í New York undanfarna daga, gaf út opinbera tilkynningu þess efnis í gær, að ákveðið hefði verið að stofna sérstakan Evrópu- her undir einni yfirstjórn. Gert er ráð fyrir að fyrir þessum liðsafla ráði einn yfir hershöfðingi og herráð skip- að hershöfðingjum frá með- limalöndum Atlanzhafsráðs- ins, herstjórn þessl hafi með höndum þjálfun herafla og skiptingu liðs á væntanlegar varnarstöðvar. Innan skamms verður haf- in athugun á því, hve mikið hvert ríki í Atlanzhafsbanda laginu geti lagt fram til þessa sameiginlega hers, annaðhvort með því að leggja fram liðsafla eða fjárstyrk til hernaðarþarfa. í tilkynningu þessari er einnig lcgð áherzla á það, að Vestur-Þýzkland verði að taka þátt í þessum samtökum og leggja fram sinn skerf. Bonnstjórnin hefur hinsveg- ar tilkynnt að hún munl ekki fallast á að leggja fram liðsafla, er sé undir erlendri stjórn. Verði stofnaður þýzk ur her, sem nauðsyn beri til, verði stjórn hans að vera algerlega innlend. Þrjú varnarsvæði. Gert er ráð fyrir að Evrópu verði skipt i þrjú varnar- svæði, er hafi hvert um sig samræmt varnarkerfi. Svæði þessi verða Norðvestur-Evr- ópa, Suðaustur-Evrópa og Miðj arðarhaf ssvæðið. Lágu úti um nótt með skólabörnin. — Er ekki langræðið og erfiðleikarnir við að koma börnunum að og frá skóla hið mesta vandamál? — Jú. Víða er yfir mikla fjallvegi að fara og allra veðra von. Þangað sem lengst er að sækja er tíu stunda ferð aðra leið, þótt sæmilegt sé að fara. Hins vegar er oft- ast allra veðra von, oft hrið og dimmviðri á fjallvegum, þótt sæmilegt sé í byggð. Sérstaklega var erfitt um skólasókn frá Möðrudal á Fjöllum. Eitt sinn kom það fyrir, þegar Möðrudalsbænd- ur voru að koma með börn sín i skólann, að þeir urðu að liggja úti um nótt með þau uppi á miðri Jökuldalsheiði og hafast við í kofa á eyðibýl inu Rangá. Nú er hætt að senda börn frá Möðrudal i Skjöldólfsstaðaskólann, og hafa ábúendur þar fengið styrk frá fræðslumálastjórn- (Frar.hald á 7. siðu.) MMtimilMIIMtMmtllMMMItMIIIMIIIItllltMMtllMIIIIIIMIia Köttur á Matterhorn i i Lítill kettlingur úr sviss I nesku gistihúsi hefir unn-1 ið það sér til frægðar að | klífa Matterhorn. Köttur- | inn slóst í fylgd með f jalla [ görpum, sem lögðu af stað | frá Hótel Beivedere við ræt I ur f jallsins, og komst [ hjálparlaust alla leið upp 1 á tindinn. En niður varð aftur að i bera kisu í bakpoka. 5 • alHMIIIIMMIMIIMMMMMMMIMMIIt MMMMMMMMMMMIUIN

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.