Tíminn - 12.10.1950, Síða 5

Tíminn - 12.10.1950, Síða 5
.■*f' 226. blaff. TÍMINN, fimmtudaginn 12. október 1950. 5, Þriðjjud. 10. okt. Vígbúnaður lýð- ræðisþjóðanna Um þessar mundir stendur yfir öllu stórfelldara vígbún- aðarkapphlaup en áður er dæmi til um á friðartímum. Fyrst eftir styrjöldina væntu flestir þess, að hafizt gæti friðartími og mannkynið gæti snúið sér að því að framleiða brauð og aðrar nauðsynjar í stað hergagna. í samræmi við það afvopnuðust lýðræðisþjóð irnar líka kappsamlega, eins og m. a. má marka á því, að 1 sumar var talið, að her- varnir Breta væru nú orðnar öllu lakari en í upphafi síð- ari heimsstyrjaldarinnar. í stað vopnaframleiðslunnar var hafizt handa um fram- leiðslu margvislegra lífsnauð- synja til að bæta afkomu al- mennings. Því miður hafa lýðræðis- þjóðirnar ekki fengið lang- an tíma til að leggja meiri stund á framleiðslu lífsnauð- synja en hergegna. Bylting- in í Tékkóslóvakíu veturinn 1948 dró strax óhugnanlega bliku á loft, og upp frá því var lýðræðisþjóðunum ljóst, að sú saga frá valdatíma nazista, þegar hver smáþjóðin eftir aðra varð ofbeldinu að bráð, gæti hæglega endurtekið sig. Til þess að láta þá sögu ekki endurtaka sig í Evrópu, varð Atlanzhafsbandalagið stofn- að. Með því var tryggt, að engin einstök þjóð Vestur-Ev rópu yrði fyrir árás, án þess að það yrði talin árás á þær allar og ráðstafanir gerðar samkvæmt þvi. Það er margra trú, að síðari heimsstyrjöld- inni hefði verið afstýrt, ef slíkt bandalag hefði þá verið til. Fyrstu misserin eftir stofn- un Atlanzhafsbandalagsins lifðu menn enn í þeirri von, að vissan um þessa samstöðu vestrænu þjóðanna væri nægi leg vörn, og ekki þyrfti því að fylgja eftir með stórfelldum vígbúnaði. Enn var þvi haldið áfram að leggja meiri stund á framleiðslu lifsnauðsynja en hergagna. Það var fyrst við innrás kommúnista í Suð- ur-Kóreu, sem lýðræðisþj óð- irnar vöknuðu fyrir alvöru. Það kom þá í ljós enn betur en menn höfðu gert sér grein fyrir áður, að meðan hinn vestræni heimur hafði afvopn ast og lagt meira kapp á fram leiðslu lífsnauðsynja en her- gagna, hafði hinn austræni heimur lagt megináherzlu á vígbúnað og var nú svo hern- aðarlega öflugur, að hann gat á fáum dögum lagt alla Vest- ur-Evrópu undir sig. Eini þrándurinn, sem enn var á veginum, var kjarnorku- sprengjan, sem Bandaríkin réðu yfir, enda er nú öllum áróðursvopnum og ávörpum kommúnista beint ‘ gegn henni, en forðast að fordæma áróðursstyrj aldir eða beitingu annarra morðtóla. Hinum vestrænu lýðræðis- þjóðum varð nú ljóst, að þær áttu ekki nema um tvennt að velja. Annar kosturinn var að vígbúast og sýna það svart á hvítu, að þær myndu verja frelsi sitt, ef á þær yrði ráð- ist, ellegar að bíða þess með andvaraleysi, að þær yrðu hinni austrænu kúgun að ERLENT YFIRLIT: 47 samningar sviknir Utanríkisráðhcrra Júgóslavíu deilir harð- lcga á Ríissa á þingi S.I». Þegar þing Sameinuðu þjóð- anna hófst í s. 1. mánuði fluttu aðalfulltrúar flestra þátttöku- ríkjanna ræður, þar sem þeir gerðu grein fyrir viðhorfi stjórna sinna til alþjóðamála. Af þeim ræðum, sem fluttar voru við þetta tækifæri, vakti ræða dr. Edvard Kardelj, utan- ríkisráðherra Jugoslavíu, einna mesta athygli, en í henni gerði hann m. a. grein fyrir árásum þeim, sem Jugoslavía hefir orð ið að þola af hálfu Sovétríkj- anna og leppríkja þeirra. Sá kaflinn i ræðu Kardelj, sem fjallaði um þetta efni, verður rakin í aðaldráttum hér á eftir. Ummæli Vishinsky og staðreyndir. — Herra Vishinsky sagði í ræðu sinni á miðvikudaginn: „Sovétrikin vilja eiga vinsam leg skipti og góða samvinnu við öll þau ríki, sem óska þess“. Þvi miður eru þessi orð ekki í samræmi við staðreyndir hvað snertir framkomu Sovétríkjanna við Jugoslavíu. Sovétríkin sýna Jugoslavíu fulla óvinsemd og yfirgang, þótt Jugoslavía óski einskis fremur en að hafa góða samvinnu við Sovétríkin. Næstum daglega er reynt að efna til yfirtroðslna og óeirða við landamæri Jugoslavíu. Sendi fulltrúar Jugoslavíu í Austur- Evrópu eru beittir hvers konar rangindum. Jugoslavar, sem bú- settir eru í Ungverjalandi, Rú- meníu og Bulgaríu, sæta verstu meðferð. Haldið er uppi ákaf- asta áróðri í Balkanlöndunum til að blása að kolum fjand- skapar og styrjaldarhugar gegn Jugoslavíu. Viðskiptabannið gegn Jugoslavíu hefir gengið svo langt, að t. d. Rumenía hef ir rofið alþjóðasamninga með því að stöðva alla járnbrautar- og póstflutninga milli landanna. Við landamæri Jugoslavíu er nú haldið uppi fyllsta stríðs- undirbúningi sem þætti í kalda stríðinu. Virki eru reist, skot- grafir grafnar, hergögn flutt þangað i stórum stíl og heraíli stöðugt aukinn. Allt er ger: til að skapa þá trú, að styrjöld sé á næstu grösum milli Jugos ava og nágranna þeirra. Tölur sem tala. Rétt þykir að tilgreina nokkr ar tölur til að sýna þet'.a enn gleggra. Biðan árásirnar gegn Jugo- slavíu hófust hafa ríki Austur- Evrópu rofið 47 samninga, er þau höfðu gert við Jugosiavíu. Þann 1. júlí s. 1. var búi3 að vísa 138 jugoslavneskum sendi- mönnum frá þessum löndum. Tvö seinustu árin hafa verið 896 árekstrar á landamærum Jugoslavíu, er liggja að Ung-■ verjalandi, Rúmeníu, Búlgaríu og Albaníu. Settar hafa verið á fót í nágrannaríkjum Jugoslavíu > ekki færri en 20 miðstöðvar, er j hafa það verkefni fyrst og fremst að þjálfa skemmdar- verkamenn, sem laumað er inn í Jugoslavíu. Eftirfarandi tölur sýna þó kannske einna bezt, hve kapp- samlega áróðurinn gegn Jugo- slavíu er rekinn. Fyrstu sex mánuði þessa árs fluttu útvarpsstöðvar Austur- Evrópuríkjanna ekki færri en 6732 áróðurserindi, sem ætlað var að ná til íbúa Jugoslavíu. Það tók samtals 3075 klst. að flytja þessi erindi og svarar það til þess, að einn maður hefði talað samfleytt í fjóra mánuði, átta daga og þrjár klukkustund ir. Allur þessi áróður og ofsóknir gegn Jugoslavíu nýtur óbeins og beins stuðnings stjórnarvald- anna í Austur-Evrópulöndunum. Ef til vill er þessum ofsóknum gegn Jugoslövum haldið upp í skjóli þess, að þeir eru lítil og óháð þjóð, sem ekki hefir nein rikjasambönd að baki sér. Af þeim ástæðum eru þessar ofsókn ir gegn Jugoslavíu þó enn meira áberandi og óafsakanlegri en ella. Geta þeir, sem standa fyrir slíkum ofsóknum og yfirgangi, látist vera miklir friðarsinnar? Er þetta framferði í samræmi við þann friðarvilja, sem full- trúi Sovétríkjanna hefir látið í ljós hér? Er þetta samræman- legt þeirri friðarstefnu Sovét- ríkjanna, er herra Vishinsky talaði um? Framangreindar staðreyndir svara þessum spurningum. Þeim verður ekki hnekkt með orðum einum. Þegar herra Vishinsky krefst þess, að bannaður sé all- ur stríðs- og hatursáróður, — en því er stjórn Jugoslavíu full- komlega samþykk — þá ætti hann að byrja á því að fá því framgengt í Sovétríkjunum og fylgiríkjum þess. Drottnunarstefna Sovétríkja. Lýðveldið Jugoslavía er social istiskt ríki. Framangreint fram ferði sýnir, að hér er á ferðinni tilraun til að koma sjálfstæðu ríki undir erlenda yfirdrottnun og tilraun til að múlbinda frjálsa þjóð, sem krefst þess, að ríkin vinni saman á lýðræð- is- og jafnréttisgrundvelli og þó einkum hin socialistisku ríki. Ég vil taka fram, að ríkis- stjórn mín álítur ekki, að So- bráð. Nær einróma hafa lýð- ræðisþjóðirnar valið fyrri kostinn. Þær leggja nú á sig þungar byrðar og þrengja kjör sín til þess að geta víg- búist og treyst þannig frelsi sitt. Þetta gildir ekki aðeins þær þjóðir, sem eru í Atlanzhafs- bandalaginu, heldur engu síður þær, sem eru utan þess, eins og t. d. Svia og Svisslend inga. Báðar þessar þjóðir hafa ákveðið aö stórauka varnir sínar og leggja á sig þungar byrðar í því skyni. Hættan, sem vofir yfir þeim að austan, hefir neytt þær til þessara aðgerða engu síð- ur en Atlanzhafsbandalags- þj óðirnar. Reynslan frá Kóreu hefir sýnt, að hvert það land, sem er óvariS, á það á hættu, að hinir austrænu yfirgangs- menn reyni að hremma það, og það verði stríðsvöllur. Þótt vígbúnaðinum og viðbúnað- inum fylgi nokkurar byrðar og erfiðleikar, eru það þó smá munir I sambandi við það, sem Kóreumenn verða nú að þola. Þetta hafa lýðræðisþjóðirn ar yfirleitt gert sér ljóst. Þess vegna hafa þær valið víg- búnaðarleiðina þótt örðug sé. Þær hafa ekkert fremur kosið en að geta helgað sig friöar- störfunum og lagt allan víg- búnað á hilluna. Hin komm- únistisku yfirgangsöfl hafa hins vegar neytt þær út í víg- búnaðarkapphlaup, eins og nazistar gerðu á sinni tíð. Þess ber að vænta, að styrkur lýðræðisaflanna verði flj ót- lega svo mikill, að einræðis- öflin sjái að sér Og friðar- störf og framleiðsla nauð- synja geti skipað öndvegið á ný. En víst er það, að því marki verður ekki náð, nema lýðræðisþjóðirnar leggi á sig þær byrðar, er fylgja vígbún- aöinum og viðbúnaðinum nú. TÍTÓ vétríkin ein beri aðalábyrgð á því, hvernig ástatt er i heims- málunum. Stjórn mín álítur þvert á móti, að sérhver tilraun til allsherjar krossferðar gegn kommúnisma vinni gegn friðn- um og batnandi sambúð þjóð- anna. Það er skammsýni að sjá ekki, að barátta fyrir friðn um helst í hendur við barátt- una fyrir bættum þjóðfélags- háttum og betri lífskjörum. Jafnframt verður líka að gera sér ljóst, að friðurinn verður því aðeins varðveittur að barist sé gegn sérhverri yfirdrottnun- ar- og yfirgangsstefnu, án tillits til þess undir hvaða merkjum eða hugsjónum hún reynir að dylja sig. Sovétríkin grafa nú undan öflum iýðræðisins og friðarins með því að reyna að beygja sér- hverja framfarahreyfingu und- ir yfirráð sín og gera hana að auðsveipum skósveini sínum. Sovétríkin vinna líka dyggilega að því að leggja stríðsæsinga- mönnum í Vesturlöndum vopn í hendur gegn þeim, sem eru að berjast fyrir friðnum. Kóreu- styrjöldin er glöggt dæmi um þetta. Verkfall Sovétríkjanna í Öryggisráðinu var líka gott vopn í höndum þeirra, sem eru á móti Sameinuðu þjóðunum og eru andvígir alþjóðlegri samvinnu yfirleitt. (Framhald á 6. síðu.) Raddir nábúanna Alþýðubl. birtir í gær grein um hina nýju „friðarhreyf- ingu“ kommúnista. Það segir m. a.: „EJn tilgangur Halldórs Kilj- ans ’og annarra kommúnista með þessari friðarhræsni er skiljanlegur. Þeir eru með Stokkhólmsávarpinu og und- irskriftasöfnuninni undir það, að reyna að leiða athygli mann kynsins frá kaldrifjuðum stríðs undirbúningi og blóðugu of- beldi kommúnista sjálfra.með því að benda á kjarnorkuvopn Bandaríkjanna, eins og friðin um í heiminum standi engin hætta af neinu öðru en þeim! En hitt er erfitt að skilja, að menn, sem ekki eru kommún- istar, skuli geta verið svo lítið vandir að virðingu sinni, að lána nöfn sín undir slíkt hræsnisplagg. Þeim hefði verið nær, ef þeim er einhver alvara, að vilja vinna að varðveizlu frið ar og mannúðar í heiminum, gð sýna þann manndóm, að mótmæla í sumar, þegar komm únistar hófu hinn blóðuga hild arleik austur í Kóreu. En það gerðu þeir ekki. 1 stað þess skrifa þeir nú undir viðbjóðs- legt hræsnisplagg kommúnista — friðrofanna — um frið á jörðu! Hvílík „friöarhreyf- ing“!“ ___ Það er líka víst, að þeir verða fáir, sem láta blindast af friðarhræsni kommúnista. Fleiri munu feta í fótspor Stokkhólmsbúa, sem hefndu fyrir það, að kommúnistar kenndu ávarp sitt við borg þeirra, með því að fella 12 af 17 bæjarfulltrúum kommún- ista 1 kosningum í haust. Mbl. veit ekki hvað umboðsverzlun er Þó að Mbl. sé kaupmanna- blaff er eins og renni stund- um út í fyrir því í verzlunar- fræffunum og þaff mæli af undarlega litlum skiiningi um þá hluti. Þannig hefir það núna ný- lega verið að tala um það, aff kaupfélögin héldu vöxtum af fé bænda með því að borga þeim ekki út fullt verð strax og þau taka viff afurðum þeirra í umboðssölu. Nú er það einkenni umboffs sölu að varan er seld í umboði fyrir eiganda. Bóndinn hefir bæði áhættu og arff af kjöt- sölunni, þó að kaupfélagið annist hana. Kaupfélögin taka við kjöt- inu í sláturtíð. Sumt selja þau fljótlega en annað geyma þau fram á vetur, vor og sum ar. Nú er eins og kaupmanna- blaðið ímyndi sér, að kjöt- skrokkar bændanna ummynd ist í peninga strax og þeir eru komnir í umboð kaupfé- lagsins. Blaðið grípur það ckki. þrátt fyrir allt sitt vcrzlun- arvit, að bændur eiga enga peninga hjá kaupfélagi sínu, þó að þeir eigi þar vöru, sem það ætlar að selja. Þaff þarf víst enginn að láta sér detta í hug, að það sé annað en helber fáfræðin, sem geri Mbl. Hverjum dett- ur í hug, að það fari viljandi að rægja samvinnufélögin? Sjálfstæðisflokkurinn hefir nú efnt til happdrættis. Það væri fróðlegt að fá að sjá í Morgunblaðinu hvort sölu- mönnum flokksins eru færðir til skuldar vextir af söluverði miðanna frá þeim degi, sem þeir taka við þeim, hvort sem þeir geta selt þá eða ekki. Samkvæmt hugmyndum Mbl. um þetta verzlunarfyrirkomu lag, — umboðssöluna, — hlýt ur því að vera þannig háttað. Þaff er ekkert fast og ákveð ið verð, sem bændur fá fyrir kjötið í þessu landi. Það er dálítið mismunandi hvað kaupfélögin geta borgað út endanlega. Það er af því, að mismunandi mikill kostnað- ur leggst á kjötsöluna. Eitt kaupfélag selur tiltöiulega mikið af sinu kjöti fljótlega til neyzlu á verzlunarstaðnum sjálfum. Annað hefir svo sem engan markað heimafyrir fen ekkert kaupfélag getur á- kveðið endanlegt verð fyrr en það hefir gert upp kjötreikn- ing sinn. Kaupfélagsmenn vita þetta yfirleitt mæta vel. Þeir munu heldur ekki kippa sér upp við tregðu Mbl í skilningi á kaup félagsmálum. Það tekur sig enginn meiri mann en hann er, og meðan Mbl. getur ekki skilið hvað umboðssala er, vcrður ekki tiltökumál þó að það þjófkenni kaupfélögin. fyrir að geyma vörur, sem þau hafa í umboðssölu. Hitt er svo annað mál, hvort einstök kaupfélög, sem hafa fengið að verzla og fengið aff safna einhverju fé í óskiptan lega sameingarsjóði fyrir hérað sitt, geta í einstökum til fellum gert mönnum betur og til dæmis borgað bændum út fyrir kjötið við móttöku þess eitthvað meira en kjötreikn- ingur raunverulega leyfir. Það er innanfélagsmál, sem kaup félögin ein gera upp við sig á hverjum stað meðan félaga frelsi er í landinu. Ö.+Z.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.