Tíminn - 17.11.1950, Síða 1
RUttjóri:
Pórarinn Þórarintton
Fréttaritstióri:
Jón Helgason
Útgefandi:
rramtóknarlloWcurinn
Skrifstofur i Edduhúsir.v
Fréttasimar:
91302 0(7 S13C3
AfgreiBslusími 2323
Auglýsingaslmi S13C0
PrentsmiBjan Edda
1
34. árg.
Reykjavík, föstudaginn 17. nóvember 1950.
257. bia< ’
Það hafði enginn
hengt sig í heilsu-
verndarstöðinni
í gær barst sú fregn um
alla Reykjavlk, að börn úr
Austurbæjarskólanum hefðu
fundið hengdan mann í
lieilsuverndarstöðinni, sem er
i smíðum í grennd við skól-
ann. Komu sum barnanna í
skólanum grátandi heim til
sín yfir þessum válega at-
burði.
En sem betur fór hafði
•enginn hengt sig í heilsu-
verndarstöðinni. Lítill dreng-
ur hafði heyrt tvo aðra drengi
segja, að hengdur maður
væri í heilsuverndarstöðinni.
Hann hljóp óðar í dauðans
•ofboði til kennarans í bekkn-
um og tjáði honum tíðindin,
og kennarinn sneri sér sem
rétt var, til lögreglunnar.
Kom lögregian hið bráðasta á
vettvang og var nú hafin leit
í heilsuverndarstöðinni, en
dimmt var þar víða í skot-
um og afkimum. En enginn
fannst þar hengdur, enda
kom á daginn, hvernig heng-
ingarsagan hafði orðið til.
Samgönguerfiðleik-
ar Smálandahverfis
Þórður Björnsson lögfræð-
:ingur, sem er nýkominn heim
frá útlöndum, bar í gær fram
,-á bæjarstjórnarfundi tillögu
um það, að strætisvagnar
Reykjavíkur byrjuðu ferðir í
aSmálandahverfið. í því búa
:nú nær 200 manns, og horfir
til vandræða fyrir menn, sem
stunda vinnu í bænum eða
þurfa að senda þaðan börn
;sín í skóla, vegna þess, hve erf
itt er um samgöngur milli
hverfisins og bæjarins.
Enginn andmælti þessari
tillögu, og enginn greiddi at-
kvæði gegn henni. Aðeins þrír
bæjarfulltrúar greiddu at-
“kvæði með henni, og féll hún
sökum ónógs stuðnings. All-
ir bæjarstjórnarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins héldu
:sem fastast að sér höndum.
Keyptu fiakið á 8 þús.
- véiin 100 þús. kr. virði
Búið er nú að bjarga miklum verðmætum úr rússneski
skipinu, sem strandaði i Þorgeirsfirði í sumar. Keyptu þríi
Siglfirðingar skipið á uppboði fyrir tæpar átta þúsund kron
ur, en hafa nú, að vísu með mikilli fyrirhöfn, bjargað úi'
skipinu mestuin hluta nýlegrar vélar, sem talin er meir*.
en 100 þúsund króna virði.
Bandaiíski ilugherinn og sjóherinn naia nú teaid helikopt-
crvélarnar í þjónusíu sína. Gerð sú, sem myndin sýriir er sér-
staklega ætluð sjóhernum, því að hún getur „lent“ á sjó
jafnt sem landi.
Eldur í gistihúsinu í Forna-
hvammi í ívrrinótt
Ilcrfierjíi 96 ti^lur^osiu og' 9 lielmamainna
fitil af reyk, er siarisstúfiia vakttaði
Það munaði minnstu, að stórslys yrði í gistihúsinu í Forna-
hvammi í Noróurárdal í fyrrinótt. Kviknaði þar í út frá olíu-
miðstöð í kjallara, en húsið fyiltist af reyk. Vildi það til, að
ein af starfsstúlkunum, Anna Guðmundsdóttir, vaknaði og
gat gert viðvart um eldinn, áður en það var um seinan.
Góð karfaveiði
Akranestogarinn Bjarni
Ólafsson er væntanlegur til
Akraness um hádegi í dag
með um 270 lestir af karfa.
Hefir þessi afli veiðst á sex
dögum og má telja það góða
veiði.
Karfaveiðin er því mikil
ennþá, þó að talsverð brögð
séu nú að því, að mikið af
þorski og ufsa sé innan um
karfann, einkum hjá þeim,
sem eru grynnra á Halamið-
unum. Annars verða menn nú
varir við karfamagn á ýms-
um stöðum við landið, þar
sem karfaveiðar hafa ekki
áður verið stundaðar.
Sextán næturgestir voru í
Fornahvammi þessa nótt, ell-
efu frá Húsavík og hinir ann
a:rs staðar af Norðurlandi.
Heimamenn í Fornahvammi
eru níu, og sváfu tveir af
heimapiltum í herbergi í kjall
ara.
Margir orðnir dasaðir.
Þegar Anna Guðmundsdótt
ir vaknaði, var klukkan á
fimmta tímanum. Var húsið
' orðið fullt af reyk. Hljóp hún
þegar til og vakti aðra, og
voru margir þá orðnir mjög
dasaðir af reyknum, svo að
engar líkur eru til, að þeir
hefðu vaknað af sjálfsdáðum.
Voru piltarnir í kjallaranum
ekki sízt orðnir þrekað.r.
I Gestum varð tafsamt.
| í Fornahvammi er olíumót-
or til ljósa, og er hann ekki
í gangi um nætur. Var því
. dimmt og ljóslaust í húsinu,
og varð gestum, sem ókunnug
ir voru, tafsamt að komast út.
En þótt reykur væri mikill í
húsinu, var eldurinn aðe’ns í
tæ».
miöstöövarklefanum,
húsið steinsteypt.
enda
Skemmdir af reyk.
Páll Sigurðsson gistihús-
stjóra og fólki hans tókst þó
brátt að slökkva eldinn, enda
voru góð slökkvitæki til í gisti
húsinu. En talsverðar
skemmdir voru orðnar á hús-
inu af völdum reyks.
Nokkur óhugur var í mönn-
um að kaupa skipið í haust,
þegar það var boðið upp.
Sannleikurinn var líka sá, að
brugðið gat til beggja vona
um björgun, og áður en skipið
komst á uppboð, var orðin á
því mikil rýrnun, sökum þjófn
aðar úr strandinu. Hrepptu
því Siglfirðingarnir þrír skip
ið fyrir hið lága boð.
Þeir, sem keyptu, voru Þór-
oddur Guðmundsson, fyrrver
andi aiþingismaður, Jón Guð
mundsson skipstjóri og Aage
Jóhannsen kafari. Hafa þeir
nú að undanförnu unnið að
björgun úr skipsflakinu í Þor
geirsfirði með ágætum
árangri.
Hafa þeir fariö nokkrar
ferðir með varning á milli
með vélbátnum Milly. Hefir
þeim nú tekizt að bjarga úr
skipinu aflvélinni, sem er ný-
leg June Munktellvél. Vélin
náðist svo til öll, þótt ýmis-
legt smálegt hafi ekki náðst.
Stefnisrörið náðist til dæmis
ekki. Vél þessi var 225 hest-
afla og eru nýjar vélar eins
og hún taldar um 200 þús. kr.
virði.
Mörgu öðru hefir tekizt að
bjarga.
Kona slasast
Um tíulevtið í morgun varð
kona, Halldóra Jónasdóttir,
Viðimel 37, fyrir fólksbifreið-
inni R-2345 á Hringbraut,
skammt austan við Hofsvalla
götu.
Halldóra var flutt í Land-
spítalann, og mun hún hafa
rifbrotnaö.
Hafnarfjarðartogari
kemur með 270
lestir í dag
Hafnarfjarðartogarinn Júlí
er væntanlegur heim í dag
með um 270 lestir, mestmegn
is karfa, sem skipið hefir
veitt undanfarna daga. Tals-
vert mun innan um aflann af
öðrum íiski, þorski og ufsa.
Aflinn mun verða látinn
ganga beint i verksmiðju-
vinnslu í fiskimjöl og lýsi.
Liðsauki til Vest-
ur-Berlínar
í gær kom til Vestur-Ber-
línar liðsauki sá, sem vestur-
veldin hafa ákveðið að bæta
við setuliðið í borginni. Var
þetta brezkt og bandariskt
fótgöngulið, sem dvalið hefir
vestar í Þýzkalandi.
Sendinefnd frá
Tíbet til S.Þ.
Sendinefnd er nú lögð af
stað frá stjórninni í Tíbet til
New York. Fer hún til Ind-
lands. Á hún að styðja kæru
stjórnar sinnar vegna innrás
ar Kínverja í Tíbet. Engar|
fregnir bárust í gær um sókn
kínverska hersins i Tíbet.
Vilja nú heldur
karfa en þorsk
Einn af togurum Tryggva
Ófeigssonar mun hafa átt að
leggja upp afla sinn á Akra-
nesi. Var vonast til þess, að
afli skipsins yrði karfi og var
ætlunin að vinna hann til
frystingar og bræðslu á sama
hátt og afla Bjarna Ólafs-
sonar.
En þegar til kemur, reynist
afli skipsins vera mjög bland
aður. Mikið af þorski og ufsa
innan um karfann. En vegna
þess að ekki er nægilega mik-
ið af karfanum munu at-
vinnurekendur ekki geta
greitt sama verð fyrir afl-
ann og um karfa hefði ein-
vörðungu verið að ræða.
Ffóð og fjara í
strandaða skip-
inu á Raufarhöfn
Frá fréttaritara Tímam
á Raufarhöfn.
Norska skipið Einvika, sen
strandaði við hafnarmvnni?
á Raufarhöfn í fyrrakvöld, ei
enn á grunni, og er nú kom-
inn svo mikill leki að því, aí
í þvi gætir flóðs og fjöru.
Skipstjórinn fór út í skip-
iö í gær með nokkra menr.
sína og tóku þeir eitthvað af
dóti sinu. Talið er vonJaust
að draga skipið sjálft at
grunni eða bjarga þvi, enda
er þetta 62 ára kláfur.
Síld sú, sem skipið tók i
Raufarhöfn var hið síðasta,
af sumarsíldinni, sem þar var
Reynt verður að bjarga henni
úr skipinu og ætti það að
vera hægt, ef sæmilega viðr-
ar, á þann hátt að taka tunn-
urnar í uppskipunarbáta vi?
skipshlið. Skipið liggur nokk-
uð í vari, vestan megin í haft.
armynninu.
Þegar skipið lét frá bryggji
í fyrradag, stöðvuðust vélar
þess á höfninni'en fóru síóar.,
af stað aftur, en hafnsögu-
maðurinn álítur að þær haL
unnið illa, og skipið aldrei.
fengið nægilega ferð og þess
vegna hafi það rekið undan.
norðansjóunum í hafnar-
mynninu, enda má þarna
engu muna.
Skipverjar voru 15 og auk:
þess einn færeyskur maður
farþegi og hafnsögumaður-
inn. Voru þeir flestir dregnir
í burðarstól upp á malar-
kambinn, sem er svo hár
þarna, að enginn þeirra blotn
aði einu sinni. Vátryggingar-
félag skipsins og farmsins er
nú að athuga hvað gera skuli.
Veður var sæmilegt á Raufar
höfn í gærkvöldi en norðaust
anátt og nokkur sjór.
íililiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiniiiiiiiiiiiiiiiiiMiiii
I Frarasóknarvist í |
Hafnarfirði
i Framsóknarfélag Hafn- |
I aríjarðar efnir til Fram- |
| sóknarvistar í Alþýðuhús- [
= inu við Strandgötu í Hafn- 1
| arfirði í kvöld. Dansað á i
I eftir.
| Vistin hefst klukkan |
i hálf-níu. Aögöngumiðar |
| við innganginn. Fjölmenn- i
i ið á samkomuna.
iiiiiiiiimiiiiMiMiimimtnimiimiiiiiiiiiiiiiiimimiiiiic