Tíminn - 17.11.1950, Page 8

Tíminn - 17.11.1950, Page 8
„l «LEi\T YFIRLIT“ t DAG: llenrtf Cabot Lodqe 34. árg. Reykjavik „A FÖRMJM VEGV6 I DAG: Bílflflðasafn Retfhjuríhur 17. nóvember 1950. 257. blað Fegurðarglíma Ar- manns i Nú í kvöld fer fram að EL£logalandi kappglíma um liinn stóra og veglega fegurð- arglímubikar Ármanns, sem synir Péturs Jónssonar blikk- ír.iiðs, aðalstofnanda Ár- manns, gáfu félaginu og fyrst tot keppt um í sambandi við €0 ára afmælishátíahöld fé- Ir.gsins fyrir tæpum tveimur á:um. Þeir Bjarni og Krist- í:m Péturssynir, sem gáfú bik arinn, ákváðu í samráði' við stjórn Ármanns, að í þessari £. límukeppni, skyldu ekki bylt nr einar skera úr um sigur, heldur tekið tiJlit til, hver glímir fegurst og er fjölhæf- astur. Glímt er í einnar og hálfrar mínútu lotum og gefn ar einkunnir fyrir. Keppa á um þennan stóra og veglega farandgrip í 75 ár, en að þeim tíma liðnum verður hann geymdur áletraður á Þjóð- minjasafni íslands. 11 keppendur. Keppendur eru að þessu sinni Steinn Guðmundsson, Gunnl. Ingason, Sigurður Hallbjörnsson, Hjörtur Elías- son, Grétar Sigurðsson, Ing- ölfur Guðnason, Sveinn Þor- valdsson, Anton Högnason, Kristmundur Guðmundsson, Baldur Kristinsson og Ólafur H. Óskarsson. 300 drengjum boðið. Þá hefir Ármann ákveðið að bjóða 300 drengjum á aldr inum 11—16 ára að horfa á þennan kappleik. Er það gert með það fyrir augum að glæða áhuga þeirra á þjóð- aríþróttinni. Verða miðar þessir afhentir i bókaverzl- un Lárusar Blöndals frá kl. 12á föstudag, er engum vafa bundið, að þeir munu renna | út. Ferðir verða frá Ferða- skrifstofunni. Námskeíð fyrir drengi og' byrjendur í glímu hefst hjá félaginu mánudaginn 20. nóv. j Áhugi fyrir íslenzku glím- unni er nú mjög mikill. í glugga bókaverzlunar Lár usar Blöndals gefur að lita hinn forkunnar fagra glímu- bikar ásamt myndum af skjaldarhöfum Ármanns frá byrjun. Vilja segja upp brezka samningnum Egypska þingið kom saman i gær. í stefnuskrárræðu stjórnarinnar var því lýst yf- ir, að Egyptar mundu segja upp samningum við Breta frá 1936 um Súesskurðinn og krefjast þess, að allt brezkt herlið yrði þegar flutt á brott og Súdan innlimað í Egypta- land. — Shinwell landvarnarráð- herra Breta ræddi mál þetta á þingi í gær og sagði, að gæzla umferðar um Súes- skurðinn væri ekki brezkt hagsmunamál, heldur alþjóð leg skyldukvöð, sem Bretar leystu af hendi. Annars kvað hann Bevin mundu gefa yfir- “lýsingu um málið snemma í næstu viku. I índlandi eru lifnaðarhættir fóiksins kallaðir frumstæðir, en þeir eru cftast mjög hagkvæmir. Á þessum tveim þvotía- snúrum hefir móðirin búið barni sínu váiggu á þann hátt að leggja yfir þær teppi. Vaggan heiir auk þess þann mikla kost, að sá iiíli getur alls ekki dottið út úr henni og hann unir sér vel í rólunni, þótt hann líti myndatökumanninn auðsjáanlega dálitið hvössu auga. B.Æ.R. eflir fjársöfnunina til byggingar æskulýðshallar Þingi Bandalags æskulýðsfélaga í Reykjavík er nýlokið og kvaddi stjórn sambandsins fréttamenn á sinn fund i gær til að skýra þeim frá störfum B.Æ.R. á liðnu starfsári og þeim verkefnum, sem næst eru framundan. Aður hefir verið skýrt lítil-l lega frá störfum þingsins. Þar voru meðal annars sam- þykktar þrjár tillögur í fjár- öflunarskyni fyrir félagið. Bandalagið hefir efnt til happdrættis og er sala miða skipulögð innan hvers fé- lags, sem í bandalaginu er. Þá mun verða haldinn sér- stakur æskulýðsdagur árlega og merkjasala og að lokum var samþykkt að efna á næsta ári til happdrættis um bifreið ef leyfi fæst. Happdrættismiðasalan stendur nú yfir og verður dregið á Þorláksmessu. Mið- arnir eru alls 60 þúsund og kostar hver tvær krónur. Vinningar eru þrír rafmagns eldavél, ísskápur og þvotta- vél. Er nú heitið á alla fé- laga í bandalaginu að duga vel við miðasöluna. Hafa nokkur félög þegar tekið miða svo þúsundum skiptir, og mark bandalagsins er að sjálfsögðu að selja þá alla og þoka þar með aðalmáli þess, byggingu æskulýðshallar, nokkuð áleiðis. Bandalagið hefir þegar fengið útmælda lóð undir höllina og hefir fyrr verið frá því skýrt. Teikningu, sem skautafélagið var áður búið að láta gera af skautahöll, hefir bandalagið yfirtekið.Þá hefir Gísli Halldórsson, arki- tekt, gert teikningu að gólfi, sem hægt er að renna yfir skautagólfið og gera þannig geysistóran samkomusal úr sama húsi. Eignir bandalags ins eru nú um 44 þús. kr. Stjórn bandalagsins næsta ár var endurkjörin á þinginu og skipa hana Ásmundur Guðmundsson, prófessor, for maður, Sigurjón Danivals- son, Stefán Runólfsson, Þor- steinn Valdemarsson, Kjart- an Gíslason, Jón Ingimars- son og Stefán Björnsson. Mannfall Breta í Kóreu Shinwell landvarnarráð- herra Breta skýrði frá því í gær í þinginu, að mannfall Breta í Kóreu frá upphafi styrjaldarinnar þar væri 51 fallinn, 158 særðir og nokkr- ir týndir. Hann sagðí, að að- alherstyrkur sá, sem Bretar hefðu sent til lands'ns, væri enn í Suður-Kóreu, en færð- ist nú óðum norður og nær vigstöðvunum. Hann sagði, að brezka stjórnin mundi halda áfram stuðningi við S.Þ. í Kóreu og stuðla af öllum mætti að því að þar rísi upp frjálst lýð- ræðisriki. Drengjakór stofnaður Allir þeir, sem kirkju og kristni unna, gera sér grein fyrir mikilvægi kirkjutónlist- arinnar. Á ég þar ekki ein- göngu við æfða kirkjukóra, er leiða söng. við messugjörðir, heldur miklu fremur kóra, sem eru þess umkomnir að geta flutt kirkjuleg meistara- verk. Það hefir lengi verið áhuga mál ýmissa manna innan Frikirkjusafnaðarins í Reykja vik, að stofnaður yrði drengja kór, sem gegnt gæti sama hlutverki og sams konar kór- ar í öðrum menningarlönd- um, en hingað til hefir ekki verið völ sérmenntaðra manna, sem offrað gætu tíma til slíks starfs. Úr þessu hefir ml ræzt, og ætlar Kristilegt félag ungra manna fríkirkjusafnaðarins ásamt nokkrum góðum stuðn ingsmönnum að gangast fyr- ir stofnun drengjakórs, sem verður undir leiðsögu sér- menntaðs listamanns. (Framhald á 7. síðu.) 1 y SíSdin á hraðri ferð upp að Reykjanesi Misjöfn veiði hjá báíiini*ni í gser. — Átfnðu sig ckki á liraðri göngn síldarinnar Svo virðist sem síldin, sem verið hefir í Miðnessjó sé á hraðri leið upp að landi, og í fyrrinótt sáu sjómenn síld vaða í stórum torfum rétt út af Sandgerði. Voru síldarvöð- urnar eins og þær gerast mestar úti fyrir Norðurlandi á sumrin. Tveimur nóttum áður fengu þeir bátar, sem lögðu grunnt, enga veiði, en í fyrrinótt urðu þeir af veiðinni, sem íóru dýpra, á hina fyrri slóðir, en þeir veiddu bezt sem næst voru landinu. Er síldin á svo hraðri ferð upp að landinu. Engin síld inn í Faxaflóa. Samkvæmt viðtali, er blað- ið átti við sjómenn í gær, virðast ekki neinar llkur til þess að síldin sé ennþá kom- in inn í Faxaflóa. Afli bátanna í gær var mjög misjafn. Nokkrir bátar fengu ágæta veiði, eða tals- vert á annað hundrað tunn- ur, en sumir urðu ekki síldar varir, aðrir fengu 20—30 tn. Misjöfn veiði. Til Akraness komu í gær sjö bátar með síld. Voru þeir með samtals 610 tunnur. Mestan afla hafði Ásbjörn, 114 tunnur. Margir Akranes- bátanna fóru of langt út og fóru á mis við veiði. Þeir, sem minnst öfluðu leituðu ekki hafnar í gær. Til Keflavíkur komu í gær um 25 bátar með mjög mis- jafna veiði. Alls munu hafa borizt þar á land um 1700 tunnur síldar í gær. Lambadauði í Fljótum Frá fréttaritara Tímans í Haganesvík. Á milli tuttugu og þrjátiu lömb af fjárstofni þeim, sem kom í Fljótin — Holtshrepp og Haganeshrepp — í haust i stað stofnsins þess, sem farg að var i fyrra, hafa drepizt. Ekki er vitað, hvað veldur fjárdauða þessum, en sumir geta sér þess til, að lömbin, sem flest komu af útigöngu- jörðum á Melrakkasléttu og Vestfjörðum, hafi ekki þolað túnbeitina í hinum nýju átt- högum. Aðrir geta þess til, að þau hafi sleikt í sig kalk í fjár húsunum og ekki þolað það. En fjárhús öll í Fljótunum hcfðu verið kölkuð innan til sótthreinsunar, áður erx. nýi fjárstofninn kom. Peking-stjórnin neitar þátttöku í Kóreu-stríðinu Suðurherinn í Kóreu sótti talsvert fram fyrripart dags í gær en þá brá til snjókomu og stöðvaðist framsóknin. Á miðvígstöðvunum gerði norð- urherinn gagnáhlaup og sótti fram nokkra km. Flestir her- menn S.Þ. hafa nú fengið sér- stakan vetrarbúning, er hæfir _ a 1 FBokksþingið 1 l Flokksþing" Framsóknar- I I manna hefst að Hótel 1 1 Borg kl. tvö í dag. I Formaður flokksins, Her i I mann Jónasson, setur i I þingið og verða síðan kosn § | ar ýmsar nefndir, er f jalla | i um þau mál, er þingið i i tekur til meðferðar. I Áríðandi er, að fulltrú- i i ar, sem sækja ætla flokks- f i þingið og ekki hafa enn i = afhent kjörbréf sín komi i i fyrir hádegi með þau í i i skrifstofu flokksins í Eddu f 1 húsinu og vitji þar um leið f i aðgönguskírteinis síns. IIIIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII"'lllllllllllllllllllllllllll|. Stúkan Einingin 65 ára Stúkan Einingin í Reykja- vík er 65 ára í dag. Hún er næstelzta stúkan í Reykja- vík. Verðandi aðeins hálfu ári eldri. Eitt af helztu áhuga málum stúkunnar var frá upp hafi að reisa hús yfir starf- .íemi reglunnar og hóf hún baráttu fyrir því þegar á fyrsta ári. Einingin hefir átt ríkan þátt í því að koma á fót margs konar starfsemi í bænum, sem of langt yrði upp að telja, og er starf henn ar geysimikið. Einingin hefir haldið alls 3273 fundi og alls hafa gengið í stúkuna 3890 menn. Aðalmál Einingarinnar er sem fyrr að koma upp veg legu templaraheimili í Reykjavík, Templarahöll- inni, og vinnur hún að því ásamt öðrum stúkum í bæn- um. — Fyrsti æðstitemplar stúk- unnar vár Guðlaugur Guð- mundsson, sýslumaður en nú verandi æðstiiemplar lienn- ar er Freymóður Jóhannes- son, listmálari og 2. æðsti- templar hennar Ólafur Hjart ar bókavörður. Stúkan minnist afmælis sins með veglegu hófi. hinu kalda loftslagT í Kóreu. Stjórnin í Peking hefir sent S.Þ. mótmælaorðsendingu við þeirri ákæru MacArthurs, að kínverskur her berjist í Norð- ur-Kóreu. Segir í tilkynning- unni, að stjórnin hafi engan her sent inn 1 landið, en hins vegar sé ekki nema eðli- legt, að sjálfboðaliðar frá Kína berjist með Norður- Kóreumönnum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.