Tíminn - 17.12.1950, Page 8
34. árgrangur.
Reykjavík
17. desember 1959
283. blað
Truman undirritar yfirlýsingu
m hættuástand vestra
Ssmkvæmt honni fær forsoíinn rjjö?* ankið
vald yfir ofnaha^s* og alvianamálum.
Klukkan 20 mínálur yfir níu í gærmorgun undirritaði Tru-
man Bandaríkjaforseti tilskipun þess efnis, að hættuistandi
va?ri lýst yfir i Bandaríkjunum. Slík yfirlýsihg er gefin út
samkvæmt lögum Bandarikjanna, jipgar Iantliö er tal'ð í yfir
voíandi hættu og gcfur hún forsetanum mjög aukið vald.
Ræða Trumans.
Truman hóf ræðu sína með
því, að hann teldi það skyldu
sína að skýra þjóðinni frá því,
að Eandaríkin væru í mikilli
hættu stödd, og staíaði sú
hætta frá yfirgangi Rússa og
kommúnista í Asíu. Hann
kvaðst heita á aila þjóðina að
standa sem einn maður að
þeim varnarráðstöfunum, sem
gera yrði og taka með þolgæði
þeim auknu álögum, sem nú
yrði krafizt.
Her nn 3,5 m:llj.
Þá sagði forsetinn, að ekki
yrffi hjá því komizt að fjölga
mjog i hernum og yrði ein
milljón manna kvödd í hann
á næstu mánuðum, svo að
herinn yrði alls hálf fjórða
milljön. Þá yrði lagt mikið
kapp á að auka flugherinn og
reynt að fimmfalda hann á
næstu tveim árum.
Eftirlit með
verfflagi og kaupgjaldi.
Forsetinn kvað ekki hjá því
komizt að setja nú þegar
strangt eftirlit með verðlagi
vara og kaupgjaldi í landinu
og setja ýmsar varúðarreglur
um efnahagsmál til trygging-
ar miklum afköstum í fram-
leið'Iunni. Yrðu slíkar ráð-
stafanir með svipuðu sniði og
verið hefði árin 1942—’44.
í gærmorgun undirritaði
forsetinn síðan yfirlýsinguna
um það, að hættuástandi væri
lýst yfir, og ganga þegar þau
álrvæði 1 gildi, sem slík yfir-
lýsing hefir í för með sér.
Fjárveiting til landvarna.
Fulltrúadeiid þingsins af-
greitídi seint í fyrrakvöld
frumvarp um aukafjárveit-
ingu til landvarnanna að
upphæð 1300 milljarða doll-
ara. Er búizt við að öldunga-
deiltíin muni samþykkja það
á rnesta fundi ,'inum.
Járnbrautan erk-
faíli lokiÖ í Banda-
Suðurherinn yfirgefur
Hamhung i N.-Kóreu
IIo3*.ski|í gera ItarSar slúrskolaúrásir á
jáiiihniiitir o<> vegi á ausíursfröndinni.
Ilersvcitir þær, sein haft hafa borgina Hamhung á valdi
sínu til þessa, yfirgáfu hana í gær og héldu til stöðva nokkra
km. frá hafnarborginni Hungnam, þar sem liðflutningarnir
fara nú fram suður á bóginn.
Indónesía eflir
Á næsta ári munu sænskir
trjálðnaj.irverkfræðingar
faia til Indónesíu til aö koma
þar á fót verksmiðjum til
margs konar trjáiðnaðar.
Indóneríumenn ætla að koma
á fót hjá sér stórfelidum trjá-
iðnaði og fara þar algerlega
að sænskum fyrirmyndum. t
Verða sænskir verkfræðingar
ráðamenn um gerð verk-
smiðjanna og vélar allar til
iðUSðarirjs sænskar.
Nýlega hafa Egyptar borið
fram þá kröfu, að Bretar
fíyttu þegar á brott allt lið
sitt írá Snez-skurðinum og
taki þeir sjáífiv að sér gæzlu
iians. U Lanríkisráðherra
Egyptalands, Mohamed Salab
sem hér sést, kom nýlega til
London til að ræða það mál
við Bevin og einntg greiðslu
á þeim 250 millj. sterlings-
punda, sem Bretar skul«4
Egyptum.
Verkfa’li járnbra'itarstarfs-
maona í Bandaríkiunum, sem
hófst í Chicago í fyrradag og
breiddist til annarra borga, er
lokið. Afréöu foringjar verk-
fallsmanna að hætta verk-
fallinu eftir útvarpsræðu
Trumans forseta í fyrrakvö’d.
því að þeir bjuggust við, að
stjórnin mundi taka járn-
brautirnar í sínar hendur og
vildu ekkí eiga það á hættu.
Leikritasafn Menn-
ingarsjóðs byrjað
að koma út
Tvær fyrstu bækurnar í
leikritasafni Menningarsjóðs
eru komnar út. Eru það leik-
rit Sigurðar Péturssonar,
Hrólfur og Narfi, gefin út
eftir eiginhandarriti höfund-
ar og búin til prentunar af
Lárusi Sigurbjörnssyni, og
Landafræði og ást, gaman-
leikur eftir Björnstjerne
Björnson í þýðingu Jens B.
Waage bankastjóra. Var þýð-
ing þessi upphaflega gerð
handa Leikfélagi Reykjavík-
i ur, sem ,sýndi leikinn áriö
j 1913 og oftar.
i í formá'a segir Vilhjálmur
Þ. Gíslason: „í léikrilasafn-
inu, sem hefst með þessari
bök, eiga að birtast innlend
og erlend leikrit. Útgáfan er
gerð i samvinnu Menningar-
sjóðs cg ÞjóSleikhússins,
þa^nig að þjóðleikhúsið legg-
ur fram handrilin, en Menn-
ingarsjóður sér að öðru leyti
um útgáfura.
i Fér er byrjað á leikritum
Fio'urðar Péturssonar (1740—
13271 til þess að minnast
besm h’-antryðianda íslenzkr-
ar leikritagerðar. Rit hans
h?fa lonei verið ófáanleg,
enda meira en ö’d síðan þau
” út (1846). Þó að á þeim
sffn ýmis einkenni frumsmíð-
e-i"’n,a’*, má ennbá leika þau
íil ánmgju á litlum leiksvið-
um. Fn það er einmitt annar
. meginti’gangur þessarar út-
| ráfn að reyna að bæta úr þörf
leikfélaga cg leikflokka á
heppilegum viðfangsefnum.
Hitt leikritið, sem byrjað er
, á, „Landafræði og ást“,*er á-
j gætt leikrit. sem er einnig vel
I viðráðanlegt á mörgum ís-
! lenzkum leiksviðum.“
Slysavai narf éiagið
annast sjúkra-
flutning
í gærmorgun simaði for-
maður slysavarnadeildarinn-
ar Hafbjörg í Breiðavíkur-
hreppi og óskao'i þess, að
Slysavarnafélagið sendi björg
unarbifreið sína til að sækja
veikan mann að Arnarstapa á
Snæfellsnesi, og var bifreið-
in á leiðinni vestur í gær-
kveldi að sækja sjúklinginn.
Um leið og síðustu farar-
tæki suðurhersins hurfu úr
borginni, birtust kínverskar
hersveitir á næstu hæðum og
héldu inn í borgina. Engin á-
tök urðu.
Á mið- og vesturvígstöðv-
unum urðu einnig lítil átök
en þó var nokkuð barizt við
38. breiddarbaug, þar sem
kínverskar sveitir eru komnar
að honum og yfir hann.
Herskip héldu uppi miklum
drásum á járnbrautarstöðv-
ar og vegi á austurströndinni
allt suður að 38. breiddarbaug
undanfarna daga og hefir
orðið mikið ágengt. Flugvélar
S.Þ. hafa líka verið mjög at-
haínasamur undanfarna daga
og er það talið árásum þeirra
mest að þakka, að Kínverjar
hafa ekki enn getaö hafið
nýja sókn á miðvígstöðvun-
um. Hafa flugárásirnar verið
mjög skæðar og oft orðið stór-
fellt tjón í herstöðvum norð-
urhersins.
Talið er að alls hafi fallið
um 28 þús. manns úr kín-
verska innrásarhernum og er
það tífalt meira en mannfall
hersveita S.Þ. á undanhald-
inu.
Attlee flutti útvarps
ræðu í gærkvefdi
Attlee foi’sætisráðherra á-
varpaði brezku þjóðina í út-
varp seint i gærkvöldi. Talið
var, að hann mundi ræða við
hana um styrjaldarhættuna
og þær ráðstafanir, sem ekki
yrði komizt hjá að gera til að
treysta varnir landsins og þær
auknu kröfur um margs kyns
takmarkanir á sviði efna-
hags- og atvinnumála, sem
stjórnin mun bera fram á
næstunni.
Mikill kolaskortm*
í Þýzkalaiuli
Mikill kolaskortur er nú í
Þýzkalandi og verður tekin
upp ströng skömmtun á þeim
ií vetur. Kol fara mjög'hækk-
1 andi á heimsmarkaðinum og
1 mjög erfitt er að fá þau.
Heyflutningarnir
460 hestburðir af heyi voru
sendir með Heklu, sem fór
austur um frá Reykjavík í
gær. Er þá búið að senda héð
an um 4000 hestburði heys til
hafna frá Fáskrúðsfirði til
Húsavíkur.
EJftir er enn að senda um
700 hestburði.
Ávarp til Reykvíkinga
%
frá áfengisvarnanefnd
Áfen.?isvarnanefnd Reykjavíkur scndir samborgurum svo-
látandi ávarp:
„Stórhátíðar ársins fara í hönd, jólin, ,hátíð ljóss og friðar*
og áramótaháííðin, er vér fögnum komandi ári og biðjum
þess, að það færi oss frið og blessun.
Á þessum hátíðum á að koma fram allt hið fegursta og
göfgasta, sem með hverjum manni býr. Það er prófsteinn á
göígi hvers inanns, hvernig hann heldur þessar liálíðar.
Ilcykvíkingum hefir verið legið á hálsi fyrir það, að þeir
Itafi vanhelgað þessai hátíðar að undanförnu með óreglu og
drykkjuskap. Ilrindum af oss því ámæli! Látum allan lands-
lýð sjá, að höíuðborgin getur verið til fyrirmyndar um há-
líðahald. Bannfærum hjá oss drykkjuskap og óreglu á þess-
um stórhátíðum.
Einn af fremstu vísindamönnum, sem nú eru uppi, Le-
comte du Nouy, hefir sagt:
„Ölvaður maður er fyrirlitlegur, ekki vegna þess að hann
hefir drukkið, heldur vegna þess að hann hefir misst vald á
sjálfum sér. Sá, sem er ölvaður, er ekki lengur maður, heldur
stjórnast hann af áhrifum, sem hann ræður ekkert við“.
Tökum því öll liöndum saman um að halda stórhátíðarnar
elns og menn“.
Fundur Atlanzhafs-
ráðsins hefst
Fundur Atlanzhafsráðsins 1
Briissel mun hefjast á morg-
un og eru fulltrúar flestir
komnir þangað. Acheson mun
mæta þar í stað Marshalls
hermálaráðherra Bandarikj-
anna, því að hann kemst ekki
að heiman. Utanríkisráðherra
Kanada getur heldur ekki
komið á fundinn, því áð hann
er bundinn við störf í hinni
nýju vopnahlésnefnd S.Þ.
Togliatti fer til
Rússlands
Togliatti, foringi ítalskra
kommúnista, er nú á förum
til Sovétríkjanna, þar sem
hann ætlar að leita sér hvíld-
ar og hressingar eftir lang-
vinnan sjúkleika.
Kúrcii-nefndin
kallnr á frcttamcnii
Hin nýja vopnahlésnefnd í
Kóreudeilunni hefir ákveöið
að kveoja fréttamenn á sinn
fund i dag og skýra þeim frá
viðræðum þeim og undirbún-
ingi vopnahléstilraun, sem
þegar hafa farið fram. Er
þetta gert samkvæmt kröfu
Wu hershöfðingja, formanns
sendinefndar Kinverja i Lake
Success, er nefndin ræddi við
hann í gær.
Afhcnda svarið
í Moskvu
Gengið hefir nú verið að
fullnustu frá svari vesturveld-
anna til Rússa um fjórvelda-
fund um afvopnun Þýzka-
lands. Verður svarið afhent í
Moskvu snemma í þessari
viku.