Tíminn - 27.01.1951, Blaðsíða 4

Tíminn - 27.01.1951, Blaðsíða 4
<Q TÍMINN, laugardaginn 27. janúar 1951. 22. blað Oryrkjaheimili sveitarfélaga Niðurlag. ,,Gott dæmi um hörmungar astand það, sem nú ríkir hjá sveitaríélögum í þessum mál- um, er atvik, sem kom fyrir á síðastlíðnu hausti. Maður aokkur á Suðurlandi varð skyndilega geðveikur og hættuiegur umhverfi sínu. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraun- :ir reyndist með öllu árangurs laust að koma honum til dvalar aö Kleppi, og var bor- íð við þrengslum. Mannin- im var þá komið fyrir að Litla-Hrauni. Sakir hátternis nans taldi forstöðumaður nælisins ekki unnt að hafa nann mnan veggja hælisins nema faa daga. Sunnudags- norgun einn var sjúklingur- ínn fluttur heim á heimili oddvitans í framfærslusveit sinni. Þar var ekki fyrir til gæziu nema eldra fólk og oörn, sem algerlega var um megn að annast hinn óða mann. En þá tókst svo til, að sakadómarinn í Reykjavík gaf kost á því að taka mann- mn til gæzlu í hegningarhús íð í Reykjavík, og var hann fluttur þangað. Vegna um- jnnunár þeirrar, sem maður inn þurfti í hegningarhúsinu, varö vistgjaldið þar um kr. 100.00 a sólarhring. Að fáum dögum iiðnum bráði lítið eitt að sjukiingnum, og var hon- um pá komið tii dvalar á sjúkrahúsinu að Sólheimum. örátt sótti aftur i sama horf jm veikina, og var hann þá enn fiuttur í hegningarhúsið. En ekki reyndizt unnt að hafa hann þar lengi, og kom til- rcynníng frá sakadómara þess efnis, að sakir truflana, er dvöl hans í húsinu hefði fyrir aðra, er þar dveldu, yrði ekki njá því komizt að taka hann paðan þegar í stað. iíieppur iókaður. Hvernig s^m knúið var að dyrum hjá yfirlækni Klepps- spitalans fékkst þar aðeins pvert nei um að taka sjúkling inn þangað. Horfði svo um sinn, ao taka þyrfti farsótta- núsið í Reykjavík á leigu og nafa manninn í gæzlu þar. Mundi kostnaður hafa orðið 'jf pvi um kr. 2000.00 á sólar- nring. Á síðustu stundu tókst pó svo vel til, að Reykjavíkur jær var þess umkominn að geta tekið sjúklinginn til dvalar að Arnarholti til sér- stakrar vórzlu þar um stund- arsakir. Með því lauk vand- ræðum þeim, sem af sjúkl- ingi þessum höfðu stafað, þó aðeins í bili, því að Reykja- yíkurbær getur fyrr en varir purft að nota það fúm, sem barna er léð um sinn. Kostraður af manni þess- im nokkura vikna skeið skipti tugum þúsunda, auk allrar peirrar fyrirhafnar og hvers konar erfiðleika, er oddvit- jnn og ýmsir aðrir höfðu í pessu sambandi. Hver verður fyrir pessu næst? Því miður eru svona tilvik akkert einsdæmi. Fjöldi sveit arfélaga hafa orðið fyrir á- þekkum erfiðleikum og kostn aði. Segja'má, að vandræði af þessum toga spunnin megi leysa með því að stækka Klepp. En meðan húsnæði og starisfólk er þar af svo skorn um skammti, að ekki er neinn kostur að koma þar inn xjáluðu fólki, þó að líf liggi /ið, verða sveitarfélögin að þola ótrúlega erfiðleika og ó- hemju kostnað í slíkum til- (fellum. Ekkert sveitarfélag né sveitarstjórn veit, hvenær svipuð tilfelli getur borið að höndum hjá þeim. Eitt verð- ur fyrir þeim í dag, annað á morgun. Ein sér geta þau ekki leyst þann vanda, er af þessu leiðir, en sameiginlega ætti þeim að vera það kleift. Ríkis valdinu ber að sjálfsögðu að stuðla að því að þessi vand- kvæði verði á sem hagkvæm astan hátt fyrir alla aðila. í sambandi við væntanlegt öryrkjahæli er svo til ætlast, að þar verði unnt að koma til dvalar í sérstökum öryggis- klefum hættulegum sjúkling um, sem bíða vistar að Kleppi, og að hælinu sé beinlíis skylt að taka við þeim þegar í stað og gæta þeira unz geðveikra hælið tekur við þeim. Hvaðan koma peningarnir? Frumvarp það, sem hér ligg ur fyrir, þarfnast ekki sér- stakra skýringa. í því felst, að ákveðin verði með lögum heimild til sveitarfélaganna til að byggja og reka öryrkja, hæli, og þau jafnframt skyld uð til að leggja fram fé til framkvæmda eftir þeim regl um, sem 3. gr. segir fyrir um. Ætlazt er til, að öll sveitar- félög Iandsins séu aðilar að hæli þessu, en Reykjavík þó undanskilin meðan hún sjálf rekur slíkt hæli. Frumvarpið gerir þó ráð fyrir því, að svo kunni að fara, að Reykjavík verði einnig aðili að sameig- inlegu hæli. Samkvæmt 3. gr. skal stofn kostnaður greiðast með þeim hætti, að sveitarfélögin inni af höndum stofngjald til hælisins miðað við tiltekna upphæð af hverjum íbúa, þó þannig, að fjölmennari sveit- arfélög greiði nokkru hærra vegna einstaklings en þau fá- mennari, og er það talið rétt mætt vegna meiri gjaldgetu hinna mannfleiri sveitarfé- félaga. Fé það, sem koma mundi inn samkvæmt ákvæðum 3. gr. mundi verða sem hér seg- ir, miðað við mannfjölda og skiptingu hans í sveitarfélög í árslok 1948 (Reykjavík ekki meðtalin): 67 hreppar með allt að 150 íbúa = 6728 íbúa á 35 kr. kr. 235 480.00. 148 hreppar með 150—1500 íbúa = 47 528 íbúa á 40 kr. kr. 1 903 280.00. 5 kaupstaðir með 150—1500 íbúa á 40 kr. kr. 206 760.00. 7 kaupstaðir með 1500—10 000 íbúa = 25 461 íbúa á 45 kr. kr. 1 145 745.00. 227 sveitar- félög með alls 84 940 íbúa greiða kr. 3 491 265.00. Framlag Reykjavíkur, ef hún yrði þátttakandi að hæl inu, mundi, miðað við mann- f jölda á sama tíma, verða sam tals kr. 2 669 200.00. Þá er og ráðgert, að ríkis- sjóður leggi fram í eitt skipti fyrir öll hálfa aðra milljón króna., ef Reykjavíkurbær yrði aðila að hælinu. Ákvörðun verður að taka, Á þessu stigi liggja engar áætlanir fyrir um stofnkostn að sérstaks hælis, enda er slíkt háð ýmsum atvikum, t. d. þvi, hvar hælinu yrði valinn staður, hvort unnt sé að festa kaup á byggingum á hentug um stað, er nota mætti í þessu skyni, og sitt hvaö fleira. Það er og annmörkum háð að vinna að slíkum á- | ætlunum eða undirbúningi fyrr en lög hafa verið sett, sem skuldbinda sveitarfélögin til þátttöku. | Sú er von stjórnar Sam- bands ísl. sveitaríélaga, að A1 þingi fallist á þá lausn máls- ins, sem hér er borin fram. ;Að sjálfsögðu verður ekki í i framkvæpidir lagt fyrr en mál ið hefir verið athugað miklu nánar og leitað álits sveitar- stjórna og þeirra, sem sér- þekkingu teljast hafa um rekstur slíkra stofnana. Allur dráttur á afgreiðslu málsins veldur auknum erfið leikum, og væri því æskilegt, að Alþingi sæi sér fært að af greiða málið nú á þessu þingi, svo að hægt yrði að not.a sum arið til frekari undirbúnings. Sveitarfélagasambandið er eðlilegur aðili. Á síðustu mánuðum hefir nokkuð verið rætt um stofn- un nýs vinnuhælis fyrir þá menn, sem sveitarfélögin eiga í útistöðum við vegna þess, að þeir vanrækja að greiða með lög með börnum sínum, og skapar þetta sveitarfélögum landsins stórfelld útgjöld. Ekki liggur sú hugsun fjarri, | að sameina mætti slíkt vinnu ■ hæli stofnun sem þeirri, er hér'er ráðgert að koma á fót, |og liggja til þess mörg rök, sem hér skulu ekki rakin að sinni, heldur aðeins á þetta _bent til athugunnar. Að lokum þykir rétt að taka það fram, að hentast þótti að athuguðu máli að binda heim ild þá, sem í lögum þessum ! felst til að reisa og reka ör- yrkjahæli, við Samband ísl. (sveitarfélaga, þar sem það er ; sá aðili, sem sveitarfélögin beita fyrir sig í þessu máli, enda tæpast öðrum til að dreifa. í Sambandi ísl. sveit- arfélaga eru nú 130 sveitar- félög með um 110 þús. íbúum; þar á meðal eru allir kaup- staðir landsins og öll stærstu kauptúnin. Að vísu, eru enn um 100 sveitarfélög utan sam takanna, en íbúafjöldi þeirra allra er ekki nema um 30. þús. manns. Þannig mundu þau (Framhald á 7. síðu.) Búfræði Þjóðviljans Þeir Þjóðviljamenn reyna að afsaka sig eftir horfellis- áburðinn á skagfirzka bænd- ur, með því að segja, að kjöt af hrossum þeim, sem felld séu í byrjun gjafatímans vegna þess, að fóðurbirgðir þyki ekki nægar fyrir allan stofninn, sé ekkert annað en „horket". Við þetta er tvennt að athuga: í fyrsta lagi réttlætir það á engan veg sögusögn blaðs- ins, að hross hafi fallið úr hor í stórum stíl í Skagafirði í vetur. í öðru lagi gerir þetta mest alla kjötframleiðslu íslend- inga í öllum venjulegum ár- um að horkjöti, þvi að bænd ur miða ásetning sinn við fóðurbirgðir og ala af lömb- um sínum það, sem þeir hafa fóður fyrir, en fella hitt. Kjöt af dilkum, sem bænd- ur telja sig á haustnóttum ekki hafa fóður til að ala, og slátra þess vegna, heitir horkjöt=„horket“ í orðabók Magnúsar Kjartanssonar. Skrítin orðabók það. Það var prentvilla hjá okkur um daginn, og hún var slæm. Hér stóð að Eiríkur Hallsson hefði verið uppi á 14. öld en átti að vera 17., því að hann fæddist 1614 en dó 1698, að talið er, og var prestur á Auð- kúlu. Það er mjog illt, þegar svona kemur fyrir, og þýðir þó ekki frekar um að tala. í blöðum hefir verið kvartað yfir því, að ekki fengjust nú í verzlunum nærföt fyrir þá menn, sem ynnu kuldastörf, svo sem sjómenn, og hafa þar ver- ið nefndar síðar nærbuxur og er talað um innflutningsyfiir- völdin í því sambandi. Þessi framleiðsla ætti þó að vera inn lend frá rótum, því að það fólk hér á landi, sem vinnur kuldastörf, — og þá einkum ef um vos er að ræða, — ætti að vera i nærfötum úr ís- lenzkri ull. Einu sinni komu tveir menn af fjalli vetrardag eftir erfiða ferð i vondu veðri, — bleytu- hríð í byggð en frostbylur uppi. Þegar kom til bæja var annar hinn hressasti, en hinn kenndi brátt ónota og kulda, enda var hann orðinn miklu þreyttari. Fékk hann þá að hátta ofan í rúm og réttist þá við. Þessi maður var í nærbuxum úr baðm ullarefni. Þær drógu i sig raka og kulda á leiðinni og voru svo blautar, að úr þeim lak„ þegar inn var komið. Hinn var í nærbuxum úr íslenzkri ull. Þær hrintu frá sér rakanum og lágu þurrar og heilar við eiganda sinn, enda þótt ytri buxur beggja mannanna væru eins. Af þessari sögu á að læra, en það þarf ekki að leggja út af henni. Maður nokkur fór að tala við mig um bæjarpóstinn og guðs- hugmynd hans í tilefni þess, sem hér var sagt um daginn. Hann hélt því fram, að það væri mjög eðlilegt, að þeir Þjóð viljamenn vildu gagnrýna guð og segja honum til syndanna, minnugir þess, að sá er vinur, sem til vamms segir. Hér væri þess að gæta, að þetta væru kommúnistar, og þeir hefðu yfir sér á jörðu hér þann herra dóm, sem þeir gagnrýndu aldrei eða gerðu það vinarbragð að segja til vamms. Löngun þeirra, til að koma fram eins og frjáls ir menn, hlyti því stundum að leita sér óvenjulegra leiða, því að auðvitað væri þeim frelsis- hneigðin í blóð borin eins og öðrum, þrátt fyrir ofstækis- fullan átrúnað á föðurinn í Kreml og andlega ánauð £ flokki sínum. ♦ Þjóðviljinn skýrir frá því í gær, að austur í Kóreu hafi einhverjir selt hrísgrjón frá sveltandi fólki. Þetta gæti svo sem verið, en hver skyldi taka mark á því þó Þjóðviljinn segi það, — hann, sem segir að við séum að selja dilkakjötið frá munnum sveltandi og van- nærðrar alþýðu, sem eigi að neyða til að leggja sér til munns tætlur af horföllnum hrossaskrokkum norðan úr Skagafirði? Hver skyldi trúa Asíufréttum í slíku blaði? Starkaður gamli. Hangikjöt Retihtar rúllupylsur, Sultaðar rúllupylsur, Fyrirliggjandi hjá : Reykhúsi S.Í.S. Rauðarárstíg 33, sími 4241. Áminning. Greiðiö biaögjöld árs ins 1950 fyrir janúarlok Innheimta Tímans

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.