Tíminn - 08.02.1951, Qupperneq 5

Tíminn - 08.02.1951, Qupperneq 5
12. -blað TÍMINX. fimmtudaginn 8. febrúar 1951. 5 Fimmtud. S. feb. Atvinnuleysismálin Blöð st j órnarandstæðinga halda uppi furðulegum skrif- um um atvinnu'leysismálin þessa dagana. Þau benda réttilega á það atvinnuleysi, sem nú á sér stað í kaupstöð um og ýmsum kauptúnum landsins, ög sýna fram á, hvað mikið böl það sé. Hinsvegar vanrækja þau alveg að gera nokkra rétta grein fyrir or- sökum þess eða hvernig því verði afstýrt. Þvert á móti halda þau uppi fáránlegustu blekkingum um þessa hluti. Það er ekki óverulegur kapi tuli í orsök þess atvinnuleysis, sem nú er, að togurunum var haldið frá veiðum fjóra mánuði á síðastliðnu ári vegna verkfalls. Það skerti gjaldeyristekjurnar um marga tugi milljóna króna. Af því drekka nú iðnaðurinn og iðn verkafólkið seiðið. Verkfall þetta stafaði fjrrst óg fremst af innbyrðisbaráttu kommún ista og Alþýðuflokksmanna í verkalýðshreyfingunni. sem í þessu tilfelli eins og mörgum fleirum, hefir gert hana óstárfhæfa. Með umræddu atferli sínu bera þessir tveir flokkar þvi meginábyrgð á því atvinnuleysi, sem nú er. Til viðbótar þessu, stafar svo atvinnuleysið af því, að útflutningsframleiðslan hef- ir dregist saman. Það hafa verið lagðar á hana þyngri byrðar en hún fær undir ris- ið. Samdráttur hennar dreg- ur úr gjaldeyristfekjunum og það leiðir svo til samdráttar á þeim atvinnugreinum, sem byggjast á iniiflutningi, m. a. iðnaðinum. Þessi reynsla sýn ir, hve mikið veltur á því, að útflutningsframleiðslan sé starfrækt af fullu fjöri. Þennan sannleika hafa stjórnarandstæðingar jafn- an sniðgengið. Þessvegna börðust þeir gegn gengislækk uninni á síðastliðnum vetri og bentu ekki á nein úrræði í staðinn til að tryggja rekst ur útgerðarinnar. Hefðu þeir fengið að ráða, hefði útgerð- in alveg Stöðvast. Því væri at vinnuleysið nú margfallt á við það, sem það er. Með þessu er þó síður en svo verið að segja, að gengis lækkunin hafi verið æskileg ráðstöfun. En hún var óhjá- kvæmileg ráðstöfun vegna stjórnarhátta undanfarinna ára, ef atvinnureksturinn átti ekki að stöðvast og fyllsta neyð að halda innreið sína. Meiri hræsrti er vissulega ekki hægt að hugsa sér en þegar stjórnarandstæðingar eru nú að fárast yfir atvinnu leysinu og kenna ríkisstjórn inní um orsakir þess. Ef ríkis stjórnin hefði ekki lækkað géngið í fyrra, en farið í þess stað að ráðum stjórnarand- stæðinga, væri atvinnuleysið nú mörgum sinnum meira en það þó er, og er það þó vissu- lega nógu tilfinnanlegt. Þrátt fyrir þetta, látast stjórnarandstæðíngar enn ekki hafa lært neitt. Óhag- stæð verðlagsþróun erlendis veldur því ,að éera þarf nýj- ar ráðstafanir útgerðinni til stuðpings, ef hún á ekki að stöðvast. Stjórnarandstæðing ar leggja sig nú alla fram við að rógbera slíkar ráðstaf- anír. Þeir vita þó vel, að verði ERLENT YFIRLIT: Mannerheim marskálkur Finnar saméinnðust jafnan nm lciðsög'n lians, þegar mikil Iiætta var á ferðum Eins og áður hefir verið sagt , frá, lézt Karl Gustaf Manner- heim, hipn kunni finnski hers- höfðingi og stjórnmálamaður, fyrir nokkru síðan í Sviss, 83 ára að aldri. Fráfall hans vakti þjóðarsorg í Finnlandi, enda hef ir enginn maður notið slíkrar ástsældar finnsku þjóðarinnar 1 og hann, Hann var sjálfkjör-1 inn leiðtogi hennar á hættunn! . ar stund um þriggja áratuga I ' skeið, eri þess á milli lét hann ekki mikíð til sín taka opin- berlega. Margt hefir verið ritað um Mannerheim í tilefni af frá- falli hans- og hefir hann hvar- ! vetna vejáð viðurkenndur sem óvenjulegur hæfileikamaður og mikill stjórnandi. Hér á eftir; fer í lauslegri þýðingu grein sú, sem birtist í danska blað- inu „Poliííken“, er sagt var frá fráfalli háns; ,~iZ'2T.X. Rússneskur herforingi og finnskur sigurvegari. — Mahiiérheim fríherra, mar skálkurinn finnski, mun seint gleymastwi landi sínu. Nafn ; hans er svo nátengt sögu Finn- I lands um meira en 30 ára j skeið, að. þar verður naumast j á milli skilið frá frelsistökunni og fram yfír ósigurinn í styrj- öldinni miíclu. Mannérheim var af þýz- hollenzkam ættum kominn og ólst upp á’-tinnsk-sænsku heim- ili. Hann varð herforingi í rúss- neska hernum og tók þátt í heimstyriöldinni fyrri. Hann var staddöi' í Ódessu 1917 þeg- honum Öárust fréttir af bylt- ingunni óg ókyrrð þeirri, sem þá var í Elrihlandi. Hann komst heim til íátids síns eftir ævin- týralegt ferðalag og í janúar 1918 var hann gerður yfirmað- ur og síðar-æðsti maður finnska hersins. -y-,- Hann endurskipulagði her- inn. Kommúnistar hertóku HelsingforS með fulltingi rúss- neskra herrhanna, en Manner- heim hertðk höfuðborgina aft- ur. Það ^var hann, sem var sig- urvegarinnrenda þótt þýzk her sveit undir. forustu von der Gotts kæmi til hjálpar, mjög. að óvilja, .Mannerheims. Hann j var ekki þýzklundaður og fyrstu' stjórnmáíaafskipti hans voru þau, að 'iránn fékk þvi afstýrt, að þýzkúf þrins væri fenginn. til að verða konungur Finn- \ lands. Aftur á móti sneri hann, finnska ríkinu til móts við, bandamenn en burt frá Þjóð- i verjum, sem þá vöru að tapa styrjöldirini. Forusta Mannerheims í vetrarstyrjöldinni 1939—40. Hann varð samt ekki fyrsti forseti Finnlands. Finnar þráðu innbyrðis frið og þeir voru hræddir um að sáttahugur og samlyndi næðist síður undir for ustu þess manns, sem sjálfur hafði sigrað í baráttu við hluta af þjóðinni. Stálhberg vann því mikinn sigur í forsetakosningunum. Hann fylgdi frjálslyndum og jafnaðarmenn studdu hann. Samt var alltaf ljómi um nafn Mannerheims og þjóðin treysti honum. Þegar Lappahreyfingin, nazistahreyfingin finnska, varð öflugust fyrir 1930, svo að til vandræða horfði, var kallað á Mannerheim og persónuleg á- hrif hans áttu mikinn þátt í því, að hættan leið hjá. Nokkrum árum seinna var erin kallað á hann. Það var veturinn 1939—40. Hann var þá 72 árá, en finnski herinn og þjóðin öll treysti honum betur en nokkrum öðrum á þeirri hættustund. Hann brást ekki því trausti, enda þótt vetrar- stríðinu lyki og hlyti að ljúka með ósigri. Bæði stjórnaði hann finnska hernum af aðdáanlegri snilld og átti mikinn þátt í því, að fá endi bundinn á þetta 100 daga stríð. Þeir menn voru þá til í Finnlandi, sem væntu þess að hreysti Finna gæti vegið upp þann mun, sem ann- ars var á aðstöðu herjanna. Mannerheim var svo raunsær herforingi, að hann vissi að ó- friðurinn var fyrirfram vonlaus og því væri áríðandi að fá hon- um lokið fyrr en hann hefði leitt til óviðráðanlegrar neyð- ar. Þarna var annað stórvirki hans, þar sem hann sýndi ætt- jarðarást sína álíka vel og 1918 í borgarastyrjöldinni og upp úr henni. Mannerheim og finnsk-rúss - neska styrjöldin 1942—44. En á þeim tíma, sem nú fór í hönd, virðist glöggskyggni hans og raunsæi á stjórnmála- sviðinu hafa brugðizt. Það er ekki nema mannlegt. Auðvitað hefir hann eins og finnska þjóð in öll fundið sárt og biturt til vegna árásar Rússa 1939 og þess, að þeir lögðu undir sig finnskt land. Þetta sár var enn þá opið og svíðandi þegar Þjóð- verjar freistuðu Finna. Finnar kannast ekki við mótmælin miklu í Helsingfors gegn þeim, sem væru ábyrgir fyrir stríðs- 56% þátttöku Finna, því að allt það umstang byggðist á valdboði sigurvegaranna. En þrátt fyrir allar þær rannsóknir er margt,, sem enn er óljóst í þeim mál- um, og þar á meðal hlutdeild Mannerheims i því, að Finnar drógust inn í ógæfuna. Hann var ekki þýzksinnaður þá, frem ur en 1918. Þegar Hitler kom í skyndiheimsókn til Finnlands 1942, en á þeim tíma gek hern- aðurinn á hendur Rússum held ur þunglega og löngu voru liðn- ar þær sex vikur, sem yoru fresturinn, sem Þjóðverjar höfðu sett sér til að gjörsigra Rússa, er sagt að Mannerheim hafi tekið kuldalega á móti for ingjanum þýzka. En það er ljóst af sögusögnum, sem fyrir liggja, að Mannerheim var öll- um málavöxtum kunnur. Við réttarhöldin hjá Hornbærg nefndinni, sem skipuð var strax eftir að finnsk-rússneska strið- inu lauk 1944 til að upplýsa rökkurþætti styrjaldarmál- anna, gaf Mannerheim langa skýrslu, en hún er ekki kunn nema örfáum mönnum. Ef til vill hefir hermaðurinn í honum borið stjórnmálamann inn ofurliði. Ef til vill hefir hernaðarlegt mat hans á þýzka áróðrinum látið hann trúa full yrðingunum um leifturstríð, því að það hlaut hann að vita, að Finnland var alltof fátækt til að þola langvinnt stríð. Ef til vill hefir mestu ráðið, að hann eins og margir aðrir Finnar, hafi óttast það, að rússneska (Framhald á 6. slðu./ þær ekki gérðar, er margfallt stórfelldára atvinnuleysi boð ( ið heim en því, sem þjóðin horfist nú í augu við. Þeirj vita það /fennfremur, að eina ráðið til.lað útrýma því at- vinnuleysi, sem nú er, er að efla framleiðsluna. Eina leiðin, sem þeir látast sjá til að. auka atvinnuna, er að auka ýmsar opinberar framkvæmdir. Öllum má þó vera ljóst; að eftir að fram- leiðslan er stöðvuð, hefir það opinbera enga möguleika til að afla fjár til slíkra fram- kvæmda. Svo blirtdir látast stjórnar- andstæðingar vera fyrir þess um staðreyndum, að þeir ógna með nýrri kauphækkunarbar áttu. Þeir tala um að vinna þannig upp þær álögur, sem óhjákvæmilegt er að leggja á almenning, til að tryggja rekstur framleiðslunnar. Þeir vita þó vel, að ný kauphækk un nú, myndi ekki bæta þetta upp, heldur stöðva fram- leiðsluna og valda allsherjar neyð. Það, sem nú þarf að gera, er að treysta grundvöll framleiðslunnar og efla hana. Meðan verið er að vinna það verk, verða menn að sætta sig við nokkura kjaraskerð- ingu. Þegar þeim áfanga er náð, hafa fyrst skapast skil- yrði til raunhæfra kjarabóta. Raunar er það ekki undar legt, þótt kommúnistar hafi þessa stefnu. Þeir vilja skapa atvinnuleysi, neyð og glund- roða. Þeir telja slíkt ástand vænlegast til framgangs fyrir sig. Hitt er furðulega að for- ingar Alþýðuflokksins skuli hafa gerst aftaniossar þeirra. Þess verður að vænta, að al- menningur vari sig betur en þeir, og geri sér þess grein, að eina leiðin til að hindra vax- andi atvinnuleysi er að efla framleiðsluna og íþyngja henni ekki meðan hún er að rétta við. Nokkur kjaraskerð ing í bili er margfallt betri en atvinnuleysið. Raddir nábúanna Alþýðublaðið ræðir um at- vinnuleysið í forustugrein sinni í gær og segir m. a.: „Atvinnuleysið hefir mánuð um saman herjað kaupstaðina og kauptúnin úti á landi, svo að víða sverfur skörturinn að. Ástandið hefir verið talið mun skárra hér í höfuðstaðnum. En nú hefir atvinnuleysisskráp- ingin sýnt og sarinað, hversu mikil alvara er á ferðum einn- ig hér. Atvinnuleysið í Reykja vík er nær helmingi meira en á sama tíma í fyrra og hefir stóraukizt frá því fyrir þrem- ur mánuðum. Þetta er mesta atvinnuleysi í höfuðstað lands ins síðan fyrir stríð. Og þó er síður en svo, að öll kurl séu komin til grafar. Atvinnuleys- ingjarnir hafa að sjálfsögðu gamalmenni á framfæri sínu og bera mun þyngri byrðar en hinar fram komnu skýrslur votta. Auk þess er engum blöð um um það að fletta, að fjöl- margir atvinnuleysingjar hafa ekki látið skrá sig. Ástandið er því miklu ískyggilegra en skýrslurnar sýna og er þó vissu lega ástæða til að gefa boð- skap þeirra gaum út af fyrir sig.“ Það stendur vonandi ekki | á leiðtogum Alþýðuflokkslns að gefa þessum boðskap gaum, og láta ekki komm- únista hafa sig til þess að beit ast fyrir nýrri kauphækkun- arbaráttu, sem ekki getur nú haft aðrar afleiðingar en stór aukið atvinnuleysi. Hallgrimur Benediktsson fer á stúfana í Mbl. í gær og hyggst þar að afsaka þann óeðlilega mikla mismun, sem er á smurningsolíum hjá fvrir tæki hans og Olíuverzlun ís- lands (BP) annars vegar og Olíufélaginu hins vegar, en þessi verðmunur hefir nú hald zt um fjögurra ára skeið og alltaf verið á þann veg, að verðið hjá Olíufélaginu hefir verið stórum lægra. Langmestur var þessi verð- munur þó fyrstu árin. Sam- keppn'n við Olíufélagið hefir bersýnilega neytt H. B. og Olíuverzlunina til að lækka verð:ð. Skýring Hallgríms er sú, að smurningsolíur þær, sem hann og Olíuverzlunin hafa á boðstólum, séu miklu betri en Essoolíurnar, sem Olíufélagið selur. Umræddur verðmunur sé eðlllegur, þegar tekið er tillit til gæðamunar. Við nánari athugun fer því fjarri, að þessi skýring Hall- grims geti talizt viðunandi. Það er ekki aðems, að Esso- olíurnar hafi rutt sér mjög til rúms víða um heim að und- anförnu og hafa því reynzt meira en vel samkeppnisfær- ar, hvað gæði snertir. Þetta sézt m. a. á því, hve ört sala þeirra hef Ir vaxið hér á landi, eins og sýnt er fram á í grein Sigurðar Jónassonar for- stjóra á öðrum stað í blað- inu í dag. Við þetta bætist svo einnig það, að þegar Olíufélagið hóf að selja Esso-oWurnar hér á landi, var 56% verðmunur á þeim og smurningsolíunum, sem H.B. og Olíuverzlunin seldu. Hins vegar var þá nær enginn verðmunur á þessum olíum i Bretlandi og á Norð- urlöndum. Á þessu fyrirbæri gefur H.B(. enga skýringu. Hvaða orsakir voru hér að verki? Höfðu H.B. og Olíuverzlunin gert svona óhagstæð innkaup fram að þessu, eða höfðu þessir aðilar okrað svona gíf- urlega á almenningi? Það er sannarlega ástæða til þess að óska fyllri skýr.ngu á þessu fyrirbæri. Umboðslaun kommúnista Á síðastl. sumri stofnuðu kommúnistar hér heildsölu- fyrirtæki, sem á að reka verzl un við Austur-Evrópulöndin. Það virðist njóta sérstakrar náðar þar. því að það hefir fengið fjölmörg umboð, sem eldri fyrirtæki hér höfðu áð- ur. Hins vegar hefir þetta ekki orðið til að lækka vöruverð- ið hér heima. Það kynlega hefir gerzt, að innkaupaverð þeirra vara, er þetta nýja fyrirtæki hefir umboð fyrir, hefir hækkað um 2—5% eða sem svarar þeim afslætti, er þau fyrirtæki fengu, er áður höfðu umboðin. Verður ekki annað séð, en hér sé um að ræða umboðslaun. er renna í vasa hins nýja fyrirtækis. Það verður því ekki sagt, að kommúnistar séu að stofna verzlunarfyrirtæki í þeim til- gangi að bæta verzlunina til hags fyrir almenning. Hins vegar virðast þeir ekki hafa neitt á móti því að stinga á sig umboðslaunum, sem almenningur verður að borga í hækkuðu vöruverði.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.