Tíminn - 09.02.1951, Side 5
33. blað
TÍMINN, föstudaginn 9. febrúar 1951.
5
tmtnti
Föstud. 9. feb.
Olíufélagið
Grein sú um starfsemi Olíu-
félagsins, sem birtist hér í
blaðinu í gær eftir Sigurð
Jónasson forstjóra, hefir að
vonum vakið mikla athygli.
Greinin sýnir það óvéfengj-
anlega, að stórfelldur árang-
ur hefir þegar náðst af starfi
Olíufélagsins, þótt enn sé
starfstími þessi ekki lengri en
fjögur ár. Með stöi'fum og
starfrækslu Olíufélagsins
hafa S. í. S., kaupfélögin og
olíusamlög útvegsmanna unn
ið þjóðinni mikið nauðsynja-
verk, sem þegar hefir komið
miklu góðu til vegar, en á þó
tvímælalaust énn eftir að
áorka miklú meiru í þessum
efnum.
Hér þykir rétt að rifja upp
nokkrar .athyglisverðustu stað
..reyndirnar. sem skýrt var frá
í grein Sigurðar Jónassonar:
Hægt er að Sýna fram á það
með glöggum tölum, að hagn
aður sá, sem ríkisstofnanir,
Reykj avikurbær og olisam-
lög hafa notið af viðskiptun
um við Olíufélagið undanfar
in fjögur ár, sé a. m. k. sjö
milljónir króna. Er þá haft
til samanburðar það verð,
sem þessir aðalar hefðu orðið
að sæta, ef Olíufélagsins hefði
ekki notið við.
Hagnaður smurningsolíu-
kaupenda af viðskiptunum
við Olíufélagið nemur a. m. k.
þremur milljónum króna á
undanförnum 4 árum, ef mið
að er við það verð, sem verið
hefir hjá olíuhringunum. Við
þetta bætist svo, að olíuhring
arnir hafa orðið að lækka
verð sitt verulega vegna sam
keppninnar við Olíufélagið.
Sést það m. a. á því, að fyrst
þegar Olíúfélagið hóf að
selja smurningsolíur var verð
munurinn 56%, en hefir síð-
an farið minnkandi, þótt enn
sé hann verulegur. Hinsvegar
hefir þessi verðmunur verið
sáralítill eða enginn annars-
staðar.
Fyrir atbeina Olíufélagsins.
hafa náðst hagstæðari inn-
kaup á olíum, og farmgjald á
olíum til landsins hafa lækk-
að. Mun sú lækkun eigi vera
minni en 6—9%. Með þessu
móti hefir landsmönnum spar
ast mikið fé og það í erlendum
gjaldeyri.
Seinast, en ekki síst, ber
svó að hefha það, að með
starfsemi Olíufélagsins var
einokunarvald olíuhringanna
hér brotið á bák aftur. Áður
vorú þeir ráunverulega ein-
valdix-xfm ver^lagningu. Þeir
hótuðþ verkfalli, ef þeim mis ’
líkuðu fyrrimæli verðlagsyfir,
Valdanna og fyrir því varð að
beygja sig, ef landið átti ekki
að verða olíulaust. Olíufélag-
ið neitaði strax að vera þátt-
takandi í slíkum verkfalls-
samtökum. Síðan hefir álagn
ingarprósentan á olíum líka
farið sílækkandi, þótt rekstr
argjöld olíuverzlananna
hafi farið hækkandi. Slíkt
hefði ekki getað átt sér stað,
ef verkfallsvaldi olíufélag-
anna hefði ekki verið hnekkt.
Á þennan hátt hefir Olíufélag
ið stuðlað að því að lækka
verulega olíuverðið.
Þetta, sem hér hefir verið
greint, sýnir það ómótmælan
lega, að Olíufélagið hefir á-
orkað stórfelldum endurbót-
um á olíuverzluninni þann
stutta tíma, sem það hefir
ERLENT YFIRLIT:
frá Lake
Succes 1952
Sérkennilcs' gagnrýni ,,The Ccon«inist“
á afstöðu ISreta í Kóreudeilunni
Eins og kunnugt er, hafa
Bretar um skeið haft nokkuð
aðra afstöðu til Kóreumálsins
en Bandaríkjamenn í stjórn-
málanefnd S. Þ. Þetta stafar
m. a. af því, að Bretar vilja
koma í veg fyrir frekari styrj-
aldarátök í Asíu, ef hægt er, af
ótta við það, að Rússar fái þá
frjálsari Kendur í Evrópu. Ýms
ir, sem gagnrýnt hafa þessa
stefnu Breta, telja, að hún mót-
ist öllu meira af tilliti til sér-
hagsmuna: en hagsmuna S.Þ.
Afstaða, eins og Bretar hafa
valið sér J þessu máli, hljóti að
leiða til þess, að S.Þ. verði þýð-
ingarlausar eins og Þjóða-
bandalagíð varð á sínum tíma
vegna þess, að samtakamætt-
inum er aðeins beitt til að
hindra yfirgang veikburða inn
rásarmanna eins og Norður-1
Kóreumanna, en hins vegar sé
slegið undan, þegar öflugri á- ]
rásarmenn eins og Kinverjar
eiga í hlut. Bretar verja sig með
því, að S. Þ. megi ekki færast
meira í fáng en þær hafa bol-
magn til, því að annars koll-
sigli samtökin sig.
Það mun hafa verið til þess
að skýxa þessi sjónar-
mið, sem enska blaðið
„The Economist“ birti fyrir
skömmu grein *"þá, sem
hér fer á eftir í lauslegri þýð-
ingu. Méð því að bregða upp
dæmi, þár sem Bretar og Banda
ríkjamenií eru látnir skipta um
hlutverk vegna breyttrar að-
stöðu, er ieitast við að skýra
þau átöfc,- er átt hafa sér stað
innan S, Þ. milli þessara sam-'
starfsþjóðcj að undanförnu.
Gagnrýninni er valið það hóf- j
sama en markvissa form, sem'
Bretum er títt að bregða fyrir
sig í rökrééðum.
Hefst sva greinin úr „The Ec-
onomist"-:-
Lake Succes, 22, jan. 1952.
Síðan fiersveitir Sameinuðu
þjóðanna hörfuðu frá Bonn hef
ir sjónarmið Bandaríkjanna átt
vaxandi fylgi að fagna á þingi
þeirra, að nauðsynlegt sé að
láta allan her hverfa úr Þýzka-
landi og gefa upp varnir þess
til að tryggja friðinn í Evrópu.
Fulltrúi Breta, sir Gladwin Jebb,
hefir hins vegar barizt ákveð-
ið fyrir því, að fá Rússa við-
urkennda árásaraðila, jafn-
framt því sem hann heldur því
fram, að Sameinuðu þjóðirnar
séu að tortíma tilveru sinni
sem þjóðasamtaka, ef þær neiti
að viðurk’enna innrás Rússa í
Vestur-Þýzkaland ofbeldisað-
gerð. Fulltrúi Bandarífcjanna,
Warren Austin, hvetur hins veg-
ar til varfcárni og bendir á að
það sé engin þjónusta við hug-
sjón friðarins, að rasa fyrir ráð
fram af .hvatvísi og nú þurfi
að kynna sér vandlega alla
málavexfi í sambandi við síð-
ustu aðgerðir Rússa.
Rússar höfnuðu tillögu stjórn
málanefndarinnar um vopna-
hlé í Þýzkalandi og utanrík-
isráðherrafundi um málið þegar
í stað. Þeir héldu því fram, að
það yrði að fullnægja höfuð-
skilyrðum Rússa áður en samn-
ingar gætu tekizt um vopnahle
og hinar sigursælu rússnesku
sjálíboðaliðasveitir yrðu hvatt-
ar til að stöðva sókn sína. Rúss 1
ar krefjast þess, að allur út.-
lendur her verði fluttur brott
úr Þýzkalandi og að Þjóðverj-
ar sjálfir ráði úr öllum innan-
ríkismálum sínum. Þar sem all
ir þýzkir stjórnmálamenn, sem
ekki hafa flúið yfir Rín eða
skipað sér til liðs við komm-1
únista, hafa verið skotnir, er
talið í Moskvu, að Ulbricht geti
ráðið fram úr málunum án sér
stakra erfiðleika. Rússar eru1
fúsir til að fallast á utanríkis- ]
ráðherrafund með því skilyrði,»
að þar verði líka fulltrúar frá
ítalíu, Iran og Mongoíiu og
fundurinn verði hafður í Len-,
ingrad.
Brezki herinn hefir misst 50
þúsund manns í bardögunum
í Þýzkalandi og þar af leiðandi
er nokkur beizkja ríkjandi í
landinu og stjórnin mætir
harðri gagnrýni vegna þess hve
festulaust er tekið á Evrópu-
málunum. Forsætisráðherrann
hefir bent á það, að ekki er
hægt að nota loftherinn til á-
rása handan hernámssvæðis
Breta, nema Sameinuðu þjóð-
irnar taki áður ákvarðanir þær,
sem til þess þarf, en hann hefir
lofað' að gera allt sem hann
geti til þess, að fá Sameinuðu
þjóðirnar til að lýsa Rússa árás
arþjóð, þó að það sé almennt
viðurkennt, að naumast sé um
það að ræða, að beita refsiað-
gerðum. Fróðir menn í Wash-
ington eru hins vegar þeirrar
skoðunar, að Bandaríkin þurfl
að vera á verði gegn því að
láta draga sig inn í vaxandi
fjandskap og deilur, og þeir
hafa það á tilfinningunni, að
Englendingum hætti til nokkurs
ofstækis í sambandi vlð varn-
irnar í Evrópu og gamall heims
veldisandi þeirra geri þá að
vonum nokkuð herskáa. Utan-
rikisráðuneytið í Washington
hefir ekki ennþá varpað frá
sér allri von um að Rússland
verði ekki í neinum tengslum
við Kína og fordæmir hverja
þá aðgerð, sem getur hrakið
Stalín í arma Maos.
Behop öldungadeildarþing-
maður hefir flutt örlagaríka
ræðu í .Cincinnati, þar sem
hann varaði Bandaríkjaþjóðina
við því, að láta tilleiðast að
binda Bandaríkjaher í Evrópu,
jafn alvarleg hætta og nú væri
á því, að Alaska, Japan og Fil-
ippseyjar yrðu fyrir árás frá
Rússlandi og Kína. Hann sagði,
BEVIN
að það væri mjög óheppilegt,
að enginn væri til að stjórna
Eisenhower hershöfðingja, sem
bersýnilega gerði alltof lítið úr
þessari innrásarhættu, þar sem
hann léti fylgja innrásarsveit-
unum frá Austur- Þýzkalandi
eftir inn á hernámssvæðið. Allt
yrði að gera til að jafna mál-
in og koma á friði sem fyrst,
svo að hin forna vinátta rúss-
nesku og bandarísku þjóðanna
bíði eng&n hnekki. Hann sagði
að Rússar væru svo stoltir og
mætu sóma sinn svo mikils, að
þeir myndu aldrei una því til
lengdar að vera háðir manda-
rínunum í Peking.
Ræða, sem John K. Poffen-
heimer frá hlutafélaginu Adria- 1
tisk Export, flutti í félagi utan- *
ríkismála, hefir líka haft mikil
áhrif. Hann sagði áheyrendum
sínum, að hann hefði gert glæsi
leg viðskipti austur fyrir járn-
tjaldið í gegnum Triest og það
væri engin hætta á öðru en
þau gætu haldið áfram
nokkur ár ennþá, ef Bandarík-
in létu útþensluna rússnesku
afskiptaiausa. Hann sagði, að
kommúnismínn í Evrópu yrði
ekki stöðvaður með ofbeidi, og
það væri því betra, sem. Eng-
lendingar áttuðu sig fyrr á því.
Forsætisráðhcrra Indlands
(Framhald á 6. siðu.x
starfað. Það hefir sparað
landsmönnum upphæðir, sem
skipta morgum milljónum
króna, er ella hefðu runnið í
vasa erlendra og innlendra
gróðamanna. Það hefir lagt
grundvöíl að auknum mögu-
leikum til að bæta olíuverzlun
ina enn meira á komandi ár-
um. Samvinnufélögin og út-
vegsmenn eigg, skilið mikiar
og óskiptar þakkir þjóðariirn
ar fyrir þá stórmerkilegu og
heillaríku framkvæmd, sem
þessir aðiiar hafa ráðist í, þar
sem stofnun og starfræksla
Oliufélagsins er.
Það er líka óræk viðurkenn
ing þess, að Olíufélagið hefir
unnið mikið og gifturíkt starf
að Mbl. og Þjóðviljinn skulu
hafa horn í síðu þess. Þjóð-
viljinn vill allt það feigt, er
til umbóta horfir í ríkjandi
þjóðskipulagi, og Mbl. er auð
sveipur þjónn auðhringanna,
sem grætur yfir hverjum eyri
sem þeir missa úr pyngju
sinni.
Fjandskapur þessara aðila
er aukin hvatning til allra
umbótasinnaðra og þjóðhollra
manna um að stuðla að því,
að Olíufélagið geti eflzfc og
styrkzt og haldið áfram um-
bótum á olíuverzluninni, er
séu í samræmi við hina glæsi
legu byrjun þess.
Raddir nábúanna
Þjóðviljinn þykist nú hafa
fundið lausn á atvinnuleys-
ismálinu. Það er að stofna
atvinnuleysissjóð og veita at-
vinnuleysisstyrki, sem yrðu
% dagkaupsins. Sigurður
Guðnason flytur nú um þetta
frv. á þingi og telur Þjóð-
viljinn þetta aðallið þess:
„Samkvæmt lögum er stétt-
arfélögum heimilt að stofna
atvinnuleysissjóði og eru tekj-
ur þeirra ákveðnar sem hér
segir:
1. Þrjár milljónir króna á-
samt vöxtum sem Trygginga-
stofnun ríkisirís geymir og
skal því fé skipt milli sjóð-
anna í hlutfalli við félagatölu.
2. Atvinnurekendur skulu
greiða í sjóðina sem svarar
4% af heildartekjum hverS
sjóðsfélaga sem hjá þeim vinn
ur.
3. Ríkissjóður greiði 150 kr.
á ári á hvern sjóðsfélaga að
viðbættri verðlagsuppbót.
4. Bæjar- og sveitarsjóðir
greiði helming á við framlög
ríkissjóðs.
5. Sjóðsfélagar greiði sjálfir
iðgjöld.“
Það er gallinn á þessu frv.,
að hætt er við, að smá yrðu
framlög ríkis’ns og atvinnu-
rekenda, ef framleiðslan stöðv
aðist. Styrkirnir eru líka ætl-
aðir svo lágir, að styrkþeg-
arnir myndu búa við full-
komið sultarlíf og iðjuleysi í
þokkabót. Þessi tillaga komm
únista er því engin lausn, en
gæti hins vegar tafið fyrir
raunhæfri lausn- Eina raun-
hæfa úrræðið er að efla svo
framleiðsluna, að hún geti
veitt næga, lífvænlega' at-
vinnu.
Framlenging húsa-
leigulaganna
E'ns og kunnugt er, gerSi
Alþingi þá breytingu á húsa
leigulögunum í fyrra, að
bindingarákvæði þeirra varð-
andi leiguíbúðir skyldu smátt
og smátt falla úr gildi. Sam-
kvæmt því féllu bindingar-
ákvæði þeirra varðandi ein-
stakl ngsherbergi úr gildi á
síðastliðnu hausti, en í vor
falla úr gildi sams konar á-
kvæði varðandi ie.guíbúðir,
sem eru í sama húsi og eig-
andinn býr í.
Þar sem Alþingi le t svo á,
að aðstaða gæti verið nokk-
uð mismunandi í þeim kaup-
stöðum, er húsaleigulögin
náðu t'l, vildi það veita und-
anþágu frá niðurfelLngu
bindingarákvæðis'ns, þar sem
sérstaklega stóð á. Þess vegna
lét það svo fyrirmælt, að
hlutaðeigandi bæjarstjórnir
gætu framlengt bindingará-
kvæðin, ef þær teldu þess
sérstaka þörf.
Það var í samræmi við þetta
ákvæði, sem Þórður Björns-
son flutti snemma á síðastl.
sumri tillögu þess efnis, í
bæjarstjórn Reykjavíkur, að
fram færi athugun á því,
hver áhrif það hefði, ef bind
ingarákvæði húsaleigulag-
anna væru látin falia niður,
án íhlutunar bæjarstjórnar-
innar. Tillögu Þórðar var vís-
að 11 bæjarráðs, en jafnframt
lýst yfir, að borgarlækni yrði
falið að athuga málið.
Þessari athugun borgar-
læknis er ekki lok ð enn, en
hins vegar ekki hægt að
fresta lengur ákvörðunum
um málið. Þórður Björnsson
flutti því þá tillögu á sein-
asta bæjarstjórnarfundi, að
bindingarákvæði húsaleigu-
laganna skyldu enn fram-
lengjast um eitt ár til við-
bótar, þar sem enn væri ekki
lokið athugun á því, hver á-
hrif niðurfelling þeirra hefði.
íhaldsmeirihlutinn tók þá
einkennilegu afstöðu að fella
þessa tillögu með því að
sitja hjá við atkvæðagreiðsl-
una. H'ns vegar studdu aðrir
bæjarfulltrúar hana.
Væntanlega þýðir hjáseta
íhaldsmeirihlutans það, að
hann hefir enn ekki tekið
ákveðna afstöðu til málsins,
enda mátti á honum skilja,
að hann myndi láta taka mál
ið fyrir á ný í bæjarstjórn-
inni. Það ætti því ekki að
vera útilokað, að bæjarstjórn
armeirihlutinn fallist á fram-
lengingu bindingarákvæðis-
ns. Frekari athugun hans á
því máli getur ekki le-tt til
annarrar niðurstöðu en að
hér skapist m'kil vandræði
og glundroði, ef ekki verður
að því ráði horfið.
Fraratal Einars
Þjóðviljinn segir í fyrradag,
að Olíufélagið ætti sjálft að
le ta úrskurðar verðlagsdóms
um ákæru þá, sem blaðið hef-
ir borið á það. Með því sýni
félagið, að það teldi sig hafa
hre-nan skjöld.
Samkvæmt þessu ætti vissu
lega að mega vænta þess, að
Einar Olge rsson óski rann-
sóknar á skattaframtali sínu,
þar sem ýms blöð hafa dregið
í efa, að hann hafi talið olíu
gróðann fram. Sé ályktað
samkvæmt framangreindri
kenningu Þjóðviljans, álítur
Einar sig sekan, ef hann ósk-
ar ekki eftir umræddri rann-
sókn.