Tíminn - 23.02.1951, Page 3

Tíminn - 23.02.1951, Page 3
45. blað. TÍMINN, föstudaginn 23. febrúar 1951. 3 Afkoma ríkissjóðs á árinu 1950 Greiðsltijöfnuður náðist á árinu, þótt verðtoll- urinn brygðist og umframtekjur yrðu nær engar Rekstrarreikningur 1950 Tekjur Yfirlitsræða Eysteins Jónssonar fjármálaráðherra í sameinuðu þingi í gær Ég gat þess í framsögu fyr- ir fjárlagafrumvarpinu 1951, að ég mundi gefa háttv. Al- þingi, svo fljótt sem kostur væri á, upplýsingar um af- komu ríkissjóðs á ár- inu 1950. Undanfarið hafa verið dregnar saman upplýsingar, að uppgjöri til bráðabirgða fyrir árið 1950, og er þvi nú lokið. Þótti þá rétt að ég gæfi háttv. Alþingi yfir lit um afkomu ársins 1950, samkvæmt þessu bráðabirgða yfirliti. Þess ber að geta nú eins og venja er um yfirlit slík, að tölur geta breytzt við endanlegt uppgjör, en það er von f j ármálaráðuneytisins að þær breytist ekki svo mik ið, að heildarniðurstaðan raskist svo máli skipti. Mun ég þá gera grein fyrir rekstrarreikningnum og eignahreyfingum. (Sjá töflu). Fjárlagaáætlunin hefir staðist. Tekjur ársins voru áætlað- ar 298 millj. kr. en samkv. þessu bráðabirgðauppgjöri eru þær um 297 millj. kr. eða nær jafnháar eíns og áætlað var. Rekstraarútgjöld voru,á- ;ætluð 262 millj. kr. $n eru samkv. þessu bráðábirgðayfir liti 263 millj. kr. eða aðeins hærri en áætlað var. Rekstr- arhagnaður var áætlaður 36 millj. kr. en er samkv. bráða- birgðauppgjörinu 34 millj. kr. Plestir liðir rekstrarreikn- ingsins gefa ekki tilefni til at- hugasemda, en ég mun minn- ast á nokkra. Rýrnun verðtollsins Það sem fyrst vekur at- hygli við lestur reikningsins er það, hversu verðtollurinn hefir brugðist. Hann var á- ætlaður 78 millj. kr. en hefir reynzt 58 millj. Verðtollurinn hefir með öðrum orðum reynzt jafnhár nú og árið 1949, þrátt fyrir gengislækk- unina. Þessu hefði enginn trú að fyrirfram. Innflutningur- inn hefir minnkað stórlega á árinu 1950 frá því, sem hann var árið 1949. Ég taldi að verð tollurinn mundi ekki vera of hátt áætlaður fyrir árið 1950 og margir aðrir töldu hann vera alltof lágt áætlaðan. Það er fróðlegt að lita á innflutn ingstölurnar þessi tvö ár. Hagstofan segir, að reiknað með núverandi gengi bæði ár in til samræmis, hafi inn- flutningurinn 1949 numið 785 millj. kr. en innflutning- urinn árið 1950 590 millj. kr. Lækkunin nemur hvorki jmeiru né minna en 195 millj. kr., eða um 25%. Þegar þess er gætt til viðbótar, að nauð synjavörur ýmsar hafa hækk að í verði og að innflutningur á þeim hefir hlotið að vera svipaður bæði árin að magni kemur í ljós, að innflutning- ur hátollaðra vara hlýtur að hafa minnkað meira jafnvel, en fram kemur af innflutn- ingstölunum. Hin. raunverulega ástæða þess, hve illa hefir farið að þessu leyti, eru erfiðleikar margvíslegir, sem mæddu á þjóðinni á árinu 1950, síld- veiðibrestur, framleiðslustöðv anir vegna verkfalla og verð- fall á útflutningsafurðum, samanborið við innfluttar vör ur. Tekjur ríkisstofnanna. Aðrir tekjuliðir hafa farið aðeins fram úr áætlun, ýms ir, og vegið hér nokkuð á móti en þó einkum tekjur af einka sölunum, sem hafa orðið þó nokkuð hærri en áætlað var. Vörur einkasalanna voru hækkaðar i verði á árinu, og hefir sú hækkun gefið eitt- hvað auknar tekjur, en vöru sala beggja hefir þó raunar dregizt nokkuð saman. Ástæða er til þess að benda á, að rekstrarhagnaður land- símans hefir orðið mun meiri en áætlað var. Hann var á- ætlaður 1.700 þús. kr., en hef ir orðið 4,300 þús. kr. Er þetta af því, að tekjur hafa reynzt drýgri en gert var ráð fyrir og gjöldum á hinn bóginn sízt hærri. En þar um veldur nokkru, að viðhald og endur- bætur gat ekki farið fram sem fyrirhugað var, vegna efnisskorts. Tekjuvonir, sem brugðust. Eins og áður var sagt sýn- ast tekjurnar 1950 ætla að verða sem næst jafnháar á rekstrarreikningi og áætlað var í fjárlögum og eru það veruleg vonbrigði. Til þess að fjárlög geti staðizt við venj u- legar aðstæður, þurfa tekjurn ar að fara nokkuð fram úr á- ætlun, þar sem ekki er hægt að gera ráð fyrir því, að út- gjöldin verði nákvæmlega eins og fjárlögin gera ráð fyr ir. Það hlýtur að verða að gera ráð fyrir einhverjum um framgreiðslum, hversu sem reynt er að koma í veg fyrir slíkt. Öruggari innheimta. í yfirlitinu eru eins og vant er aðeins taldar innborgðar tekjur. Eru dregnar frá 11,5 millj. vegna aukningar eftir stöðva tekju og eignaskatts og söluskatts. Þessi fjárhæð er ískyggilega há, en ég vona að mikið af þessu náist inn og sumt fyrir reikningslok. Eins og ég hefi áður oft- lega greint Alþingi frá þá horfði söluskattsinnheimtan til vandræða. Hefir því með samþ. Alþingis verið gripið til nýrra ráðstafana, sem von- andi bæta úr. Vona ég að menn skilji nauðsyn þess, að koma innheimtunni í betra horf en verið hefir. Fer þar saman almanna nauðsýn og hagur þeirra, sem í skilum hafa staðið. Þetta hefir þó komið minna að sök en ella á s. 1. ári vegna þess, að umframgreiðslur hafa yfirleitt orðið litlar og útgjöldin á tveimur Uðum fjárlaganna orðið nokkru lægri en fjárlögin gera ráð fyrir. Lækkun á vaxta- greiðslum. Vaxtagreiðslur verða lægri en áætlað var, vegna þess að samkomulag hefir fengizt við Lanlsbankann um að taka til lit til mótvirðissj óðsinneignar innar við ákvörðun vaxta af yfirdráttarskuld ríkissjóðs í bankanum. Dýrtíðargreiðslur hafa orð ið um 7 millj. kr. minni en áætlað var í fjárlögum og munar þar mest um, að ekki bar að greiða á árinu nema hálfan svokallaðan „kjöt- styrk“, sem nú er raunar al- veg úr sögunni. Að öðru leyti reyndist áætlun á þessum fjárlagalið einnig rífleg, mið að við að halda niðurborgun um vöruverðs á árinu eins og þegar gengislækkunin var gerð, en það var ætlunin og þannig hefir málið verið fram kvæmt. Engar stórfelldar um- framgreiðslur. Erfitt er að bera hvern ein stakan fjárlagalið í reikningn um saman við fjárlögin vegna þess, að launauppbætur all- ar voru áætlaðar sérstaklega á 19. gr., en ekki bætt við hvern einstakan lið, eins og hefði þó þurft að vera, ef samanburður hefði átt að geta fengizt á fjárveitingu og reikningi. , Slíkt var á hinn bóginn ekki mögulegt eins og af- greiðslu fjárlaga bar að, svo sem hv. alþingismönnum er kunnugt. Fæstir fjárlagaliðanna sýn ast hafa farið verulega fram úr fjárveitingu, nema sem svarar launauppbótum, sem fjárveiting var fyrir á 19. gr. 2. Samgöngumálin. Ástæða er til þess að geta um 13. gr. B., samgöngur. Þar er fjárveiting. 3.658 þús., en bráðabirgðauppgjör sýnir 5.430.000 kr. útgjöld. Hér er áætlað fyrir halla, seni fram kom á rekstri áætlunarbif- reiða ríkjisins, Norðurlands- leið og Hafnarfjarðarleið, þeg ar rekstur þeirra var gerður upp og bifreiðarnar seldar. Er þarna gert ráð fyrir 1,2 millj. kr. upp í hallaáþessumrekstri en hallinn mun hafa reynst hátt á aðra milljón og er ekki búið að gera þau við- skipti upp við ríkissjóð enn- þá. Verður greint frá því síð- ar Þá hefir orðið meiri halli á rekstri strandferðanna en fjárlög gerða ráð fyrir, og mun þar mestu valda, að ekki hefir verið tek- ið nægilegt tillit til áhrifa gengisfellingarinnar á þá út- gerð við endurskoðun fjárlag anna s. 1. vetur. Þyrill hefir verið afhentur Skipaútgeíð- inni til rekstrar og ér frádreg inn hér áætlaður hagnaður af rekstri hans. Landbúnaðarmál 16. gr. A, landbúnaðarmál,. hefir farið nokkuð fram úr (Framhald á 5. siðu) Fjárlög. Reikningur. 1. Tekju- og eignask. og tekjuskattsauki 40.000.000 44.792.000 2. Stríðsgróðaskattur, hluti ríkissjóðs 2.000.000 1.405.000 3. Vörumagnstollur 21.000.000 22.244.000 4. Verðtollur 78.000.000 58.387.000 5. Innfl.gjald af benzíni 9.500.000 9.574.000 6. Gjald af innl. tollvör 6.500.000 6.878.000 7. Fasteignaskattur 700.000 763.000 8. Lestagjald af skipum 250.000 266.000 9. Bifreiðaskattur 3.500.000 2.373.000 10. Aukatekjur 1.800.000 2.036.000 11. Stimpilgjald 4.500.000 5.303.000 12. Vitagjald 900.000 933.000 13. Leyfisbréfagjald 150.000 133.000 14. Erfðafjárskattur 300.000 509.000 i 15. Veitingaskattur 3.500.000 2.185.000 16. Útflutningsgjald 300.000 324.000 i 17. Söluskattur 47.500.000 53.810.000 18. Leyfisgj.-[-sölusk. bifr. 3.500.000 2.599.000 1.649.000 223.900.000 216.163.000 — Hækkun eftirstöðva 9.925.000 Endurgr. tekjur 1.455.000 Innheimt laun 120.000 11.500.000 223.900.000 204.663.000 3. grein A Landsíminn 1.701.000 4.301.000 Áfengisverzl. 48.408.000 53.800.000 Tóbakseinkas. 19.520.162 27.000.000 Ríkisútvarpið 612.020 300.000 Ríkisprentsm. 200.000 210.000 Landsmiðjan 60.000 25.000 Innk. stofnunin 4.000 76.000 71.110.000 85.612.000 — Pósturinn 200.000 85.412.000 3. grein B Tekj. af fasteign. 10.000 4. grein Vextir 1.814.000 1.782.000 5. grein Óvissar tekjur 1.500.000 5.380.000 Kr. 298.334.000 297.337.000 Gjöld * Fjárlög. Reikningur. 7. gr. Vextir 10.169.000 6.495.000 8. gr. Forsetaembættið 414.000 691.000 9. gr. Alþingi 2.316.000 2.316.000 10. gr. I Stjórnarráð 3.363.000 4.376.000 10. gr. II Hagstofan 433.000 526.000 Í0- gr. III Utanríkismál 4.707.000 4.736.000 11. gr. A Dómsmál 13.189.000 15.018.000 11- gr. B Opinb. eftirlit 943.000 1.900.000 11. gr. C Innh. skatta og tolla 5.687.000 6.960.000 11. gr. D Sameiginl. emb.kostn. 1.350.000 1.300.000 12. gr Heilbrigðismál 15.841.000 17.843.000 13. gr. A Vegamál 26.528.000 27.580.000 13. gr. B Samgöngur 3.658.000 5.434.000 13. gr C Vitamál 8.835 000 9.550.000 13. gr. D Flugmál 2.239.000 2.000.000 14. gr. A Kirkjumál 3375.000 3.969.000 14. gr. B Kennsiumál 32.745.000 38.203.000 15. gr. A Til bókmennta, lista o.fl. 2.709.000 2.785.000 15. gr. B Rannsóknir í opinb. þágu 3.838.000 4.781 000 16. gr. A Landbúnaðarmál 23.806.000 26.168.000 16. gr. B Sjávarútvegsmál 8.088.000 8.160.000 16. gr. C Iðnaðarmál 811.000 830.000 16. gr. D Raforkumál 4.600.000 4.400.000 17. gr. Félagsmál 27.688.000 28.020.000 18. gr. Eftirlauna og lífeyrissj. 6.509.000 8.100.000 19- gr. 1 Dýrtíðarráðstafanir 33.500.000 26.130.000 19. gr. 2 Launauppbætur 14.000.000 19. gr. 3 Verðuppbætur á gærur 225.000 225.000 19. gr. 4 Óviss útgjöld 500.000 2.500.000 Heimildarlög 79.000 Sérstök lög 1.844.000 Væntanleg fjáraukalög 257.000 Þingsályktanir 45.000 262.066.000 263.221.000 Rekstrarhagnaður 36.268.000 34.116.000 Kr. 298.334.000 297.337.000

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.