Tíminn - 07.04.1951, Blaðsíða 8
ERLEHT YFIRLIT:
Hefst Evrópustríð í sumar?
35. árgangur.
Reykjavík,
7. apríl 1951.
78. bla«.
Gúmmíbarðinn h.f. fimm ára
Mikill erlendur gjaldeyrir sparaður síðan
farið var að sóla notaða hjólbarða
Um þessar mundir er Gúmmíbarðinn h. f. við Skulagötu
5 ára. Þetta fyrirtæki hefir um fimm ára skeið sóiað um 10
þús. hjólbarða fyrir bifreiðaeigendur í landinu og sparað
þjóðinni sem næst andvirði jafnmargra hjólbarða í erlend-
um gjaldeyri. —
Ólafsfirðingar mót-
mæla togaraút-
hiutuninni
Frá fréttaritara Tímans
í Ólafsfirði.
Ólafsfirðingar og Dalvíking
ar telja, að þeir hafi verið
ranglæti beittir við úthlutun
nýju togaranna. Var mál
þetta til umræðu á bæjar-
stjórnarfundi í Ólafsfirði á
fimmtudaginn.
Sigurður Baldvinsson, einn
af fulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins, bar fram svolát-
andi ályktunartillögu, sem
samþykkt var í einu hljóði af
öllum bæjarstjórnarmönnum:
„Varðandi úthlutun ríkis-
stjórnarinnar á nýju togur-
unum, svo og kaup hennar á
togaranum Garðari Þorsteins
syni handa Siglfirðingum,
telur bæjarstjórn Ólafsfjarð-
ar, að ríkisstjórn íslands hafi
framið stórkostlegt ranglæti
gagnvart Ólafsfirðingum og
Dalvíkingum í þvi máli. Skor
ar því bæjarstjórnarfundur |
5. apríl 1951 á ríkisstjórnina, I
að hún kaupi togara handa’,
Ólafsfirðingum og Dalvik-
ingum ekki verri en tegarann,
sem hún keypti handa Sigl-
firðingum, eða stuðli að ann-
arri atvinnuaukningu á þess-
um stöðum.“
*
IsL námsmanni
boðinn norskur
námsstyrkur
Norska utanríkisráðuneyt-
ið hefir nýlega veitt styrk,
að upphæð norskar krónur
3.200.00, handa íslenzkum
listamanni til átta mánaða
námsdvalar í Noregi.
Umsóknir um styrk þenn-
an eiga að vera komnar til
skrifstofu Menntamálaráðs
fyrir 1. maí n. k.
Loðnuveiði á Húsa-
vík en tregur
þorskafli
Frá fréttaritara Tímans
á Húsavík.
Hér hefir veiðzt dálítið af
loðnu undanfarna daga og
hafa bátar reynt að beita
henni, en fiskafli þó verið á-
kaflega tregur. Bátar hafa þó
róið nokkrum sinnum því að
gæftir hafa verið sæmilegar
síðustu dagana.
Það var 1. apríl 1946, sem
fyrstu sóluðu hjólbarðarnir
voru aígreiddir frá Gúmmí-
barðanum. Það voru sex menn
hér í bænum, sem hófu þessa
starfsemi og vinna fjórir
þeirra enn í fyrirtækinu. Þess
ir menn, sem stofnuðu
Gúmmíbarðann voru Sigurð-
ur Jóhannesson forstjóri
Gúmmíbarðans, Grimur
Grimsson, Jón Bjarnason,
Kai Andersen, Þórður Þorkels
son og Úlfar Þorkelsson. Starf
semi þessi hefir til umráða
skúrabyggingar við Sjávar-
borg við Skúlagötu. —- Nú
vantar okkur góða lóð til að
byggja á ýfir verkstæðið, sagði
Sigurður Jóhannesson, en það
kemur okkur ekki að gagni
nema við fáum hana við ein-
hvern aðalveg.
Sem verkstjóra fékk fyrir-
tækið þegar í upphafi vanan
mann í þessari starfsgrein,
Tékkann Karel Vorofka, sem
unnið hafði að þessu fimm ár
í Bretlandi. Karel er kunnur
hér á landi eftir norrænunám
sitt hér við háskólann og
fjallaferðir sínar.
Bílstjórar telja slika sólaða
hjólbarða endast sem nýja.
Gúmmíblanda er soðin á barð
ann með sérstökum tækjum,
sem hita aðeins þann hluta
barðans, sem sólinn er settur
á og skemma því ekki strig-
ann innan i barðanum.
Ýmsar nýjungar eru í þess
ari grein, svo sem stálvír í
sólunum, sem er eins konar
„skaflajárn“ i ísingu. Einnig
er í ráði að Gúmmíbarðinn
taki að sér að sjóða gúmmí á
valsa prentvéla fyrir prent-
smiðjurnar. Þá er þarna fram
leitt fjaðragúmmí og sólar á
hækjur og stafi.
Talið er að erlent efni í sól
un eins hjólbarða sé um 1%
af andvirði heils barða, en
nokkuð af því vinnist aftur
á því, hve farmgjald er miklu
lægra fyrir gúmmíið í bví
formi en hjólbarðana, sem
taka svo mikið rúm í skips-
lestum. Síðan sólun og viðgerð
gamalla hjólbarða hófst með
þessum hætti hafa bílstjórar
hirt barða sína miklu betur
og nú er ekki hent nokkrum
barða, sem mögulegt er að
sóla á ný, því að verð sólun-
ar og viðgerðar er varla meira
en þriðjungur af verði nýs
barða.
Otti við þjófa í þjóð-
minjasafninu brezka
Öryggisvarzlán í brezka þjóðminjasafninu hefir verið
þrefölduð, og ljós er látið loga nótt og dag í öllum sölum,
þar sem helztu dýrgripirnir eru geymdir. Lásasmiðir, sem
njóta sérstaks trúnaðar, hafa verið Iáínir skipta um lása
í safninu.
Bretum er það enn í fersku
varúðarráðstafanir, að ekki
er fýsilegt fyrir neinn að hnýs
minni, er krýningarsteinin- ast í safnið eftir lokunartíma.
um var stolið, og óttast meira
af því tagi. Hafði þess orðið
vart, að lás innri dyra í þjóð-
minjasafninu hafði verið fjar
lægður, án þess að vitað sé,
hverjir hafa verið þar að
1*4 verki. Þessi lás er þannig
J serður, að þjófur, sem nær
afsteypu af honum, getur
smíðað sér lykla að læsingum
1 í heilli álmu í safninu. En í
þessari álmu eru einmitt
flestir mestu dýrgripir safns-
Hérna er hann kominn aftur
fram á sjónarsviðið þýzki
trúðurinn Groch, sem eitt
sinn var þekktur vfða um
heim. Hann stendur nú á
sjötugu og er aftur byrjaður
að sýna listir sínar í f jölleika
húsum í Þýzkalandi.
ísiim á Hvammsfirði
orðinn ótryggur
Frá fréttaritara Tímans
í Búðardal.
ísinn á Hvammsfirði er nú
mjög tekinn að meyrna af
sólbráð, og er hann orðinn
. . « , ótryggur, en þarf þó talsverða
ins, og væn það tjón sem ó- hláku eða storm m þegs að
bætanlegt er, ef þeim væn eyga honum.
stollð- Yfir Bröttubrekku
er nu
Ekki beðið boðanna.
En Bretarnir voru orðnir
hvekktir, svo að þeir hafa'
ekki beðið boðanna. Nú hefir
verið skipt um- alla lása, sem
ekki þóttu fullkomlega trygg
ir, og gerðar svo rækilegar
brotizt við og við.
Kosið til danska
landsþingsins
í fyrrinótt fóru fram kosn-
ingar á helmingi þingmanna í
danska landsþingið. 28 þing-
menn voru kosnir og fengu
jafnaðarmenn 12, vinstri-
menn 8, íhaldsmenn 4, rót-
tækir 3 og réttarsambandið 1.
Kommúnistar náðu engum
manni.
Avarp um þátttöku í
norrænni sundkeppni
Þing hins norræna sundsambands hefir ákveðið að efna
til sundkeppni milli Norðurlandaþjóðanna í sumar.
ísland tekur þátt í þeirri keppni.
Þingið ákvað jöfnunartölur, sem reikna skal eftir stig
þjóðanna að keppni lokinni. Jöfnunartala íslands var á-
kveðin hæst, vegna þess að þingfulltrúar töldu íslendinga
l mestu sundþjóð Evrópu. Sundskyldan mun eiga sinn þátt í
iþeim dómi.
Hver sundfær íslendingur getur tekið þátt i keppni þess-
ari. 'Þrautin er ein og hún er sú, að synda 200 m. bringusund.
íþrótta- og ungmennafélög landsins munu, hvert í sínu
I byggðarlagi, hafa á hendi forustu og undirbúning norrænu
j sundkeppninnar. Hlutur almennings er sá, að æfa sig í
j bringusundi og koma á einhvern sundstað á tímabilinu frá
20. maí til 10. júlí og synda 200 m. bringusund.
Jöfnunartala íslands í sambandi við norrænu sundkeppn-
ina er eigi hærri en svo, að íslendingar ættu að geta borið
sigur af hólmi.
Hér er um hollt og heilbrigt metnaðarmál að ræða. Þess
vegna er oss undirrituðum ljúft að beina þeirri áskorun t.il
allra sundfærra íslendinga, að láta eigi sitt eftir liggja,
til þess að vegur vor og heiður í þessum efnum megi verða
sem mestur.
íslendingar ! Hjálpumst að þvi að létta undirbún-
ingsstarfið. Lærum sund. Æfum sund. Tökum þátt í hinni
samnorrænu sundkeppni.
íslendingar eru af mörgum taldir mesta sundþjóð Evrópu.
Sýnum það á norrænu sundkeppninni i sumar, að það sé
eigi ofmælt.
Allir sundfærir íslendingar á sundstað í sumar!
Björn Ólafsson, Helgi Elíasson, Guðm. Kr. Guðmundsson,
Bragi Friðriksson, Gauti Arnþórsson, Karl Guðmundsson,
Þorsteinn Einarsson, Ben. G. Wáge, Erlingur Pálsson, Þor-
geir Sveinbjarnarson, Þorgils Guðmundsson, Frímann Helga-
son, Hermann Guðmundsson, Logi Einarsson, Úlfar Þórð-
arson, Kjartan Bergmann, Eiríkur J. Eiríksson, Guðrún
Pétursdóttir, Stefán Jóh. Stefánsson, Guðbjartur Ólafsson,
Jón Bjarnason, Helgi Tómasson, Daniel Ágústínusson.
Finnskur laumufar-
þegi, skráður
skipverji
Nú í vikunni kom hingað
til lands með sementsfarm
flutningaskipið Beatriz, er
siglir undir Panamafána. Er
það kom hér á ytri höfnina
reyndist vera með því laumu
farþegi, finnskur maður, er
komið hafði á skipið í Blyth
í Skotlandi.
Engin vandræði urðu þó að
Finna þessum, því að skip-
stjórinn á Beatriz leysti vand-
ann með því að ráða laumu-
farþegann sem skipverja.
Israel og Sýrland
kæra til S'.Þ.
ísraelsstjórn og stjórn Sýr-
lands hafa báðar kært til S.
Þ. vegna óeirða, sem urðu
í fyrradag við landamærin.
I Kenna þær hvor annarri um
j upptökin. Segir stjórn ísra-
! els, að þær hafi hafizt með
því, að hermenn Sýrlands á
landamærunum við Galileu-
vatn hófu skothríð á lög-
reglulið ísraels og skutu sex
lögregluþjóna til bana. Þessu
svaraði ísraelsstjórn með því
að láta herflugvélar sínar
gera árás á bælcistöðvar hers
Sýrlendinga við vatnið.
Sæluvika Skagfirð-
inga hefst á morgun
Frá fréttaritara Tímans
á Sauðárkróki.
Sæluvika Skagfirðinga, sem
frestað var í vetur vegna in-
flúensuhættu að boði sýslu-
manns, verður í næstu viku.
Verða sýndir fjórir sjónleik-
ir, auk revýu.
Að þessu sinni verða aftur
teknir upp málfundir tvö
kvöld vikunnar, en slikir um-
ræðufundir hafa ekki verið
síðustu árin.