Tíminn - 08.04.1951, Page 2
2.
TÍMINN, sunnudaginn 8. apríl 1951.
. 79. blaS.
til heiía
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 11 Messa í Dómkirkjunni
(séra Bjarni Jónsson vígslubisk-
up). 18,30 Barnatími (Þorsteinn
Ö Stephensen). 20,20 Sinfóníu-
hljómsveitin; dr. Victor Ur-
bancic stjórnar: Forleikur og
danssýningarlög eftir Árna
Björnsson, úr sjónleiknum „Ný-
ársnóttin". 20,40 Erindi: Kevin
helgi og klausturbærinn fomi
(Þóroddur Guðmundsson rith.).
21,05 Kórsöngur: Kór Hallgríms
kirkju í Reykjavík syngur; Páll
Halldórsson stjórnar og leikur
á orgelið. 21,30 Upplestur: „Veð-
málið“, smásaga eftir Anton
Tsjekov (frú Margrét Jónsdótt-
ir). 21,50 Tónleikar (plötur).
22,00 Fréttir og veðurfregnir.
22,05 Danslög (plötur). 1.00 Dag-
skrárlok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
Kl. 20,20 Útvarpshljómsveitin;
Þórarinn Guðmundsson stjórnar
a) Norsk alþýðulög. b) Laga-
flokkur eftir Verdi. 20,45 Um
daginn og veginn (Thorolf
Smith blaðamaður). 21,05 Ein-
söngur: Elisabeth Schumann
syngur (plötur). 21,20 Erindi:
íslandsvinurinn Lúðvík Kristján
Múller; fyrra erindi (Hannibal
Valdimarsson alþm.). 21,45 Tón-
leikar (plötur). 22,00 Fréttir og
‘véðurfregnir. 22,10 Raddir hlust
enda (Baldur Pálmason). 22,45
Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Ms. Hvassafell fór frá Rvík 5.
þ. m. áleiðis til London. Ms.
Arnarfell losar sement á Norð-
austurlandi. Ms. Jökulfell fer á
hádegi í dag frá Oskarshamn
áleiðis til íslands með viðkomu
í Kaupmannahöfn.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík og fer
þaðan á þriðjudaginn vestur um
land til Kópaskers. Esja er í
Reykjavík. Herðubreið er á Aust
fjörðum á norðurleið. Skjald-
breið er í Reykjavík. Þyrill er í
Reykjavík. Straumey er vænt-
anleg til Reykjavíkur í dag frá
Austfjörðum. Ármann var í Vest
mannaeyjum í gær.
Eimskip:
Brúarfoss fer frá Tálknafirði
i kvöld 7. 4. til Ólafsvíkur. Detti-
foss fór frá Reykjavík 6. 4. til
ttalíu og Palestínu. Fjallfoss fer
frá Kaupmannahöfn 7. 4. til
Leith og Reykjavíkur. Goðafoss
er í Reykjavík. Lagarfoss fer frá
New York 10. 4. til Reykjavíkur.
Selfoss fór frá Leith 4. 4. til
Hamborgar, Antverpen og Gauta
borgar. Tröllafoss er í Reykja-
vík. Dux fór frá Kaupmanna-
höfn 3. 4. til Reykjavíkur. Hes-
nes fór frá Hamborg 5. 4. til
Reykjavíkur. Tovelil fermir í
Rotterdam um 10. 4. til Reykja-
víkur.
Flugferðir
Loftleiðir h.f.
í dag er áætlað að fljúga til:
Vestmannaeyja. Á morgun er á-
ætlað að fljúga til: Vestmanna
eyja, ísafjarðar, Akureyrar, Pat
reksfjarðar, Sauðárkróks, Hólma
víkur, Flateyrar, Þingeyrar og
Bíldudals.
Flugfélag íslands.
í dag er áætlað að fljúga til
Akureyrar og Vestmannaeyja Á
morgun eru ráðgerðar flugferð
ir til sömu staða.
Fisksala er ekki bókaútgáfa. —
Maður nokkur í Reykjavík
fór í fiskbúð í gærmorgun, og
er ekki í frásögur færandi.
Hann keypti hálfa, nætursalt
aða ýsu, tók við henni innpakk
aðri, fór með hana heim og
]^gði hana í skál í cldhúsinu.
Þegar konan hans fletti utan
af henni umbúðunum, sem var
dagblað, mátti lesa á ýsuna
eins og bók, því að prentsvert-
j an hafði setzt í fiskinn. Kon-
an fór með ýsuna beina leið
. út í öskutunnu, en hlutaðeig-
, endum til athugunar skal það
! enn tekið fram, að á misskiln
ingi er byggt, að fisksala eigi.
skylt við prentlistina.
B/öð og tímarit
Iþróttablaðið
marzhefti 1951 er nýkomið út.
Flytur það m. a. greinarnar
Mesta íþróttakeppni, sem sögur
fara af, Fertugasta skjaldar-
glíma Ármanns, Mesta afrek á
Olympíuvelli Finnlands, Frá
í Melavelli, Sundmót KR og Ægis,
j Yngri kynslóðin, Sleggjukastið,
i Skautamót Islands, Á grasa-
fjalli, Staðfest íslandsmet 1. jan.
1951, Bændaglíman mikla að
Grund o. fl.
í , I
Ur ýmsum áttum
Helgidagslæknir
í dag er Óskar Þ. Þórðarson,
Flókagötu 5, sími 3622.
Loftflutningarnir.
Á fyrstu þremur mánuðum
þessa árs hafa flugvélar Flug-
félags Islands flutt samtals
2765 farþega. Á sama tímabili
í fyrra voru farþegar hins veg-
ar 1772, og hefir farþegafjöld-
inn því aukizt um 56%.
Vöruflutningar fyrsta ársfjórð
unginn hafa orðið meiri en
nokkru sinni fyrr í sögu Flug-
félags Islands. Hafa þeir rúml.
sjöfaldazt miðað við sama tíma
í fyrra. Flugvélar félagsins
fluttu nú 97.979 kg. á móti 13.
675 kg. s. 1. ár. Mestur hluti
hér innanlands eða rösklega 80
flutninganna hefir farið fram
smálestir. í s. 1. mánuði voru
flutt 26.305 kg. af vörum í inn- 1
! anlandsflugi og 8894 kg. á milli
j landa. |
Fimmtíu útlendingar af 15
l þjóðernum komu með „Gull-
faxa“ erlendis frá í marzmánuði.
Flestir þeirra voru Bretar eða
18 talsins. Þá komu 8 Danir, 7
Rússar, 3 Austurríkismenn og
færri af öðrum þjóðum. Alls
flutti „Gullfaxi“ 178 farþega á
milli landa í mánuðinum, 8894
kg. af vörum og 1442 kg. af pósti.
Póstflutningar með flugvélum
Flugfélags Islands fyrstu þrjá
mánuði þessa árs námu 23 180
kg. en voru á sama tíma í fyrra
6.736 kg.
Flugveður hér innanlands var
fremur óhagstætt í s. 1. mánuði,
og var flogið samtals 22 daga
mánaðarins.
Nýjar bækur
í bókasafni bandarísku upp-
lýsingaþjónustunnar að Lauga-
vegi 24 eru m. a. þessar: Primi-
tive-Painters in America 1750—
1950 eftir Jean Lipman og Alice
Winchestpr, með fjölda mynda
27 listamanna. Through History
with J. Westley Smith eftir Burr
Shafer. 29th Annual of Advertis
ing and Editorial Art sem sýna
á hið bezta á þessu sviði síðustu
árin. State Recreation — Or-
ganization and Administration
eftir Meyer og Brightbill. The
Yankee Exodus eftir Stewart H.
Holbrook. The new you and
Heredity eftir Amram Schein-
feld, skreytt myndum og teikn-
ingum.
Skógræktarkvikmyndin
frá Troms verður að tilhlutan
Skógræktarfélags Hafnarfjarð-
ar sýnd í Bæjarbíó í Hafnarfirði
í dag, og hefst sýningin klukkan
hálf-tvö. Hákon Bjarnason skóg
ræktarstjóri mun skýra mynd-
ina.
Sólskin
var í Seyðisfirði í gær, en kalt
í lpfti, svo að sólin vann lítið
sem ekki á breðanum, sem þar
þekur allt.
4 ftrnum tieqii
Dagur dýranna
í vetur komst í framkvæmd víða í löndum hugmynd,
sem Danir nafa gert að veruleika. Það er hinn svo-
nefndi dagur dýranna. Undanfarin fimm ár hafa Danir
helgað dýrunum sérstakan dag og safnað þá fé, sem
notað hefir verið' til þess að hlynna að dýrum á einn
og annan hátt — til dæmis húsdýrum, er týnt hafa
húsbændum sínum eða villzt frá heimili sínu.
★ ★ ★
Á alþjóðaþingi dýraverndunarfélaga í Haag í haust,
sögðu dönsku fulltrúarnir frá þessu fyrirkomulagi, er
komið væri á i Danmörku, og árangurinn varð sá, að
fulltrúar ýmsra þjóða tóku málið upp heima hjá sér
og hrundu þvi í framkvæmd.
★ ★ ★
Þetta hefir ekki komizt í framkvæmd hér á landi,
þó að ég efi ekki, að Dýraverndunarfélag íslands hafi
íhugað málið og kannske undirbúið það fyrir næsta
vetur. Hér á landi er mikið verk að vinna fyrir Dýra-
verndunarfélagið, og það getur vafalaust miklu áorkað,
ef starfað er af dugnaði og lagni. En án þess er ekki
hægt að komast langt.
★ ★ ★
En það er eins með þetta og annað, að nauðsynlegt
er, að nokkurt fé fáist til starfseminnar. Dagur dýr-
anna er hvort tveggja í senn tilvalið tækifæri til þess
að vekja athygli á því, sem sérstaklega er þörf á og
fá fólk til þess að hugsa um málið, og jafnframt afla
nokkurs starfsfjár. Það má kannske segja, að fólk sé
orðið langþreytt á merkjasölu og slíku, en ekki mun
fólk þó almennt amast við slíku, ef í þágu góðs málefnis
er unnið. Þess vegna vil ég beina því til hlutaðeigandi
aðila, að þeir komi því í kring, að hér verði árlega hald-
inn dagur dýranna, eins og. nú. er farið að tíðkast í
V.V/.VV.^’.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.V.V.Y.V.V.Y.V.V.YA
Þeir, sem kröfur eiga á :j
jbyggingu Þjóöminjasafnsins |
eru beðnir að framvísa þeim hjá ÓSKARI BJARNASEN í;
í Háskólanum fyrir 20. þ. m. «'
Reykjavík 5. apríl 1951 ~ ; £
Byggingarnefndin. I*
.V.V.V.V.V.'.V.’.V.V.V.V.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.Í
TILKYNNING
frá Menntamálaráði íslands
Umsóknir um styrk til náttúrufræðirannsókna á
árinu 1951, sem Menntamálaráð íslands veitir verða
að vera komnar til skrifstofu ráðsins fyrir 1. maí
næstkomandi.
::aiiimiiiiiiii:iiiiiiiiiwfflu«wim«wunimu
Eftir kröfu ríkisútvarpsins
*
og að undangengnum úrskurði uppkv. 6. þ. m. verða
lögtök látin fara fram á kostnað gjaldenda til trygg-
ingar ógreiddum afnotagjöldum af útvarpsviðtækjum
fyrir árið 1950 að liðnum átta dögum frá birtingu þess
arar auglýsingar.
Borgarfógetinn í Reykjavík 7. apríl 1951.
Kristján Kristjánsson
Aðalfundur
Barnavinafélagsins Sumargjöf verður haldinn í
Grænuborg miðvikudaginn 11. apríl n. k.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf. Fundurinn hefst kl. 8,30
siðdegis.
Stjórnin
öðrum löndum.
I óojí; iój.Xrilii .• ' • •Q .: J*. H., :
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦4♦♦♦♦♦♦♦♦!
.v.v.
s
í
Hlunnindajörð
í Árnessýslu * ij
Jörðin Arnarbæli I i Grímsnesi er til sölu og laus £
til ábúðar í næstu fardögum.
Allar upplýsnigar gefur ábúandi og eigandi jarðar-
innar Þórður Benediktsson Arnarbæli. I*
.■.■.■.■.■.'.■.■.■.■.■.■.■.■.■.'.•.■.■.■.■.■.V.V.V.V.’.V.V.V.V.V.V.’.’.V
Til íþróttafélaganna
Þau íþróttafélög, sem óska eftir að fá úthlutuðum
æfingartíma í sumar á Melavellinum, eru vinsamlega
beðin að senda umsóknir sínar sem fyrst til okkar.
Stjórn íþróttasvæðanna
(Pósthólf 7)
Frestið ekki lengur, að gerast
áskrifendur TÍMANS