Tíminn - 28.04.1951, Side 8
ERLEVT YFIRLIT:
MucAvthur oy Eisenhotcer
35. árgangur.
Reykjavík,
„4 FÖRNLM \ EG1“ t DAG:
Er eorifí þtí komið?
28. apríl 1951.
94. blað'.
Fræ og plöntur frá Eld-
landi á leið hingað
§tnrla Friðriksson grasafræðingur va*nt«
anleg'ur úr Eldlamlsför innan skamniK
Nú einhvern daginn kemur hingað til lands Sturla Frið-
riksson grasafræðingur, sem farið hefir suður á Eldland við
við suðurodda Suður-Ameríku til þess að safna þar ýmsum
jurtum. trjáplöntum og fræi ,sem líkur eru til! að dafni hér
á iandi. .
Sturla Friðriksson var hinn
18. apríl í Buenos Aires á norö
urleið, og liklegt, að hann sé
nú kominn til New York og
komi loftleiðis heim, áður en
margir dagar líða.
í farangri sínum hefir hann
plöntur af mjög gagnsam-
legri barrviðartegund, sedrus-
tegund, sem vex þar syðra,
og fræ af beykitegund, sem
ætti að geta þrifizt hér. Auk
þess er hann væntanlega með
fræ af ýmsum fleiri tegund-
um gróðurs, sem nú verður í
fyrsta skipti reyndur í ís-
lenzku loftslagi.
*
Drengjahlaup Ar-
manns á morgun
Ákveðið hefir verið að
drengjahlaup Ármanns fari
fram á morgun, sunnudag.
Hefst hlaupið kl. 10.15 f. h.
hjá Iðnskólanum í Vonarstr.
Að þessu sinni senda sjö fé-
lög 30 þátttakendur í hlaup-
ið. Ármann sendir flesta eða
sjö, Knattspyrnufél. Þróttur
sendir fimm þáttt. og er það
í fyrsta skipti, sem félagar úr
því fél. taka þátt í drengja-
hlaupinu. K.R. sendir einnig
fimm keppendur. Ungm.
Keflavíkur sendir fjóra kepp
endur, en Í.R., Fimleikaf.
Hafnarfjarðar og Ungmenna
félag Reykjavíkur sendir þrjá
keppendur hvert.
Keppt er í þriggja og fimm
manna sveitum. Ármann hef
ir gefið bikar til keppni í 3ja
manna sveitahlaupinu, en
Eggert Kristjánsson bikar í 5
manna keppnina. S. 1. ár sigr
aði KR í báðum sveitakeppn
unum. Það hefir verið venja
að drengjahlaupið færi fram
fyrsta sunnudag í sumri, en í
ár varð að fresta hlaupinu
um nokkurn tíma vegna ó-
færðar.
Þjóðnýting fiskveiði
félaganna við
Kaspíahaf
Nú er röðin komin að Rúss
um og styrjuhrognunum í
Persíu. Margir þingmenn í
annarri deild persneska þings
ins hafa borið fram frum-
varp um þjóðnýtingu fisk-
veiðifélaganna við Kaspíahaf,
þar sem meðal annars eru
framleidd eftirsóttustu styrju
hrogn í heiminum. Eru félög
þessi nú undir rússneskum
yfirráðum.
ítök þau, sem Rússar hafa
þarna, renna út næsta ár, og
þá er áætlunin, að þjóðnýt-
ingin hefjist.
Aflalítið í Húsavík
Frá fréttaritara Tímans
í Húsavík.
Afli línubáta má heita eng
inn. Einn bátur, Smári, hef-
ir farið út með vörpu, og kom
hann með dálítinn afla í
gær.
Smára rak upp í vetur, en
nú hefir viðgerð farið fram
á honum.
Fyrri tilraunir.
Þetta er þó ekki í fyrsta
skipti, að gróður frá Eld-
landinu er fluttur til íslands.
Fyrir nokkrum árum fékk
Hákon Bjarnason skógræktar
stjóri sendar hingað til lands
nokkrar plöntur af beykiteg-
undum þeim, sem vaxa á
Eldlandinu. En hvort tveggja
var, að plönturnar voru lengi
á leiðinni og því illa farnar,
er þær komu hingað, móttak-
an ýmsum vandkvæðum bund
in, meðal annars vegna þess,
að þær komu hingað að
haustlagi, er þær eðli sínu
samkvæmt áttu að fara að
laufgast. Fór svo, að ekki
lifði nema ein planta af þess
ari sendingu.
Síðar fékk Hákon Bjarna-
son sent fræ af beykitegund-
um frá Eldlandi, og var því
sáð á Tumastöðum. Kom upp
af því um 200 plöntur, sem
lifa.
Skyndivetwr.
Nú fæst hins vegar svo mik
ið af fræi og plöntum, að
hægt verður að gera í all stór
um stíl tilraun með hinn eld-
lenzka gróður. Vandalaus er
móttakan þó ekki, því að láta
verður plönturnar fá eins
konar skyndivetur, áður en
þær verða gróðursettar úti,
væntanlega seint í júnímán-
uði.
Churchill frestar
Bandaríkjaförinni
Churchill hefir tilkynnt, að
hann muni fresta för sinni
til Bandaríkjanna. För þessi
var ráðgerð í júní, en nú seg
ir hann að vegna nýrra at-
burða sé sér erfitt að takast
för þessa á hendur. Ræðu
þeirri, sem hann ætlaði að
flytja í Pennsylvaníuháskóla
hefir því verið aflýst. Talið
er, að Churchill telji ekki
heppilegt að hann flytji ræðu
þessa meðan hinar miklu æs
ingar ríkja í Bandaríkjunum
vegna fráviknihgar Mac Art-
hurs.
Mjög bætt aðstaöa til heilsu
gæzlu i Elliheimilinu Grund
Ein kjallaraálma hússins hefir verið inn-
réttuð og' húin ýnisuni tækjnm í |>essu skyni
. ••#'
Hinn ötuli forstjóri Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund
í Reykjavík, Gísli Sigurbjörnsson lætur ekki staðar numið
við að búa sem bés^lThaginn fyrir gamla fólkið, sem heim
ili hans gistir, og bætist oftast einhver nýjung á hverju ári
og stundum fleiri en ein. Nú hefir hann í samstarfi við
Iækna heimilisins og aðra stuðningsmenn stofnað ofurlitla
lieilsugæzlustöð í húsakynnum heimilisins og gafst blaða-
mönnum færi á að skoða hana í gær.
Þetta er fréttaritari Associat
cd Press, William Oatis, sem
tekinn var fastur í Prag á
dögunum sakaður um rangar
fréttir og njósnir.
Franska stjórn
in fallin
Frumvarp frönsku stjórnar
innar um breytingar á kosn-
ingalögunum var fellt í full-
trúadeild franska þingsins í
gær og munaði aðeins 3 at-
kvæðum. Hlaut frumvarpið
308 atkvæði en 311 voru á
móti. Queuille forsætisráð-
herra hafði lýst því yfir, að
j hann teldi fellingu frumvarps
ins sem vantraust á stjórn-
ina og síðdegis í gær afhenti
hann forsetanum lausnar-
beiðni sína fyrir hönd sína
og ráðuneytis síns. Forsetinn
mun að líkindum neita að
taka lausnarbeiðnina gilda.
Skotf æraskip
springur í Gíbraltar
í gær varð geysileg spreng
ing í brezku skotíæraskipi,
sem verið var að skipa upp
úr í Gíbraltar. Tættist skipið
sundur og kviknaði í þvi og
hafnarbakkanum. Sex menn
létust en ailmargir særðust.
Nokkur herbergi í vestur-
álmu heimilisins háfa verið
innréttuð og búin t^ekjum í
þessu skyni. AlfreðfGíslason
læknir lýsti starfseminni
nokkuð. Það var árið 1948,
sem tekin var upp reglubund
in heilsugæzla á vistfólki og
starfsfólki heimilisins, þótt
aðstaða væri ekki góð fyrr en
nú. Þegar nýr vístmaður
kemur á heimilið eða starfs-
manneskja fer fram almenn
læknisskoðun og síðan fer
fram nákvæm skoðun einu
sinni á ári. Finnist hins veg-
ar eitthvað athugavert viö
sjúkling við þessa skoðun er
haft víðtæktra eftirlit með
heilsu hans. Síðan þettá eftir
lit var upp tekið hefir veik-
indadögum starfsfólksins
fækkað töluvert, þótt reynsl
an sé ekki lengri.
Nýjum áfanga náð. ’
Með tilkomu þessarar litlu
heilsuverndarstöðvar— gamla
fólksins er nýjum áfanga náð*
i þeirri baráttu að fyrir-
byggja sjúkdóma eða taka fyr
ir þá á byrjunarstigi. Að vísu
eru ekki öll tæki komin þarna
enn en þau munu smátt og
smátt bætast við. Er nú beðið
eftir hentugu röntgentæki
og gegnlýsingartæki sem
væntanleg eru í sumar.
— Annars hugsum við okk
ur miklu lengra i framtíðinni
sagöi Alfreð eða alhliða
heilsugæzlustöð alls gamals
fólks. Þegar hin mikla heilsu
verndarstöð rís upp, verða
þar væntanlega .sérstakar
deildir 1 því augnamiði, þar
Athyglisvert njósna-
mál upp komið í Noregi
Somir yfiríoringja norska flotans hancltek
inn og sakaðnr am njósnir fyrir Hiíssa
Njósnamál eitt kom upp í Noregi um siðustu helgi og hefir
vakið geysimikla athygli. Snýst l>að um fyrrverandi Iiðsfor-
ingja í norska sjóhernum, Per Danielsen, sem nú 'situr í
fangelsi grunaður um hernaðarnjósnir í þágu Rússa.
Lögreglan hefir fylgzt ná-
kvæmlega með gerðum Dan-
ielsens um nokkurt skeið.
Lögreglan hafði komizt að þvi
að hann átti fund með grun-
'samlegum manni í vagni í
! Holmenkollen-brautinni. Mað
ur þessi var útlendingur. Ann
ars hafa yíirvöldin neitað með
öllu að gefa blöðunum tæm-
andi upplýsingar um þetta
mál.
Sonur flotaforingjans.
Per Danielsen er sdhur yfir
manns norska flotans Daniel
sens aðmíráls, sem varð fræg
ur í stríðinu fyrir óvenjulega
dirfsku og hörku í sjóhernaði
norska flotans. Hann réð fyr
ir deild norska fallbyssubáta,
sem gerði ítrekaðar árásir og
strandhögg á norsku strönd-
ina meðan hernám Þjóðverja
(Framhald á 2. síðu.)
sem allt fólk, sem tekið er
að reskjast getur leitað skoð
unar og ráða til að koma í
veg fyrir sjúkdóma og verj-
ast ellisjúkdómum. Þar mun
vonandi einnig verða séð fyr
ir andlegri heilsuvernd eða
geðheilsuvernd, sem er mjög
mikils verð fyrir gamalt fólk.
Ejós, nudd og líkamsæfingar.
Ófeigur J. Ófeigsson, lækn
ir lýsti nokkuð húsakynnum
og tækjum í litlu heilsugæzlu
stöðinni í kjallara elliheimil-
isins. Markmiðið er að sjálf-
sögðu að vernda og bæta
heilsu gamla fólksins og
starfsfólksins. Þar er lækn-
ingastofa, þar sem skoðun fer
fram, vigtun, mæling og
meltingarathuganir og þar
(Framhald á 7. síðu.)
Hans Hansson kepp-
ir í Hveradölum
á morgun
Á morgun (sunnudag) verö
ur haldið svigmót í Hveradöl
um er nefnist Hansson-mót.
Er það kennt við hinn heims
kunna sænska skíðamann.
Hans Hansson, sem hér hefir
dvalizt við kennslu undanfar
ið á vegum Skíðaráðs Reykja
vikur. Auk hans munu taka
iþátt í því flestir beztu svig-
menu landsins, en keppendur
eru 13 talsins.
Hansson hefir um ára skeið
verið í íremstu röð svigmanna
heimsins. Hann varð t. d. 6.
í Alpa-tvíkeppninni á síðustu
Ólympíuleikum og hefir tekið
þátt í mörgum alþjóðamótum
við góðan orðstír. Fimrp sinn
um hefir hann verið sænskur
meistari í svigi og í ár er
hann brunmeistari Svíþjóðar.
Hansson-mótlð hefst kl. 3
á morgun (sunnudag) viö
Skíðaskálann í Hveradölum
og verður keppninni sérstak-
lega hagað þannig, að áhorf-
endur geti fylgzt vel með
henni, enda má búast viö fjöl
menni, þar sem almenningi
hér sunnanlands gefst sjald-
an tækifæri til að vera áhorf
endur að slíkri keppni.
Meðal Islenzku þátttakend-
anna eru íslandsmeistarinn í
svigi, Haukur Sigurðsson frá
ísafirði, íslandsmeistarinn í
bruni, Ásgeir Eyýólfsson úr
Reykjavík, Gísli Kristjánsson,
Þórir Jónsson og Víðir Finn-
bogason, Reykjavík og Ár-
mann Þórðarson frá Ólafs-
firöi.