Tíminn - 10.05.1951, Blaðsíða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefandi:
Framsóknarflokkurinn
! Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttasímar: !
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323 !
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
35. ðrgangur.
Reykjavík, fimmtudaginn 10. maí 1951.
102. blað.
Síðustu mennirnir úr „ímyndunarveikm
jökulleiðangrinum nú
komnir til Reykjavikur
Mennirnir fjórir, sem eftir urðu á Innri-Eyrum, komu á
ýtunum niður að Kfrkjubœjarkiaustri um cHefuieytíð í fyrra
kvöld. í gæikvöldi komu þelr flugleiðis tii Reykjavíkur.
Hraðfrystihús Fisk-
iðjusamlags Húsa-
víkur tekið til starfa
Frá fréttaritara Tímans
á Húsavík.
Plraðfrystihús Fiskiðjusam
lags Húsavíkur hóf starf-
semi sína í fyrradag. Frysti-
húsið er búið þremur hrað-
frystitækjum frá vélsmiðj-
unni Hamri, og er hægt að
frysta 5—6 smálestir af fisk-
flökum á átta klukkustund-
um. Vélar ailar og tæki eru
af vönduðustu gerð.
Framkvæmdastjóri frysti-
hússins er Jóhann Jónsson,
matsmaður Aðalsteinn Hall-
dórsson og vélamaður Sigur-
jón Halldórsson.
Höfðabrekkuheiði
enn ófær
Fra fréttaritara Tímans
i Vík í Mýrdal.
Vegurinn yfir Mýrdalssand
um Höfðabrekkuheiði er enn
ófær .með öllu vegna snjóa,
en reynt er að brjótast svo-
kallaða neðri leið á bilum
með drif á öllum hjólum.
Verður þá að fara yfir Múla-
kvisl og Kerlingardalsá, sem
báðar eru óbrúaðar á þeirri
leið. Verða þær með öllu ó-
færar þegar hlýnar meira í
veðri og leysing verður ör-
ari.
Vegurinn frá Vík að
Hvammsá er með öllu ófær
vegna aurbleytu og hoiklaka,
en verið er að gera við hann.
Tíðarfar hefir verið gott
að undanförnu, en þó ekki
nein veruleg hlýindi. Jörð er
að byrja að gróa.
Menn sleppa hér sæmilega
með hey, en hafa keypt mik-
inn fóðurbæti. Sauðburður-
inn er að byrjá og gengur vel
það sem af er.
Framséknarvistin
annaÖ kvöld
Framsóknarvistin er .í
a3 kvöld kl. 8,30. Vissara
Listamananskálanum ann
er að panta aðgöngumið-
ana í dag í síma 6066 og
sækja þá í Edduhúsið á
morgun fyrir klukkan sex.
Sóttist se.'nt.
Mennirnir voru Þorleifur
Guðmundsson frá • ísafirði,
Gerhardt Olsen úr Reykjavik,
Jón Kristjánsson frá Skaftár
dal og Eiríkur Skúlason frá
Kirkj ubæj arklaustr i.
Þeim 'cótt’st' ferðin niður í
byggðina heldur seint, eink-
um inni á öræfunum, þar sem
víða var krapaelgur mikill og
færð h'n versta. Er þeir komu
á auða jörð gekk allt miklu
greiðar.
Tveir farmar.
Varningur sá, sem þeir
höfðu meðferðis, var svo mik
ill, að skipta varð honum í
flugvélar, sem sendar voru
austur að Kirkjubæjarklaustri
í gærkvöldi. Átti afgangur-
inn af varningnum að fara
með seinni ferðinni, ásamt
mönnunum fjórum.
Eoðið til Reykjavíkur.
Skaftfellingarnir tveir, Ei-
ríkur Skúlason og Jón Krist-
jánsson, fóru til Reykjavíkur
í boði Loftleiða, er með því
heiðruðu þá fyrir ágæta að-
stoð og þjónustu í hinni fræki
legu björgunarferð.
StLDARVERTlÐII\ AALGAST:
Undirbúningsvinna hafin
i Raufarhafnarverksmiðju
Frá fréttaritara Tímans á Raufarhöfn
Á Raufarhöfn er nú þegar hafinn undirbúningur undir
næstu síldarvertíð. í ráði er að gera hér tvö ný síldarplön,
og fleiri framkvænidir eru hér fyrirhugaðar í sumar.
I kvöld verður gamanleik-
urinn ,,ímyndunarveikin“ ^
sýndur í 'frysta skipti í þjóð- j
leikliúsinu. Frú Anna Borg,
sem ev gestur þjóðleikhússins,
valdi þennan leik, er hún gaf
kost á því að leika liér annað
hlutverk, og samkvæmt ein-
dreginni ósk hennar er Óskar
Borg leikstióri.
Myndin hér að ofan er af
frú Önnu Borg í gervi Toin-
ettu.
Hvítasunnuferðir
Ferðaskrifstofunnar
Um hvítasunnu-helgina efn
ir Ferðaskrifstofa ríkisins til
ferða á þessa staði: Trölla-
kirkju, Hengil, Skálafell, á
Hellisheiði, Krísuvik og auk
(Frambald á 7. síðu.)
LAAGT LT t LÖADIA:
íslenzkir valdamenn
í boðsför í
Yfirmenn flugmála og fjárfestingarmála og fjárveitinga-
nefndarmenn finnast fæstir hér á landi um þessar mundir.
Þeir stigu flestir út úr íslenzku flugvélinni GuUfaxa á flug-
velii í London i fyrrakvöld, og munu dveija í höfuiborg
brezka heimsveldisins fram yfir helgi sér til upplyftingar.
Fríður flokkur.
í þessum fríða flokki voru
Björn Ólafsson flugmálaráð-
herra. Magnús Jónsson, for-
maður fjárhagsráðs, Jón
Pálmason, forseti sameinaðs
þings, flestir þeir, sem sæti
eiga í fjárveitinganefnd al-
þingis meS Gísla Jónsson, for
mann fjárveitinganefndar í
fararbroddi, auk nokkurra
annarra þingmanna. Agnar
Kofoed-Hansen flugvallar-
stjóri og flugráðsmenn flestir.
Mun boðið til þessarar ferð
ar af flugfélögunum hér, að
því er Örn Johnson. forstjóri
Flugfélags íslands, tjáði blað
inu í gær.
Önnur reisan af
þessu tagi.
Þetta er ekki í fyrsta skipti,
að þessir aðilar fara slíka hóp
ferð til þess að skoða löndin.
í hitteðfyrra fóru þeir einn-
ig slíka boðsferö. og þá til ír-
lands og Norðurlandanna og
gistu höfuðvé keltneskrar
og norrænnar menningar.
Byrjað er að lagfæra síldar
verksmiðjuna fyrir næstu síld
arvertíð, en henni barst, sem
kunnugt er, mikill hluti þeirr
ar síldar, sem í bræðslu fór
á síðastliðnu sumri. í ráði er
að gera tvö ný síldarplön.
Výju píönin.
Kaupfélagið hyggst láta
gera nýtt síldarplan með upp
inokstri úr höfninni, og gerir
sér vonir um, að geta fengið
til þess dýpkunarskip, sem
óskar Halldórsson útgerðar-
maður á, en hann hyggur á
margvíslegar framkvæmdir
á Raufarhöfn á þessu sumri,
þar á meðal uppfyllingu fyrir
síldarplan, sem gera á með
svipuðum hætti og plan það,
er kaupfélagið lætur gera.
Fleira mun Óskar hafa á
prjónunum þar, á meðal ann
ars bryggjugerð og húsabygg
ingar. Á hann bráðlega von
á bát með timburfarm.
Afli er að glæðast á Rauf-
arhöfn og atvinnuhorfur eru
góðar.
Bardagar við
Genezaretvatn
Til bardaga kom norðvest-
an við Genezaretvatn í gær-
morgun, og áttust þar við her
sveitir frá ísrael og Sýrlandi.
ísraelsmenn og Sýrlending
ar kenna enn sem fyrr hvorir
öðrum um upptök að þessum
bardögum, og ganga klögu-
málin á víxl.
10 íslenzkir kennarar
boðnir til Danmerkur
Sambandi íslenzkra barnakennara og Landssambandi fram
haldsskólakennara hefir verið boðið að senda til Danmerk-
ur tíu islenzka kennara, sem verða gestir dönsku kennara-
samtakanna 2—4 vikur. Flutti sendiherra Dana á íslandi
islenzkum kennurum þetta góða boð hinna dönsku stétt-
arbræðra.
Reykjavík í sismar
Það, hefir verið ákveðið, að
uppsldiSmálaþing verði háð í
Reykjavík 13. júní í sumar.
Aðalumræðuefmð verður
unglingafi æðslan og samband
hennar við barr.a- og gagn-
fræðanám. Verður framsögu-
maður Ármann Halldórsson,
námsstj óri framhaldsskól-
anna í Reykjavík.
Auk þess verður einnig
rætt um kennarsamtökin al
mennt.
Kennarar þeir, sem þessa
för fara, munu fara utan upp
úr næstu mánaðamótum.
Eiga þeir að vera komnir til
Kaupmanahafnar 14. iúní.
Verður þeim að tilhlutan ís-
lenzkra stjórnarvalda séð fyr
ir ékeypts fari aðra leiðina.
Umsóknarfrestur er til 15.
maí, og skal senda umsóknir
til fræðslumálaskrifstofunn-
ar.
Kennaranámskeið.
Þegar lokið er boðsdvcl
kennara þeirra, sem fara ut-
an í boði dönsku kennara-
samtakanna, geta þeir, sem
vilja, sótt námskeið á vegum
Norræna féiagsins í Dan-
mörku.
Kennaranáraskeið í
Reykjavík í júm
Kennaranámskeið verður
haldið í Reykjavik í vor, og
hefst það 5. júní og stendur
þar til uppeldismálaþingið
hefst.
Á námskeiði þessu verður
einkum kennd vinnubóka-
gerð.
Ferðir Farfngla
Farfugladeildin í Reykja
vík hefir sent frá sér ferða-
áætlun sumarsins. Verður alls
efnt tii um þrjátíu ferða. Um
tuttugu ferðir verða farnar
um helgar, sex stuttar kvöld
ferðir og fimm sumarleyfis-
ferðir. Meðal sumarleyfisferð
anna er ráðgerð ferð til Skot
lands. Er þá hugmyndin að
■ fara með reiðhjól og hjóla
' um landið, eftir því sem hægt
verður að koma við.
I Hér innanlands verður
iengsta sumarleyfisferðin
I hálfsmánaðar hjólferð um
A.usturland í júlímánuði.
Eins og sönnum ferðamönn
um sæmir, þá brýna Farfugl
ar það fyrir öllum þeim, sem
þátt taka í ferðum þeirra, að
ganga hreinlega um landið
— spilla ekki náttúru þess,
granda ekki lífi dýra né
ræna eggjum, og ganga snyrti
lega frá tjaldstöðum. Er það
aldrei of brýnt fyrir fólki,
því fátt ber öruggara vitni
um siðmenningarskort en
sóðaleg samskipti við móður
jörð.
I