Tíminn - 23.05.1951, Qupperneq 8
ERLEYT YFfRLIT:
Ycrð friðarins
35. árgangur.
Reykjavík,
„A FÚRMJM VEGi“ í DAGi
Hvernifi á að ná í lœkni?
23. maf 1951.
111. blað.
Mögnuð garnaveiki á
Á sumnm bæjum liafa 20—30 kindur drepizt
Frá fréttaritara Tímans á Egilsstöðum
Mikil brögð hafa verið að garnaveiki í sauðfé á Fljóts-
dalshéraði, og virðist hún mjög hafa magnazt við hina
löngu innistöðu i vetur, svo að fleira fé hefir orðið henni
að bráð en áður.
Fiskverkun í
Seyðisfirði
Frá fréttaritara Tímans
á Seyðisfirði.
Vorið er seint á ferðinni að
þessu sinni. Snjór er að vísu
horfinn úr Seyðisfjarðarkaup
stað, en talsverður snjór er
ennþá í nærliggjandi byggð-
arlögum.
Á Seyðisfirði er nú unnið
að saltfiskverkun, aðaliega er
það afli bæjartogarans ísólfs,
sem unnið er að. Fiskþurrkun
virðist ætla áð ganga vel, en
ekki er það mikill fiskur, sem
kemúr ‘til verkunar í Seyðis-
firði að þessu sinni.
Senn lokið lengingu
B íldudalsbry ggj-
unnar
Frá fréttaritara Tímans
á Bíldudal.
Verið er að ljúka endur-
byggingu bryggjunnar á Bíldu
dal. Var hún lengd allmikið
í fyrrasumar, með því að
söktk var við hana steinkerj-
um, sem steypt voru á ísa-
firði. Batnar við þetta mjög
mikið öll aðstaða við skipaaf-
greiðslu og fisklandanir.
Á vetrarvertíðinni voru gerð
ir út tveir bátar frá Bildudal,
afli var frekar rýr, og varð
hásetahlutur á þeim um
7500 krónur.
Sex dragnótabátar munu
hefja veiðar þaðan upp úr
næstu mánaðamótum.
Fleiri kvillar.
Fleiri kvillar eru í fénaði
inanna, eins og við má búast
við svo nauma gjöf og lélegt
íóður, en garnaveikin er þó
langskæðust. Samt eru höld
ekki verri en vænta mátti.
Veiki þeirri, sem var sums
staðar í hestum i Vetur, ber
nú ekki á.
^ Garnaveikin.
I Garnaveikin hefir sums
staðar drepið 20—30 kindur
| á búi, og hefir hún nú borizt
á flesta bæi í Hróarstungu, og
'einnig er hún orðin mögnuð
i Fellum. í Skriðdal, þar sem
hún hefir verið um skeið, ber
og talsvert á henni, og yfif-
leitt má segja, að hún sé kom
in um allt héraðið.
Einna skæðust mun hún
hafa verið í vetur og vor hjá
Ólafi Bessasyni, bónda á
Birnufellí.
i
Sauðburður að byrja.
Sauðburður er að byrja á
Héraði, og vona menn, að
lambahöld geti yfirleitt orðið
sæmileg. Lítið er farið að
gróa, og ekki kominn sauð-
gróður, enda þótt jörð kæmi
að mestiu leyti þíð úndan
snjónum. Hafa oftast verið
næturfrost fram að þessu og
þurrviðrsamt. Enn liggur
snjór víða á láglendi, og í
fjöllum er gífurlega mikill
snjór.
Torfærí á Fagradal.
Vegir innan héraðs eru að
opnast, en yfir Fagradal er
enn vond færð, þótt farið sé.
Á laugardaginn komu bílar
að Egilsstöðum og höfðu þeir
verið seytján klukkutima frá
Reyðatíirði. í gær var farið
yfir dalinn á átta klukkutím
um.
Nauðungaruppboð aug-
lýst á atvinnutækjum
í síðasta Lögbirtingarblaði eru auglýst uppboð á tveimur
togurum, tveimur skipasmiðastöðvum og einu hraðfrystihúsi
vegna ógreiddar skulda, sem nema frá 240 þús. krónum upp
í röskar tvær miljónir króna.
Skipasmíðastöðvamar. sem
auglýstar eru, eru stöð Báta-
nausts á Gelgjutanga við Ell
iðaárvog og skipasmíðastöðin
í Ytri-Njarðvík.
Togararnir eru Neptúnus
og Marz, báðir úr Reykjavík,
og hraðfrystihúsið er í Fífu-
hvammslándi í Kópavogi,
eign hlutafélagsins fss.
Uppboð þessi eru auglýst
seint í junímánuði og snemma
í júlímánuöi, svo að eigend-
ur hafa enn til stefnu nokk-
um tíma til þess að forða
þessum atvninufyrirtækjum
frá nauðungaruppboði. Hins
vegar eru þessar auglýsingar
talandi vitnisburður um það,
hve ýms atvinnufyrirtæki
standa orðið höllum fæti og
hve að kreppir að lánamark-
aðinum.
Taka npp stjórn-
málasamband
við Peking
Stjórn Pakistan hefir á-
kveðiö að taka upp stjórn-
málasamband við kínversku
stjórnina í Peking og skipt-
ast löndin á sendiherrum.
Morrison tekur upp Margvíslegir mjólkur-
þráðinn frá 1851 aðdrættir í verkfallinu
Morrisson utanríkismála-
ráðherra Breta, kom til Vín-
arborgar í gær. Var tekið á
móti honum á flugvellinum
með mikilli viðhöfn og virð-
ingu af helztu valdamönnum
þar í landi og hélt Morrison
ræðu við það tækifæri.
Sagðist hann með för sinni
til Vínar taka upp þráðinn frá
1851, þar sem hann væri nú
fyrsti brezki utanríkisráð-
herrann, sem heimsækti land
ið síðan þá.
Morrison kom til Vínar frá
Bonn og segja brezk blöð að
viðræður hans við stjórnar-
völdin í Vestur-Þýzkalandi
hafi verið ánægjuleg og ár-
angursrik.
Þó að verkfallið yrði ekki langvinnt, var komið vel á veg
að myndast nýtt mjólkurdreifingarkerfi, sem sá þeim, er
í sambönd komust, fyrir nægjanlegri mjólk og gerði þeim
jafnvel kleift að hjálpa kunningjunum.
Rússneskur hers-
höfðingi boðar
stríð 1952
Berlinarfréttaritari hins
hollenzka blaðs, Rotter-
damsche Courant, skýrir frá
þvi, að rússneski yfirhershöfð
inginn 1 Austur-Þýzkalandi,
Sjúkoff, hafi flutt ræðu í við-
urvist liðsforingja og embætt-
ismanna, er voræfingum setu
liðsins lauk síðastliðinn mið-
vikudag. í ræðunni lýsti Sjú-
koff yfir því, að rússneska her
foringjaráðið teldi sig hafa
sannanir fyrir þvi, að Eisen-
hower ætlaði að hefja stríð
gegn Rússlandi og Austur-
Evrópuríkjunum árið 1952.
Engar frekari skýringar
voru gefnar á þessum ummæl
um.
I Sumir slógu sér saman um
| bíl og fóru upp um allar sveit
ir í mjólkursókn, og var sums
' staðar hin mesta gestakoma
í fjósunum. Bændur, sem
heima áttu fjær bænum,
sendu einnig mjólk til Réykja
víkur á eigin farartækjum, og
þá gjarna allmikið í einu, og
annaðist svo einhver kunn-
inginn í bænum útdeiling-
una á mjólkinni. Á þennan
hátt var flutt mjólk ofán úr
Borgarfirði og austan úr Ölf-
usi, svo að dæmi séu nefnd.
En svo hruttdi hið nýmynd-
aða kerfi og Mjólkursamsal-
an settist aftur af völdum.
Framvegis geta húsmæður
vonandi farið í mjólkurbúð-
ina eftir mjólkinni, svo að
ekki þurfi að gera út sérstaka
mjólkurleiðangra einstakra
manna.
Of lítið drukkið af
vini í Þýzkalandi
Bandaríkin varkár
í Irandeilunni
Svo virðist af fréttum að
Bandarikin vilji sem allra
minnst afskipti hafa af deilu
Iransbúa og Breta út af olíu
lindunum og rekstri þeirra.
Er því lýst yfir í Washington
að Bandaríkin eigi þarna vini
á báða bóga og þeirra af-
skipti af deilunni miöuðu
að því að fá friðsamlega lausn
sem báðir aðilar geta eftir at-
vikum unað vel við.
Bradley herráðsforingi
Bandaríkjanna lýsti því yfir
í Washington i gær að Banda-
ríkin myndu ekki senda her
til írans þótt Bretar myndu
gera það.
Bretastjórn trúir
á heimsfrið
Meðan verkamannastjórn
er við völd í Brétlandi mun
dag og nótt verða unnið að
því af kappi að koma á friði
í Kóreu og forða því að ófrið-
urinn breiðist út, sagði John
Strachey, hermálaráðherra
Breta, í ræðu á fjölmennum
fundi á laugardaginn. Hann
gaf og til kynna, að brezka
stjórnin myndi ekki fallast á
það, að árásir yrðu gerðar á
Kina. Jafnvel þótt takast
mætti að sigra Kinaveidi, sem
flestir hernaðarfræðingar
Breta væru sammála um, að
ekki væéi gerlegt, eins og til
hagar, myndi það aðeins geta
orðið á kostnað vigbúnaðar
eg varnarmáttar á vesturhveli
jarðar.
Strachey hafnaðí og þeirri
t'llögu að nöta hersveitir
Chiang Kai-sheks til árása á
meginlandi Asíu, enda ekkert
líklegra en þau vopn, er þeim
væru fengin í hendur, yrðu
herfang Maós og kommúnista
hans, líkt og áður átti sér
stað. Það væri sama og að
senda Maó vopn og herlið að
hleypa hinum svikulu og
spilltu liðsmönnum Chiang
Kai-sheks á meginlandið.
— Ég efa ekki, að kínverska
stjórnin er í nánu sambandi
við Rússa, sagði hann. Þó er
hugsanlegt, að sá dagur komi,
að Kínverjar verði fúsir til
að ganga til samninga, og
enn getur líka verið, að þeir
þreytist á þátttöku sinni í
Kóreustríðinu og það fjari út
þegjandi og hljóðalaust.
Það er drukkið of lítið af
víni í Þýzkalandi, segja sam-
tök vinyrkjubænda þar í
landi. Fyrir stríð drukku Þjóð
verjar að meðaltali sjö Jítra
af víni á hvern ibúa, en þró-
unin er svo dapurleg, að nú
er drukkið mikið minna, segja
vínyrkjumennirnir. Takmark-
ið er, að drukknir verði að
minnsta kosti nlu lítrar á
mann. Er nú hafinn mikill
áróður fyrir þessu, og var sér-
stök víndrottning kjörin á há
tíðarviku í Berlín.
Meira en ein milljón manna
hefir atvinnu og framfæri af
vínyrkju i Þýzkalandi.
Flugæfingar yfir
Niðurlöndum
í dag hefjast allumfangs-
miklar flugæfingar yfir Niður
löndum og Norðursjó. Taka
þátt í þeim sex þjóðir sem
standa að varnarbandalagi
Atlanzhafsþjóðanna og talið
er að um 500 flugvélar verði
meira og minna á lofti í þrjá
daga við þessar æfingar.
Aflatregða á
Aostfjörðum
Aflatregða er mikil hjá bát
um, sem veiðar stunda úti
fyrir Austfjörðum. Nokkrir
bátar eru nú ýmist byrjaðir
eða í þann veginn að hefja
lúðuveiðar. Þeir bátar, sem
búnir eru að fást við þessar
veiðar eystra um sinn, hafa
enn sem komið er fengið lít-
inn afla.
Jarðlítið enn á þrem
bæjum í Selárdal
Veðrátta hefir verið hag-
stæð hér undanfarið og snjó
leyst. Þó er jarðlítið ennþá á
þremur innstu bæjunum í Sei
árdal.
Lítið er um atvinnu hér,
því tveir dekkbátar, sem til
voru hér eyðilögðust báðir í
ofviðri í vetur.' Fimm trillu-
bátar hafa byrjað róðra, og
þrír eða fjórir til viðbótar
hefja róðra bráðlega.
Kynning íslenzkra
bókmennta í
Bandaríkjnnum
Fertugasti og fyrsti ársfund
ur Amerísk-Norræna Fræða-
félagsins (The Society for the
Advancement of Scandina-
vian Study) var haldinn í
Chicago föstudaginn og laugar
daginn 4. og 5. maí, og var
fundarstaðurinn North Park
College þar i borg, einn af
helztu skólum Svía vestan
hafs.
Dr. Richard Beck prófess-
or, forseti félagsins 1950—’51,
hafði fundarstjórn með hönd
um, einnig fiutti hann á fund
inum erindi um Tómas Guð-
mundsson og skáldskap hans,
og ræðu um sameiginlega hug
sjónaarfleifð norrænna
manna í kvöldveizlu þeirri,
sem skólinn efndi til í sam-
bandi við ársfundinn.
Áður en fundarstörf hóf-
ust, fyrir háidegið á föstudag-
inn, hélt dr. Beck einnig tvo
(Framhald á 2. síðu.)