Tíminn - 25.05.1951, Blaðsíða 8
35. árgangur.
Reykjavík,
»A FÖRMJM VFGI“ I DAGi
Ftfrirspurn um EItt«>
saumavélar
25. maí 1951.
113. blað.
í gaer hófust miklar flugæfingar yfir Niðurlöndum og Norðursjó á vegum Atlanshafsþjóð
anna. Taka þátt í æfingunum um 500 flugvélar og eru allmargar þeirra frá flugvélamóður
skipum á Norðursjó. Þessi mynd er af einu brezka flugvélamóðurskipinu sem tekur þátt
í æfingunum.
ing olíulind-
anna er að hefjast
Formaður nefndar þeirrar, sem sjá á um þjóðnýtingu oltu-
lindanna í Persíu hefir boðið Bretum að tilnefna innan sex
daga fulltrúa, er hafi hönd í bagga um úttekt eigna hins
brezka félags og starfrækslu lindanna.
Miki fjöldi faoga
tekinn í Kóreu
Hersveitir S. Þ. hafa síðustu
tvo daga tekið fleiri fanga en
þeir hafa getað flutt brott af
bardagasvæðunum, og er nú
bundið talsvert lið við gæzlu
þeirra.
Sóknartilraun, er kommún
istar gerðu, virðist vera farin
algerlega út um þúfur, og þótt
þeir hafi varalið, kemur það
ekki að gagni til nýrrar sókn
ar, fyrr en nauðsynlegur und
irbúningur hefir farið fram.
V opnahléstillögur
Johnsons birtar
í Pravda
Pravda og fleiri rússnesk
blöö sögðu um siðustu helgi
mjög rækilega frá tillögu
demókrataþingmannsins Ed-
wins C. Johnsons frá Koloradó
um vopnahlé í Kóreu á árs-
afmæli ófriðarins 25. júní.
Þykir sem það kunni að vera
bending um það, að Rússar
séu ekki ótiileiðanleg:r að eiga
hlutdeíld a5 slíkri friðargerð.
Þetta er í fyrsta sk'.pti, að
tillögur írá bandarískum
mönnum um camninga og
vopnahlé í Kóreu eru b'.rtar
í rússneskum blöðunr um
langt skei'ð.
Johnson stakk upp á því,
að báðir aðilar skyidu hörfa
yfir 38. breiddarbauginn og
hann verða látinn skipta yfir
ráðasvæðum áfram.
Verði þessir fulltrúar hins
vegar ekki tilnefndir innan
tilskilins tíma, munu fulltrú-
ar persnesku stjórnarinnar
einir fara með þessi mál.
Taka við um mánaðamót
Persastjórn býr sig undir
það, að þjóðnýting lindanna
hefjist seinnipartinn í næstu
viku, og hefir öllu starfsfólki
verið boðið að starfa áfram
að olíuvinnslunni. Verði það
hins vegar svo margt, er ekki
tekur þvi boði, að ekki verði
hægt að nýta lindirnar að
fullu, verður sumum þeirra
lokað í bili.
Gera kröfu til skipa.
Þá hafa Persar gert kröfu
til fimmta hlutans af skipa-
stóli brezka olíufélagsins og
býggja þá kröfu sína á samn
ingum frá 1908. Bretar hafa
tekið þessum kröfum fjarri,
og eigi Persar ekki kröfu til
neins, fyrr en samningum
ljúki árið 1993.
Bretar hafa beðið stjórnir
Tyrklands, Sýrlands og írak
að leggja að Persum að taka
upp samninga í einhverri
mynd um olíulindirnar.
Sundnámskeið við
Sælingsdaíslaug
Frá fréttaritara Tímans
í Búðardal.
Sundnámskeið hófst á
föstudag við Sælingsdalslaug,
og eru nemendurnir rösklega
tuttugu, allir úr Vestur-Döl-
um.
Undirbúningur er hafinn
að samnorrænu sundkeppn-
Vertíðin í Grundar-
firði betri en í fyrra
Frá fréttaritara Tímans
í Grundarfirði.
Vetrarvertíð i Grundarfirði
er um það bil að ljúka, þó
róa tveir bátar ennþá og er
afli þeirra 4—5 lestir í róðri.
Vertíðin var mun betri en í
fyrra, aflahæstur var Grund
firðingur með um 420 lestir
af slægðum fiski með haus.
Skipstjóri á Grundfirðingi er
Zophanias Cecilsson.
M.b. Runólfur frá Grundar
firði hefir farið tvær veiði-
ferðir á lúðu að undanförnu
og aflað sæmilega.
Austf jar ðatogarinn
væntanlegur
Togari sá, einn af þejjja ný-
byggðu í Bretlandi, sem Aust
firðingar eiga að fá, er vænt-
anlegur hingað til íands inn
an tíðar. Var upphaflega gert
ráð fyrir að togarinn kæmi I
maí, en koma hans hefir dreg
izt.
Búið er nú að ráða Þorleif
Jónsson úr Hafnarfirði fyrir
framkvæmdastjóra útgerðar-
innar og Þórð Sigurðsson skip
stjóra af Seyðisfjarðartogar-
anum ísólfi fyrir skipstjóra á
hið nýja skip. Útgerðarstiórn
skipsins sk'pa þeir Þorsteinn
Jcnsson kaupfélagsstjóri á
Reyðarfirði, sem er formaður
og Arnþór Jeneen á Eskifirði
og Guðlaugur Eyjólfsson
kaupfélagsstjóri á Fáskrúðs-
firði.
! innl, en lít'ð byrjað að keppa,
enda samgönguerfiðleikar
enn. Lokið var við að ryðja
snjó af veginum um Svína-
dal á þriðjudaginn, en hann
c-r samt enn blautur og voncl
ur yfirferðar. Út að Staðar-
felii er enn ófært bílum.
Stytt útgáfa af Björg-
uninni við Látrabjarg
Sýningar að byrja I Reykjavik
Jón Oddgeir Jónsson fulltrúi, Henry Hálfdánarson skrif-
stofustjóri og Óskar (Hslason Ijósmyndari ræddu í gær við
kvikmyndina Björguniii við Látra
æ:,
^&ytt allmikið og gerður við hana
láSon tók þessa mynd, sem kunn-
fréttamenn og sýndií
bjarg, sem hefir nú.ý'i
norskur texti. Óskar.
ugt er, fyrir þremur ájrjíni síðan, og hefir hún vcrið sýnd
í sinni upprunalegu mýatf, undanfarin ár í flestum kvik
myndahúsum Iandsins ylð Jádæma góða aðsókn.
a&Fx"
Hafa tekjurnar af sýj^ing-
um þessum orðið Slysavarna
félaginu ómetanlegur stýfXur,
og stendur félagið í nflkilli
þakkarskuld við Óskar Qiisja-
son, sagði Jón Oddgeir féjns-
son.
'SJi
Myndin stytt í Noregíál^
Fyrir rúmu ári síða$|iV'ár
það, að norska björgtíffisíté-
lagið gerði Slysavarnafélagi
íslands það tilboð, að stytta
myndina og setja í hana tal
og tóna og láta Slysavarna-
félaginu í té fjögur eintök af
myndinni þannig breyttri,
gegn því, að fá að hafa á
henni sýningar fyrir slysa-
varnadeildirnar í Noregi.
Telja má víst, að myndin
þannig breytt, henti betur til
sýningar erlendis, auk þess
að bæði Danir og Svíar hafa
full not af hinum norska
texta.
En íslendingar munu sakna
margs þess, er úr hefir ver-
ið klippt.
Slysavarnafélagið tók að
sjálfsögðu þessu boði, og hef
ir það nú fengið fyrsta ein-
takið af myndinni í þessu
breytta formi og verður fyrsta
sýningin á henni i dag kl. 3
í Tjarnarbíói. Tekur sýning-
in nú aðeins 35 mínútur, en
áður en hún var stytt hátt á
aðra klukkustund. Þar sem
myndin er orðin þetta stutt,
er ekki hægt að stofna til
sýninga á henni einni, og
verður því sýnd um leið stutt
norsk mynd, er sýnir björgun
arstarfsemi Norðmanna, og
má búast við að sýningar á
þessum myndum verði látnar
fylgjast að nú fyrst um sinn.
Misskilningur.
Þau leiðinlegu mistök hafa
(Framhald á 7. síðu.)
Sjónarmið leigu-
bílstjórans
Bifreiðarstjórinn, sem ók
leigubilnum með piltunum
þremur, sem sagt var frá í
blaðinu í gær, í sambandi við
atburð, sem gerðist á Hafnar
fjarðarvegi, kom i ritstjórnar
skrifstofu Tímans í gær og
skýrði atburðinn frá sínu
sjónarmiði.
Tók hann það skýrt fram,
að sér hefði verið ómögulegt
að koma í veg fyrir það, að
farþegar hans vildu skipta
sér af stúlkunum tveimur 1
fylgd með karlmönnunum.
Virtist honum fara vel á með
einum farþega sínum og ann
arri stúlkunni og sá því ekki
ástæðu til að skipta sér af
samskiptum þeirra fyrst í
stað. Leiddust þau um sinn í
góðu yfirlæti, þrátt fyrir ó-
ánægju hinna þriggja fylgd-
armanna.
Um slagsmálin, sem urðu
er stúlkurnar og piltarnir þrír
fóru inn í hinn bílinn, vissi
hann ekki fyrr en á eftir. þeg
ar farþegar hans komu aft-
ur í bílinn, sem hafði farið
nokkuð fram úr hópnum þá
síðasta spölinn.
Ólafsvíkurbátar
öfluðu 1358 lestir
Frá fréttaritara Tímans
í Ólafsvík.
Vetrarvertið er lokið í Ólafs
vík. Afli bátanna var 1358
lestir í 334 róðrum. Meðaiafli
í róðri var 4 lestir. Aflahæsti
báturinn er Hálfdán, skip-
stjóri Guðni Sumarliðason,
fór 72 róðra og fékk 333 íest-
ir. Afli annarra báta er; Egill
292 lestir í 67 róðrum, Björn
Jörundsson, — Snæfell 272
lesitr í 59 róðrum, Víkingur
með 246 lestir í 72 róðrum og
Erlingur með 239 lestir í 64
róðrum. Meðalhásetahlutur
er áætlaður 10 þúsund krón-
ur. Rúmlega helmingur afl-
ans var frystur, hitt var salt-
að og hert. Dragnótaveiðin
hefst í júni, og verða 8 bátar
(Framhald á 2. síðu.)
Skylda bæjarráðsins
að gera ráðstaíanir
Á fundi, sem haldinn var f
Mæðrafélaginu 16. maí s. 1.
voru eftirfarandi tillögur sam
þykktar:
„Fundur í Mæðrafélaginu
haldinn 16. maí að Aðalstræti
12, vítir skeytingarleysi háttv.
bæjarstjórnar Reykjavikur í
húsnæðismálunum. Þar eð
fjöldi útburðarbeiðna liggur
nú þegar hjá borgarfógeta tel
. ar fundurinn það skyldu
bæjarí élagsins að gera nú þeg
ar ráðstafanir til þess að
| koma því fólki til hjálpar,
sem boriö er út á götuna“.
I „Fundu í Mæðrafélaginu
! haldinn 16. maí að Aðalstræti
12 telur fullvíst að barnmörgu
| fjöiskyldurnar verði harðast
I úti og aö verkamaður, sem
hefir meira en meðal fjöl-
skyldu á framfæri, eigi ill-
mögulegt með að afla sér hús
næðis.
Fundurinn skorar því á
háttv. bæjarstjórn Reykjavík
ur að hefja nú þegar undir-
búning að byggingu leigu-
íbúða, er séu sérstaklega mið
ai$ar við þarfir barnaícsks
og séu ekki minni en þriggja
herbergja íbúðir".