Tíminn - 07.07.1951, Blaðsíða 2
2.
TÍMINX, laugardaginn 7. júlí 1951.
150. blað
'Jtá hafi til
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Útvarpstríóið: Tveir kafl-
ar úr triói í G-dúr eftir Mozart.
20.45 Leikrit. 21.25 Tónleikar:
Hljómsveit Tommy Dorsey leik-
ur (pliitur). 21.40 Upplestur.
22.00 Fréttir og veðurfregn. 22.10
Danslög (plötur). 24.00 Dagskrár
lok.
Útvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.45 Leikrit: „Andrés og hval-
urinn“ eftir Gunnar Falkás.
Leikstjóri: Þorsteinn Ö. Stephen
sen. 21.30 Tónleikar (plötur).
21.35 Erindi: Kirkjubæjarklaust
ur (frú Guðrún Björnsdóttir
frá Kornsá). 22.00 Fréttir og veð
urfregnir. 22.10 Danslög (plöt-
ur). — 24.00 Dagskrárlok.
Hvar ertt skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell losar salt á Húsa-
vík. Arnarfell lestar salfisk á
Patreksfirði. Jökulíell er á leið-
inni frá Guayaquil til Valpara-
iso í Chile.
Ríkisskip:
Hekla er væntanleg til Glas-
gow í dag. Esja er á leiðinni
frá Austfjörðum til Akureyrar.
Herðubreið er væntanleg til
Reykjavikur í dag frá Vest-
fjörðum. Skjaldbreið verður
væntanlega á Skagaströnd í
dag. Þyrill er nofðanlands. Ár-
mann fer frá Reykjavík í dag
tii Vestmannaeyja.
B/öð og tímarit
Freyr,
júlíhefti búnaðarblaðsins
Freys er komið út. í því eru m.
a. þessar greinar: Heysending-
ar á harðindasvæðin eftir Sæ-
mund Friðriksson, Orð í belg
eftir Stefán Kr. Vigfússon,
Gömlu mánaðaheitin eftir Ólaf
Sigurðsson, Vikur serh einangr-
unarefni og byggingarefni í
sveitunum, Lambakjöt eftir
Halldór Pálsson, Kapp er bezt
með forsjá eftir Guðmund Jóns-
son, Hvað heitir bærinn eftir
Pál Guðmundsson, Hugleiðing-
ar um garnaveiki eftir Sigurð
Lárusson, Garnaveikin eftir
Björn Sigurðsson, Minningar-
orð um Björn Bjarnarson í Graf
arhoiti eftir Guðmund Þorláks
son og um Friðrik Arinbjarn-
arson frá Stóra-Ósi eftir Bene-
dikt Guðmundsson. Einnig er í
heftinu húsmæðraþáttur og fl.
r
Ur ýmsum áttnm
Veiðibann.
Auglýsing birtist nýlega i blöð
unum, varðandi Veiðivötn á
Landmannaafrétti, svohljóð-
andi: „Sökum þess að hætta
þykir á, að fiskistofn í Veiðivötn
um á Landmannaafrétti gangi
til þurrðar af völdum ofveiði, til
kynnist hér með vegna héraðs-
manna þeirra, er veiðirétt eiga
í vötnum þessum, að utanhér-
aðsmönnum er bannað að veiða
silung í vötnunum. Héraðsmenn
mega veiða þar á sama hátt
sem áður, til búsþarfa, en ó-
heimilt er þeim að leyfa öðr-
um veiði. — Reykjavík, 26. júní
1951. Fyrir hönd Veiðimálanefnd
ar, Pálmi Hannesson.
Siglufjarðartogararnir
Elliði og Hafliði komu af
karfaveiðum i gær — Elliði með
400 lestlr eftir tiu daga útivist
og Hafliði 370 lestir eftir fimmt
án daga.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Antwerperj,
4.7., fer þaðan til Hull og Reykja 1
víkur. Dettifoss er i New York. t
Goðafoss er í Reykjavík. Gull-
foss fer frá Reykjavík kl. 12.00
á hádegi á morgun 7.7. til Kaup
mannahafnar og Leith. Lagar- .................
foss fór írá Húsavík 3.7. til
Gautaborgar. Selfoss er i Reykja ,
vík. Tröllafoss er i Hull, fer það , Auglýsiö 1 Timauum,
an vænianlega 10.7. til London
og Gautaborgar. Barjama fer
væntanlsga frá Leith 7.7. til
Reykajvikur.
heiía j
Sílilin
(Framhald af 1. síðu.)
i
fara fram frá tveimur stöð-
um, Akureyri og Kópaskeri..
Verða þeir í flugvélunum nafn
! arnir Ingvar Einarsson út-1
'gerðarmaður og Ingvar Ein-
arsson, skipstjóri á Hæringi.
Mun Irigvar skipstjóri hafa'
bækistöð sína á Akureyri, en !
nafni hans, sem, bíður flug- I
fars norður, á Kópaskeri, að ^
minnsta kosti fyrst um sir.n.
FYegnir um árangur af síldar'
leitinn; verða svo sendar skrif
stofu síldarleitarinnar í Siglu
! firði, er miðlar veiðiskipunum
aftur vitneskju.
Nýtt hefti af
,LÍF OG LIST’
Tímaritið Líf og list, júní-
heftið, er komið út og flytur
þetta efni:. Rigoletto og lit
yfir þróun óperunnar eftir
Guðmund Matthíasson, tón-
listarfrseðing, Vígsluhátíðin,
smásaga eftir Indriða G. Þor-
steinsson, Næturvín, Ijóð eft-
ir Jón óskar, Gáfur og skyn-
semi, kvæði eftir Guðmund
Þorsteinsson frá Lundi, ís-
lenzkt skáld i Bloomsbury eft
ir sir Osbert Sitwell, Kínversk
ir stafir, kvæði eftir Gunnar
Dal og Nokkur orð um list
eftir Guðmund J. Gíslason.
Auk þess þáttinn Á kaffihús-
inu eftir ritstjórann, Stein-
grím Sigurðsson og smágrein-
ina Fljót lífsins eftir Þorstein
Jónsson á Úlfsstöðum. Ritið er
hið smekklegasta og læsilegt
að vanda.
Satt og ýkt
Gamansagnir um þjóðkunna menn. Gunnar Magnúss
safnaöi. í bókinni eru um 150 frásagnir og „brandarar“.
SATT OG ÝKT er ómissandi bók í útilegu og sumar-
fríið — kemur lesandanum í sólskinsskap hvernig sem
viðrar.
SATT OG ÝKT fæst hjá næsta bóksala
H.f. Leíftur
««m3:t:3agtg:::nn
Flugferðir
fi tfcthuflt tieqi:
Flugfélag Islands:
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlaö að fljúga til Akureyrar
(kl. 9.15 og 16.30), Vestmanna-
eyja, Blönduóss., Sauðárkróks,
Egilsstaða, Siglufjarðar og frá
Akureyri til Siglufjarðar.
Á morgun er ráðgert að fljúga
til Akux'eyrar (kl. 9.15 og 16.30),
Vestmannaeyja og Sauðárkróks.
Utanlandsflug: Gullfaxi fór í
morgun til Kaupmannahafnar.
Flugvélin er væntanieg kl. 20.15
annað kvöld frá Kaupmanna-
höfn og Osló. Frá Osló kemur
knattspyrnuliðið frá norska
knattspyrnufélaginu Vaalereng-
en.
Loftleiðir:
í dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja, Akureyrar, Isa
fiarðar, Patreksfjarðar og
Hólmavíkur. Á morgun verður
fiogið til Vestmannaeyja.
Messur á morqun
Fossvogskirkja.
Messa kl. 2 e .h. Séra Garðar
Svavarsson.
I.auganeskirkja.
Messa kl. 11 f. h. Séra Garðar
Svavarsson.
tttOreitii Timahh
Sóðaskapurinn við þjóðvegina
í þessu landi býr mikil vanhirðuþjóð, sóðfeng og
skeytingarlaus, ef dæma skal eftir því drasli, sem ligg-
ur í hrúgum meðfram þjóðvegum landsins, og útliti
girðínga í námunda við vegina. Erlendur maður, sem
verið hefir hér í sumar, vinveittur landi og þjóð, hefir
látið í ljós við blaðið sérstaka undrun sína yfir þessu.
Hann sagði, að þegar við fyrstu ferðalög sin hefðu hug
myndir sínar um íslenzka snyrtimennsku hlotið alvar-
legt áfall, og því miður hefði hann víða á ferðum sínum
séð svo átakanleg dæmi um sóðaskap af þessu tagi, að
hann ætti bágt með að gera sér grein fyrir því, hvernig
slíkt gæti viðgengizt hjá jafn mannaðri þjóð og íslend
ingar væru að öðru leyti.
★ ★ ★
Það er satt að segja ekkj að undra, þótt útlendingar
eigi bágt með að skilja það, hvernig í ósköpunum
stendur á stórum sorphrúgum við þjóðveginn uppi á
miðri Hellisheiði til dæmis eða öllu draslinu við Krisu-
vikurveginn, sunnan við Hafnarfjörð. En hér eru að-
eins nefndir tveir staðir af mörgum, þar sem sorp-
dyngjur liggja viö vegina.
Sumt af þessu drasli stafar frá hernámsárunum, en
þá virðast litlar kröfur hafa verið gerðar um það til
hernámsliðsins af hálfu íslenzkra stjórnarvalda, að
gengið væri sómasamlega frá sorpi frá herbúðunum,
því að væntanlega hefðu slíkar kröfur verið teknar til
greina, ef fram hefðu komið. Annað stafar frá rústum
af gömlum herbúðum, þar sem ekki hefir verið sóma-
samlega hreinsað til. En loks virðast alveg ótvírætt
veruieg brögð að því, að sorpi sé ekið út á þjóðvegina
og steypt þar af bílum, rétt við vegarbrúnina. Slíkt á
ekki að þola. Það er ekki nóg að banna það í orði
kveðnu. Það þarf að fylgja því banni eftir.
J. H.
AUGLÝSING
Að gefnu tilnfni skal það endurtekið að engin smá-
sala á sér stað i verksmiðju Sjóklæðagerðar íslands
h.f. Skúlagötu 51, Reykjavík. Fólki er því þýðingar-
laust að leita innkaupa þar, en skal á það bent að
framleiðsluvörur verksmiðjunnar eru á boðstólum hjá
öllum veiðarfæraverzlunum og ýmsum vefnaðarvöru-
verzlunum í Reykjavik og utan Reykjavikur hjá flest-
um kaupmanna- og kaupfélagsverzlunum.
Sjúklfieðagerð Mands h.f.,
« Reykjavík.
3att«mnit:n»t::»nt::im«mmnm:it:u«mt:«»»i»i::::n8::r.»«:m««
.V.VAV.V.V.'.V.'.V.V.V.V.'.V.V.V.V.V.V.V.V.'.V.VA
i
TILKYNNING
Fjárhagsráð hefir ákveðið nýtt hámarksverð á blaut
sápu sem hér segir:
Heildsöluverð án söluskatts
Heiidsöluverð með söluskatti
Smúsöluverð án söluskatts
Smásöiuverö með söiuskatti
kr. 7,85 pr. kg.
kr. 8,09 pr. kg.
kr. 9,80 pr. kg.
kr. 10,00 pr. kg.
Reykjavík, 6. júlí, 1951,
Vorðlagsskrifstofan.
,V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.*.V.V.V.V.V.V.V.W.VA%
»*«»4»»»*»»*«*,*»,»«»*»i>»»»***»»««»*»»***»t»»*«»»***»**««»»*»***»**»***»**»»*«»*«*****»»*»*»««»4,-
II Félag skattgreiðenda
« hefir opnað skrifstofu í Austurstræti 14, III. hæð. —
t: Endurskoðandi félagsins er til viðtals kl. 4—7 síðdegis
» daglega.
♦ ♦
**♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦*♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦**♦♦♦♦♦*♦♦'
»*♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»♦♦»♦**♦♦»♦♦»»*»«•«*♦♦♦»<
♦**»«♦*«••♦•♦*•»♦♦*•♦♦♦,.
| Falleg og vönduð GÓLFTEPPI
♦•
♦ ♦
« útvegum við frá þekktum framleiðendum í Bretlandi.
ij Pantanir, sem gerðar eru í þessum mánuði, koma
| fyrir jól.
I: S/F MAGNI GUÐMUNDSSON
Laugaveg 28 B — Sími 1676.
H
f?
U
«
. Wu AV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VAV.V.V.V.V.V.W.VA"
Skrifstofumaður
milli þritugs og fertugs getur fengið framtiðaratvinnu ^
hjá stóru fyrirtæki við skrifstofu- og afgreiðslustörf. S
Málakunnátta nauðsynleg. Umsóknir ásamt meðmæl-
um og upplýsingum um fyrri störf leggist inn á póst-
hólf nr. 898 fyrir 12. þ. m.
«.
w
,w.m.
.VAV,
■V.V
Innilegt þakklæti til allra, sem sýndu okkur samúð og
hluttekningu við fráfall og jarðarför mannsins míns
og föður okkar
PÉTURS EYVINDSSONAR
Guðrún Daðadóttir og börn.