Tíminn - 18.07.1951, Blaðsíða 2
2.
TÍMINN. miðvikudaginn 18. júlí 1951.
158. blaff.
■Útvariiið i kvöld:
Fastir liðír eins og venjulega.
20.30 Útvarpssagan: „Faðir Gor-
iot“ ‘eftir Honoré de Balzac; X.
21.00 Tónleikar (plötur). 21.25
Erindi: Selma Lagerlöf og Jerú-
salemfararnir (Einar M. Jónss.).
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
22.10 Danslög (plötur). 22.30
Dagskrárlok.
ITtvarpið á morgun:
Fastir liðir eins og venjulega.
20.30 Tónleikar: Kórlög úr óper-
um (plötur). 20.45 Dagskrá Kven
réttindasambands íslands. —
Erindi: Fjórar systur (frú Guð-
rún Björnsdóttir frá Kornsá).
21.10 Tónleikar (plötur). 21.15
Frá útlöndum (Benedikt Grön-
dal ritstj.). 21.30 Sinfónískir tón
leikar (plötur). 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.10 Framhald sin
fónísku tónleikanna. 22.40 Dag-
skrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell er í Álaborg. Arn-
arfell fór frá Vestmannaeyjum
16. þ.m. áleiðis til ítalíu. Jökul-
fell fór frá Valparaiso í Chile 6.
þ. m„ áleiðis til Guyapuil í Ecua
dor.
Ríkisski]):
Hekla fór frá Reykjavík í gær
kvöldi tll Glasgow. Esja var á
Isafirði 1 gærkvöld á norðurleið.
Herðubreið er á Austfjörðum á
suðurleió. Skjaldbreið er í
Reykjavik og fer þaðan á morg
un til Breiðafjarðar og Vest-
fjarða. Þyrill er norðanlands. Ár
mann fer frá Reykjavik síðdegis
í dag til Vestmannaeyja.
Eimskip
Brúarioss er í Reykjavík. Detti
foss er i New York. Goðafoss er
í Hambcrg, fer þaðan væntan-
lega 18.7. til Antwerpen. Gull-
foss fór :.'rá Leith 16.7. til Reykja
víkur. Lagarfoss fór frá Gauta-
borg 15.7. til Seyðisfjarðar. Sei-
foss er í Reykjavík. Tröllafoss
fer væntanlega írá London í
dag 17.7. til Gautaborgar. Bar-
jama er í Reykjavík.
Flugferðir
Fliigfélag fslands:
Innan.’andsflug: í dag er ráð
gert að :ljúga til Akureyrar (k..
9.30 og 16,30), Vestmannaeyja,
Egilsstaða, Hellissands, ísa-
íjarðar, Hólmavíkur og Siglu-
fjarðar. Á morgun er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Vestmannaeyja, Ólafsf jarðar,
Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarðar,
Blönduóss, Sauðárkróks, Siglu-
fjarðar og Kópaskers.
Millilandaflug: Gullfaxi kom
frá London í gærkveldi.
Loftleiðir:
f dag verður flogið til Vest-
mannaeyja, ísafjarðar, Akur-
eyrar, Siglufjarðar, Sauðár-
króks og Keflavíkur (2 ferðir).
Á morgun er áætlað að fljúga
til Vestmannaeyja (2 ferðir),
fsafjarðar, Akureyrar og Kefla
víkur (2 ferðir). Frá Vestmanna
eyjum verður flogið til Hellu.
r r
Ur ýmsum áttum
Frá Ferðaskrifstofunni.
Um helgina efnir Ferðaskrif
stofan til eftirtalinna ferða:
1. Laugardaginn 21. júlí hefst
iveggja og hálfs dags Þórsmerk
urferð, sem verður hagað eins
og venja er um þær ferðir.
2. Sama dag hefst fjögurra
daga ferð austur í Skaftafells-
r.slu, til Kirkjubæjarklausturs og
p.111 austur í Fljótshverfi. Helztu
viðkomustaöir aðrir eru: Múla-
hafi til
Þakkað fyrir góðan beina.
Að undanförnu liefir oft ver
ið fundið mjög að því í blöð-
um, hve framreiðsla á veitinga
húsum landsins í landinu sé
siæm, og það ýmist gert með
réttu eða röngu. En sjaldnar er
þess getið, sem vel er gert í
þessum efnum og finnast þess
þó mörg dæmi sem betur fer.
Nú hefir ferðalangur nokkur
snt blaðinu smápistil, þar sem
hann lætur i ljós ánægju sína
yfir góðum beina, er hann hef
ir hiotið á veitingastað í ná-
grenni Reykjavíkur, og hljóð-
ar hann svo: .
„Ég var nýlega á ferð á Sel-
fossi ásamt vinum mínum, er
ég hafði boðið með mér austur
yfir fja.ll. Á Selfossi snæddum
við hádegisverð í veitingahúsi,
sem nefnist Gildaskálinn, og
er mér alveg sérstök ánægja
að geta þess, því að maturinn,
framreiðslan og umgengni öll
var með ágætum og jafnaðist
f.vllilega á við það, sem ég
hef bezt kynnzt annars staðar.
Slíkir staðir eiga það skilið,
að þeirra sé að nokkru getið
og vil ég biðja blaðið fyrir
þakkir frá mér og kunningj-
um mínum fyrir góðan beina.
Ferðalangur."
kot, Dyrhólaey, Vík í Mýrdal og
fleiri.
3. Sunnudaginn 22. er ráðgert
að fara eins dags ferð í Þjórs-
árdal. Komið verður að Stöng
og bæjarrústirnar þar skoðað-
ar. Einnig verður farið að Hjálp
arfossum og í Gjána.
4. Þriðjudaginn 24. júli hefst
tíu daga hringferð um landið.
Farið verður í tveimur hópum,
og fer annar með skipi til Aust
fjarða og bifreiðum þaðan um
Norður og Vesturland til Reykja
víkur. Hinn hópurinn fer með
bifrelðum um Vestur- og Norður
land til Austfjarða og skipi það
an til Reykjavíkur. Koma báðir
hóparnir heim þann 2. ágúst.
5. Hringferð um Borgarfjörð.
Ferðin tekur einn dag. Lagt verð
ur af stað kl. 9 á sunnudags-
morgun og ekið um Þingvöll og
þaðan yfir Uxahryggi niður í
Lundarreykjadal um Bæjar-
sveit, Reykholtsdal og Stafholts
tungur að Hreðavatni og síðan
um Andakíl og yfir Dragháls
á heimleiðinni til Reykjavíkur
um kvöldið.
Leiðarmerki á Þórshöfn á
Revkjanési.
Á Þórshöfn við Kirkjuvog á
Reykjanesi hafa verið lagfærð
gömul ieiðarmerki, sem leiða ut
an frá o? inn á voginn. Merkin
eru tvæt gular steinvörður með
þríhyrndum toppmerkjum, sem
ber sarnun í 010° stefnu. Fram-
varðan stendur á barði fyrir
botni vojsins, um 10 m frá sjó,
en bakv:.rðan er á ás um 100 m
norðar.
Þar sem Þórshöfn er aðeins
þröngur vogur, er öðrum en smá
bátum rkki ráðlegt að leita
þangað inn.
Lestrarft iag kvenna í
Reykjavik.
heldur samsæti að Valhöll á
Þingvöllum í tilefni af 40 ára
afmæli félagsins, föstudaginn
20. júlí. Félagskonur, tilkynnið
bátttöku yðar sem allra fyrst í
eftirtalda síma: 3105 Valgerður
Björnsdóttir, 2250 Friede Briem
2532 Margrét Jónsdóttir, 1671
Ólöf Sigurjónsdóttir, 5906 Arn-
dís Björnsdóttir.
Áhending.
Hansína Pálsdóttir ekkja
Steingríms Arasonar hefir beðið
þess getið, að þeim, sem óskuðu
að minnast manns hennar,
væri bent á minningarsjóð
Barnaverndarfélagsins Sumar-
gjafar. Minningarspjöld fást í
Bókaverzlun Lárusar Biöndal,
Bókaverzlun ísafoidar og skrif-
stofu féiagsins, Hverfisgötu 12.
H,f. EimskipaféSag ísiands
Leiðrétting.
Vegna misritunar í frásögn-
inni af afla togarans Jörundar
hér í blaðinu í gær skal það leið
rétt, að aflann fékk togarinn á
51 klukkustund en ekki 33
stundum.
Ferðafélag íslands
ráðgerir að farar 5 daga ó-
byggðaferð er hefst 21. þ.m. Ek-
ið að Hagavatni og gist þar.
Gengið upp á Jökul, á Jarlhett-
ur og á Hagafell. Síðan farið
inn í Hvítárnes og í leiðinni geng
ið á Bláfell ef skyggni er gott.
Þá haldið í Kerlingarfjöll og
hverasvæðið skoðað. Gengið á
fjöllin þar þeir sem það vilja.
Farið þaðan norður á Hvera-1
velli. Gengið í Þjófadali og á
Rauðkoll eða Þjófafell. Lika
gengið á Strýtur.
Alltaf gist í sæluhúsunum.
Fólk hafi með sér mat og við-
leguútbúnað. Áskriftarlisti ligg
ur frammi og séu farmiðar tekn ’
ir fyrir hádegi á föstudag.
Sildin
(Framhald af 1. síðu.)
Mörg útlend skip á miðum.
Undanfarið hefir útlendum
skipum á miðunum fjölgað
mjög, og eru það einkum J
finnsk, rússnesk, norsk ogj
sænsk skip. Ekki er vitað ná- I
kvæmlega um veiðibrögð hjá,
þeim almennt, en sum munu
þegar hafa aflað nokkuð. Þau |
koma helzt inn til hafna á
laugardögum.
Togarinn Elliði kom til
Siglufjarðar í gær með 400
lestir af karfa sem fór í
bræðslu í Rauðku.
Síld við Horn og Selsker.
Til Djúpavíkur hefir nær ,
engin síld borizt síðustu
daga. Veður er þó ágætt og
síldar hefir oröiö vart út af |
Horni og Húnaflóa allt inn
undir Selsker. Nokkrir bátar
eru á því svæði, en ekki hafði J
frétzt um teljandi veiði í gær
kveldi. Eitthvað mun þó hafa j
verið kastað. Tryggvi gamli
kom með 200 mál til Djúpavík
ur í fyrradag. Þurfti hann inn
hvort sem var og losaði um
leið þennan slatta.
fer frá Reykjavík laugardaginn 4.
ágúst kl. 12 á hádegi til Leith og
Kaupmananhafnar.
Pantaðir farseðlar skulu sóttir eigi
síðar en þriöjudag 24. júlí. Það skal
tekið fram, að farþegar verða að sýna
fullgild vegabréf þegar farseðlar eru
sóttir.
WAWJ'J'.V.VAV.VAW.'.WAVAY.VW.VAW.WkV
Ij r ^ I;
Arnesingar!
Hið árlega íþróttamót ungmennafélaganna
Vökn og Samhygðar
5
;í verður haldið að Villingaholtj n.k. sunnudag 22. júlí. J
— Hefst kl. 2 e. h. — Dansað um kvöldið. — Góð
.* .*
.J hljómsveit. JJ
;! UnqmennafélatjiíS Vaha. ;I
W/.V.Y.V.V.V.Y.V.V.V.V.V.V.V.'.Y.Y.Y.V.V.'.V.Y.V
■.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VV.V.V.V.V.V-
JOLKURBU
FLÓAMANNA
i
Selfossi. Sími 5. Símnefni: Fióamjólk.
Venjulega fyrirliggjandi:
30 og 40% OSTAR
og
MYSUOSTUR
Góður ostur er gæðakostur.
Ostar frá Mjólkurbúi Flóamanna líka bezt.
1 • ■■■■»_'
■%v.v
!■■■■■■
Bandarískir
íliróttamonn
(Framhald af 1. síðu.)
ina og mun kenna íslenzkum
íþróttamönnum. |
Meistaramótið.
Meistaramót íslands hefst á
föstudaginn kl. 8,30. Það kvöld
verður keppt í þessum grein-
um: 110 m grind, 100 m, há-
stökki, kúluvarpi, 200 m, 800
m, spjótkasti, langstökki,, 5
km og 4x100 m boðhl. |
Daginn eftir verður keppt
í stangarstökki, 200 m gr.,
1500 m, sleggjukasti, 400 m,
þrístökki og 1000 m boð-
hlaupi.
Búizt er við íslenzku íþrótta
mönnunum heim frá Bret-
landi með Gullfossi á morgun
og taka þeir þátt í mótinu.
Vegna þátttöku Bandaríkja-
mannanna hefir beztu íþrótta
mönnum utan af landi verið
boðin þátttaka í mótinu. I
Verkafólk!
vaiitar nú tilfinnanlega í sveit'rnar um sláttinn.
Einkanlega KAUPAKONUR.
Móti framboðum verkafólks tekur
Ráðningarskrifstofa Landbúnaðarins.
Alþýðuhúsinu II. hæð — Opin ‘kl. 9,30—12
og 1—5. Sími 80088.
Munið 80088.
v.v.v.v.v.v.v.v,
.w,
■ ■ ■ ■ ■ I
W.V.VAV
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim er með heim-
*; sóknum, gjöfum og heillaskeytum heiðruðu mig á átt-
■I ræðisafmæli mínu 11. júni s.l. í
■:
;» S griður Guðmundsdóttir
■• Neðri-Fitjum.
-.* ■:
W.V.V.V.VV.'.VV.VV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.VV.VV.W..
Bálför mannsins míns,
STEINGRÍMS ARASONAR
kennara,
f?r fram frá Kapellunni í Fossvogi, fimmtudaginn 19.
júlí kl. 13,30. — Athöfninnj verður útvarpað.
Hansína Pálsdóttir.
------------— GERIST ASKRIFF^m'R AÐ
Cthreíftíð Tíniaim. ' T IJW A LT M . - ASKRIFTASDII 2323.