Tíminn - 18.07.1951, Side 4

Tíminn - 18.07.1951, Side 4
«. 158. blað. TÍMINN, miðvikudaginn 18. júlí 1951. Aldarafmæli Góötemplarareglunnar í Ameríku Ég lagði af stað mánudags kveldið 4. júni með flugvél frá Pan American Airways frá Keflavík. Var komið til New York eftir 12 stunda flug með stuttri viðkomu í Boston. Há- tíðahöldin áttu ekki að byrja fyrr en viku síðar, svo að ég skrapp norður til Bangor í Maine til þess að hitta Óttar bróður minn, fiskifræðing, er þar er búsettur og dvaldi þar 3 daga. Hátíðahöldin hófust mánu daginn 11. júní í New York með því að safnast var sam- an þann dag í húsakynnum K.F.U.M. á 23. stræti, til spjalls og kynningar, en þá voru komnir yfir 100 gestir og fulltrúar frá Evrópu. Síðar um daginn hélt skandinav- íska stórstúkan í New York samsæti fyrir aðkomumenn og aðra templara. Þarna töl- uðu þrír menn úr alþjóða- framkvæmdanefnd Reglunn- ar, þ. e. a. s. frkv. nefnd Há- stúkunnar, en það voru: Rub en Wagnsson hátemplar, landstjóri í Kalmarléni í Svi- þjóð, Joseph H. Brown, há- varatemplar frá Englandi og Larsen Ledet háritari, hinn kunni danskj blaðamaður og rithöfundur. Auk þess flutti þarna ávarp stórtemplar Svía, Ragnar Lund. í ræðu sinni fór Larsen-Ledet mikl- um viðurkenningarorðum um íslendinga og islenzka menn ingu og marghliða menning- arviðleitni og skýrði um leið allýtarlega frá starfi Regl- unnar á fslandi og áhuga þeirra í þeim málum, sem m. a. sæist á því, að þeir hefðu sent fulltrúa til að mæta á þessum hátíðahöldum. Var þar að finna hinn fyrsta vott þeirrar miklu athyglj og við- urkenningar, sem íslenzku Reglustarfi og fulltrúum ís- lands var sýnt á öllum þessum hátíðahöldum. Að kveldi þessa dags var farið frá New York með lest áleiðis til Washington og kom ið þangað um morguninn 12. júní. Þann dag var höfuðborg in skoðuð og nágrenni henn- ar. M.a. komið í báðar deild- ír þingsins, og vildi þannig til að þá stuttu stund er dval ið var í Senainu, að þá var Róbert Taft að halda ræðu. Að kveldi þess dags var svo farið áleiðis til Chicago, og komið þangað morguninn eft ir. Þar mættj mér Richard Beck prófessor, sem einnig var fulltrúi Stórstúkunnar við hátíðahöldin. Þann dag var sett þing sambands bandarískra stórstúkna, og stóð það yfir í tvo daga 13.— 15. júní. Höfuöstöövar hátíða- haldanna í Chicago voru á La Salle hótelinu, og þar bjuggu flestir fulltrúanna. Um kveldið þ. 13. var fjöl- menn samkoma í Irving Park Lutheran Church, og fóru þar fram ræðuhöld, söngur og tónlistarflutningur. Næsta kveld var haldið samsæti í La Salle, með borðhaldi og voru þar samankomnir 750 manns. Þar flutti próf. Ric- hard Beck kveðjur frá Stór- stúkiu íslands. Föstudaginn 15., var settur hástúkufundur er stóð þann dag til kvelds. Honum var stjórnað af Ru- ben Wagnsson hátemplar. Á fundinum var 139 templurum veitt hástúkustig, sem er æðsta stig Reglunnar. M.þ. ér tóku það stig, var Richard Beck. Á fundinum voru flutt Skvrsla Indriða Indriðasonar, rit- liöfundar, er var fulltriii Stórstiiku Islnnds við hátíðahöidin ar kveðjur frá öllum Stór- stúkum er þar áttu fulltrúa, og flutti ég kveðju frá StSr- stúku íslands. Um kveldið var mjög fjölmenn samkoma í Medinah Templa ,sem er sam komuhús Frímúrara þar í borginni. Þar var söngur og tónlist, ræður fluttar og marg jr hinna erlendu fulltrúa kynntir mannfjöldanum. Borgarstjórj Chicagoborgar var þar viðstaddur og kynnt- ur hinum erlendu gestum. Þar flutti ræðu dr. Francis Mc Mahon varaform. félags sam einuðu þjóðanna í Chicago. Var ræða hans mjög sköruleg. Þar benti hann á m. a. hvern þátt segja mætti að félags- hreyfing Góðtemplara ætti í þvi að vinna að sameiningu þjóðanna og hvern skerf hún hefði til þess lagt á liðnum tíma. Lokaatriði þessarar sam komu, var íburðarmikil og á- hrifarík skrautsýning er sýndi þróun Reglunnar frá öndverðu. Samkomuna sátu um 2000 manns. 16. júni var ferðast um borgina. Sunnu- daginn 17. júní var útisam- koma 1 Góötemplaragarðin- um í Geneva, nokkuð utan við borgina. Er það stór og fagur garður og ber fagurt vitnj dugnaðj og smekkvísi templara. Þar var talið að samankomið væri um 50—60 þúsund manns. Voru þar fjöl breytt skemmtiatriði, en aðal ræðu dagsins flutti Ruben Wagnsson. Daginn eftir voru allir sjálfráðir ferða sinna, en á þriðjudagsmorgun var far- ið til Rockford, sem er bær skammt frá Chicago og er þar aðallega um að ræða alls kon ar stóriðnað. Var mönnum sýnt þar inn í fjölda verk- smiðja, margs konar vélaverk smiðjur og einnig t.d. fram- leiðslu á margs konar dúk- um úr ýmsum efnum. Þar var gist um nóttina og haldið til Chicago næsta dag. í Rock ford eru tvær öflugar stúkur, og er meiri hluti félaganna Svíar og fólk af sænskum ætt um, og eru Svíar styrkasta stoðin undir starfj reglunnar vestra yfirleitt. Fimmtudaginn 21. að morgni var haldið áleiðis til Minneapolis, en þar áttu há- tíðahöldin að halda áfram í boði Stórstúku Norðvestur- fylkjanna. Þangað var kom- ið um kveldið og farið rak- leitt á samkomu templara þar sem hinir aðkomnu gest- ir voru boðnir velkomnir. Þar voru mættir 2 Vestur-íslend- ingar, sem fulltrúar fyrir Stór stúkuna i Manitoba, Stefán Einarsson ritstj. HeimskrirTglu og Arinbjörn S. Bardal hinn þrautreyndi og víðþekkti for- ustumaður templara i Winni- peg og Manitoba, er hefir ver- ið stórtemplar þeirra um ára- tugi. Á föstudaginn var öllum gestunum boðið til hádegis- verðar í sænska þjóðfræða- safninu, og safnið síðan skoð- að. Það er í stórri höll byggðri í fornum stíl. Höll þessi og safn það, er hún hefir að geyma er gjöf frá sænskum miljónamæringi, er var eig- andi og ritstjóri sænsks viku blaðs í Minneapolis um ára- tugi. Öll innanhúss skreyting er úr sænsku efni og innflutt frá Svíþjóð. Tók það áratugi að byggja hana og safna því, er þar er að finna, en það er mjög fjölbreytt sýnishorn sænskra þjóðminja frá fyrri og síðari tímum. Að því búnu var ferðast um borgina og hún skoðuð. Minneapolis er ein með fegurstu borgum Bandaríkjanna, hvað snertir legu og landshætti. Fjöldi vatna stórra og smárra eru í borginni, umvafin fögrum skógarlundum og skemmti- görðum, og Missisippifljótið rennur í gegnum borgina. Að kvöldi þessa dags var haldið fjölmennt samsæt^ á undur- fögrum skemmtistað upp með Minnesota-ánni á stað, sem nefndist Bloomington. Þar voru ýmsir gestanna kynntir og margar ræður fluttar. Fluttum við Bardal þar kveðj ur frá stórstúkum okkar. Laugardaginn 23. júní var farið til St. Paul, sem er höf- uðborg Minnesota og áföst við Minneapolis, og þinghús fylkisins skoðað, en það er hin fegursta bygging. Fyrir framan aðaldyr þinghússins stendur risavaxin stytta af Leifi heppna. Tók Arinbjörn mynd af okkur Stefáni við fótstall þessa fræga landa okkar, sem þarna stendur vörð í umboði norskra amerí- kana. Inni í þinghöllinni hitt um við þá feðga, Valdimar Bjdrnsson fjá|rmátaráðherra og Gunnar föður hans, og átt um við þá nokkurt spjall. Báðu þeir feðgar fyrir kærar kveðjur til hinna fjölmörgu vina sinna á íslandi. Að þessu loknu va'r farið út í stórann skemmtigarð er Templarar eiga alllangt fyrir utan borg ina og eyddu menn deginum þar við margs konar skemmt anir. Sunnudaginn 24. voru við gestir á hinni árlegu sumar- hátíð Svía, „Svenskarnas Dag“, í Minnehaha-garðin- um. Þar talaði fjöldi manna, þ.á.m. hátemplar, ríkisstjóri Minnesota, Luther W. Young dahl, Svíi; borgarstjórinn í Minneapolis Eric G. Hoyer, sem er Svíi og virkur templ- ari; Björn G. Björnsson ræð- ismaður, bróðir Valdimars og m. fl. Er sólin hneig til viðar þennan heita og undurfagra dag, tóku templarar að kveðj ast og þakka hinar mörgu og ógleymanlegu samverustund ir, því þarna var lokið hinum samfejldu hátíöahöldum ald arafmælis Reglunnar, er staö ið höfðu í 14 daga. Ég fór daginn eftir til Grand Forks í N.-Dakota í heimsókn til prófessors Ric- hard Beck og dvaldi hjá hon- um og hinni ágætu frú hans í tvo daga. Þaðan fór ég síð- an til Winnipeg í heimboð til Arinbjarnar Bardal og dvaldi á heimilj þeirra Bardalshjón anna í 6 daga í hinu bezta yfirlæti. Hitti ég þar ^msa íslendinga og var hvarvetna vel tekið. Báðu margir þeirra fyrir kveðjur til vina heima, vil ég þar nefna þá ritstjór- ana Stefán Einarsson og Ein ar Pálsson, Hjálmar Gíslason og séra Valdimar Eylands, er allir hafa nýlega komið í heimsókn til íslands. Séra (Framhald á 3. síðu) P, S. (Ólsari) hefir sent mér pistil er hann nefnir: Heggur sá, er hlífa skyldi, og er tilefnið skemmtisamkoma í Staðarsveit, er talsvert hefir verið umtöluð. Gef ég svo Þ. S. orðið: „f Morgunblaðinu 8. júlí s. 1. birtist bréf frá S. E. Staðarsveit ungi, undir fyrirsögninni: „Æskumenn Ólafsvíkur skemmta sér“. Segir þar frá slæmri framkomu ölóðra pilta úr Ólafsvík á dansleik i Hof- görðum í Staðarsveit 30. júní sl. Að frásögn hlutlausra sjónar- votta mun frásögnin nokkuð ýkt og færð í stílinn, en látum það vera. ■ t . Það er ekki ætlun mín að ger ast málsvari þessara 4—5 pilta, er þarna voru að verki. Þeir fá sinn dóm, bæði réttvisinnar og almennings. Ég mun manna síð astur mæla bót ölæði og drykkju skap í hvaða mynd sem er. Mín sköðun er í stuttu máli — áfengi burt úr landinu og bruggarar og leynivínsalar í tugthús. En vegna þess, að í grein þessari á allt ungt fólk í Ólafsvik óskilið mál, get ég ekki orða bundizt. Á samkomu þessari var margt ungt fólk úr Ólafsvík, piltar og stúlkur, sem aldrei hefir neytt áfengis eða ávirðingu hlotið fyr ir slæma framkomu. Það er dregið í sama dilk. 1 stuttu máli er skoðun S. E. sú, að æskufólkið í Ólafsvík hafi verið og sé enn Staðsveitungum „til kvalar" og nauðsynlegt sé að vernda æsku lýð sveitarinnar fyrir „slíkum ófögnuði — slíkum lýð“, svo notuð séu orðatiltæki S. E. Ég er svo vel kunnugur hin- um ágætu forustumönnum U.M. F. Staðarsveitar, að ég veit að þeim er enginn greiði gerður með slíkum skrifum. Þeim er að maklegleikum vel til unga fólks ins í Ólafsvik, sem hefir sótt skemmtanir þeirra með afbrigð um vel og þar með hjálpað þeim til þess að reisa þeirra myndar lega félagsheimili. En skemmt- anir þar sem víðast haldnar í fjáröflunarskyni. Áreiðanlega munu þeir gefa unga fólkinu héðan góðan vitnisburð og ekki reikna þorpinu til vanvirðu, þótt einstakir piltar hafi stöku sinn um komið illa fram í ölæði. Ekki hafa ungu stúlkurnar spillt and rúmsloftinu, því það heyrir til , undantekninga, ef ung stúlka héðan sést reykjandi. En það þarf ekki nema einn gikkinn úr hverri veiðistöð svo allir frá sama stað hafi óorð af, ekki sízt, ef blaðaskrif koma til í sama tón og grein S. E. Sem betur fer eru þær skemmt anir fáar hér í sýslu, sem hleypt er upp af drukknum mönnum. En ef S. E. vill gæti ég rifjað þær upp fyrir honum og hverjir hafa verið þar að verki. Ætli það kæmi ekki í Ijós að flestir hrepp ar sýslunnar hafa átt og eiga sína svörtu sauði og margir hafa verið lengra að komnir. Ýmsir hér halda, að þessi S. E. Staðsveitungur, muni nýfluttur þangað og hann hafi hér áður fyrr bruggað og selt sprútt. Ef svo er, þá heggur sá, er hlífa skyldi. S. E. man líklega ekki eftir neinum áfloga- eða upp- hlaupsmönnum úr Staðarsveit frá liðnum árum? Veit hann ekki að einn þekktasti bruggari landsins hefir lengst af verið bú settur í Staðarsveit og þaðan streymdi, skulum við segja, sú lind, sem Staðsveitungar hafa alltaf viljað að ósi stemma. Sá hann engan drukkinn Staðsveit ung á umræddri skemmtun? Get ur hann afsannað, að einhver eða einhverjir umræddra pilta frá Ólafsvík hafi þetta kvöld bergt á gruggugri lind uppsprott inni af manna völdum í sveit hans? Eða að vínbúð á hjólum hafi freistað þeirra, sem veikir voru á svellinu? „Oft er sá vinur er til vamms segir“, en grein S. E. er ekki í þeim anda skrifuð. j B. A. úr Stykkishólmi skrifar í Alþýðublaðið 10. júlí um sömu skemmtun. Sú grein er með öðr um hætti, þó lýsingin sé ófögur. Honum er ljóst að ölæði og ribb aldaháttur við vín, er alþjóöar fyrirbrigði, sem uppræta þarf sem fyrst. Það skiptir minnstu máli hvaðan ölóður maður er, hann er hvorki Ólsari né Stað- sveitungur, hann er sjúklingur og þarf meðhöndlun sem slíkur. Óður maður er ekki látinn ganga laus, máttvana og sjúkur maður er ekki látinn liggja umhirðu- iaus. Ég er sammála B. A. um nauð syn löggæzlu á samkomum til sveita. En það þarf, meira en lögreglumenn með kylfur, hand járn og bíl. Það þarf einnig sjúkrabíl og lækni til þess að annast ofurölva menn, sem eng an berja og ekkert brjóta. Lög- reglubíllinn, kylfur og handjárn fyrir ribbaldana og hina bros- andi sýkilbera, leynivínsalana í fínu bílunum og bruggarana. Og að lokum. Það þarf öfluga lása fyrir allar áfengisbúðir, því á fengi er þjóðarböl“. * sni Látum við svo þessu spjalli lokið í dag. Starkaður. P.V.Y.V.'.V.V.V.’.Y.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.WW/A I FLORUSMJORLIKI Kókossmjör Kökiifciti Bög'glasmjör 30% ostnr 40% ostur Mysuostur HERÐUBREIÐ í j; Sími 2678 Í.WV.WAV/.VAV.V.W.'AVWð'.V.WW/.VVWlrt Gcrist áskrifendur að TÍMAIMUM

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.