Tíminn - 18.07.1951, Page 8
„ERLEiVT ÝFIRLII« t DAG:
Finnshu hosningarnar
35. árgangur.
Re.ykjavík,
Gagnkvæmar kennaraheim-
sóknir mjög mikilsverðar
Guðiiiunilnr S?jörnsson kennari á Akvnnesi
segir frá boðsför kennara tll Danmerknr
„Ferð okkar kennaranna til Danmerkur varð hin ánægju-
legasta og lærdómsríkasta, og ég íel gagnkvæmar kennara
heimsóknir milli Norðurlandanna hinar æskilegustu til auk-
ins skilnngs í starfi og meiri og betri samvinnu milli Norður
landanna“, sagði Guðmundur Björr.ssan, kennari á Akia-
nesi, er tíðindamaður biaðsins, átti tal við hann í gær, ný-
nýkominn heim.
18. júlí 1951.
158. blað.
Guðmundur var enn af
þeim tíu kennurum, sem fóru
til Danmerkur í boði danska
kennarasambandsins, en það
boð komst á m. a. fyrir frum-
kvæði frú Bodil Begtrup,
sendiherra Dana hér á landi,
sem ætíð leggur sig fram um
að auka og bæta vinsemd og
kynni íslendinga og Dana.
Fyrstu fimm dagana í
Kaupmannahöfn.
Kennararnr fóru utaxl með
Gullfossi 9. júní og lætur Guð-
mundur mjög vel yfir þvi,
hve förin og dvölin á skipinu
haf verð ánægjuleg, og hve
allur aðbúnaður, fyrirgreiðsla
og umhyggja hafi verið frá-
bær á skípinu.
Fyrstu fimm dagana var
dvalið í Kaupmannahöfn.
Bjuggu íslenzku kennararnir
á heirnilum stéttarbræðra
sinna í Kaupmannahöfn, skoð
uðu skóia, söfn og aðra merka
staði og sátu í veizlum og fagn
aði. Eini skugginn, sem þar
bar á, var sá, að einn íslenzku
kennaranna, Jóhannes Guð-
mundsson í Húsavík lenti í
umferðaslysi og meiddist
nokkuð, svo að hann varð
að leggjast í sjúkrahús, en ég
vona að hann hafi nú náð sér
segir Guðmundur.
Eftir dvölina í Kaupmanna
höfn dreifðumst við um land-
íð. Fórum við til dvalar á
heimilum kennara víðs vegar
Ég fór til dæmis til lítils bæj-
ar, sem heitir Langholt og er
norðan Limafjarðar og dvald
ist þar á heimili Larsens kenn
ara og konu hans. Var sú dvöl
hin bezta og allt gert til að
mér yrði hún sem ánægjuleg-
ust.
(Framhald á 7. síðu).
Nokkur síldarsölíun
í Húsavík síð-
ustu daga
Frá fréttaritara Tímans
í Húsavík.
Fyrsta síldin til söltunar
svo heiiið geti á þessu sumri
kom hingað á sunnudaginn
og var saltað nokkuð á sunnu
dag og mánudag. Voru það
Akranesbátarnir Ásbjörn og
Steinunn gamla, sem komu
með sílcl, ásamt heimabátun-
um Smara, Hagbarði og Pétri
Jónssyni. Er nú búið að salta
hér í Húsavík rúmar 509
tunnur.
Sláttur er almennt hafinn
í héraðinu og sums staðar
búið að hirða tún að mestu.
Spretta hefir verið léleg fram
að þessu en hefir batnað
nokkuð í vætum síðustu daga.
Bandarískur styrk-
ur til íslenzks
námsmanns
Chicagodeild Norræna fé-
lagsins í Bandaríkjunum
(Amer'can Scandiavian Fo-
undatioo) hefir tilkynnt ís-
lenzk-ameríska félaginu, að
deildin muni á þessu hausti
veita íslenzkum námsmanni
1000 dollara styrk til tveggja
ára, 500 dollara á ári, til náms
v;ð ameríska háskóla. Náms-
menn, sem lokið hafa fyrri-
hlutaprófi, eða stundað nám
í Iláskóla íslands 2—3 ár,
ganga fyrir við veitingu
styrks þessa.
Af sérstökum ástæðum er
umsóknarfrestur um styrk
þenna mjög stuttur, eða til
25. júli næstkomandi. Þeir,
sem hafa hug á að sækja um
styrk þenna eða óska frekari
upplýsinga um hann, snúi sér
t:l skrifstofu íslenzk-amer-
íska félagsins í Sambandshús
inu fyrir þann tíma.
Enn miðar nokkuð í
vopnahlésviðræð-
unum
Tveir fundir voru haldnir
í Kaesong í gær, og að þeim'
loknum sagði Joy flotafor-!
ingi, að nokkuð hefði m'ðað
áleiðis eins og fyrri daga. Á
fyrrj fundinum var rætt um
tillögur samninganefndar S.
Þ. um tdhögun dagskrár á
aðalvopnahlésráðstefnunni en
á hinum síðari um tillögur
sendinefndar norðurhersins.
Lítið var barizt í Kóreu í
gær, en flugvélar gerðu marg
ar stórárásir á samgöngu-
miðstöðvar og herstöðvar í
Norður-Kóreu.
, Myndin sýnir úrslitakeppnj í
I tennis á Wembledon við
London. Ástralíumaðurinn
I MacGregor og ungfrú Savetta
frá Bandaríkjunum eigast við.
Skíðafæri heim að
bæjardyrum um
miðjan júlí
Þó komið sé fram í miðj-
an júlí eru enn víða miklir
snjóskaflar á Austurlandi.
Á nokkrum bæjum niður á
Fjörur.um er snjórinn fast
við túujaðarinn í tiltölulega
litlum sköflum í gjótum og
gjám.
En á Brekku í Mjóafirði
hjá Vilhjálmi Hjálmarssyni
alþingismanni er vetur og
sumar á sama túni. Liggur
þykkur snjóskafl enn þar
ofan úr hlíð'nni ofan að
bæjardyrum, yfir túngirð-
ingu. Skíðin eru þar ekki
ennþá komin í surnar-
geymslu, enda getur heimil-
isfólkið, eða gat að minnsta
kosti í síðustu viku rennt
sér á þeini heim að bæjar-
dyrunum. Á öðrum stöðum á
túninu er hins vegar sum-
arlegt um að litast. Þar er
góð grasspretta og heyskap-
ur hafinn fyrir allmörgum
dögum og búið að hirða það
sem fyrst var slegið. Þannig
m'nnir snjórinn ennþá um
miðjan júlí á hinn ein-
stæða og snjóaþunga vetur
Austanlands.
Færeysk fiskiski
afia vei við Græniand
Fregnir frá Þórshöfn í Færeyjum herma, að allur sjór við
Grænland morj nú í fiski. Hvar sem öngli er rennt í sjó
er vitlaus fiskur. Fylla færeysku skipin sig af söltuðum
fiski á 8—12 dögum eftir stærð skipanna o. fl. Fiskur er á
öðrum hvorum öngli á línu og stundum næstum á hverju
járni. Stendur mest á aðgerðinnj vlð að fylla skipin. Fisk-
urinn er sæmilega vænn, feitur og góður.
Hinn nýi Belgíukon-
nngur vann eið
sinn í gær
Baudouin prins, elzti son-
ur Leopolds Belgíukonungs
vann í gær eið að stjórnar-
skránni og tók við konung-
dómi sem fimmti konungur
Belgíu. Athöfnin fór fram í
þinginu og síðan safnaðist
mikill mannfjöldi framan við
konungshöllina og söng ætt-
jarðarljóð.
Mislingar á tveim
stöðum í S.-Þing.
Frá fréttaritara Tímans
á Fosshóli.
Mislingar hafa fyrir
skömmu komið upp á tveimur
bæjum hér i Ljósavatnshreppi
samtímis. Á Arnstapa veikt-
:st fullorðinn maður, og mun
hann hafa smitazt inni í
Eyjafirði. í Garðshorni í Kinn
liggur einnig ung stúlka í
mislingum, og mun hafa smit
azt suður í Reykjavík. Er tal-
in hætta á, að mislingarnir
breiðist út og er það mjög ó-
heppilegt á þessum tíma, því
að margir í byggðarlaginu
hafa ekki fengið þá.
Siáttur er hafinn fyrir
nokkru. Tún eru lítt sprottin
en þurrkatíð hefir verið þar
til nú fyrir helgina að brá
til votviðra. Margir eru þó
búnir að hirða nokkuð.
Allmargir íslenzkir sjómenn
munu iiú vera við Grænland.
Hafa þeir komið sér fyrir í
skiprúm á færeyskum og
dönskum skipum. Þeir múhdu
sjálfsagc hafa orðið miklu
fleiri, er þannig hefðu komið
sér fyrir, ef vonir hefðu ekki
staðið til, að einhver útgerð
yrði héðan við Grænland í
sumar, sem einnig vel hefði
átt að geta orðið þar sem nær
fellt allur bátaflotinn hér hef
ir staðlð uppi aðgerðalaus
síðan í vertíðarlok, þótt flest-
ir bátarnir, en hvergi nærri
allir, manj nú komnir á síld,
en botnvörpungarnir hafa
lengst af aoeins haft lélegan
reitingsafla.
Færeyingar græða.
Síðan stríðinu lauk, hafa
Færeyir.gar stórgrætt á Græn
landsútgerðinni á hverju ein-
asta ári og varið gróðanum til
að stækka shipaflota sinn.
Eiga þeir nú álíka marga
botnvörpunga og íslendingar
og mesta sæg af linuveiða-
skipum frá 70 upp í 300 tonn
að stærð. Þótt Færeyingar
hafi smalað öllum, sem vettl-
ingi geta valdið — allt niður
í 14 ára drengi og jafnvel
yngri — á sk'pin, er nú svo
komið, að þá er farið að vanta
menn á þenna sívaxandi
skipasæg, því fólksfjöldinn á
Færeyjum mun ekki vera
nema rúmar þrjátíu þúsund
sálir.
Veiðar fram eftir hausti.
Reynslan er nú búin að
leiða það í ljós, að halda má
ve ðunum áfram við Græn-
land miklu lengra fram á
haustiö en hingað til hefir
verið gert, jafnvel fram að
áramótum, og aflinn er jafn-
vel meiri og betrj er líður á
haustið. Og heyrt hefir að
einhver sk p muni ætla að
halda út við Grænland allan
næsta vetur, og telji sér vís-
an mikinn og góðan afla, því
veðurfarið er hagstætt.
Miklar ópíumbirgðir
'
finnast í skipi
Fyrir nokkrum dögum fann
lögreglan í Stokkhólmi mestu
cpíumbirgðir, sem fundizt
hafa í' einu skipi í Sviþjóð.
j Var það í skipinu Star-Betel-
' geuze, sem s'glir undir fána
Panama. Fundust fimm1 kíló
{ af hrá-ópíumi falið í gömlum
: þvottadaftsöskjum.
j Hin sænska áhöfn skipsins
kveðst ekkert vfta um þetta
i og leikur grunur á, að ópíum-
ið sé arfur frá kínverskri
J skipshöfn, sem var á skipinu
fyrir sex mánuðum en var
j afskráð í Stokkhólmi og
• sænsk skipshöfn ráðin í stað-
' inn.
Harriman reynir að
koma á samn-
ingafundum
Harriman sendifulltrúi
Trumans forseta í Persíu hélt
tvo fundi með fréttamönnum
í gær, annan með innlendum
en hi.rn með erlendum.
Sagði hann, að erindi sitt væri
ekki málamiðlun heldur það
eitt að athuga möguleika á
því að koma á samningsfund
um milli stjórna Breta og
Persa.
Hann sagði, að Bandaríkin
væru fús til að veita Persiu
efnahagshjálp hvort sem sam
komulag næðist í olíudeilunni
eða ekki. Hins vegar væri það
álit sitt, að Persar ættu að
semja við Breta og mundu
þeir geta komið þjóðnýting-
unni á í áföngum
þrátt fyrir það, en góð sambúð
við Breta væri mikils virði.
Harriman ræddi vð utan-
rikisráðherra Persa í gær og
svo Shepherd sendherra Breta
í Teheran.
Katallnabátarnir
enn I Grænlandsffngi
í fyrrakvöld fóru Katalína
flugbátar Loftleiða, Dynjandi
og Vestfirðingur í þriðju
Grænlandsför sína með leið-
angursmenn dr. Lauge Koch.
Flogið var til Maríueyjar og
komið þaðan heim í gærmorg
un eftir 12 stunda útivist.
Norseman flugvélar Græn-
landsleiðangursins hafa bæki
stöðvar við Maríuey og sel-
flytja þær menn og vistir til
hinna ýmsu stöðva, sem eru
eigi alllangt frá Maríuey.
Fremur lágskýjað var í fyrri-
nótt yfir Grænlandi, en veður
að öðru leyti gott og gekk för
íslenzku flugvélanna að ósk-
,um. Enn munu Loftleiðir
fara til Grænlands, en eigi er
fullráðið hvenær sú för verð-
ur farin.
við Spáuverja
nm varnlr V.-Evrópu
Sherman aðmíráll banda-
riska flotans er nú staddur í
Madrid og ræðir við spænsk
stjórnarvöld og hernaðaryfir
völd um varnir Vestur-Evr-
ópu. Talsmaður brezku stjórn
arinnar sagði í gær, að Bretar
væru andvígir því, að Spán-
verjum verði boðin þátttaka
í Atlantshafsbandalaginu eða
höfð samskipti við þá um varn
ir Vestur-Evrópu, þar sem
stjórnarhættir þeirra séu and
stæðir öllum öðrum ríkjum
þessarar samvinnu.