Tíminn - 27.07.1951, Síða 2
2.
TIMINN, föstudaginn 37. júlí 1951.
166. blað.
')tá ftafi til heiía
ÚtvarpÍð
ítvarpað í dag:
Kl. 8,00—9,00 Morgunútvarp.
10,10 Veðurfregnir. 12,10—13,15
Hádegisútvarp. 15,30 Miðdegis-
útvarp. 16,25 Veðurfregnir. 19,25
Veðurfregnir. 19,30 Tónleikar:
Harmonikulög (plötur). 19,45
Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20,30
Útvarpssagan: ,,Faðir Goriot“
eftir Honoré de Balzac; XIII.
(Guðm. Daníelsson rithöfund-
ur). 21,00 Tónleikar: Lög eftir
Áskel Snorrason (plötur). 21,20
Iþróttaþáttur (Sigurður Sigurðs
son). 21,35 Tónleikar (plötur).
21,40 Erindi: Rotary og þróun
mannsandans (eftir Frank
Spain formann alþjóðlegra Ro-
tarysamtaka, — Helgi Tómasson
dr. med. þýðir og flytur). 22,00
Fréttir og veðurfregnir. 22,10
Vinsæl lög (plötur). 22,30 Dag-
skrárlok.
Útvarpað á morgun:
Kl. 8,00—9,00 Morgunútvarp.
10,10 Veðurfregnir. 12,10—13,15
Hádegisútvarp. 15,30 Miðdegis-
útvarp. 16,25 Veðurfregnir. 19,25
Veöurfregnir. 19,30 Tónleikar:
Samsöngur (plötur). 19,45 Aug-
lýsingar. 20,00 Fréttir. 20,30 Tón
ieikar: Tríó í G-dúr eftir Haydn
(plötur). 20,45 Leikþáttur:
,,Hraði“ eftir Heiðabúa. (Leik-
stjóri: Þorsteinn Ö. Stephen-
sen). 21,00 Tónleikar: Gene Aut-
ry syngur kúrekalög (plötur).
21,20 Upplestur: Regína Þórðar-
dóttir leikkona les smásögu. 21,45
Gömul danslög (plötur). 22,00
Fréttir og veðurfregnir. 22,10
Danslög (plötur). 24,00 Dagskrár
lok.
Hvar eru skipin?
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavík og fer
þaðan næstkomandi mánudag
til Glasgow. Esja er á Austf jörð-
um á norðurleið. Herðubreið er
a Austfjörðum á suðurleið.
Skjaldbreið á að fara frá Reykja
vík í kvöld til Húnaflóahafna.
Þyriil er á leið frá Norðurland-
inu til Hvalfjarðar. Ármann var
í Vestmannaeyjum í gær.
Eimskip:
Brúarfoss er á Dalvík. Detti-
íoss er væntanlegur til Reykja-
vikur í dag frá New York. Goða-
foss fer væntanlega frá Hull í
dag til Reykjavíkur. Gullfoss er
í Kaupmannahöfn. Lagarfoss er
á Húnaflóahöfnum. Losar síld-
artunnur. Selfoss er í Reykjavík.
Tröllafoss er á leið til Siglufjarð
ar frá Lysekil. Hesnes fermir í
Antwerpen og Hull í lok júlí.
Flugferðir
Flugfélag íslands:
Innanlandsfiug: í dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Vestmannaeyja, Kirkju- ,
teæjarklausturs, Fagurhólsmýr- ‘
ar, Hornafjarðar og Siglufjarð- 1
ar. Frá Akureyri verður flugferð
til Austfjarða. Á morgun eru á-
ætlaðar flugferðir til Akureyrar ,
<kl. 9,30 og 16,30), Vestmanna-
eyja, Blönduóss, Sauðárkróks,
ísafjarðar, Egilsstaða og Siglu-
ijarðar.
Millilandaflug: Gullfaxi er
væntanlegur til Reykjavíkur kl.
22,00 í kvöld frá Stokkhólmi og
Osló. Flugvélin fer til Kaup-
mannahafnar og Osló kl. 8,00 í
íyrramálið.
Loftleiðir h.f.
1 dag er ráðgert að fljúga til
Vestmannaeyja, ísafjarðar, Ak-
ureyrar, Siglufjarðar, Sauðár-
króks, Hólmavíkur, Búðardals,
Hellisands, Patreksfjarðar, Bíldu
dals, Þingeyrar, Flateyrar og
Kefiavíkur (2 ferðir). Frá Vest-
Hvað heitir maðurinn
á Austurvelli?
Hér í blaðinu var fyrir all-
löngu á það minnzt, að það
væri með öilu óviðunandi, að
engin nafnletrun eða kynning
væri á styttu Jóns Sigurðsson-
ar á Austurvelli. Úr þessu hefir
ekki verið bætt enn, og verða
menn þó daglega varir við það,
hve þetta er illt. 1 gær var sér-
staklega margt útlendinga á
gangi hér í bænum eins og
raunar oft áður í sumar, og
flestir lögðu ieið sína um Aust-
urvöll. Þessir útlendingar stað
næmdust við stvttuna, gengu í
kringum hana og horfðu á
hana frá öllum hliðum auðsjá-
anlega í leit að einhverri áletr
un, er gæfi tll kynna, hver sá
hinn vörpulegi maður væri, er
stæði þar og valinn væri slíkur
heiðursstaður í hjarta bæjar-
ins. Þegar engin áletrunin
fannst, sneru þeir sér að ein-
hverjum Islendingi og spurðu.
Það er ekki nóg að tala um að
Island geti verið ferðamanna
land, en uppfylla svc ekki sjálf
sögðustu menningarskyldur við
ferðamenn — og raunar Islend
inga líka. Hvenær ætla þeir,
sem hér eiga hlut að máli —
bær eða ríki — að sneypast til
að sýna almenna kurteisi og
kynna Jón Sigurðsson?
mannaeyjum verður farið til
Hellu og Skógasands.
Á morgun verður flogið til
Vestmannaeyja, Isafjarðar, Ak-
ureyrar og Keflavíkur (2 ferðir).
Árnað heuta
Gullbrúðkaup
eiga í dag hjónin frú Jóhanna
Oddsdóttir og Eysteinn Finnsson
bóndi að Breiðabólstað á Skóg-
arströnd.
r
Ur ýmsum áttum
Knattspvrnulög KSt,
reglugerð KSl um knatt-
spyrnumót og fleira, er nýlega
komin út. Er þetta fimmta út-
gáfa af lögunum, gefið út af til-
hlutan iþróttasambands ís-
lands. 1 formála segir Jón Sig-
urðsson, formaður Knattspyrnu
sambands íslands: Knattspyrnu
lögin voru fyrst gefin út á ís-
lenzku 1916, og önnur útgáfa
þeirra í þýðingu Ben. G. Waage.
1938 kom út 3. útgáfa laganna í
þýðingu Friðþjófs Thorsteins-
sonar og Helga Tryggvasonar,
og var hún endurprentuð ó-
breytt 1946. Sú útgáfa er nú ó-
fáanleg, og var því ráðizt í að
gefa lögin út í 5. sinn.
Við samanburð á 4. útgáfu og
nýjustu erlendum útgáfum lag-
anna kom í ijós, að hún var orð-
in úrelt, enda hafði farið fram
endurskoðun laganna frá því að
hún var prentuð. Stjórn Knatt-
spyrnusambands íslands ákvað
því að láta þýða lögin að nýju 1
eftir „Rederees Chart and Play- j
ers Guide of the Laws of the
Game 1949“, og fól hún Karli
Guðmundssyni og Pétri Sigurðs-
syni að annast þá þýðingu og
búa hana undir prentun.
Lögin birtast því hér í nýrri
þýðingu, en þýðendur töldu ó-
þarft að breyta nokkru í skýr-
ingarköflunum í 4. útgáfu, um
rangstöðureglur og samstarf
dómara og línuvarða,_ þar sem
engar breytingar hafá á þeim
orðið, og eru því prentaðar hér
í sömu mynd og í þeirri útgáfu.
Þessi útgáfa mun bæta úr
brýnni þörf, og er það von mín,
að hún komi dómurum, linu-
vörðum, leikmönnum og öðrum
aðilum að sem beztu gagni".
Dagskrá norræna
kvennamótsins.
Ferð til Gullfoss, Geysis og
Laugarvatns í dag. Nesti snætt
meðan beðið er eftir gosi í Geysi,
Á Laugarvatni verður snæddur
miðdegisverður. Á morgun verð-
ur gengið um bæinn fyrir há-
degi og safn Einars Jónssonar
skoðað. Kl. 13,30 hefst fundur í
Tjarnarbíó, en síðar um daginn
verður móttaka hjá norrænu
sendiherrunum. Kl. 19 verður
farið til Hafnarfjarðar og Krísu
víkur og skoðuð mannvirkin þar
og hverasvæðið.
Þjófnaðurinn vlð
Laugaveginn.
Piltur sá, sem stal peningun-
um úr stofuskápnum á Lauga-
veg 72 á mánudaginn var og
sagt var frá hér í blaðinu í gær,
heitir Ingi Sigurður Sturlaugs-
son Fjeldsted.
Ferðafélag íslands
ráðgerir að fara hringferð um
Krísuvík, Selvog, Strandarkirkju
og Þingvöll næstk. sunnudag.
Lagt af stað kl. 9. Ekið suður
með Kleifarvatni til Krísuvíkur
og Selvog að Strandarkirkju og
verið þar við guðsþjónustu, þá
haldið um Ölvus suður fyrir Ing-
ólfsfjall upp með Sogi um Þing-
völl til Reykjavíkur. Farmiðar
seldir til hádegis á laugardag.
Viðtal Morrisons
sent til Pravda
Morriáon utanríkisráðherra
Breta er nú kallaður í gamni
„blaðamaður við Pravda." —
Morrison skoraði fyrir nokkru
á Pravda að birta viðtal víð
sig og birta orðrétt um af-
stöðu vesturveldanna t:l
heimsmálanna. Pravda hefir
nú tekið boðinu, þótt það
byggist hins vegar við, að á
því yrði mikið tap fyrir blað-
ið, því að upplag þess mundi
mjög lækka þann daginn. —
Morrison telur hins vegar, að
Pravda muni vel geta boriö
það tap, og nú hefir hann
svarað spurningum ritstjóra
Tass-fréttastofunnar í Lon-
don og viðtalið hefir verið
sent til Pravda. Grein n öll
var 1500 orð.
Þótt flestir líti á þetta sem
hálfger gamanmál.bíða stjórn
málamenn þess með nokkurri
eftirvæntingu að sjá grein-
ina í Pravda og vænta nokk-
urs árangurs af henni. Und-
anfarnar vikur hefir ríkt
„varkár bjartsýni" ef svo
mættj segja um það, að Rúss- 1
ar væru fúsari til samkomu-
lags en áður. Þykir ræða sú, \
sem Molotov flutti á dögun-
um í Prag benda í þá átt. —
Hann fór ekki eins hörðum
orðum um vígbúnað og styrj-
aldarvilja vesturveldanna og
hann er vanur, heldur lét Tí-
to hafa það þess óþvegnara.
Sagði hann, að fullvíst væri,
að stjórn Titós gæti ekki orð-
ið langlíf úr þessu.
--------------------------|
Vopiialiléið
(Framhald ar l. síðu.r
mesta ágreiningsatriðið mun
þó verða brottflutningur er-
lends herliðs.
Nokkuð var barizt í Kóreu í
gær einkum á austurvígstöðv
unum og loftárásir voru
gerðar.
| Sumardvöl
| Hlíðarsskóli í Öiíusi tekur á móti gestum til sumar- |
| dvalar. Friðsælt umhverfi góð aðhíynning, sanngjarnt I
| verð. ý ’ ,■ í |
Pöntunum veitt viðtaka í ísma 3899.
llllllltllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllMIIIIMilllMIIMIIimtlMMItlllllllllllMlimilllllllllllllllllMllllltllllMllllM
MIIMIMIMIIIIIMMM......
ARNESINGAR
Gömlu og nýju dansarnir
1 verða að Félagslundi Gaulverjabæ, laugardaginn 28, |
| kl. 10 e. h.
S. Ó. S. kvartettinn leikur fyrir dansinum.
j £
U. M. F. Samhygð
iiimimmimimmmmiimimmiiimmiiimmimimiimmiiimmmmiiimmmmhmmimmmhmimiimimimmmiiimmmmimimiuiiimiimiT
Frestur til að kæra
til Yfirskattanefndar Reykjavíkur
út af úrskurðum skattstjórans i Reykjavík og Niður-
jöfnunarnefndar Reykjavíkur á skatt- og útsvarskær
um, kærum út af iðgjöldum atvhmurekenda og trygg
ingariðgjöldum, rennur út þann 9. ágúst n. k.
Kærur skulu komnar í bréfakassa Skattstofu
Reykjavíkur á Alþýðuhúsinu fyrir kl. 24 þann 9. ágú-st
næstkomandi.
Yfirskattanefnd Rvíkur
l•MMIMMMMMMMIM■MMMMMMIIMMMMMMMMMMMMIIMMIMMIMMMIIMIMMMIMIIMMMMMIMIMII•IIMIIIUUIUil
Sirkusstúlkan
Ógleymanleg og töfrandi ástarsaga,
sem hefir náð geysilegum vínsældum
víða um hcim.
: c
Þetta er sumarleyf isbókin \ ár
S UDRI. |
1111111111111101111111111111 iiiiiiiiimm ii imiiiiiiiuiiMiimiiu iii imiiiiiii ii iii mi(iiiiiiiiiiM iii ii imiiiiimiiMiiiiiiMiiiiiii