Tíminn - 18.08.1951, Síða 3
185. blað.
TÍMIN. laugardaginn 18. ágúst 1951.
3.
Svik við þjóðfélagið
Meistaramót
Síðasta áratuginn hefir
landbúnaðurinn verið horn-
reka í hinu íslenzka þjóðfé-
lagi. Til hans hafa aðeins fall-
ið molar af veizluborði stríðs-
gróðans. Þegar stjórn Ólafs
og Brynjólfs tók að sér að
breyta sköpunarverkinu, var
áætlun við framkvæmdina
300 milljónir. Af þeirri upp-
hæð átti Vfe að fara til land-
búnaðarins, en efndirnar urðu
þær, að stór hluti af þeirri
upphæð kom aldrei til skila.
Þannig voru þakkirnar til
þessa aðalatvinnuvegar, sem
hafði fætt og klætt þjóðina
í þúsund ár. Auk stríðsgróð-
ans voru gjaldeyristekjur
þessara ára óhemjumiklar
fyrir hagstætt afurðaverð. —
Með heiðarlegri og skynsam-
legri fjármálastjórn höfðu
valdhafarnir sérstakt tæki-
færi til að gera stór átök og
skapa jafnvægi í þjóðfélag-
inu.
Hefði heimingi þess fjár-
magns verið varið í stórfelld-
ar ræktunarframkvæmdir,
jarðvinnsluvélar, til bygginga
í sveitum og rafvirkjana væri
öðruvísi um að litast í sveit-
um landsins en raun ber vitni
um.
En fjármagnið fór aðra
leiö ,heil bæjarhverfi á stærð
við Akureyri voru bvggð í
skyndi í Reykjavík, stórbygg-
ingar og kanslarahallir. Þess-
ar óhemju byggingafram-
kvæmdir kostuðu þjóðina
marga tugi milljóna og auk
þess drógu þær að sér vinnu-
afl úr öllum landshlutum. svo
sures staðar lá við landauðn.
Þetta var þó ekki nema part-
ur af sköpuihnni. 100 bátar
voru ýmist smíðaðir eða keypt
ir í hasti, fcíórkostlegar síid-
arverksmiðjur, byggðar fyrir
milljóna^ugi ,sem flestar eru
nú þögul í.iinnisreerki um þá
miklu „i ýsl'.öpun.“
Tcgaraflcti var keyptur með
ríkislánum og rikisáuyrgð. —
Þeir slðustu 10 kcstuðu um
90 millj. Af þeirri upphæð
eru 90% nkislán e.g aoyrgð
og flestir teija það vonarpen-
ing fyrir ríkissj óðinn, þó ekki
sé meira sagt. — í Reykjavík
eru þúsundir af bifreiðum um
allar götur og torg, á einu
góðviðriskvöldi voru við í-
þróttavöllinn meðan knatt-
spyrna fór þar fram, taldar
600 bifreiðar.
Það skal engan furða, þó
litið væri eftir handa elzta
og tryggasta atvinnuveginum,
landbúnaðinum, enda reynd-
ist það svo. Þegar bændur
voru að sækja um leyfi fyrir
dráttarvélar til jarðvinnslu
og heyvinnu, var það eins og
úr tangarkjafti togað. Þá var
alltaf borið við gjaldeyris-
skorti og ekki nema smábrot
af þeim, sem sóttu, fengu
þessi nauðsynlegu hjálpar-
tæki.
Það má heita, að lánsstofn-
anirnar hafi verið lokaðar
fyrir landbúnaðinum. Lána-
deildir Búnaðarbankans hafa
verið nær félausar um lang-
an tíma á sama tima og ríkir
menn í Reykjavík byggja yf-
ir sig fyrir hálfa og heila
milljón, er bændum ætlaðar
kr. 45 þús. til að byggja upp
á jörðum sinum og nú sem
stendur er þessi upphæð ekki
til.
Á sama tíma og ríkið réttir
80 milljónir í 10 togara, er
verið að bollaleggja að útvega
nú landbúnaðinum 15 millj.
að láni!
Ef 15 milljónum verður
skipt á milli 6000 bænda fær
hver þeirra kr. 2500! Þessi að-
stoð til bændastéttarinnar er
þá álíka mikil og hinn aldni
Hæringur kostar, sem liggur
hér í höfninni. — Sjálfstæð-
ismenn geta verið stoltir af
stuðningi sínum við landbún-
aðinn síðasta áratuginn! Og
það getur Valtýr Stefánsson
hugleitt næst, þegar hann lit
ast um af brún Vaðlaheiðar,
að framkvæmdir í Eyjafirði
eru ekki verk stjórnmála-
manna íhaldsins, heldur
handaverk dugmikils bænda-
fólks. Abc.
Áætlunarferðir
frá Kaupfélagi Árnesinga
Stokkseyri
Eyrarbakki
Selfoss
Hveragerði
Alla daga sumar og vetur
Reykjavík
Frá Stokkseyri kl. 9,30 f.h.
— Fyrarbakka — 10,00 —
— Selfossi — 10,30 — og kl. 4,00 e.h.
— Hveragerði — 11,00 — og —. 4,30 e.h.
Frá Reykjavík tvisvar á dag kl. 9. f.h. og 6,30 e.h.
Kvöidíerðir frá Stokkseyri alla sunnudaga kl 9 e.h. yfir
sumartímann.
Fljótar ferðir. — Traustir og góðir bílar.
Afgreiðsla í Reykjavik hjá Frímanni, Hafnarhúsinu.
Afgreiðsla austan fjalls í útibúum vorum og á Selfossi
í Ferðaskrifstofu K. Á.
Kaupfélag Árnesinga
K::::;:::::«:::::::::an:::::::::n:::::::a::::n::::a::::::::::::
Suðnrnesja
Meistaramót Suðurnesja
fór fram dagana 7., 8. og 9.
ágúst. Þrjú félög tóku þátt í
mótinu, U.M.F. Keflavík, U.
M. F. Garður og Knattspyrnu
félag Keflavíkur.
Kalsaveður var fyrstu tvo
keppnisdagana og háði það
að sjálfsögðu keppendum tals
vert. Úrslit í einstökum grein-
um urðu sem hér segir:
200 m. hlaup.
1. Böðvar Pálsson, K. 23,3
2. Jóhann Bended. K. 23,6
3. Einar Ingimundass. K 23,8
4. Björn Jóhannss. K. 23,9
Kúluvarp.
1. Þorvarður Arinbj.s. K 12,30
2. Gunnar Sveinbj.s. G. 12,16
3. Kristj. Péturss. K.F.K 11,00
4. Ingvi B. Jakobss. K. 10,80
Kringlukast.
1. Einar Þorsteinsson K 38,15
2. Kristj. Péturss. K.F.K. 36,70,
3. Ingvi B. Jakobss. K 36,01
4. Þorvarður Arinbj.son K.
800 m. hlaup.
1. Hörður Guðm.son K 2:10,5
2. Þórh. Guðjónsson K 2:16,4
3. Björn Jóhannss. K 2:22,4
4. Ólafur Jónsson, K. 2:29,3
5. Guðf. Sigurv.son, K. 2:29,4
100 m. hlaup.
1. Böðvar Pálsson, K. 11.5
2. Hólmgeir Guðm.son K. 11,9
3. Þorbergur Friðr.son K 12,0
4. Einar Ingimundars. K 12,1
Spjótkast.
1. Ingvi B. Jakobsson, 49,10
2. Hólmgeir Guðm.son K 46,35
3. Þorv. Arinbj.son, K 43,02
4. Friðjón Þorleifss. K 41,41
Hástökk.
1. Jóh'. R. Bened.son, K 1,70
2. Ingvi B. Jakobss., K 1,55
3. Hólmgeir Guðm.son K 1,50
4. Einar Ingimundars. K 1,50
1500 m. hlaup.
1. Hörður Guðm.son, K 4:33,9
2. Þórh. Guðj.son, K 4:33,9
3. Guðf. Sigurvinss. K 5:08,1
400 m. hlaup.
1. Böðvar Pálsson, K 55,2
2. Hörður Guðm.son, K 55,9
3. Þórh. Guðjónss. K 57,4
4. Björn Jóhannss., K 61,2
Langstökk.
1. Friðjón Þorleifss., K 5,70
2. Björn Jóhannss., K 5,54
| 3. Einar Ingimundars. K 5,32
!4. Þorbergur Friðrikss. K 5,28
Þrístökk.
1. Einar Ingim.son, K 11,62
12. Björn Jóhannss., K 11,59
3. Þorbergur Friðr.s., K 11,03
Sleggjukast.
1. Þorvarður Arinbj.s. K 35,51
12. Sigurður Brynjólfss. K 34,23
3. Einar Ingim.son, K 31,82
4. Þorbergur Friðr.son.K 26,90
1000 m. boðhlaup.
1. B-sveit U.M.F.K. 2:18,6 m.
2. C-sveit U.M.F.K. 2:30,3 m.
4x100 m. boðhlaup.
1. A-sveit U.M.F.K. 47,2 sek.
2. B-sveit U.M.F.K. 49,2 sek.
3. Sveit eldri manna úr Kefla
vík, 64,1 sek.
Böðvar Pálsson frá U.M.F.
Keflavík hlaut flest einstakl-
ingsstig, samtals 15 stig.
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
Það má með sanni segja,
að árangur keppenda sé ágæt-
ur, þrátt fyrir kalsaveður.
Kauptúnið á bökkum Blöndu
Margir, sem leið eiga um
Blönduós, láta i ljósi það álit
sitt, að þar sé sviplítið og ólif
vænlegt. Koma þeir auga á
fátt eitt af því, sem staðnum
má verða til framdráttar.
Veldur þessu að sjálfsögðu
það, að fólk, sem er á hraðri
ferð, hefir hvorki tíma né
tækifæri til að kynnast staðn
um og íbúum hans.
Það er að vísu satt, að út-
sýni er ekki mikið á Blöndu-
ósi, þar sem hann er um-
luktur allháum brekkum á
þrjá vegu, sem byrgja fyrir
allt útsýni inn til héraðsins,
en í norðvestri rísa Stranda-
fjöllin í fjarska og í norð-
austri Skagastrandarfjöllin
með drottningu sína, Spákonu
fellsborg, stílhreina og tign-
arlega. Sjálft er Blönduóss-
kauptún vinalegt og tölu-
verðan tignarsvip setur
Blanda á umhverfi sitt, ekki
sízt þegar berserksgangur er
á henni.
Vöxtur byggðarinnar.
Það er ekki fyrr en eftir
1875, að Blönduós hefir feng-
ið löggildingu sem verzlunar-
staður, að byggð fer að rísa
þar upp. 1876 er það aðeins
einn maður, sem á þar lög-
staðnum og bera auk þess
drjúgan hluta af opinberum
gjöldum þar. _
í kauptúninu eru starfandi
tvö trésmíðaverkstæði, eitt
verkstæði, er stundar jöfnum
höndum tré- og járnsmíði,
vélsmiðja, rörsteypa, sauma-
stofa og brauðgerðarhús.
Fyrir nokkrum árum var
skipavinna allmikil atvinnu
bót fyrir Blönduósinga, en nú
hefír sú vinna að mestu leyti
flutzt til Höfðakaupstaðar, síð
an hafnarskilyrði bötnuðu
þar. Nokkuð hefir verið unn
ið að lengingu bryggjunnar
á Blönduósi, en langt mun
það eiga í land, að þar komi
sæmileg höfn. Á Blönduósi,
eins og svo víða annars stað
ar, skortir mjög á, að
vinna sé nægjanleg fyrir
verkamenn yfir vetrarmánuð
ina, en margir reyna að bæta
sér það upp með þvi að hafa
fáeinar skepnur, heyja handa
þeim í tómstundum að sumr
inu og stytta sér svo stundir
að vetrinum við hirðingu á
þeim, drýgja margir þeirra
tekjur sínar all verulega á
þennan hátt.
Héraffshælið fyrirhugaða.
Hótel Blönduós er rekið af
Blönduós að vetrarlagi, séð vestan af brekkunni austur yfir.
kauptúnið beggja megin árinnar. (Ljósm.: Björn Bergmann)
heimili, en úr þvi fer að
smá fjölga þar, jafnhliða því,
sem verzlunin færist í auk-
ana. Nú eru íbúar þar um
460.
Blönduós er byggður úr
löndum jarðanna Hjalta-
bakka og Ennis. Sérstakt
hreppsfélag verður hann ekki
fyrr en 1914, að sá hluti hans
er liggur sunnan Blöndu og
byggður er úr Hjaltabakka-
landi, var skilinn frá Torfa-
lækjarhreppi. En sameinað í
eitt hreppsfélag var kauptún
ið 1936.
Skömmu fyrir aldamótin
var kirkja reist á Blönduósi,
en Hjaltabakki þá um leið
lagður niður sem kirkjustað-
ur. Blönduósingar búsettir
norðan Blöndu áttu þó eftir
sem áður kirkjusókn að
Höskuldsstöðum og eiga enn.
En um næstu áramót munu
þeir sameinast söfnuði
Blönduósskirkju. r
Verzlun og iðnaður
meginstoðirnar.
Verzlun og iðnaður eru
veigamiklir þættir í atvinnu-
lífi Blönduósinga. Verzlanir
eru þar átta talsins, svo hin
frjálsa samkeppni fær notið
sín þar, svo sem vera á. Sam-
vinnufélögin: Kaupfélagið,
Sláturfélagið og Mjólkurstöð-
in nýja eru mikil lyftistöng
fyrir kauptúnið. Eru þau
stærstu vinnuveitendurnir á
miklum dugnaði og myndar-
skap. Lseknissetur og sjúkra-
hús sýslunnar er á Blönduósi.
Sjúkrahúsið er orðið ófulL-
nægjandi, enda er það eitfc
aðal áhugamál Húnvetninga
að koma sem fyrst upp hinic
fyrirhugaða héraðshæli.' Er
unnið af miklum dugnaði og
fórnfýsi af ýmsum félögum
og félagasamböndum í hérað-
inu að fjáröflun í því skyni,
og héraðslæknirinn, Páll V.
Kolka, gaf í hælissjóðinn sem
kunnugt er allan ágóða, seni
verða kann af útgáfu bókar-
innar Föðurtún, sem út kom.
eftir hann á s. 1. vetri og
seldist mjög vel.
_.j
Kvennaskóli í hálfa öld.
Kvennaskóli Húnvetninga
hefir i hálfa öld sett svip sinn
á Blönduós. í byrjun október
næsta haust eru fimmtíu ár
liðin frá því hann var settur
þar í fyrsta sinn, en þá um
haustið var lokið við bygg-
ingu skólahússins. Það hús
brann í febrpar 1911, en árið
eftir var núverandi skólahús
reist á sama stað.
í hálfa öld hefir kvenna-
skólinn á Blönduósi veitt ung
um stúlkum úr Húnavatns-
sýslu og viðs vegar að af land
inu haldgóða menntun til
munns og handa, og ótaldar
eru þær ungu utanhéraðs
stúlkurnar, sem að loknu
(Framhald á 6. síðu)