Tíminn - 19.08.1951, Side 2
2.
JÍMINN, sunnudaginn 19. ágúst 1951.
186. blað.
'Jtá kafi tii
Hver er læknirinn?
Helgiðagslæknir.
á sunnudaginn er Friðrík
Einarsson, Efstasundi 55, sími
6565.
Utvarpið
Útvarpið í dag:
8,30—9,00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 11.00 Messa
í Hallgrímskirkju (séra Sigur-
jón Árnason). 12.15—13.15 Mið-
degistónleikar (plötur). 16.15
Fréttaútvarp til íslendinga er-
lendis. 16.30 Veðurfregnir. 18.30
Barnatími (Þorsteinn Ö. Steph-
ensen). 19.25 Veðurfregnir. 19.30
Tónleikar: Píanólög eftir Chop-
in (plötur). 19.45 Auglýsingar.
20.00 Fréttir. 20.20 Tónleikar
(plötur). 20.35 Erindi: Gleymd
orð, en gild (Sigurbjörn Einars
son prófessor). 21.00 Tónleikar.
21.30 Upplestur: „Þrælar ástar-
innar“ smásaga eftir Knut Ham
sun. (Þýðandinn, Hannes Sig-
fússon, les.) 21.50 Tónleikar
(plötur). 22.00 Fréttir og veð-
urfregnir. 22.05 Danslög (plöt-
ur). — 23.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á moi-gun: ^
Fastir liðir eins og venjulega.
20.20 Útvarpshljómsveitin; Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar.
20.45 Um daginn og veginn
(Andrés Kristjánsson, blaðam.).
21.05 Einsöngur: Ria Ginster
syngur (plötur). 21.20 Erindi:
Tvær norrænar höfuðborgir; H.
Kaupmannahöfn (Thorolf
Smith blaðamaður). 21.45 Tón-
leikar: Geraldo og hljómsveit
hans leika (plötur). 22.00 Frétt-
ir og veðurfregnir. Síldveiði-
skýrsla Fiskifélags íslands. 22.20
íþróttaþáttur (Sigurður Sigurðs
son). 22.40 Dagskrárlok.
Hvar eru skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell er á Akureyri. Arn
arfell fór í gærmorgun frá Brem
en, áleiðis til Stettin. Jökulfell
fór frá Valparaiso 14. þ.m. á-
leiðis til Guayaquil, með við-
komu í Talara.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Patras 16.8.
væntanlegur til Pireaus 18.8.
Dettifoss kom til New York 16.8.
frá Reykjavík. Goðafoss fór frá
Siglufirði í morgun 18.8. til
Drangsnes og Breiðafjarðar-
hafna. Gullfoss fór frá Reykja-
vík kl. 12 á hádegi í dag 18.8.
til Leith og Kaupmannahafn-
ar. Lagarfoss fer frá Leith í
dag 18.8. til Reykjavíkur. Sel-
íoss er í Reykjavík. Tröllafoss
fór frá Reykjavík 15.8. til New
York. Hesnes kom til Reykjavík
ur 16.8. frá Hull.
Ríkisskip:
Hekla fór frá Glasgow í gser
áleiðis til Reykjavíkur. Esja var
á Akureyri síðdegis í gær.
Herðubreið er í Reykjavík.
Skjaldbreið er á Húnaflóa. Þyr-
ill var í Hvalfirði í gær. Ármann
er í Reykjavík.
Flugvélin fer til London kl. 8,00
á þriðjudagsmorgun.
Loftleiðir:
1 dag er áætlað að fljúga til
Vestmannaeyja, Akureyrar og
Keflavíkur (2 ferðir).
Á morgun á að fljúga til Vest
mannaeyja, fsafjarðar, Akur-
eyrar, Hellissands og Keflavíkur
(2 ferðir).
Arnab heulo
Trúlofun.
Birt hafa trúlofun sína stúd-
ent Þórdís Hilmarsdóttir, banka
stjóra Stefánssonar, og stud.
phil. Gunnar Ragnarsson frá
Hrafnabjörgum, Arnarfirði.
Flugferðir
Flugfélag íslands:
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar
(2 ferðir), Vestmannaeyja og
Sauðárkróks. Á morgun eru ráð
gerðar flugferðir til Akureyrar
(2 ferðir), Vestmannaeyja, Ól-
afsfjarðar, Neskaupstaðar, Syð-
isfjarðar, Kirkjubæjarklaust-
urs, Hornafjafðar, Siglufjarðar
og Kópaskers.
Millilandaflug: Gullfaxi er
væntanlegur tíl Reykjavíkur frá
Kaupmannahöfn kl. 18.15 í dag.
Slysið í Laugadal
(Framhala af 1. slðu.)
er þarna bugðóttur og þröng-
ur.
Lík Ingólfs var flutt til
Blönduóss en ráðgert var að
flytja það suður í gær eða
dag.
Fengu bílinn að Iáni.
Samkvæmt upplýsingum,
sem blaðið fékk hjá sýslu-
manninum á Sauðárkróki í
gær, var bifreiðin K-89 frá
Nautabúi í Skagafirði. Síma
mannaflokkur, er vinnur um
þessar mundir skammt frá
Sauðárkróki, aðallega að þvi
að taka niður loftsíma á Borg
arsandi og leggja í jörð vegna
flugvallarins. Hafði flokkur-
inn fengið vörubifreiðina áð
láni til að flytja menn og við-
gerðaefni vestur að Hvamms
tanga, og va,r Ingólfur að
fara með bifreiðina austur aft
ur. Var komið við á Blönduósi
og einhverjar viðgerðir leyst
ar af hendi. Hélt Ingólfur
svo einn þaðan austur 'til
Skagafjarðar sem fyrr segir
til þess að skila bílnum og
fara til vinnuflokks síns við
Sauðárkrók.
Ingólfur var einhleypur
maður, fæddur í Hafnarfirði
en fluttist til Reykjavíkur fyr
ir alllöngu. Hann var hálf-
þrítugur að aldri.
Annað bifreiðaslys.
Á sama stað varð annað bif
reiðaslys fyrir tveimur ár-
um, er vörubifreið valt fram
af veginum. Tveir menn voru
í þeirri bifreið og sluppu með
meðsli og mun háfermi er var
á bifreiðinni hafa dregið úr
veltunni.
Raflagningaefni
Vír 1,5 4q. 6q. 16q
Antigronstrengur 3x1, 5q 3x2,
5q. 3x4q.
Rofar, margar tegundir.
Tenglar, margar tegundir
Loftdósir 4 og 6 stúta
Rofa og tengidósir
Rakaþj. tengidósir 3 og 4 st.
Dyrabj ölluspennar
Varhús 25 amp. 100 og 200 amp
Undirlög, Loftdósalok.
Véla- og Raftækjaverzlunin
Tryggvagötu 23
Sími 81279
4nf(lv.«fin>>agínii
TÍMAMi
er 81300
Þegar borgarst jór
inn forðaði sér
Gunnar Thoroddsen,
borgarstjóri, flúði til Tyrk
lands eins og kunnugt er<
áður en aukaútsvarsmálið
kom fyrir bæjarstjórn ogi
var afgreitt þar. Hann|
skaut sér undan því að
verja tillögu sína á fundin1
urn og skildi málið eftir óaf <
greitt. Yfirskinið var þingi
mannafundur í Tyrklandi.|
Komið hefir í Ijós, að hann|
þurfti að vísu að fara á'
þann fund, en fór miklu
fyrr en ástæða var til. Fund
urinn átti ekki að byrja
fyrr en hálfum mánuði eft
ir að hann fór, og hann
gat hæglega' beðið eftir af
greiðslunni á bæjarstjórn-
arfundi og fengið nægar
ferðir til útlanda mörgum
dögum eftir það og komið
nógu tímanlega til Tyrk-
lands. Hér var því um raun
verulegan flótta að ræða
frá þvi að þurfa að standa
með afgreiðslu málsins.
Alþýðublaðið og Þjóðvilj
inn hafa verið að reyna að
líkja för Steingríms Stein-
þórssonar á félagsmálaráð
herrafund i Finnlandi við
þessa för Gunnars. En þar
er óliku saman að jafna.
Steingrímur afgreiddi mál
ið áður en hann fór, og
hann fór ekki fyrr en kom!
ið var á fremsta hlunn til
að komast á fundinn. Fund
ur þessi var ákveðinn og
tilkynntur svo og för ráð-
herrans löngu áður en út-
svarsmálið kom til hans
kasta, enda mun það mála
sannast að engum, hvorki
félagsmálaráðherra né öðr
um mun hafa fundizt á-
stæða til að flýja undan
þeim heimskulegu og van-
máttugu árásum og hróp-
um, sem þessi blöð hafa
gert að honum undanfarna
daga.
V.VW.VVAVAV//AVAV/.VAVAV.V.V.V.V.V.V.V.V:
í í
Laugarvatnsskóli
j" tekur enn sem fyrr nemendur til menntaskólanáms. — »1
J Enn er hægt að fá skólavist í héraðsskólanum. Dvalar £
kostnaður á mánuði s. 1. vetur var kr. 540 fyrir pilta, |>
í > 5
.■ en kr. 440 fyrir stúlkur. ?
í í
JWVAsW/.V.VW.V.V/AWAVAW.VAW.VAWAM
S.K.T,
Nýju og gömlu
Dansarnir
í G. T. húsinu í kvöld kl. 9
Haukur Mortens
syngur með hljómsveitinni mörg nýjustu og skemmti-
legustu danslögin.
Aðgöngumiðar í G. T.-húsinu kl. 6,30. — Sími 3355
| Orðsending
frá Álfafelli til viðskiptamanna
út um land
Getum aftur boðið yður flestar tegundir vefnaðar-
vöru, ullargarn, kvensokka, karlmannasokka, manchett
skyrtur, vinnufatnað, alls konar smávöru glæsilegt «
þýzkt hnappa og tölúúrval, leggingar, tvinna og ótal 5;
margt annað. — Skrifið eða símið í Álfafell og við
munum greiða fyrir yður áfv fremsta megni. Munið
að Álfafell sendir um hæl gegn póstkröfu.
Það eru kaupmannaverzlanirnar sem tryggja yður
gott verð og vörugæði.
ÁLFAFELL
Hafnarfrði — Sími 9430
♦
o
< •
(i
o
(^ Auglýsingaumboðsmaður vor á BLÖNDUÓSI er J |
Kristinn Magnússon
útibússtjóri, Blönduósi.
Húnvetningar athugið!
TENGILL H.F
Síml 80 694
Heiði við Kleppsrer
annast hverskonar raflagn-
Ir og viðgerðlr svo sem: Verk
unlðjulagnlr, húsalagnlr,
sklpalagnlr ásamt vlðgerðum
og uppsetnlngu & mótorum,
röntgentækjum og helmllla-
télum.
;; Húnvetningar!
;;AUGLÝSIÐ í
o
TIMANUM
Reykjavík — Laugarvatn
Reykjavík
Gullfoss —
Geysir
í Grímsnes, Biskupstungur
og Laugardal, daglegar sér-
leyfisferðir. Flyt tjaldaútbún
að og fleira fyrir ferðafólk.
ÓLAFUR KETILSSON
sérleyfishafi -- sími 1540.
% uglýsiingasíiiii
81300
amgacmgttmmmuunninatmiiinniiimunnnntmmr
Vélskólinn í Reykjavík
verður settur 1. október 1951. Þeir sem ætla að stunda
nám við skólann sendi skriflega umsókn, ekki síðar en
19. september. Um inntökuskilyrði, sjá, „Lög um kennslu
í vélfræði no. 71, 23. júní 1936 og Reglugerð fyrir Vél-
skólann í Reykjavík no. 103, 29. september 1936. Þeir
utanbæjarnemendur, sem ætla að sækja um heimavist,
sendi umsókn til húsvarðar Sjómannaskólans fyrir 10.
september. Nemendur sem búsettir eru i Reykjavík og
Hafnorfirði koma ekki til greina.
Eins og undanfarin ár verður fyrsti bekkur fyrir raf-
virkja rekinn sem kvölddeild, ef nægileg þátttaka fæst.
Skólastjórinn
fíERIST ÁSKSUFEIVIH Il \»
TlMAlVUM. - ÁSKRJFTASÍMI 2323.