Tíminn - 29.09.1951, Qupperneq 2
2.
220. blað.
TÍiVlINN, láugárdaginn áá. séptémbér lááif.
kafi til
Útvarpið
Útvarpið í kvöld:
Fastir liöir eins og venjulega.
20.20 Norrænn dagur: a) For-
sætisráðherrar allra Norður-
landa flytja ávörp: Steingrím-
ur Steinþórsson, Eric Ericsen, dr
U. Kekkonen, Einar Gerhard-
sen og Tage Erlander. b) Stefán
Jóh. Stefánsson alþm., form.
Norræna félagsins flytur ræðu.
c) Eva Berge óperusöngkona
syngur. d Lárus r-álsson leikari
les kvæði. e) Kristmann Guð-
mundsson rithöfundur flytur
frásöguþátt: Til selja í Harð-
angri. f) Guðlaugur Rósinkrans
þjóðleikhússtjóri flytur loka-
orð. Ennfremur norræn tónlist
áf plötum. 22.00 Fréttir og veð-
urfregnir. 22.10 Danslög (plöt-
ur. 24.00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
Útvarpið á morgun:
8.30—9.00 Morgunútvarp. —
10.10 Veðurfregnir. 11.00 Messa
í Hallgrímskirkju (séra Sigur-
jón Árnason). 12.15—13.15 Há-
degisútvarp. 15.15 Miðdegistón-
leikar. 16.15 Fréttaútvarp til ís-
lendinga erlendis. 16.30 Veður-
fregnir. 18.30 Barnatími (Þor-
steinn Ö. Stephensen). 19.25 Veð
Hffregnir. 19.30 Tónleikar. 19.45
Auglýsingar. — 20.00 Fréttir.
20.20 Tónleikar: Jan Moravec
leikur á klarinett; Fritz Weiss-
happel aðstoðar. 22.35 Erindi:
Um sólskin og fleira (dr. Sig-
urður Þórarinsson). 21.00 Kór-
söngur: Kór Kristilegs félags
ungra kvenna syngur. 21.20 Upp
lestur: Guðmundur Daníelsson
rithöfundur les upp úr bók
sinni „Sumar í suðurlöndum“.
21.45 Tónleikar. 22.00 Fréttir og
veðurfregnir. 22.01 Danslög
(plötur). — 23.30 Dagskrárlok.
Hvar era skipin?
Sambandsskip:
Hvassafell lestar síld fyrir
norð-austan land. Arnarfell fór
frá Þorlákshöfn 27. þ.m. áleiðis
til Italíu, með saltfisk. Jökul-
fell fór frá Guyaquil 26. þ.m. á-
leiðis til New Orleans.
Ríkisskip:
Hekla er í Reykjavik. Esja
verður væntanlega á Akureyri
í dag á vesturleið. Herðubreið
er á Austfjörðum á norðurleið.
Skjaldbreið fór frá Reykjavík í
gærkvöld til Breiðafjarðar. Þyr-
ill er í Reykjavík.
Eimskip:
Brúarfoss kom til Reykjavík-
ur 18.9. frá Antwerpen. Detti-
foss fór frá Boulogne 27.9., vænt
anlegur til Antwerpen 28.9., fer
þaðan til Hamborgar og Rotter
dam. Goðafoss er í Keflavík.
Gullfoss fer frá Reykjavík kl.
12 á hádegi á morgun 29.9. til
Leith og Kaupmannahafnar.
Lagarfoss fór frá New Yoi-k 26.9.
til Reykjavíkur. Reykjafoss fór
framhjá Gibraltar 23.9. á leið
til Dordrecht í Hollandi. Selfoss
er í Reykjavík. Tröllafoss fór frá
Reykjavík 25.9. til New York.
Röskva er í Gautaborg, fer það-
an til Reykjavíkur. Bravo lest-
ar í London 5.10, fer þaðan til
Hull og Reykjavíkur.
Flugferðir
Loftleiðir:
t dag verður flogið til Akur-
eyrar, ísafjarðar og Vestmanna
eyja. Á morgun verður flogið
til Vestmannaeyja.
Flugfélag Islands:
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyrar
(2, ferðir, Vestmannaeyja,
Blönduóss, Sauðárkróks, ísa-;
fjarðar, Egilsstaða og Siglufjarð *
ar. A morgun er ráðgert að
fljúga til Akureyrar og Vest-
mannaeyja.
Millilandaflug: Gullfaxi fór í
morgun til Kaupmannahafnar.
Flugvélin er væntanleg aftur
til Reykjavíkur kl. 18,15 á morg
un.
Messur á morqun
Fríkirkjan.
Messa kl. 2 e.h. (Ferming-Alt
arisganga). Fermdar verða 2
stúlkur, þær: Gréta Hulda Jak-
obsdóttir, Meðalholti 11 og Lára
Margrét Fahning, Hrísateig 15.
Sr. Þorsteinn Björnsson.
Nesprestakall.
Messa í kapellu háskólans
klukkan 2. Séra Jón Thoraren-
sen.
Lauganeskirkja.
Messa kl. 11 f.h. — Séra Garð-
ar Svavarsson.
Úr ýmsum áttum
Bólusetning gegn barnaveiki.
Pöntunum veitt móttaka
þriðjudag. 2. okt. kl. 10—12 f.h.
í síma 2781.
Haustfermingarbörn
Fríkirkjusafnaðarins í Rvík
eru beðin að koma til viðtals í
Fríkirkjuna, miðvikudaginn 3.
okt. n.k. kl. 6 e.h.
Sr. Þorsteinn Björnsson.
Sæmdur riddarakrossi.
Forseti íslands sæmdi í gær
Simon Edwardsen óperusöngv-
ara riddarakrossi hinnar ís-
lenzku fálkaorðu. Edwardsen
hefir sem kunnugt er dvalizt
hér bæði í vor og haust og sett
á svið óperuna Rígolettó, sem
sýnd hefir verið í Þjóðleikhús-
inu undánfarið. Er þetta fyrsta
óperan, sem flutt er hér á landi
með íslenzkum söngvurum.
Simon Edwardsen lagði af
stað heimleiðis með Gullfossi
í morgun.
Brúðusýningm
opin kl. 1—7.
seinustu atriðin endurtekin
klukkan 6.
Guðrún Brunborg
Síðasta sinn.
Fínpúsning
Skeljasandur
Hvítur sandur
Perla í hraun
Hrafntinna
Kvarz o. fl.
Fínpúsningargerðin
Sími 6909
ctái^nincý
©rlygs Slgsirðssonai*
Verður opnuð klukkan 2 e. h. í dag.
Opin daglega kl. 10—23
Ódýrir kúlupennar
með aukafyllingu.
Heildsölubirgðir.
Ragnar Jónsson
hæstaréttarlöemaður
Laugaveg 8 — Slmi 7752
Lðgíraeðistörf og eignaum-
sýsla.
Sýning Örlygs
(Framhald af 1. síðu.)
mörg skringileg svipbrigði
birtast málaranum og hann
túlkar vel í verkum sínum.
— Hvenær fórstu annars til
Grænlands? Þú hefir víst
ekki sagt mörgum af þeirri
ferð þinni, fyrr en þú ætlar
nú að láta myndirnar á sýn-
ingunni gera það?
Gaman að mála á
Grænlandi.
— Ég fór til Grænlands
sumarið 1949, og var þar um
tveggja mánaða skeið .segir
Örlygur. Málaði mikið og
ferðaðist talsvert. Lá í tjaldi,
þangað til næturnar fóru að
kólna, en fluttj mig þá inn
til grænlenzkra fjölskyldna,
sem tóku mér hreint eins og
glötuðum syni.
Örlygur ber Grænlending-
um hið bezta orð fyrir hjálp-
semi og vingjarnleik við þenn
an skrítna fugl frá íslandi,
sem málaði þá á léreft og
teiknaði.
— Mér þótti gaman að
mála á Grænlandi, segir lista
maðurinn. Þar var alltaf sól
og sumar meðan ég var þar,
rétt eins og suður við Mið-
jarðarhaf væri. Steikjandi
hiti á daginn, en kaldar næt-
ur. Þar voru mörg andlit,
sem gaman var að mála, seg
ir þessi meistarj andlitsteikn
inganna um leið og hann hag
ræðir grænlenzkri húsfrú á
veggnum. Landið er nakið og
klapp.'rnar meö kjarvölslcum
J mosaþembum og húsin sche-
i vingsk, eins og brúðuhús í
| Grindavík.
Þar nýtur íslenzka út-
varpið vinsælda.
Grænlendingar halda ann
ars mikið upp á íslendinga,
en þó mest af öllu upp á ís-
lenzka útvarpið, sem þeim
þykir alveg fyrirtaks stofn-
un. Er áreiðanlega ekkj of-
sagt, að íslenzka útvarpið nýt
ur hvergi meirj vinsælda eVi
þar, enda vandlega á það
hlustað. Jafnvel jarðarfarirn
ar fara ekki framhjá græn-
lenzkum fjölskyldum.
En mestir yfirburðamenn
eru fslendingar þó í þeirra
augum á tónlistarsviðinu.
Það er því ekki af vanmati
eða skorti á tiltrú, að þeir
telja ekki þá Jón Þórarinsson
og dr. Pál mestu menn ís-
lenzku þjóðarinnar, heldur
hinu, að þeim finnst jafnvel
ennþá meira koma til hinna
„íslendinganna“ í tónlistar-
deildinni, nefnilega þeirra
Sibeliusar, Beethovenss, Schu
berts og Maríusar Jakobsen,
uppáhaldseinsöngvara ís-
lenzka rikisútvarpsins. Örlyg
ur sagði þetta að vísu ekki
svona, en það segir sig sjálft,
að þannig er það í augum
Grænlendinga.
Lengst var Örlygur í Góð-
von, en þaðan ferðaðist hann
allmikið með skipum Græn-
landsstjórnar, lengst norður
til Kangamuut.
Fjórða sýningin.
Þessi málverkasýning Ör-
lygs er sú fjórða, sem hann
hefir efnt til síðan hann
byrjaði að halda sýningar hér
syðra 1945. Síðasta sýningin
han var vorið 1949, svo nú
er mikið að sjá í listamanna-
skálanum eftir meira en
tveggja ára starf eins af okk
ar beztu málurum.
Íslenzk-erleíiela verzliinarfélagið
Garðastræti. — Sími 5333.
VAV.V.V.V.V.V.V.V.V.Y.V.V.V.V.V.VV.V.V/AV.V.Y;
! Skólafólk athugið 1
■: Alltaf eru fæðiskortin frá í
*: ■:
;• Möínneyti Fæðiskaupenclafélags V
:■ Reykjavíkiir !;
■“ »"
•; drýgstu fæðiskaupin ■:
í; Hádegisverður frá kl. 12—1.30: Tvíréttar og kaffi. •;
í; Kvöldverður frá kl. 6—8.30: Heitur matur, V-> pottur af "í
»
mjólk, kalt borð, skyrhræringur eða grautur, græn- ;•
V meti, harðfiskur, síld, súrmeti og heimabakað brauð. ;•
*: ::
í; 14 máltíðakort karla kosta kr. 140.00 :;
•; 14 máltíðakort kvenna kosta kr.115.00 ■:
■; 60 máltíðakort karla kosta kr. 560.00 £
*: 60 máltíðakort kvenna kosta kr. 460.00 í
;• Fæðiskaupenelafélag I;
í IReykjsavíkur í;
■•V.V.V.vv.V.V.V.'.V.V.V.V.W.V.V.V.VV^.V.V.VW
.%w.%v.*.w.v.w.,.,.v.w.v.w.v.w.*.v.wavwvwvKa
RAFKERTI
í allar tegundir bifreiða
BRÆÐURNIR ORMSSOH
■ ■!
; Vesturgötu 3. ;•
■ r"
.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.’.V.V.V.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hluttekn-
ingu við fráfall og jarðarför,
MARÍU R. NÍELSDÓTTUR
Aðstandendur
Innilegustu alúðar þakkir votta ég þeim, sem heiðr-
uðu mig á sextugsafmæli mínu. Sérstaklega þakka ég
Jóhanni Hjörleifssyni, konu hans og starfsbræörum
mínum heiðursgjöf frá þeim.
Guðjón Þorsteinsson frá Skatastöðum.
Hugheilar þakkir til vandamanna og vina, sem glöddu
mig á margvíslegan hátt á sextíu ára afmæli mínu
26. ágúst síðastliðinn.
Rósa ívarsdóttir,
Marðarnúpi, Vatnsdal.
i