Tíminn - 20.12.1951, Blaðsíða 1

Tíminn - 20.12.1951, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Þórarinn Þórajrinsson Préttaritstjóri: Jón Helgason Útgefandi: Framsóknarflokkurinn Skrifstofur \ Edduhúsi Fréttasímar: 81302 og 81303 Afgreiðslx (mi 2323 Auglýsingasími 81300 Prentsmiðjan Edda 35. árgangur. Reykjavík, i únmtudaginn 20. desember 1951. 289. blað. íbúðaiiiús að Fossi á Síðu brann tii ösku í fyrrinótt Tókst að vppja næstu líás þar eö logm var Frá fréttaritara Tímans á Kirkj ubæj arklaustri Um kl. hálffjögur í fyrrinótt kom upp eldur í íbúðarhúsi Óskar Eiríkssonar bónda að Fossi á Síðu og brann það ó1 kaldra kola á skammri stund. Fólk lcomst heilu og höldnu úr eldinum en litlu sem engu af húsmunum var bjargað. Tekjustofnar ríkis- ins óskertir Söluskattsfrumvarpið var af- greitt frá neðri deild í gær sem lög frá Alþingi, óbreytt eins og það kom frá efri deild í fyrri- nótt. Einar Olgeirsson bar fram breytingartiilögu um það, að það yrði á ný eins og neðri deild gekk frá því, en hún var felld með 18 atkv. gegn 8. Greiddu henni aðeins atkvæði þeir kommúnistar og jafnaðarmenn, sem viðstaddir voru. Er þar með tryggt, að tekju- stofnar ríkisins verða ekki skert ir á næsta ári. Alþingi frestað á föstudag Þriðja umræða fjárlaganna hófst í gær, í sameinuðu þingi, og verður henni haldið áfram, unz fjárlögin hafa verið af- greidd. Atkvæðagreiðslan mun fara fram i dag eða á morgun og gert er ráð fyrir, að þingi verði síðan frestað fram yfir hátíð- ar á morgun, ef afgreiðsla fjár- laganna gengur sæmilega. Umferðin á Lauga- veginum fyrir jólin Lögreglan í Reykjavík hefir beðið blaðið að vekja athygli þeirra, er bílum aka í Reykja- vík nú um hátíðarnar, á því hve umferðarösin á Laugaveg- inum sé mikil og erfið viðfangs mestu verzlunardagana fyrir jólin. Það er eins og margir bíl stjórar hugleiði það ekki. hve miklar tafir þeir baka sjálfum sér oft með því að aka niður Laugaveginn þegar umferðin er mest, þótt þeir séu á leið vest- ur í bæ eða í miðbæinn en eigi ekki erindi á sjálfan Laugaveg- inn eða að húsurn við hann. Verða þeir þá oft aö bíða lafig- tímum saman í umferðinni og auka enn að þarflausu á seina- ganginn. Bílstjórar ættu að gera sér það að venju einkum þessa daga að fara ekki Laugaveginn er þeir aka miiii bæjarhluta en þurfa annars ekki að staðnæm- ast þar. Þá er miklu betra að fara aðrar greiðfærari og um- ferðarminni götur á leið í mið- bæinn eða vesturbæinn. A Fossi á Síöu eru sjö á- búendur og var þetta elzta íbúðarhúsið', 38 ára gamalt með torf og grjótveggjum. Þaö er kallað Austurbærinn. Óskar varö fyrst eldsins var, er hann vaknaöi við óljósan skarkala um nóttina. Er hann kom á fætur var eld- húsiö oröiö alelda, en hon- um tókst aö vekja annaö heimilisí'ólk, sem var ráðs- kona hans og barn hennar og unglingspiltur. Komust þau ómeidd úr eldinum. Litlu sem engu bjargað. Fólk af öðrum heimilum á Fossi kom nú að, en eldurinn var oröinn svo magnaöur, að hann varö ekki slökktur, og nær engu tókst aö bjarga úr húsinu, helzt ofurlitlii af fatnaði. Hlaða var mjög nærri húsinu og í hættu svo og önnur íbúöarhús, ef hvasst hcfði veriö, en þar sem logn var tókst aö verja öll önnur hús á staðnum. Kviknaði í út frá rafmagni. Talið er langlíklegast, að kviknaö hafi í út frá raf- magni, því að eldurinn virt- ist hafa komið upp milli þilja, þar sem raflagnir voru. Húsið var vátryggt fyrir 25 þús. kr. og innanstokksmunir og matvæli voru einnig vá- tryggð en lágt .Tjón Óskars er því allmikið. Komnir heim að lokinni dvöl í Bandaríkjunum Tveir togarar að veiðum tyrir Ak- urnesinga Tveir togarar eru nú að veiö'- um fyrir Akurnesinga og er afli beggja hagnýttur á hinn sama hagkvæma hátt og búið er að gera nú næstum þvi stanzlaust í hálft annað ár með afla Bjarna Ólafssonar. Hinn togarinn, sem kominn er til Akraness, Akurey, leggur væntanlega upp afla þar til vinnslu í frystihúsunum á morg un, og er það annar farmurinn, sem skipið leggur þar upp Síð- an það réðst í þjónustu Akur- nesinga. Góð tíð í Vopnafirði Frá fréttaritara Tím- ans á Vopnafirði. Undanfarna daga hefir verið hér hálka og tekið mjög þann snjó er áður var kom inn. Er nú komin allgóð jörð' hér um slóðir nema í Vestur- árdal, þar sem enn er mikill snjór. Ekkert er róið hér urn þetta leyti. íslenzkir bændasynir komnir úr vesturför Meðal farþega á Tröllafossi, er hann kom ti'i Reykjavíkur gær, voru íslenzku bændasynirnir níu, sem dvalið hafa á sveitabæjum vestan hafs undanfarna mánuði til þess að kynnast nýjungum í búnaðrháttum. Síðustu bílferðir frá Reykjavík fyrir jól Feröaskrifstofa ríkisins hefir látið blaðinu í té skrá um síðustu bílferðir, s?m verða fyrir jól héðan úr Reykjavík austur um Suðurland, á Suðurnes, í Borgarfjörð, á Vestur- land og Norðurland. Suðurland. ' Á föstudaginn verður síö- asta ferö austur að Kirkju- bæjarklaustri, lagt af stað' klukkan niu árdegis. Á sunnu tíag veröur fariö austur aö Vík í Mýrdal, brottför úr Reylcjavik klukkan níu árdeg is. Á mánudag, aðfangadag verða margar ferð'ir. Austur í Þykkvabæ, Fljótshlíð, Land- eyjar og að’ Hellu verður lagt af stað' klukkan ellefu. Aö Laugarvatni í Biskupstungur, I Gaulver j abæ j arhrepp, Flóa, (Skeggjastaöir), Landsveit og á Þingvelli (strax til baka) I klukkan eitt. I Hveragerði og Auösholt verður lagt af staö klukkan þrjú. Nágrenni Revkjavíkur. Síöasta ferð á Álftanes’ á aöfangadaginn veröur klukk- an eitt, í Mosfellsdal klukkan hálf-tvö, á Kjalarnes og í Kjós klukkan tvö, í Gridna- vík klukkan þrjú, aö Revkj- um og Reykjalundi, á Vatns- leysuströnd og í Voga og í Keflavík, Sandgeröi og á Staf nes klukkan fjögur. Vestur og norður. Síðasta ferð í Stykkishólm (Framhald á 7. síðu) Flestir þátttakendanna ósk uðu þess að kynnast nýtízku kúabúurn og meöferö mjólk- ur og kvikfjárrækt. En jafn- framt lögöu þeir flestir á- herzlu á að kynnast meöferö nýjustu véla viö landbrot og jarðyrkju. Sumir kynntu sér einnig ræktun grænmetis og jarðávaxta, og nokkrir rekst- ur hænsnabúa. Hinir ungu menn dvöldu víðs vegar um Bandaríkin, og aö lokinni dvöl sinni á sveita bæjunum sóttu þeir sérstak búnaÖarnám(skeiÖ, sem stóö einn mánuð. Gátu sér góðan orðstír. íslenzku bændasynirnir gátu sér góðan orðstír fyrir dugnað, áhuga og hagsýni viö vinnubrögö á heimilum þeim, þar sem þeir dvöldu, og ur'ðu sumir þeirra allan tíma vestra á sama heimili, enda þótt upphaflega væri til þess ætlazt, aö þeir yrðu á tveim- ur stöðum, því aö húsbænd- urnir vildu ekki missa þá af heimilum sínum, fyrr en þeir hyrfu alfarnir heinr til hinn- ar fjarlægu fósturj ar'öar sinn ar. — Sumir þeirra sköruðu mjög fram úr því, sem al- mennt gerist, eins og áöur hef ir veriö skýrt frá í blaðinu. Nöfn þátttakenda. Mennirnir eru þessir: „ Sigurður Erlendsson á Vatnsleysu, Arngrímur H. GuÖjónsson í Gufudal í Ölfusi, Jón Guömundsson á Fjalli á Skeiöum, Gunnar Halldórsson á Skeggjastö'öum i Flóa, Sæmundur Jónsson í Austvaðsholti í Landsveit, Björn Kristjánsson úr Reykja vik, Hókon Kristinsson á Skarði í Landsveit og bræð- urnir Hörður og Jón Stein- grímssynir í Holti i Stokks- eyrarhreppir. Fimm miljónir til harðindahjálpar í viðaukatillögum f járveit inganefndar, sem áður höfðu verið boðaðar, og nú hafa verið' lagðar fram, er gert ráð' fyrir heimild til ríkisstjórnarinnar til að greiða allt að 5 millj. úr ríkissjóði til hjálpar vegna harð'indanna á Austurlandi og víðar í fyrravetur og jafn vel til harðærishjálpar víð- ar, þar sem rtð hefir kreppt á undanförnum missirum. Á fé þetta að veitast sem lán og greiðist af tekjum ríkis- sjóðs árið 1951. íslendingar í vinnu á Keflavíkurvelíi 1. desember voru 330 fslend- ingar í vinnu á Keflavíkurflug velli, og í nóvembermánuði var þeim greitt um 950 þúsund kr. í vinnulaun. Auk þessara manna voru um 300 menn í vinnu hjá svonefndum Sameinuðum verk tökum, sem unnu að byggingu húsa og vöruskemma á Kefla- víkurvelli. Þessum verkamönnum verð- ur fjölgað síðar. Þegar veður leyfir verður ráðizt í meiri bvgg ingar á vellinum. Eldur í garala bak- aríinu á Vatneyri Á mánudaginn kviknaði í blás ara í olíukyndingu í gamla bak- aríinu á Vatneyri við Patreks- fjörð. Þessa varð fljótt vart, og tókst að slökkva eldinn með handslökkvitæki, áður en hann magnaðist.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.