Tíminn - 23.02.1952, Side 2
2.
TÍMINN, Iaugaidaginn 23. febrúar 1952.
44. blaft.
Sór sig dauðan, giftist ekkju
sinni og gerðist þingmaður
Á miðvikudaginn skeði einstakur atburður í þýzkri liingsögu,
er einn þingmaður sambandsþingsins í Bonn var tekinn fastur
cg ákærður fyrir að sitja þar undir fölsku nafni en væri í raun
og veru háttsettnr nazistaforingi frá mektardögum Hitlers. Mað-
ur þessi kallaði sig Franz Richter, en er í raun réttri Fritz
Þegar fundur hófst í sam-
bandsþinginu eftir hádegið á
miðvikudaginn, reis forsetinn
úr sæti og tilkynnti, að hann
hefði gefið ríkislögreglunni leyfi
til að stíga yfir þröskuld þing-
salarins og þinghelginnar og
taka fastan Franz Richter þing-
mann, sem er fertugur að aldri
og nú stjórnarmeðlimur í ríkis
flokki Remers, sem stundum er
kallaður arftaki Hitlers.
Síðan bar forsetinn þessa á-
kvörðun sína undir atkvæði
þingsins og var hún samþykkt
einróma.
Átti sér einskis ills von.
Richter var ekki í deildar-
salnum, er þetta gerðist, en átti
sér einskis ills von. í þann mund
var hann í þann veginn að fara
á nefndarfund í einu hliðarher
bergi og hafði lagt höndina á
hurðarhandfangið, er tveir lög
reglumenn tóku hann fastan.
Stungið út um
glug-ga þingsalarins.
í sama mund bárust fréttirn-
ar með eldingshraða út, og þing
'íréttaritarar hringdu til blaða
sinna. Þyrptust blaðamenn og
Ijósmyndarar að þinghúsinu og
íjöldi fólks, sem sá að eitthvað
var um að vera. Hafði lögregl-
an ekki önnur ráð til að kom-
ast undan með hann en að fara
með hann út um g“lugga á
neðstu hæð hússins, og var far-
:ið með hann beint í fangelsi.
Ótrúleg fífldirfska.
Saga Rösslers sýnir ótrúlega
íífldirfsku. Á valdaárum Hitlers
var hann ákafur nazisti í Neðra
Saxlandi og komst brátt til met
orða og varð þar eins konar
fræðslufulltrúi nazistaflokks-
ms og forstjóri landbúnaðar-
deildar flokksins í héraðinu. Síð
an fór hann til vígstöðvanna
og barðist á austurvígstöðvun-
am síðustu missiri styrjaldar-
innar. Við uppgjöf Þjóðverja
varð honum fullljóst, að starf
hans í nazistaflokknum mundi
verða honum dýrt og harður
dómur mundi bíða hans sem
annarra nazistaforingja.
Sór sig dauðan.
Rössler fékk sér því nýtt nafrt
og falskt og þar að auki snotr
. asta efrivararskegg, sem var ó-
falsað, gekk síðan til yfirvald-
anna í litla bænum Luthe við
Hannover og sór fyrir þeim, að
hann hefði séð yfirmann sinn
og liðsforingja Fritz Rössler
falla á austurvígstöðvunum og
| hefði hann meira að segja verið
við jarðarför hans. Honum var
| trúað og nú hóf Franz Richter
nýtt líf og kallaði sig doktor í
! heimspeki. Með fölskum skjöl-
um tókst honura að fá stöðu
sem kennari.
Kvæntist „ekkju hins
fallna foringja síns“.
En djarfasta bragðið lék hinn
nýi Ríchter, þegar hann gekk
að eiga sína eigin ekkju og lét
svo um mælt, að sér væri það
rnikill heiður áð kvænast ekkju
hins fallna yfirmanns síns og
fóstra börn -hans sem sín eigin.
Hjónavígslan fór fram T946 og
engan grunaði, að þar væri að-
eins um að ræða framhald brúð
kaups, sem haldið var í maí
1936. Heimilislíf hinna nýj\i
hjóna var hið ástrikasta.
Rekinn frá kennslustö.rfum.
Richter hinn nýi hélt þó ekki
lengi kennarastöðunni, þvi að
brezku hernámsyfirvöldin viku
honum frá störfum á þeim for
sendum að hann drægi mjög
taum nazistanna í kennslu sinni.
Hann gekk og um það leyti í
hinn nýstofnaða ríkisflokk
Remers, var kjörinn á fyikisþing
og í fyrra á ríkisþingið í Eonn.
Hann varð brátt tíður ræoumað
ur á þinginu og lét mjög að sér
kveða. Daginn áður en hann
var handtekinn, tók hann til
máls í umræðunum um endur-
hervæðingu Þýzkalands og var
svarinn andstæðingur hennar.
Annars var hann kunnur í þing
Útvarpið
Útvarpið í dag:
Kl. 8,00 Morgunútvarp. — 9,10
Veðurfregnir. 12,10 Hádegisút-
varp. 12,50 —13,35 Óskalög sjúkl
inga (Björn R. Einarsson). 15,30
—16,30 Miðdegisútvarp. 18,00 Út
varpssaga barnanna: „Hjalti
kemur heim“ (Stefán Jónsson
rithöfundur). XVI., sögulok.
18,25 Veðurfregnir. 18,30 Dönsku
kennsla; II. fl. 19,00 Ensku-
kennsla I. fl. 19,25 Tónleikar:
Samsöngur (plötur). 19,45 Aug-
lýsingar. 20,00 Fréttir. 20,30 Út-
varpstríóið: Tríó í F-dúr eftir
Hummel. 20,45 Leikrit: „Blóm
til ídu“ eftir Hans Hergin, í
þýðingu Leifs Haraldssonar. —
Leikstjóri: Þorsteinn Ö. Stephen
sen. 21,35 Tónleikar: Klassískir
valsar (plötur). 22,00 Fréttir og
veðurfregnir. 22,10 Passíusálm-
ur nr. 12. 22,20 Danslög (plötur).
24,00 Dagskrárlok.
Afhjúpaði nazistaleiðtoginn
Fritz Rössler í ræðustóli.
inu fyrir ást sína á hinn sterka
bæheimska öli og var oft í ræðu
stóli undir meiri áhrifum þess
en reglugerð þingsins leyfir.
Undir smásjá lögreglunnar.
Það er mönnum annars hulin
ráðgáta hvernig Rössler hefir
getað dulizt svo lengi án þess
að hafa í frammi áhrifameiri
brögð. Lögreglan segir, að grun
ur hafi fallið á hann fyrir
nokkru og hafi lögreglan haft
nánar gætur á honum síðasta
missiri. Ýmsir menn í fyrri
heimabyggð hans þóttust þekkja
hinn gamla nazista og með sam
anburði á gömlum myndum og
rannsókn á spjaldskrá nazista-
flokksins tókst loks að fá fullar
sannanir fyrir fölsuninni.
Eftir handtökuna neitaði
Rössler fyrst öllum þessum á-
burði en meðgekk áður en langt
leið. Kvaðst hann hafa gert
þetta af ótta við dóm. Talið er,
að hann muni fá 3—4 ára fang
elsi fyrir svikin.
„Verið ekki of viss“.
Um leið og forseti þingsins
tilkynnti handtökuna sagðist
hann búast við, að þetta væri
einstæður atburður í sögu þings
ins og mundi verða eina tilfell
ið af slíku tagi, sem ætti sér
stað í þinginu. Þá sagði einn
þingmaður: „O, jæja, verið nú
ekki of viss um það“.
r.V.V.W.V.W.V.V,V.V.V,V.W.V.V.V.V.V.V.W.V.VA
i; Oóð búförö til sölu \
I; Jör«lisu Syðri-Síóra-Gröf í Skagafirði, <;
J; er tU sölu og laus til ábúðar í næstu fardögum. Þar er
I; tvílyft íbúðarhús, (timburhús) auk húsa yfir fénað og ■;
í; hey. Að mestu véltækt tún. Töðufall allt að 300 hey-
•I! hestar. AÖ mestu véltækt flæðiengi, sem gefur af sér ca. jl
í 6—700 heyhesta. Jörðin liggur við Skagfirðingabraut. i
;• Þar er rafmagn, simi, vatnsleiðsla og veiðiréttur í tveim
N vatnsföllum. Leiga á jörð*nni getur komið til mála. —
I; Nánari upplýsingar gefur eigandi og ábúandi jarðar-
í' innar, Þorsteinn Jóhannsson.
V. V/.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.WMVVWi
W. ’.V.V.V.W.'.V.W.V.V.V.W.V.W.W.V.V.VA'.V.VIi
I Hafið þér séð Alladínteppi? i
Ef svo er ekki, þá lítið í
gluggana hjá Gefjun-Ið- I-
unn við Kirkjustræti, en ;•
þar varða sýnd nokkur v
teppi, sem gerð hafa ver- «2
ið, af fólki hér á landi,
með undranálunum ALI
og ALLADIN. Fjöldi fólks J*
hefir með þessari nýju ;•
tómstundaiðju búið sér til £
stór, verðjmæt, teppi og
auk þess hlotið óblandna .J
ánægju af starfinu, eins I;
og jafnan fylgir allri heirn V
ilisiðn. “»
LITIR AF GARNI
Gefjunar-garn kostar að-
eins kr. 9,00, hver 100 gr.
hespa, en erlent garn kost
ar flest 20—30 krónur.
Lítið á teppin í glugganum j
GEFJUN — IÐUNN I
KIRKJUSTRÆTI 8
W.W.V.V.W.W.W.W.W.W.V.W.W.W.W.W.WJ
Hlédrægur fiskimaður
dáðasti söngvari
Sá maður, sem mest er rætt
um i Svíþjóð í vetur, er fiski- |
maðurínn og banjóleikarinn
Gösta Nordgren frá Bollnesi í
Norrland. Fyrir nokkrum vik-
um kom hann til Stokkhólms
til þess að leika í skemmtiþætti
sænska útvarpsins, og þar var
hann beðinn að syngja fáeinar
vísur.
Lét loks til leiðast.
Gösta tók þessu dræmt, en
þó lét hann loks til leiðast að
syngja vísur um ást skógarhöggs
mannsins. Hann hreif hlustend
urna. Gösta er ekki þjálfaður
söngvari, en hann hefir fagra
rödd, syngur eðlilega og af mik
illi tilfinningu, og það sigraði
hjarta sænskrar alþýðu. Daginn j
eftir var hann ráðinn til þess
að syngja á grammófónplötur, (
og fékk 3000 sænskar krónur i
fyrir að syngja vísurnar um ást'
skógarhöggsmannsins.
i
Sinfóníuhljómsveitin
fékk enga áheyrendur.
Síðan hefir Gösta Nordgren
ekki gert annað en syngja. Til- j
boðin hafa streymt til hans, og
kvöld eitt, er hann söng í sænsk i
um bæ, var tómt hús hjá þekktri j
sinfóníuhljómsveit, en húsfyllirj
hjá Gösta. Sjálfur segist hann
oft ekki hafa haft nema fimm-
tíu aura á dag til þess að lifa
af. En nú hefir hann verið ráð-
inn í söngför í sumar og fær
75 þúsund krónur fyrir vikið.
Dóttir mín og sysíir
JÓNA JÓNSDÓTTIR,
lézt á Landsspítalanum 22. þ. m.
Ingigerður Þorvaldsdóttir.
Elín Melsted.
ÞRUMA
ÚR HEIÐSKÍRU LOFTI.
Hann var mjög gefinn fyrir
happdrætti, og það var aldrei
svo efnt til happdrættis, að
hann keypti ekki marga miða.
Hann átti miða í happdrætti
háskólans, hann átti miða í
vöruhappdrætti S.Í.B.S., liann
áttj miða í happdrætti Tím-
ans, og hann átti árum saman
miða í happdrætti L.S.B.K. Og
hann var stálheppinn, og hlaut
oft stóra vinninga. En eitt
happdrætti forðast hann eins
og heitan eldinn.
Hjónaband.
RtSSASAGA
Malenkoff skýrði Stalín frá
því, að nú væri sannað, að
Adam og Eva hefðu verið af
rússueskum ættum.
— Hvernig er því farið? spurði
Stalín.
— Sjáðu til, félagi, sagði Mal
enkoff. Adam og Eva voru na.kin,
þau áttu ekki hús, þau lifðu á
eplu u og töldu sér trú um, að
J au væru í Paradís. Þau hljóta
að hafa verið rússnesk.
Jarðarför
MARGRÉTAR ÓLAFSDÓTTUR,
frá Hrísbrú,
fer fram frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 26. þ.m., og hefst
með húskveðju frá heimili hennar kl. 1,30 e.h.
Fyrir hönd æítingja hennar og vina,
Sigurður Ólafsson.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda saraúð við fráfall og
jarðarför bróður míns
fiUÐMl VDAR JÓNSSONAR.
Fyrir hönd systkinanna.
Vilmundur Jónsson, Mosfellsstöðum.
Áskriftarslnii Tímans er 2323