Tíminn - 29.03.1952, Blaðsíða 8

Tíminn - 29.03.1952, Blaðsíða 8
„ERIÆNT 1FIRLIT“ t DAös Misnothun stríðsóttans 36. árgangnjr. Reykjavík, 29. marz 1952. 74. blað. Getraunirnar ná tii 15 staða á landinu Fyrsta getraunahelgtn verðnr 19. apríl Framkvæmdastjóri íslenzkra getrauna og íþróttanefnd ríkzsins skýrði fréttamönnum í gær frá væntanlegri starf- semi getraunanna, sem hefjast um míðjan apríl. Fyrsta get raunahelgin verður 19. apríl, og tvær fyrstu getraunavikurn ar verða um ensku knattspyrnuna, en síðan er búist við að komi norsk, sænsk og íslenzk keppni. Eins' og fyrr hefir verið frá skýrt hefir Jens Guðbjörns- son verið ráðinn framkvæmda stjóri getraunanna og hon- Bátar á ísafirði búast á loðnu- og smásíldarveiði Frá fréttaritara Tím- ans á Ísafírði. Vélbáturinn Gunnbjörn, sem varð var við mikla smásíld í Skötufirði í fyrradag, lagði af stað til loðnuveiða með sér- staka nót út í ísafjarðardjúp i fyrrakvöld, því að línubátar hafa veitt vel á loðnu að und anförnu. Lítið varð þó úr veiði, því að veður hvessti. Mun Gunnbjörn og ef til vill tveir aðrir bátar reyna innar í djúpinu, ef veður leyfir. Ekki hefir enn verið reynt að veiða smásíldina í Skötufirði, en verður kannske reynt síð- ar. Þetta er með fyrra móti sem smásíldin er þarna á ferð inni. ísafjarðarbátar, sem voru að veiðum suður und'r Snæ- fellsnesjökli eru nú komnir norður í Djúp eftir að afli glæddist þar. Togbátarnir hafa veitt vel, aðallega af steinbít. Hugrún kom inn tU Bolungarvíkur í gær með 30 lestir eftir fimm daga, mest steinbít, og Finnbjörn til ísa fjarðar með 25 lestir, mest þorsk í gær. Hrefnuveiðarnar. Gestur Sigurðsson, sem er byrjaður að svipast um eftir hrefnunni á vélbátnum Ein- ari, hefir ekki enn fengið neina hrefnu. en hún fer nú vonandi að sýna sig í kjölfar loðnunnar og smásildarinnar. í fyrra fékk Gestur 15 hrefn- ur. Landsþing slysa- varnafélagsins hefst með guðsþjon- ustu í dag Slysavarnaþing er nú að hefjast hér í Reykjavík, og verður það sett í Oddfellow- húsinu síðdegis í dag. Stjórn Slysavarnafélags íslands hef- ir beðið blaðið að beina þeim tílmælum til allra meðlima slysavarnafélaga í Reykjavík og nágrenni bæjarins, að þeir fjölmenni til guðsþjón- ustu, sem fram fer í dómkirkj unni áður en landsþingið verð ur sett. Guðþjónustan hefst klukkan tvö í dag, og séra Bjarni Jónsson vígslubiskup predikar. um til aðstoðar Sigurgeir Bjarni Guðnason. Er aðalskrif stofa getraunanna Laugarás- vegi 37 og síminn 5618. Stjórn getraunanna skipa Þorsteinn Einarsson, Björgvin Scrám, Jón Sigurðsson, Her- mann Guðmundsson og Daní el Ágústínusson. Fimmtán þátt- tökustaðir. Vegna ,þess, hve getrauna- seðlar þurfa að berast fljótt bæði til þátttakenda og frá þeim, verður fyrst um sinn ekki unnt að hafa þátttöku á öðrum stöðum en þeim, sem skjótar og öruggar samgöng- ur eru við, og hefir verið á- kveðið að hafa staðina fjórtán utan Reykjavíkur. Eru það Akranes, Borgarnes, Stykkis- hólmur, Blönduós, Sauðár- krókur, Akureyri, Siglufjörð- ur, ísafjörður, Hvolsvöllur, Selfoss, Vestmannaeyjar, Keflavík, Hafnarfjörður og Kópavogur. Margir vilja vera umboðsmenn. Fjöldi manna hefir sótt um að verða umboðsmenn fyrir getraunirnar, en það er all- mikið verk og vandasamt og því fylgir allmikil ábyrgð. Hefir stjórn getraunanna unn ið að því undanfarið að kynna sér umsóknir, en engir hafa verið ráðnir enn. Verður það þó gert næstu daga. Þá hafa nú verið gefnir út bæklingar bæði fyrir þátttakendur og umboðsmenn, og verða þeir (Framh á 7. síðu). Sýning skógræktar- myndar bönnuð nm messiitímann Sýniiigin i Ilafnar- ffirSi verðnr í dag Kirkjuyfirvöldin í Hafnar firði hafa bannað sýningu á skögræktarkvikmyndinni norsku á þeim tíina, sem Skógræktarfélag Hafnar- f jarðar hafði fengið húsnæði tii sýningarinnar. Neyðist fé Iagið þess vegna til að sýna j myndin í dag klukkan fimm. | Bann kirkjuyf'rvaldanna1 er réttlætt með því, að j ekkz megi ciga sér stað í j bænum neinar samkomur! um það leyti, sem messa fer 1 þar fram. Áður mun sams konar bann sömu yfirvalda hafa bitnað á bókmennta- kynningu þeirr', sem byrjað var að efna til í Hafnarfirði í vetur. Ekki er laust við, að ýms- ir telji, að hér sé farið 'nn á mjög varhugaverða braut, þótt einhver gömul fyrir- mæli finnist slíku banni til lagastuðn'ngs. 8—10 skippund hjá Keflavíkurbátum Keflavíkurbátar fá nú 8— 10 skippund í róðri, og hefir sá afli verið nokkuð jafn hjá bátunum. Aðeins einstaka daga hefir aflinn verið betri en þetta. Beyinn í Túnis nefnir nýjan forsætisráðherra Hefír látið undan kröfum Frakka. Karl- iiiemi 18-60 ára kvaddlr í öryggisvarðlið Beyinn i Túnis hefir nú látíð undan kröfum Frakka um að úlnefna nýjan íorsætisráðherra til myndunar ráðuneytis, sem sé vinsamlegt Frökkum og samvinnu við þá. Jafnframt hafa Frakkar lagt fram drög að áætlun um næstu aðgerðir á þeirri braut að Iáta Túnisbúa fá aukin sjálfsstjórnarréttindb Sprenginefni smygS- að inn í Egyptaland Egypzlca stjórnin tilkynnti í gær, að fundizt hefði allmik ið af vopnum og sprengiefni, sem smyglað hefði verið til landsins og ætlað var að beita gegn stjórninni og i uppþot- um. Hefði þetta verið gert upptækt og nokkrir skemmd- arverkamenn verið teknir Seretse Khama meinað að fara heim til iands síns Ákvörðun brezku stjwrnarinnar um útlegð hans dæmd hart í þing'i og brezkum blöðum í umræðunum í brezka þinginu í fyrrakvöld um heíl- brigðislöggjöfina gerði Forster aðstoðarsamveldismálaráð- herra hlé á og tilkynnti, að stjórnin hefði ákveðið að banna Seretse Khama, höfðingja í Bechuanalandi í Afríku að hverfa heim til lands síns, en boð'ð honum embætti í Jamaica. verki, sem verkamannastjórn in hefð' hafið. Seretse Khama hlustaði á umræður og sagði við frétta- menn, að hann liti svo á, að hann gæti gert meira gagn í heimalandi sínu en Jamaica, og hefði hann hafnað em- bættistilboði stjórnarinnar. Mundi hann neyta allra ráða til að komast heim. Brezku blöðín ræddu málið í gær og voru skiptar skoðan ir en fleiri fordæma þó þessa ákvörðun stj órnarinnar og telja hana brot á öllum venju legum mannréttindum. Maður sá, sem varð fyrir val- inu sem forsætisráðherraefni nefnist Salaz Bacos og er 69 ára að aldri. Hann var forsætisráð- herra landsins árin 1943 til 47 og er af höíðingjaættum. Hann er franskmenntaður og vinsam- legur í garð Frakka. Hann mun nú hraða stjórnarmyndun sinni. TiIIögur Frakka. Tillögur Frakka um næstu skrefin í þá átt að auka sjálfs- stjórn Túnisbúa eru í þrem Hð um, og verði þegar hafizt handa um framkvæmd þeirra, er hin nýja stjórn hefir verið mynduð. Þær ganga þó mun skemmra en kröfur fráfarandi stjörnar. 1. Að stjórn Túnis hafi fullt vald í öllum innanlándsmálum og séu ráðherrar aðeins bundn- ir af umboði kjósenda. 2. Að komið verði á fót sem fyrst löggjafarsamkomu, er síð ar verði kosin í frjálsum kosn- ingum og myndi stjórn. 3. Að túnisískir borgarar verði valdir umfram Frakka til allra embætta og starfa í landinu og þágu ríkisins, eftir því sem hségt er.' Póstbögglar til þýzkra ráðherra rannsakaðir Adenauer forsætisráðherra Vestur-Þýzkalands átti að fá illvíga sendingu í fyrradag, en annar varð að gjalda. Ókunnur ^ maður bað tvö börn á götu i Bonn að fara með dálítinn bögg ul fyrir sig á pósthúsið. Þegar þangað kom sáu póstmenn, að böggullinn var tll forsætisráð -, herrans. Var þá kallað á lög- reglu, og opnuðu sprengjusér- fræðingar böggulinn. í kjallara lögreglustöðar. Var þar sprengja, sem sprakk þegar, og lét lögregluþjónn lífið. Allmarg ir menn voru handteknir í gær af þessu tilefni, en sleppt aftur í gærkveldi, þar sem þeir reynd ust saklausir, en tilræðismaður inn sjálfur er ófundinn. Nú eru allir bögglar til ráðherra í Bonnstjórninni opnáðir, en ekk ert saknæmt hefir fundizt. Ekki er talið að um víðtækt samsæri sé að ræða. ' i Kvatt í varðlið. Franska herstjórnin í Túnis hefir kvatt alla karlmenn í land inu á aldrinum 18 til 60 ára til að vera við því búna að skipast í öryggisvarðlið, er setja megi til gæzlu á öllum vegum, við símalínur og rafmagnslínur í landinu og önnur mannvirki, ef þörf krefur og óeirðir brjótasr út. Skeyti td Öryggisráðsins. Ráðherramir tveir sem flúðu frá París til Kairo í fyrradag segjast muni halda áfram til- raunum sínum Jbil að fá S.Þ. til að taka deiluna fyrir. í gær sendu þeir öryggisráðinu skeyti með tilmælum um að ræða árás Frakka gegn Túnis og að senda rannsóknarnefnd til landsins, er undirbyggi kosningar, þar sem Túnisbúar gætu sjálfir á- kveðið framtið sína. Fulltrúi verkamannaflolcks ins krafðist þess þegar, að urn ræður um málið yrðu hafnar þegar í stað, og var svo gert. Sökuðu stjórnarandstæðing- ar stjórnina um að hafa fram ið fljótræðisverk til að þókn- ast Malan forsætisráðherra Suður Afríku og mundi þetta skaða mjög álit Breta meðal annarra þjóða. Davies for- ingi frjálslyndra taldi þetta fullkomið gerræði. Stóðu um- ræðurnar lengi og voru heit- ar, og kvaðst stjórnin ekki hafa gert annað en ljúka Fyrsta áfall stjórnar Pinay Stjórn Pinay í Frakklandi fékk fyrsta alvarlega áfallið í gær, er Gaullistar og komm- únistar sameinuðust um að iækka sparnaðarfrumvarp stjórnarinnar í efri deildinni úr 110 milljörðum franka í 35 millj arða. Talið er, að Pinay muni biðjast lausnar, ef neðri deild • in breytir frumvarpinu ekki á ný í fyrra horf. Samkomusalur olíu- stöðvarinnar í Hvalfirði Fyrir atbeina Sigurðar Jón- assonar framkvæmdastjóra og Magnúsar Maríassonar stöðvar stjóra, byrjaði Oliufélagið h.f. fyrir alllöngu síðan að útbúa samkomusal fyrir starfsfólk sitt i olíustöð félagsins í Hvalfirði. Er þesu verki nú nýlokið. Salur- inn er hinn vistlegasti og rúmar í sæti um 100 manns. í gærkvöldi var haldin fyrsta dagskrársamkoman í hinum nýja samastað. Stjórnaði stöðv- arstjórinn henni, skýcði tilgang og bauð fólk velkomið, en auk starfsmanna og skylduliðs þeirra, hafði fólki frá næstu bæjum verið bóðið, samtals um 80 manns. Erindreki Sambands íslenzkra samvinnufélaga, Bald vin Þ. Kristjánsson, flutti ræðu um samvinnumál. Sýndar voru kvikmyndir og „þjóðkórsbrot“ staðarins söng milli þátta. Að lokum kvaddi sér hljóðs Guð- mundur Brynjólfsson oddviti á Hrafnabjörgum, þakkaði fyrir hönd aðkomugesta og kvað sig og nágranna sína hyggja gott til þeirrar bættu aðstöðu, sem nú hefði skapazt til samskipta þeirra og starfsmanna stöðvar- innar. Rómaði hann nábýlið við stöðvarstjórann og fólk hans. Samkoman stóð í fullar 3 klukkustundir og var hin ánægjulegasta. Tilgangurinn með samkomu- húsinu er að sjálfsögðu sá, að skapa skilyrði til aukins og bætts félagslífs þess fólks, er vinnur í olíustöðinni, en því hef ir jafnan farið fjölgandi, og verða þær æ fleiri fjölskyldum ar, sem eru búsettar á Miðsandi allan ársins hring. Er ætlunin að koma þarna upp bókasafni, sýna kvikmyndir, flytja erindi, koma saman til spila, tafls o. fl.,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.