Tíminn - 03.04.1952, Page 3

Tíminn - 03.04.1952, Page 3
f 8. blað. TÍMINN, fimmtudaginn 3. apríl 1952. 3. Dánarminning: Kristján Guðmundsson „Meðan þú átt, þjóðin fróða, þvilík mannablóm, áttu sigur, gull og gróða, , Guð og kristindóm." Matth. Joch. í dag verður Kristján Guð- mundsson forstjóri Pípuverk- smiðjunnar, jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Hann var fæddur að Tanna- nesi við Önundarfjörð 26. júní 1900, sonur hjónanna Kristínar Friðriksdóttur og Guðmundar Sveinssonar bónda þar. Var fað ir lians vestfirzkur að ætt en móðir frá Breiðafirði. Kristján óx úr grasi hjá for- eldrum sinum í Tannanesi, á- samt fleiri börnum þeirra hjóna,1 unz faðir þeirra andaðist, er Kristján var 10 ára gamall. Bjó móðir hans eitt ár í Tannanesi eftir lát manns síns, en fluttist svo til ísafjarðar, þar sem hún hélt uppi heimili fyrir börn sín. sem hún sá farborða af frá- bærum dugnaði og myndarskap. Hörð mun lífsbarátta hennar hafa verið, er börnin voru á bernskuskeiði. En hún var ó- venjulega sterk kona, ekki ein- ungis til starfs, heldur og í trúnni á handleiðslu æðri mátt arvalda, og henni varð að trú sinni, því hún kom öllum börn um sínum, fjórum sonum og tveim dætrum til góðs og mikils þroska. | Kristján Guðmundsson lauk prófi frá Verzlunarskóla ís-' lands um tvítugt. Hvarf hann þá heim til ísafjarðar, og rak verzl un um tveggja ára skeið. | Árið 1923 stofnsetti hann á ísafirði fyrstu fiskimjölsverk- smiðju hér á landi, fyrir tiertan fiskúrgang, og rak hana til 1928. Fluttist þá til Reykjavikur, og kvæntist eftirlifandi komi sinni, Sigríði Kristinsdóttur frá ísa- ( firði, eignuðust þau einn son barna, Kristján Ómar, sem nú er 18 ára gamall. 1930 gerðist Kristján meðeig andi og framkvæmdastjóri Pípu verksmiðjunnar í Reykjavík, og rak hana síðan til dauðadags. Hann hafði áður kynnt sér framleiðslu steinsteypuvara á Norðurlöndum og í Þýzkalandi. Á kreppuárunum eftir 1930, sýndi Kristján mikinn dugnað í reksliri Pípuverkjsmiðjunnar, | og höf þá ýmsa nýja þætti i starfsemi hennar. Hann mun' fyrstur manna hér á landi hafa byrjað á að nota vikur sem bygg ingarefni. Hann byggði stórt íbúðarhús úr vikurholsteini fyr ir sjálfan sig árið 1937. En það er hið kunna.Vikurhús við Lang holtsveg í Reykjavík, þar sem hann átti síðan stórt og glæsi- legt heimili. Síðan hafa verið byggð þúsundir húsa úr vikur- holsteini viða um land. Eftir 1945 voru margir farnir að framleiða byggingarvörur úr vikri, misjafnar að gæðum og verði. Kristján Guðmundsson lét þá Pípuverksmiðjuna hætta fram- leiðslu. á vikri, en hélt áfram sem áður framleiðslu á hinum þekktu steinsteypuvörum verk- smiðjunnar. Upp úr þessu gerðist Krist- ján brautryðjandi í nýjum iðn- aði hér á landi, sem gaf góðar vonir á heimsmarkaðnum, en það voru sútuð fiskroð til margs konar iðnaðar. Keypti hann full Fólk út um land komnar vélar til sútunar fisk- roða, og fékk sérfræðing frá Danmörku til að standa fyrir hinu tæknilega starfi. Samtímis stóð hann að bygg- ingu fiskiðjuversins ,,ísver“ á Súgandafirði, en þar voru mest- ar vonir um steinbítsroð, sem var eftirsóknarverðasta hrá- efnið til þessa iðnaðar. Voru miklar vonir bundnar við þessi fyrirtæki. Verksmiðjan hóf starfsemi sína, og ýmis konar vörur úr allavega litu fiskroði komu á markaðinn, og voru eftirsóttar. Þá flutti verksmiðjan fiskroð út úr landinu með ágætum ár- angri. En tízkan er duttlungafull. Þegar allt virtist ætla að leika í lyndi með sölu þessarar fram- leiðslu á erlendum markaði og innlendum, sneri hún allt í einu baki við þessum vörum og brosti í aðra átt. Kristján Guðmundsson varð að stöðva verksmiðju sína, sem hafði kostað hann svo mikið fé og fyrirhöfn að byggja upp, og sem hann hafði gert sér svo glæstar vonir um. En hörð og kröpp kjör æsku hans, milli hinna háu vestfirzku fjalla, höfðu kennt honum að ^ gefast ekki upp. Hann var einka umboðsmaður fyrir hið merki- lega ryðvarnarefni „Ferrobet", ^ sem farið hefir sigurför um heiminn. Tók hann að fram- leiða í verksmiðju sinni þetta undralyf, sem nú er selt í öll- um kaupfélögum landsins. í byrjun þessa árs fékk hann einkaufhboð á öðru kemisku efni, sem mun hafa ómetan- lega þýðngu á endingu vinnu- fatnaðar o.fl., en það er lögur- inn „Tripion", sem nokkur reynsla er fengin með hér á landi á vinnuvettlingum, og lief ir gefið svo góða raun að stóra undrun vekur. Sútunarverksmiðju sinni var Kristján að breyta til fram- leiðslu þessara kemisku efna, — sem allar líkur eru til að hafi mikla hagnýta þýðingu í land- inu, — þegar æfidagur hans var skyndilega að kveldi kominn öll um að óvörum, sem til hans þekktu, því hann var enn á góð- um aldri og hraustur maður. Hann andaðist 26. f.m. af heilablóðfalli á 52. aldursári. Kristján Guðmundsson var bjartsýnn athafnamaður, sem vildi hefja framleiðslu- og at- vinnumál þjóðar sinnar til auk innar hagsældar, og hann reið ótrauður á vaðið með ýmsar nýj ungar í beim efnum. Munlð skóverzlunina á horni ♦ Klapparstígs og Laugavegs Símið eða skrifið - - - - — .... ( BOMSUR uieð láífiim htel or/ lo&kanti \ | KARLMANNASKÓR í 3 brciddum svartir ot/ brúnir kr. 129.50 | KVENSKÓR með hrátfúmmísóium otf leðursólum kr. 75 til 95 ♦ ♦ BARNASTÍGVÉL með hrát/úmmísólum á 4ra til 8 ára mjjög tfóð á kr. 75.00 STRIGASKÓR ótal tequndir otf verð. GÚMMÍSTÍGVÉL martjar tequndir Látið kunningjana velja yður skó, við skulum senda þá Skóverzlun B. Stefánssonar selur ódýrt iSkámzhmBÆ^ÚMsgnar luiiimiiiiiiiiiiiHMiiiiiimiiiiiimiiiiimiiimiiiimiiiiiir | Góður fjósamaður | I i óskast. Reglusemi og góð f j | umgengni ófrávíkjanleg = i f skilyrði. I Tilboð merkt „Góð um- i i gengni“ sendist Tímanum i I fyrir páska. MiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiM • ~ T í iMh Mk N - • 4nt£lyslð f Tfmannm. j ‘ M^. I " N N • ______________________________________I i Hann var hjálpfús drengskap armaður, ef til hans var leitað,; og studdi framgang góðra mála oft, með ráðum og dáð. Hann mátti ekkert aumt sjá, og var fljótuir a* rétta hjálparhönd þar sem hann sá þess þörf, og skar þá ekki alltaf við neglur sér. I Kristján Guðmundsson var gáfaður maöur, sem hafði glöggt auga fyrir því, sem gerð- ist í kringum hann, og hafði næma tilfinniirgu fyrir fegurð landsins og öðrum ástgjöfum; náttúrunnar. Hann var stór maður og glæsi legur, og bar það með sér að þar fór höfðingi. Samfara stórbrotnum höfð- ingsskap fór viðkvæm lund og háleitt trúartraust, sem hann hlaut að erfðum, og í uppeldi góðrar og göfugrar móður. Það var sú vöggugjöf, sem hann varð veitti til æfiloka og var honum dýrmæt stoð í margþættri lífs- reynslu. Með Kristjáni Guðmundssyni er genginn merkur borgari og mannkostamaður. Við fráfall hans er þungur harmur kveðinn að ungum syni, eiginkonu og há aldraðri móður, ættingjum og öðrum vinum. En hugljúf og björt verður minningin um hann. T. Ey. TILKYNNING um vaxtabreytingu: Vextir af innlánum og útlánum í Landsbanka ís- lands og útibúum hans reiknast frá og með 2. apríl 1952 eins og hér segir: 1. INNLÁNSVEXTIR: a) Af almennusparifé 5%. b) Af 6 mánaða uppsagnabréfi 6%. c) Af fé í 10 ára sparisjóðsbókum 7%. d) Af fé í ávísanabókum 2Yz%. 2. ÚTLÁNSVEXTIR: Forvextir af víxlum og vexU'r af lánum 7%, að undanskildum framleiðsluvöruvíxlum, er verða með 5% vöxtum, samkvæmt sérstök- um reglum þar um. Reykjavík, 1. apríl 1952 LANDSBANKI ÍSLANDS Nauðungaruppboð Eftir kröfu Búnaðarbanka íslands verður húseignin nr. 7 við Tjarnarbraut í Hafnarfirði með tilheyrandi lóðarréttindum eigin Hjörleifs Elíassonar boðin upp og seld og fer uppboðið fram á eigninni sjálfri miðviku- daginn 9. apríl n. k. kl. 14. BÆJARFÓGETINN í HAFNARFIRÐI 2 .apríl 1952 Guðm. í. Guðmundsson Áskriftarsími Tímans er 2323

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.