Tíminn - 24.07.1952, Síða 1
Ritstjóri:
Þórarinn Þórarinsson
Fréttaritstjóri:
Jón Helgason
Útgefaridi:
Framsóknarflokkurinn
Skrifstofur í Edduhúsi
Fréttasimar:
81302 og 81303
Afgreiðslusími 2323
Auglýsingasími 81300
Prentsmiðjan Edda
36. árgangur.
Reykjavík, fimmtudaginn 24. júlí 1952
164. blafi.
Dæmdur í 90 þús. kr. sekt,
veiðarfæri og afii upptækt
í gær var kveðinn upp
dómur í máli skipstjórans á
York City, sem tekinn var
af varðskipinu Ægi út af
Blakknesi. Dómur sakadóms
er sá, að skipstjórinn, Al-
berts S. V. Jones, skuíi
greiða 90 þúsund krónur í
sekt til Landhelgissjóðs ís-
lands, auk þess sem veiðar-
Síld uppi við Mán-
áreyjar í gærkvöldi
í gærkvöldi um kl. 10 hafði
ofurlítillar síldar orðið vart
við Mánáreyjar og voru skip
Tbúin að kasta þar. Höfðu
sum þegar fengið nokkra
veiði, svo sem Jón Guð-
mundsson, Keflavík, 170 tn.,
en flest skipin fegnu mjög
lítið, enda var síldin yfirleitt
i smáaugum. Veður va?
mjög gott.
I fyrrinótt kom síld víða
upp á Grímseyjarsundi og
köstuðu flest skip, sem þar
voru, en fengu flest mjög lít
ið. Köstuðu skipin mjög oft
og fengu 20—50 tunnur í
mörgum köstum. Að'eins 5
skip fengu sæmilega veiði í
fyrrinótt, Jón Finnsson 400
tn., Þorgeir goði 450 tn., Guð
ný 200 tn., Vonin Keflavík,
200 tn. og Muninn II. 200 tn.
Þessi skip og mörg önnur
komu inn til ýmissa hafna
í gær og var síldin söltuð. —
Var í allt saltað í gær í 2600
íunnur. Tvö skip komu til
Bagverðareyrar í gær,
Tryggvi gamli með 320 tn.
og Pólstjarnan með rúmar
100 tunnur. *
færi og afli sá, sem er í skip
inu, er upptækur til sama
sjóðs.
Greiðist sektin ckki innan
fjögurra vikna komi í stað-
inn 9 mánaða fangelsi.
Dómurinn miðast við það,
að kærði hefir áður gerzt
brotlegur við sömu Iög, þar
sem hann var dæmdur fyr- |
ir landhelgisbrot snemma á
árinu 1951 þá á sama skipi.
Þegar skipstjóra var til-
kynnt um málshöfðunará-
kvöröun í fyrradag, óskaði
hann að sýna réttinum ör á
fæti, sem orsakaði skekkju
í göngulagi, og sagðist hann
af þeim sökum ekki hafa
komizt upp í vai'ðskipið, er
skipsmeirn töldu um ölvun
hefði verið að ræða. Dóm-
urinn skéðaði áverkann, en
taldi skipstjórann ekki áber
andi haltann í göngulagi.
Við enduð störf réttarins í
fyradag, ávarpaði brezki sjó
liðsforinginn réttinn, og bar
fram þakklæti til dómsins
fyrir langlundargeð og sann
girni, en réttarhöldin eru
orðin með þeim lengstu, sem
orðið hafa í landhelgismáli
af þessu tagi.
Valdimar Stefánsson saka
dómari, stjórnaði réttarhald
inu af háttprýði og ná-
kvæmni.
Þegar skipstjóra hafði
verið kunngert um máls-
höfðunina, óskaði verjandi
hans, Lárus Fjelsted, eftir
að færa fram vörn í máli
hans og afhenti dómara
skriflega vörn sína.
Þegar dómur hafði verið
kveðinn upp í gær, áfrýjaði
skipstjórinn máli sínu til
æðri dómstóla.
Óliimpíuleihamir:
14 Ólympíumet og 3
heimsm. hafa verið sett
Iisg’i Þorstcinsson varð 26. af 30 kcptiend*
«ui i 110 m. grindahlaupi, Iiljóp á 15,6 sek.
Dagurinn í gær varð eigi viðburðasnauðari en fyrri dagar
leikanna, þótt lítið kæmu íslendingar þar við sögu. Voru enn
sett nokkur ný Ólympíumet og tvö heimsmet, og hafa nú
verið sett 14 ný Ólympíumet á leikunum og 3 heimsmet.
Munu aðrir Ólympíuleikar í seinni tíð ekki hafa orðið árang-
ursríkari, og eru þeir þó ekki nema hálfnaðir.
Aðalkeppnir í gær voru í
þrístökki, spjótkasti, 110 m.
grindahlaupi, langstökki
kvenna og 200 m. hlaupi.
Þrístökkið.
Þrístökkið varð einna sögu-
ríkast. í lokakeppninni var
auðséð, að heimsmethafinn,
da Silva, frá Brasilíu, mundi
y halda heiöri sinum og vel
það. Hann stökk mörg stökk.
um og yfir 16 metra, en heims
metið var 16,01 m. Lengstu
stökk hans nú voru 16,12 m.
og 16,25 m. og stórbætti hann
þannig tvívegis met sitt. Ann
ar varð Sjerbakov frá Rúss-
landi á 15,98 m. en þriðji
Devanos frá Venezúela á 15,22
m. Var þetta annað heimsmet
(Framh. á 7. siðu).
Ekki heitari da|ar
norðan lands
í mörg ár
Fra fréttariturum Tímans
á Húsavík og Akureyri.
Dagurinn í gær var ein-
hver heitasti dagur, sem kom
ið hefir á Norðurlandi í mörg
ár. —
Á Húsavík var hitinn 24
stig lengi dags og hefir slík-
ur hiti ekki komið þar siðan
1939. Iíægviðri var en sólar-
laust að mestu. Hefir hiti
verið töluverður í lofti und-
anfarna daga, enda þótt ekki
hafi hann fyrr komizt jafn-
hátt og í gær.
Á Akureyri var líka mikill
hiti í gær og var lengst af
um og yfir 20 stig. Sólarlaust
var þar þó alian daginn. —
Síðdegis kólnaði nokkuð og
komst hitinn þá niður fyrir
20 stig, og hélzt svo fram
undir kvöld.
Fyrsta áætíunar-
ferðin yfir norð-
urpólinn
í næsta mánuði er búizt
við að fyrsta áætlunarflug-
ferðin yfir norðurpólinn milii
Los Angeles og Stokkhólms
verði farin, og verður þaö flug
vél frá SAS sem tekur upp
þessar flugferðir. Þessi leið er
2 þús. km. styttri en leiðin
austur um þver Bandaríkin til
New York og þaðan venju-
lega flugleið til Norðurlanda,
og farþegar á þessari leiö
spara um 3000 kr. i fargjöld-
um.
Þessi óvenjulega flugleið er
talin allörugg, einkum vegna
hinna mörgu hernaðarflug-
valla og loftskeyatstöðva og
radarstöðva í heimskauta-
Iöndum, sem nú eru fyrir
hendi. Mörgum fyrirmönnum
hefir verið boðið í hina fyrstu
áætlunarflugferð yfir norð-
urpólinn.
Vestur-íslendingur kemur
hingað til búnaöarfræðslu
Skúli Hrútf jörð, frá St. Paul í Minnisota, sem er sérfræó ■
ingur í Iandbúnaðarmálum, og þá sérstaklega öllu því er
varðar fræðslu- og útbreiðslustarf á vegunx landbúnaða)
og bænua, og imniö hefir að slíkum málum í fjölda ára
kemur hingað til lands, samkvæmt beiðni íslenzku ríkis
stjórnarinnar. Mun hann eiga að vinna að því að skipuleggji
fræðslu- og útbreiðslustarfsemi í þágu landbúnaðarins hér
á landi, og gera íílíögur til framkvæmda á þeim sviðum
Yfir 20 skip lönd-
uðu 600 tunnum
á Rúsavík
Frá fréttaritara Tímans í Húsavik.
Til Húsavíkur komu í gær
yfir 20 síldveiðiskip með Iít-
ilsháttar af síld til söltunar.
Alls voru þó saltaðar á Húsa
vík um 600 tunnur í gær. —
.Flest voru skipin með mjög
lífcinn afla, allt ofán í nokkr
ar tunnur, en eitt skipanna
var þó með um 150 tunnur.
í gær var lítil sem engin
síldveiii. Nokkur skip köst-
uðu og á Grímseyjarsundi
mun hafa verið um smá-
vægilega veiði fáeinna skipa
að ræða í gær.
Maður af íslenzkum ættum.
Skúli, sem er af íslenzkum
ættum og talar íslenzku, hef-
il- unnið sér mikinn orðstyr
fyrir störf sín í þágu land-
búnaðar í fylkinu Minnisota,
og er hann aðstoðarprófessor
við búnaðarháskóla Minne-
sota og aöstoöarframkvæmd-
arstjóri þeirrar deildar Minne
sotastjórnar, sem hefir á
hendi fræðslu- og útbreiðslu-
starfsemi í þágu bænda.
Að tilhlutan ríkisstjórnar.
íslenzka ríkisstjórnin hefir
l'arið þess á leit við Skúla, að
hann verði við störf hérlendis
um nokkurra mánaöa skeið,
og munu þau verða aðallega
fólgin í athugun hans á upp-
lýsinga- og útbreiðslustarf-
semi, sem fyrir hendi er i
þágu landbúnaðarins, og mun
hann gera sér far um að gera
tillögur um það, á hvern hátt
rnegi auka og endurbæta slíka
starfsemi hér á landi, þannig
að hún komi bændum og land
búnaöi landsins að sem mest
um notum. Heimsókn Skúla
hingað er að nokkru leyti á
vegum hinnar gagnkvæmu ör
yggisstofnunar og er þetta lið
ur í þeirri tæknilegu þjón-
ustu, sem stofnunin lætur
meðlimalöndum efnhags-
samvinnunnar í té.
(Framh. á 7. siðu*
Kirkjukóramót að
Lundi í Öxarfirði
Frá fréttaritara Tímans
á Kópaskeri.
Kirkjukórasamband N.Þing.
prófastsdæmis hélt mót að
Lundi í Arnarfirði sunnudag-
Inn 13. júlí s.l. Formaður sam
' bandsins, Halldóra Friðrlks-
| dóttir, setti mótið, en síðan
[flutti sr. Páll Þorleifsson er-
indi. Ingimar Ingimarsson
flutti einnig erindi.
Þessir kórar sóttu mótið:
Kirkjukór Sauðaneskirkju,
söngstjóri Oddný Árnadóttir.
Kirkj ukór Skinnastaðasóknar
söngstjóri Björg Björnsdóttir.
Kirkjukór Garðssóknar, söng
stjóri Björg Björnsdóttir. —
Kirkjukór Snartarstaða-
kirkj u, söngstj óri Ragnar
Helgason.
Kórarnir sungu nokkur lög
sameiginlega, og allmikið ein
ir sér. Ræður voru og fluttar.
Var söngnum tekið hið bezta.
Skemmtu menn sér prýðilega
þrátt fyrir illviðri.
__
*
Islendingar uimu
brezka sjóliða í
skotkeppni
Þriðjudaginn 22. þ.m. fó>’
fram skotkeppni milli sió
liða af II.M.S. Mariner uno
ir stjórn lautinant Knighl
og Skotfélags Reykjavíkui.
Keppendur voru 8 frá hvoi
um aðila. Frá Skotfélagini,
eftirtaldir: Ágúst Finnsson
Bjarni R. Jónsson, Erlendu?
Vilhjálmsson, Halldór Er-
lendsson, Iians Christensen
Magnús Jósefsson, Ófeigui
Ólafsson og Róbert Schmidt
Keppt var að íþróttahús
inu Hálogalandi á 25 m
færi með kúlustærð 22. Hvei
keppandi skaut 20 skotun,
liggjandi og mögulegm
stigafjöldi hvorrar sveitai
mest 1600 stig.
Leikar fóru þannig, aí
sveit íslendinga vann mef
1450 stigum. Stigafjöldi Bret
anna var 727 stig.
Stúlkurnar standa
hundruðum saman
viðÓIympíubúðirnar
Á laugardaginn var, gerðV
finnska Iögreglan „innrás“ ii
Ólympíubúðir Bandarikja
manna í Helsingfors í Ólyn
píubænum Kottby og sóttr
þangað 25 finnskar stúlkur,,
sem höföu leitað þar „hæl-
is“ eins og blöðin orða það,
Stúlkurnar veittu öfluga,
mótspyrnu og spörkuðu á
kaft í lögregluþjónana.
Síðan leikarnir hófust, he)
ir kvenfólkið sótt fast afi
Ólympíubúðum erlendu i
þróttamannanna í Kottb>,
en á sunnudagskvöldið vai
náði þessi aðsókn þó há-
marki. Þá stóðu finnskai
stúlkur hundruðum -samari'.
meðfram búðagirðingunum
og margur bréfmiðinn mef
stefnumótsstað — og tíma
var réttur í gegnum girð-
inguna. Blöðin segja, að það
fari varla hjá því, að þessii
Ólympíuleikar líði án þess:
að hafa í för með sér alvar-
legar afleiðingar fyrir all-
margar ungar stúlkur í Hels:
ingfors, og jafnvel líka fyr-
ir •suma íþróttamennina.