Tíminn - 30.07.1952, Blaðsíða 6

Tíminn - 30.07.1952, Blaðsíða 6
TÍMINN, miðvikudaginn 30. júlí 1952. 169. blaff. ' •iiiiitiiiiiitiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiwMiuiiitiiiiiiai - • ------------------------------^ § = Austurbæjarbíó Leymdurmál Blondei í Bráðfyndin og skemmtileg, ný, | amerísk gamanmynd, skopstæl- | ing úr .fjölskyldulífinu. Penny Singleton, Arthur Lake. Sýnd kl. 9. I Haf oy himinn loga f (Task Force) | 5 n 1 Mjög spennandi og viöburða- : I rík, ný. amerísk kvikmynd, er 1 | fjallar um atburði úr síðustu | | heimsstyrjöld. Nokkur hluti | 1 myndarinnar er í eðlilegum lit- | I um. NÝJA BÍÓ v_ Allt í þessu fína (Sitting Pretty) Hin óviðjafnlega gamanmynd | um þúsundþjalasmiðinn „Bel- | vedere“. Aðalhlutverk: , Clifton Webb Maureen O’Hara Robert Young Sýnd kl. 9. í Aðalhlutverk: : Gary Cooper, Jane Wyatt, Walter Brennan. Sýnd kl. 5,15 og 9. lif TJARNARBIO BAJARBÍO - HAFNARFIRÐl - Gleym mér ei (Forget me not) Aðálhlutverk: Benjamino Gigli Joan Gardner Sýnd kl. 9. Sími 9184. Munið að greiða blaðgjaldið nú þegar Osiyrandi (Unconquered) | Ný, afarspennandi, amerísk stór I mynd í litum, byggð á skáld- I sögu Neil H. Swanson. 1 Cary Cooper Paulette Goddard Boris Karloff | | Leikstjóri: Cecil B. De Mille. _J f 1 Bönnuð börnum innan 16 ára. Sýnd kl. 5,15 og 9. GAMLA BIO = Kenjótt hona (The Philadelphia Story) Bráðskemmtileg amerísk kvik- mynd gerð eftir hinum snjalla gamanleik Philips Barry, sem lengst var sýndur á Broadway. Myndin er í sérflokki vegna af- bragðsleik þeirra: Katharine Hepburn. Cary Grant, James Stewart. Erlent yfirllt (Framhald af 5. síðu.) ina. í Malaya eru nú 580 þús. skóla börn í stað 260 þús. árið 1941, þrátt fyrir styrjöldina þar. í brezku Afríkunýlendunum eru nú yfir tvær milljónir skólabarna. í Tanga- nyaka voru 1950 1445 kennarar í stað 404 1938. Síðan 1945 hafa há- skólar tekið til starfa í Vestur- og Austur-Afríku, í Malaya og í Vest- ur-Indíum. Yfir 5000 stúdentar frá nýlendunum stunda nú nám i Bret landi. Þeir munu halda heim aftur. Þannig mun þekking og menntun halda áfram að vinna á í njlend- unum, unz fullur sigur er fenginn. Á sviði félagsmálanna á líka stöð ug framför sér stað. Fyrir tólf ár- um voru sárafá verkalýðsfélög í ný- lendunum. Nú skipta þau mörgum hundruðum og hafa samanlagt yfir 700 þús. félagsmanna. Tala sam- vinnuféiaga hefir meira en tvö- faldazt síöan 1945. Pólitískir flokk ar hafa risið upp og fengið leyfi til að starfa. Aukin þátttaka hinna innfæddu íbúa í þingstörfum og stjórnarstörfum kennir þeim að þekkja lögmál lýöræöisins. í fyrra vann kongressflokkurinn á Gull- ströndinni mikinn sigur og Kwama Nhrumah varö fyrsti afríkanski for sætisráðherrann í brezka heims- veldinu. En þetta er aðeins byrj- unin. Þannig verður að halda áfram. Þaö geta orðið vonbrigði og mistök, en takmarkið mun nást sarnt. Eitt hættulegasta viöfangsefnið er sambúð kynflokkanna, þar sem um tvíbýli er að ræða. Það, sem nú er að gerast í Suður-Afríku, er stór hættulegt. Hér þarf að skapa sam- vinnu í stað sundrungar. Ef við get urn breytt brezka heimsveldinu í samveldi frjálsra, jafnrétthárra þjóða, höfum við unniö mikið og gott starf í þágu friðarins og frels- isins. Sýnd kl. 5,15 og 9. = M \ \ r I I TRIPOLI-BIÓ ELDURINN Göfuulnndi rœninainn I i I | Ný, amerísk litmynd, frá L | I frá byltingartímunum 11 i 1 Englandi. Myndin er afar j = " spennandi og hefir hlotið [ I “ mjög góða dóma. II I Thiliph Friend Wanda Hendrix Sýnd kl. 5, 7 og 9 Gerist áskrifendur að Zjímcinum jjpNN Vicki Baum: Frægðarbraut Dóru Hart íerir ekk< bo8 á nndan *ét. | frelt, sem era hygjni* i itnu kj* I SAHVINNUTRYGGINGUU I £ = Áskriftarsími 2323 Ragnar Jónsson hæstaréttaricgmaðnr Laugaveg 8 — Síml 7711 LögfræfffstörJ og eignaum- sý*la. AMPER H.F. Raftækjavlnnuitofa Þlngholtstræti 11 Slml 8155«. | Raflagnir — Viffgerfir Raílagnaefnl \ Kirkjaii og þjóðiii 1 (Framhald af 4. síðu) I um þau eiga kristnir menn 1 oð sameinast, en hirða minna [ um aukaatriði og umbúðir. Hin ófyrirmannlega kristin- dómsboðun, sem lýsir sér venjulega í mikilli sjálfgleði og fordæmingu á þeim, er aðr ar skoðanir hafa, er orðin al- gerlega úrelt og kristindóm- inum sjálfum verst, hvort sem hún í'er fram á torgum úti eða í húsum inni. Erfiðleikar kristinnar kirkju eru nógu miklir, þó að þjónar hennar eyði ekki tíma sínum og kröft um í illkynjaðar deilur inn- byrðis um „keisarans skegg,“ þ.e. um það, sem litlu eða engu máli skiptir fyrir sálar- heill manna og enginn getur ef til vill með sanni sagt, að hann viti. Höfuðóvinur kirkj- unnar og alls andlegs lífs yf- irleitt er efnishyggjan í öll- um hennar myndum. Hún er hinn raunverulegi „höfðingi þessa heims,“ og þeir, sem fvrst og fremst leita þess rík- is, sem er „ekki af þessum heimi,“. ættu því að samein- ast gegn henni. Grétar Fells. Verkainanna- lnistaðir (Prambald af 5. síðu.i gcrt til aff sýnast. hegar I>jóff viljinn er aff lýsa áhuga sín- um fyrir lausn þeirra. Verk kommúnista, þegar þeir gátu einhverju ráðið, sýna algert áhugaleysi þeirra fyrir lausn þessara mála. Þess vegna eru hermannabraggarnir einu verkamannabústaðirnar, sem tengdir eru viff stjórnartíff kommúnista. X+Y. Trúlofunarhringar ávallt fyrirliggjandi. — Sendi gegn póstkröfu. Magnús E. Baldvinsson eftir veginum með þau. Á þann hátt gátu þau losnað við ertni samstarfsfólksins. í Biarritz gekk þeim sérlega vel, en eftir það fóru tekjurnar að minnka. Riveran var orðin vett- vangur lóðabraskara og fasteignasala, sem höfðu allan hug- ann við gróða sinn en skeyttu því engu að sækja Mademoi- selle Ponpon. í júní leituðu þau til kaldari héraða og völdu Normandí. Fyr^í stað voru tekjurnar litlar, en þau unnu á. Það var Dór" sem dró fólkið að. Hún hafði aðeins áhyggjur af einu um þetta leyti, að rodd hennar þyldi ekki þennan óperettu- söng. „Hvers vegna ertu svona döpur, þú drottning Schrum- schrum“, söng René, sem gat heyrt gras gróa. Þótt hún svar- aði engu, gat hann sér þess til, hvað að henni amaði. Dag- inn eftir hvarf hann í bifreiðinni og skildi Dóru eina eftir fulla af afbrýði og tortryggni. Hún undraðist það, hve allt var tómlegt eftár brottför hans og hve tíminn leið seint. Þegar leið að næstu sýningu var hann þó kominn aftur og hafði meðferðis stóran nótnabagga, sem hann hafði keypt, Carmen, Tosca, Manon og Salóme eftir Richard Strauss. Þau sungu og léku alla nóttina. Það var ekki fyrr en hundarnir fóru að spangóla í morgunsárið og himinninn var orðinn grá hvítur með eina stjörnu út viö sjóndeildarhringinn, sem þau hættu. Viku síðar tilkynnti René, að bannsettur skálkurinn hann Blancenoir hefði loks samið nýtilegt tónverk. Hann lék þaö fyrir Dóru og söng lágt undir einfaldan texta. Henni fannst þetta tónverk undarlega nýtt og.falskt, en einmitt þess vegna ákaflega heillandi. „Það er eins og lykt af asfalti", sagði hún vandræðalega. Hún átti við beiskjuna, remmuna og ertnina í tónunum. „Ég hef einu sinni þekkt myndhöggvara, sem hjó myndir sinar í sömu tóntegund11, bætti hún við. Hún hafði aldrei talaö um Basil við René. Allt í einu reis René á fætúr og kyssti hana innilega alveg án nokkurs tilefnis að henni fannst. „Hvers vegna gerir þú þetta“? spurði hún undrandi. „Ég veit það ekki. Líklega af því að ég finn, að þú tilheyrir sömu kynslóð og ég“, sagði hann, og það voru alvarlegustu orðin, sem hann hafði nokkru sinni sagt við hana. Þegar aðsóknin fór að dræmast í Normandí og kólnaði enn meira í veöri að áliðnu sumri, fóru þau aftur til Marseille. René blístraði marsinn um ítaust eins.og ætíð, er hann hafði mikil verkefni á prjónunum og sendi símskeyti í allar áttir. Dóra sat'í litlu gistihúsherbergi og hugsaði um það, að nú neyddist hún til að yfirgefa leikflokkinn og halda til Vínar, ef hún ætlaði að tryggja sér ráðningu við óperuna næsta starfstímabil. En hún fór ekki. Lífið' var svo gott og auðvelt í návist René, að hún gat ekki slitið sig frá honum. Einn góðan veðurdag kom það í ljós, að þau höfðu verið leigð til Norður-Afriku. Þau stigu á lítið skip með allt sitt hafurtask, og René tók meira að segja bílinn með. Bílgarm- urinn var einhvern veginn orðinn éaðskiljanlegur hluti af lífi þeirra. René hafði skírt hann Fanfaron og hann átti við ýmsa kvilla að kljást. „Fanfaron hefir svolítinn hósta“, sagði René, ef seint gekk að komast upp á einhverja hæð. Eða: „Fanfaron er í sólskinsskapi eftir góðan morgunverð“. í Al- gier fullyrti René meira að segja, að Fanfaron hefði orðið ástfanginn í gljáandi og spengilegri spánfekri bifreið. Dóru þótti vænt um þennan litla vagn með slitna, brúna flosáklæðinu, alveg eins og henni þótti vænt um slitinn ■ frakkann hans Renés. | Samt var Dóra viss um, að hún elskaöi ekki René. Hún 'þekkti ástina aðeins sem þjáningu. En samband hennar við René var sefandi, græðandi. René lagði líka oft á það áherzlu ’ að samband þeirra væri aðeins tímabundið og mætti slíta því, hvenær, sem annað hvort þeirra óskaði þess. j Þau sungu Mademoiselle Ponpon í Algier og skemmtana- þyrstir Afríkumenn og feröafólk fyllti leikhúsið kvöld eftir I kvöld. Eitt sinn fánn Dóra ofurlitla mynd úr tini á borði sínu í búningsherberginu. Myndin var af buffli stuttfættum og álútum, en á baki hans sat lítill og pervisinn Kínverji í stuttri kúlíaskyrtu. Stráhatturinn hvíldi á herðum hans og hann lék á flautu. „Hvað er þetta“? spurði Dóra hrifin. „Það er kúlíinn minn. Hann á að halda vörð um þig dag og nótt“, sagði René og strauk litlu myndina í lófa sér. „Hann er ánægður“, bætti hann við. Dóra undraöist það, hve vel hann þekkti hana og gat sér rétt til um hugsanir hennar og kenndir. Þau fóru til Túnis, og þá var Dóra oröin dauðþreytt og leið á Mademoiselle Ponpon. En hún hafði René enn, og um þetta leyti ákvað þrjóturinn Blancenoir einmitt að semja óperu. Það var milli þátta, sem hann lék forspilið fyrir hana. Píanó- ið var falskt, og á milli þils og veggjar kröfsuðu rottur og mýs. Úti á götunni drunuðu sporvagnarnir í sífellu. René var óstyrkur, og Dóru kom það á óvart, því að hann virtist alltaf í jafnvægi. „Hvenær hefir þú haft tíma til aö semja þetta allt“? spurði hún undrandi. „Blancenoir er hinn mesti eljumaður, einkum meðan hann sefur“, sagði hann grafalvarlegur. „Hann er nú líka einu sinni búinn að ákveða að gera okkur bæði fræg. Hann ætlar að semja óperu handa þér. Fyrsti þáttur er nær tilbúinn. Hvers vegna þegir þú, ó, drottning Schrumschrum“^ ,söpg hann. •, .: , •

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.