Tíminn - 30.09.1952, Page 2
TÍMINN, þriðjudagfiln 30. september 1952.
220. blað.
BoSungavíkurbátarnir
reynast enn fengsælir
Frá fréttaritara Tímans
í Bolungarvík.
TÉitgerðin.
4 bátar héðan stunduðu
síldveiðar fyrir Norðurlandi á
.■þessu sumri. Voru það Hug-
jrún, Víkingur, Einar Hálf-
dáns og Flosi. Var Hugrún
með herpinót, en hinir með
hringnætur. Aíli bátanna
var sem hér segir: Hugrún
409 mál og tn., Víkingur 204
mál, Einar Hálfdáns 1148 mál
og-tn., 215 mál ufsi og Flosi
1478 mál og tn., og 270 mál
ufsi. Bátarnir hófu veiðar í
-byrjun júlí, og komu heim 9.
—12. ágúst. Eftir heimkom-
una fóru Hugrún, Einar og
Flosi til smásildarveiða á
'ÁIftafirði. Var Hugrún 2—3
daga, en hinir 2—3 vikur, —
'aflinn var sem *hér segir:
"Hugrún ca. 300 mál, Einar
984 mál og tn., og Flosi 360
mál. Á síldveiðum í sumar var
’hásetahlutur á m.b. Flosa kr.
7.212,00 og mun það vera
'hæsti síldarhlutur yfir land-
íð, ef miðað er við úthalds-
*tíma. Hásetahlutur á Einari
Tíálfdáns varð kr. 6.527,00 og
-mun hann vera annar í röð-
inni, ef miðað er við þann
tíma, sem hann var á veið-
-um. Á siða,stliðinni vetrar-
Tertíð var afli m.b. Flosa
428,6 tn. og hásetahlutur kr.
15.932,00. Mun það hafa veriö
hæsti aflahlutur á Vestfjörö-
mm. Á sama tíma var afli m.
b. Einars Hálfdáns 404,1 tn.
og hásetahlutur kr. 14.759,50.
Skipstjóri á Flosa er Jakob
Þorláksson en á Einari. Hálf-
d'áns Hálfdán Einarsson. —
Báðir eru þeir ungir menn,
35 og 36 ára að aldri og hafa
stundað sjóinn allt frá
bernsku. Hefir Jakob verið
skipstjóri í 16 ár, en Hálfdán
jnokkru skemur. Hafa þeir
Teynzt einstakir atorku- og
heppnismenn í starfi, og að
jafnaði síðan þeir hófu for-
Útvarpið
JÓtvo.rpið í áag:
Kl. 8,00—9.00 Morgunútvarp. 10,10
Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádegis-
litvarp. 15,30 Miðdegisútvarp. 16,30
Veðurfregnir. 19,25 Veðurfregnir.
19.30 Tónleikar: Óperettulög (plöt-
ur). 19,45 Auglýsingar. 20,00 Prétti.r
20.30 Erindi: Hinrik VIII. og af-
skipti hans af íslandsmálum; fyrra
erindi (Bjöm Þorsteinsson cand.
mag.). 21,00 Undir ljúfum lögum:
Carl Billich o. fl. flytja létt hljóm
Sveitarlög. 21,0 Frásöguþáttur: Séra
-■fenorri á Húsafeili (Bjöm Magnús-
son). 22,00 Fréttir og veðurfregnir.
Frá iðnsýningunni (Vilhj. S. Vil-
hjálmsson). 22,20 Tónleikar .(plöt-
ur). 22,35 DagskMriok.
Útvarpið á mCFgun:
- K1 8,00—9,00 Morgunútvarp. 10,10
Yeðurfregnir. 12,10—13,15 Hádegis-
útvarp. 15,30 Miðdeglsútvarp. 16,30
Veðurfregnir. 19,25 Veðurfregnir.
19.30 Tónleikar: Óperulög (plötur).
19,45 Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20,30
Útvarpssac an: „Mannraun“ eftir
Sinclair Lewis; I. (Ragnar Jóhann-
esson skólast.jóri). 21,00 íslenzk tón
lis't'/Bönglög eftir Jón LaxdaL (plöt
ur), 21,20 Erindi: Veiðifálkinn
(Júlíus Hávsieen Sýslumáðúr;. 21,45
Tónleikar (plötur). 22,00 Fréttir og
veðurfregnir. 22,10 Dans- og- dægur
Jþg (pletur). 22,30 DagSkrárlok.
> Arnað heilla
Trúlofun.
Síðastliðinn laugardag opinber-
uðu. trúlofun sína ungfrú Nína
Hjaltadóttir, Óðinsgötu 25, Rvík, og
Hafsteinn Eyjólfssonj Aðalgötu 14,
Kefiavík.
mennsku, verið aflahæstir
hér í Bclungarvík og oftsinn-
| is haft mestan afla yfir Vest-
' firði. Slíkir menn eru sómi
sinnar stéttar, og eiga stærri
hlutdeild í sköpun atvinnu í
Bolungarvík en flestir aðrir
einstaklingar.
Næg atvinna í sumar.
Atvinna hefir verið mikil
hér í sumar og má segja, aö
hver starfhæfur maður og
kona hafi haft verk að vinna.
Ve'gna útfærslu landhelgis-
línunnar stunduðu nokkrir
sunnlenzkir togbátar, — sem
annars myndu hafa stundað
veiðar í Faxaflóa — veiðar út
af Djúpinu, og lögðu aflann
á land hér. Alls munu þessir
bátar hafa flutt hér að landi
um 860 tonn. Allmargir bát-
ar stunduðu færaveiðar hér
í sumar og öfluðu vel. Mun
dæmi til þess að einn maður
hafi dregið á færi fyrir yfir
20 þúsund krónur á 2J4 mán-
uði; alls var lagt á land í
Bolungarvík 1333 tonn af
fiski yfir mánuðina júní, júlí
og ágúst. Meginhluti aflans
var hraðfrystur, en nokkuö
saltað. Fiskúrgangur allur
var unninn í fiskimjöl. Nú
eru allir togbátar hættir veið
um, og afli á færi einnig úr
sögunni síðan hausta tók og
tíð að spillast og er nú lítið
að starfa um sinn.
Höfnin.
I Nokkuð var unnið við öldu-
þrjótinn í sumar. Var einu
steinkeri sökkt og endi brjóts
ins steyptur í fulla hæð, og
ýmislegt fleira fært í lag. —
Virtist mjög til verksins vand
að og vona menn að nú hafi
tekist að byggja svo ramm-
lega, að hin tröllaukna út-
hafsalda fái eigi á unnið.
Verkstjóri við hafnargerðina
var nú og í fyrrasumar liinn
kunni atorkumaður Marzell-
íus Bernharðsson, skipasmíða
meistari á ísafirði, en eftirlit
■ fyrir hönd vitamálaskrifstof-
unnar hafði Guðmundur Þor
steinsson verkfræðingur.
' Dýpkunarskipið Grettir er
væntanlegt hingað á næstu
dögum til að annast upp-
mokstur við öldubrjótinn,
hyggja menn gott til þess, því
mjög hefir borizt sandur að
brjótnum, sem hin mesta
nauðsyn er á að flytja á burt.
í sumar hefir verið unnið að
því að múrhúða hið nýja'fé-
lagsheimili Bolvíkinga að ut-
an og er því verki nú langt
komið. Þá hefir og verið unn
ið að byggingu verkamanna-
bústaðar, er eitt hús í bygg-
ingu,. 18x8 m. að flatarmáli, 4
íbúðir. Standa vonir til að
hægt verði að flytja í íbúð-
irnar fyrir jól.
Heyskapur og jarðabætur.
Heyskap er nú almennt lok
ið, og mun hann nálgast með
allag yfirleitt. Vorið var kalt
og sumarið kom seint. Hófst
heyskapur af þeim sökum í
seinna lagi. Grasspretta á tún
!um varð þó um síðir allgóð
| og sums staðar ágæt. Útengj -
ar voru miður sprottnar,
•nema helzt þar sem forn-
slægja- var lyrir hendi. Hey-
;skapartKí var hagstæö, eink-
-um er á sumarið leið.
Allmikið var unnið að jarða
bótum á s.l. vori og meira en
á nokkru .einu ári áður. Er
nú svo'komið að eigi er unnt
Jaæjum hér yfirleitt, nema
framræsla komi til. Er það
| eitt allra mesta viðfangsefni
jbænda hér á næstu árum að
fá .vélakost til framræslunn-
; ar, því ella verður ekki hjá
! komist stöövun í ræktuninni
aö verulegu leyti.
i
Vegabætur.
i Lítils háttar var unnið í
Skálavíkurvegi. Skortir þó
enn nokkuð á að veginum sé
I lokið. Hins vegar hefir hann
lorðið ao verulegu liði á þessu
! sumri sern heyflutningaveg-
ur. í Skáiavík eru slægjulönd
góð, og hefir töluvert verið
heyjaö þar af Bolvíkingum í
sumar. Keíði sú heyöflun ver
ið óframkvæmanleg, ef veg-
arins heföi eigi notið við.
21. sept. 1952,
Þ. H.
Árásiis í Fossvog'i
tFramhald af 1. síðu).
annan bíl, er nam staðar hjá
Einari. Var ekið inn í Reykja
vík, en snúið við aftur í Hlið-
unum, að bílstjórinn áleit til
þess að gá að Einari. En er
kom suður i Fossvog sást hann
hvergi.
Von til, aff mennirnir finnist.
i Þessi atburður var þegar
kærður, og rannsóknarlögregl
an í Reykjavík yfirheyrði bíl
stjórann og Einar, sem var
mjög illa útleikinn, en þó ekki
lííshættulega meiddur. Síðan
var málið sent lögréglustjór-
anum á Keflavíkurflúgýélli til
i framhaldsrannsóknar. Voru
j árásarmennirnir ófundnir í
J gærkveldi, en talið víst, að
j þeir finnist, því að bílstj órinn,
i Arilíus Sveinsson, þekkir báða
'í sjón, og annar bílstjóri, er
sá þá fara upp í bíl Ariliusar,
þekkir auk þess þann, sem
fyrir árásinni stóð.
IÐNSYMN131?
5:
Opið daglega klukkan 14 til 23.
einnig sunnudaga
Barnavarzla kl. 14—19.
«■ tsarnavarzia ki. 14—ía. ■;
g_____ Í
(ViV.ViAW.VW.V.V.V.V.V.V.V.VV.V.V.Vi.V.V.VAW.I
AVWAV/A'.V.V.W.V.VAV.W/AV/J.V.V.'.VAVVV.-
Skeiðaréfetir!
Skei'ffaréttir!
Réttadansleikur
verður í Brautarliolti n.k. laugardag 4. okt.
Hefst kl. 21. — Góð hljómsveit.
Ungmennafélagiff.
1
i
*
i
Anglýsingastríðið
(Framhald af 1. síðu).
mynda sér reglur um hvernig
slíku banni yrði framfylgt.
Afskipti útvarpsráffs.
Útvarpsráð hefir í þessu
sambandi talið rétt að birta
opinberlega yfirlýsingu um1
það, að gengið hafi verið á
þess rétt með afskiptum ráðu
neytisins, þar sem vald þess
yfir dagskrá sé óumdeilan-
legt og að ráðhen-a geti ekki
lagt bann við auglýsingum
frekar en hann gæti bannað
að lesin væru í útvarpið ætt-
jarðarkvæði eða danskvæði. j
Útvarpsráð virðist mis- j
skiija nokkuð valdsvið sitt.
Hér er fyrst og fremst um að^
ræða fyrirmæli um, að fylgt
sé settum reglum útvarpsins,
er ekki hefir verið farið eftir
í mörg ár án þess að útvarps-
ráð hafi vakið á því athygli.
í öðru lagi má benda , að
útvarpsráö starfar að veru-
legu leyti samkvæmt reglum,
er ráðherra setur (meðal ann
ars varðandi auglýsingar) og
er i því efni háð ákvörðun-
um hans á hverjum tíma. Af-
skipti þess í sambandi við
auglýsingar byggjast ein-
göngu á því eftirliti, sem lög-
in gera ráð fyrir, að útvarps-
ráð hafi um það, að við út-
varpið ríki skoðanafrelsi og
óhlutdrægni. En það, að lagt
er bann við ákveðnum teg-
undum auglýsinga, verður
ekki talið brot á hlutleysi út-
varpsins."
• : T I IVI 1. N:t,N . •
fluglijAtö í T/fflaHUftt
VörMliíIsíjérafélag'ið
Auglýsing eftir
framboðslistum
Ákveðið hefir verið að kjör 2ja aðalfulltrúa og 2ja
til vara á 23. þing ASÍ fari fram með allsherjarat-
kvæöagreiðslu.
Samkvæmt þvi auglýsist hér með eftir framboðs-
listum, og skulu þeir hafa borizt kjörstjórn í skrifstofu
félagsins eigi síöar en kl. 19 þriöjud. 30. þ.m. Hverjum
lista skulu fylgja meðmæli minnst 24 fullgildra félags-
manna.
Kjörstjórnin.
i WA'.V/V/AW.V.V.WAW.V.V.V.V.W.WAWWW
Innilegustu þakkir færi ég öllum þeim, er glöddu mig
með skeytum, gjöfum og heimsóknum á seXtugsafmæli
mínu. — Guð blessi ykkur öll.
Stefán Sigurösson,
Kársnesbraut 13.
í
í
»VAV^AV/.VV.W.V.V.^WA-/.VV.V,W.V.V,WA\V
WVAV.V.V.V.V.V.V.V'.W.V.’.V.SV.V.V.V.V/J.VVW
í Þakka innilega öllum vinum og vandamönnum, sem
■I glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, skeytum og ■;
V hlýjum orðum á 90 ára afmæli mínu. •[
£ — Guð blessi ykkur öll. ■!
Margrét Guffmundsdóttir
frá Stóruvöllum.
.‘.VVVVMAM,
GUÐMUNDUR HANNESSON
fyrrv. bóndi aff Grímsstöðum í Reykholtsdal lézt aff
heimili sonar síns, 29. september.
Vandamenn.
að halda áfram ræktun á' ,r"i T.: I M I. N N '
Jarðarför
KOLBEINS JÓHANNESSONAR, Eyvík,
fer fram fimmtudaginn 2. október. Athöfnin hefst meff
húskveðju á heimili hans kl. 10 f.li. — Jarffað verffur
á Stóru-Borg. Þeir, er hefffu hugsað sér aff gefa blóm
cffa kransa, eru beönir að láta andvirði þeirra renna
til einhverra Iíknarstofnana.
Aðstandendur.