Tíminn - 11.10.1952, Síða 6

Tíminn - 11.10.1952, Síða 6
6. TIMINN, laugardaginn 11. október 1952. 230. blaff> ÞJÓDLEIKHÚSID I „iLeðurblaUan“ Sýning sunnud. kl. 20..00 Sýning í kvöld kl.. 20,00 Næst síðasta sinn. Júnó óg Páfuglinn eftir Sean O’Casey. Þýð.: Lárus Sigurbjörnsson. Leikstjóri: Lárus Pálsson. Sýning sunnud. kl. 20,00 AðgöngumiSasalan opin frá kl. 13,15 til 20,00. Tekið á móti pöntunum. Sími 80000. Sími 80000. | [ Austurbæjarbíó J Gugnnfósnir Spennandi og viðburðarík am- erísk mynd um nútímanjósn- ara, byggð á eínu vinsælasta út varpsleikriti Bandaríkjanna. Howard St. John Willárd Parker Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sjómanndags- liabarettinn Sýning kl. 7,30 og 10,30. Sala aðgöngumiða hefst kl. 2 e.h. llTJARNARBÍÖ TRIPOLI j Afar spennandi, viðburðarík og ; vel leikin ný amerísk mynd í | eðlilegum litum. Myndin gerist I í Noröur-Afrjku. Aðalhlutverk: John Payne Howard La Silva Maureen O’Hara Bönnuð innan 14 ára. i Sýnd kl. 5, 7 og 9. GAMLA BIÓ = V. NÝJA BíÖ v___________________ II Trovutore Þessi frábæra ítalska óperu- kvikmynd, sem enginn tón- listarunnandi ætti að láta ó- séða. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Allra síðasta sinn. MALAJA Spencer Tracy James Stewart Sýnd kl. 9. Síðasta sinn. BÆJARBIÖ - HAÍNARFiRÐI - __________________J Mjólhurpósturinn Sprenghlægileg amerísk gaman mynd, áreiðanlega fjörugasta kvikmynd, sem hér hefir sézt. Donald O’Connor. Sýnd kl. 9. Sími 9184. 1 HAFNARBiO Nœturveiðar (Spy Hunt) Afburða spennandi og atburða rik ný amerjsk mynd um hið hættulega og spennandi starf njósnara í Mið-Erópu. Howard Duff Marta Toren Philip Friend Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9. Sala hefst kl. 2 e.h. Munið að greiða blaðgjaldið nu begar „Blessuð sértu sveitin mín“ (So Dear to My Heart) Skemmtileg og undurfögur ný söngvamynd í litum gerð af Walt Disney aðalhlutverkið leikur sjö ára drengurinn _ Bobby DriscoII ” Sýnd kl. 5 og 7. | TRIPOLi-BÍÖ I | V--------------------J s | Morðið í vitanum (Voiee of the Wistler) | Afar spennandi og dularfull Í" amerísk sakamálamynd. Kichard Dix Lynn Merrick Sýnd kl. 7 og 9. 5 Bönnuð börnum innan 12 ára. Ævintgri Gullfallegar nýjar litkvikmynd ir í Agfa litum, m.a. ævintýri, teiknimyndir, dýramyndir og fl. Myndirnar heita Töfrakist- illinn, Gaukurinn og starinn, Björninn og stjúpan, ennfrem ur dýramyndir o. fl. Sýnd kl. 5. Sala hefst kl. 4 e.h. ELDURINN Gerir ekki boð á'undan sér. Þeir, sem eru hyggnir, tryggja strax hjá SAMVINHUIIIYGGINGBM ampep n/P Raftækjavlnnustofa Þingholtsstræti 21 Sími 31556. Raflagnir — Viðgerðir Raflagnaefni Erleiit yfirlií (Framhald af 5. síðu.J um sættir þeirra Eisenhowers og Tafts, en það er nú gert minna en áður. Demokratar töldu að sjálf sögðu, að Taft hefði borið sigur úr býtum í þeim viðskiptum, en sann leikurinn mun sennilega sá, aö hér sé um lauslegt samkomulag að ræða, er stafi af því, að hvor um sig þarf á hinum að halda. Eisen- hower er ólíklegur til að vinna mið- ríkin, nema hann fái fullan stuðn- ing Taftista. Margir helztu stuðn- ingsmenn Tafts í þinginu eru hins vegar ólíklegir tii að ná endur- kosningu, nema þeir hljóti stuðn- ing Eisenhowers, en völd Tafts byggjast mjög á því, að þessir menn verði endurkosnir. Sam- komulag Eisenhowers og Tafts virð ist þannig byggjast meira á gagn- kvæmri þörf beggja í kosninga- baráttunni en varanlegu samkomu lagi. Hitt er hins vegar ljóst, að völd Tafts verða mjög mikil, ef Eisenhower vinnur og republikanar fá þingmeirihluta. Óneitanlega virð ist Eisenhower líka skuldbundnari Taft eftir en áður, þótt hins vegar sé fjarri lagi að segja, að hann hafi fallizt á stefnu Tafts. Hörð barátta. Rúmur mánuður er nú eftir til kosninganna, Öll merki benda til þess, að baráttan, sem eftir er, verði mjög hörð. Demokratar munu benda á þær miklu kjarabætur, sem hinar vinnandi stéttir. hafa hlotið í stjór.nartíð þeirra, og lofa að halda því starfi áfram. Þeir munu benda á, að velmegun hafi aldrei verið meiri í Bandaríkjun- um en nú og þakka það stjórn sinni. Repubiikanar munu leiða hest sinn sem fliest hjá umræðum um þessi mál, en einkum deila á utan- rjkismáiastefnuna og spiliingu í stjórnarkerfinu. Þeir munu m. a. kenna demokrötum um Kóreustyrj öldina. Þeir munu segja, að Eisen- hower sé hinn reyndi og farsæli stjórnandi, er sé líklegastur til að veita örugga forustu á þeim við- sjárverðu tímum, er framundan séu. Vinni þeir kosninguna, mun það framar öðru byggjast á þessu tvennu: Persónulegum vinsældum Eisenhowers og rótgrónum vana aö láta ekki sama flokkfnn fara lengi með stjórh. Fyrir innanlandsmál Bandaríkj anna getur það skipt verulegu máli, hvor flokkurinn vinnur í kosning- unum 4. nóvember. Stjórn Steven- sons myndi veröa frjálslyndari, en stjórn Eisenhowers er þó vart lík- leg til að verða íhaldssöm á þann hátt, að hún raski veruiega því, sem áunnizt hefir í stjórnartíð demokrata seinustu 20 árin. í utan ríkismálum er vart mikilla breyt- inga að vænta, ef Eiscnhower íylgir svipaðri stefnu og hann hefir virzt hafa til þessa. New York, 26. sept. Þ. Þ. Eiim FalsatSur Kiumingi (Framhald al 5. síðu.) reglustjóranna að gæta þess, að unglingum sé ekki selt á- fengi, nema einungis í veit- ingahúsum í Reykjavík þessa siðustu daga? (Jm „heiðarlega réttar- vörzlu“ mun ég ekki ræða frekar að sinni, en skora á Mbl. að gera annað tveggja: Láta E. F. K. segja til sín eða gangast sjálft við faðerninu, hvað sem hverjum sýnist um sómann. Halldór Kristjánsson. (iiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiitiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiitn (FRÍMERKll | Allar tegundir af notuðum 1 i íslenzkum frímerkjum | i keyptar hærra verði en áð- | | ur hefir þekkzt.. 50 prósent \ | greitt yfir verð annarra. i i WILLIAM F. PÁLSSON I | Halldórsstöðum, Laxárdal, i i S.-Þing. = iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii nmi iii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Lloyd C. Douglas: r I stormi ífsi 27. dagur SJOTTI KAFLI. Glampi frá stóra lampanum við höföalag hennar féll á varnarvirki þau, sem frú Hudson hafði að sér hlaðiö gegn ásókn svefnsins, er hún ákvað um miðnætti að bíöa komu Joyce vakandi. Þetta var skáldsaga, tvö tímaritshefti og hálflokið sendibréf.' En rétt fyrir klukkan tvö hafði hún lotiö í lægra haldi í þessari baráttu, og nú svaf hún og ljósiö féll á áhyggju- fullt svipmót hennar. Hefði hinn látni Hudson læknir verið leiddur í vitnastúku á dánardegi sínum og spurður um hjónaband sitt, sem var afleiðing kunningsskapar konu hans við dóttur hans, mundi honum hafa fundizt það óþægileg spurning, ef hann hefði átt að þjóna meðfæddri sannleiksást sinni. Þau höfðu staðið þrjú saman kaldan janúarmorgun, þeg- ar brúðkaupið fór fram, og þau líktust ekki hjónaefnum og vaxinni stjúpdóttur heldur feðginum, föður með tvær dætur sínar. Og kirkjan hafði gefið þeim blessun sína. Og Hudson vissi þennan morgun, að margir erfiðleikar biðu þessa litla hóps, erfiðleikar þeirrar samvinnu, sem fyrir höndum var, og hann ól engar gyllivonir í brjjósti. En hann fann, að hann var. farinn að ala í brjósti heita og einlæga ást til þessarar ungu stúlku, og hinni heillavænlegu vináttu milli Helenar og Joyce var stefnt í hættu. Svo hófst ferðin yfir Atlanzhafið. Joyce var lítil sjóhetja, og fyrstu þrjá daga sjóferðarinné ar var veörið illt. Hún varð að vera í rúminu og undi lífinu hið versta. Þau reyndu aö hressa hana og fá haha til að koma á fætur og harka af sér. Á sunnudagskvöldið hafði hún loks látið tilleiðast að koma og setjast í legustólinn, sem þau hoföu búið henni á B-þil- farinu, og þá hafði hún komizt að raun um, að hún hitti ekki fyrir umhyggjusaman föður sinn og vinkonu síná á sama aldri, heldur hjón, mann og konu, sem áttu þegar heil- an heim út af fyrir sig, að vísu hjón, sem unnu henni og voru henni einlægir vinir, en engu að síður í annarri veröld en hún lifði í. Þar með var óbrúanlegt djúp staöfest á milli þeirra. Þau reyndu öll þrjú af fremsta megni að hverfa aftur til fyrri einlægni í sambúðinni, en það var ekki auðgert. Ef til vill hafa hinar áköfu tilraunir þeirra einmitt girt að fullu fyrir það. Svo kom dvölin í París, og Hudson lækniY vaj’ önn- um kafinn við heimsóknir í ýmis sjúkrahús og viðræður viö lækna í sömu vísindagrein og hann. Joyce og Ilelen skoð- uðu borgina saman og gengu á milli verzlana, en Joyce fann sífellt, að Helen stóð henni ekki næst lengur. Hún þráði samvistir við mann sinn. Hún reyndi að 'véra stjúp- dóttur sinni glaövær og skilningsrík stallsystir, en það kom ekki frá hjartans grunni lengur. „En hvað þetta ,er falleg kápa, Joyce. Það var gaman aö þú skyldir finna svona fallega kápu.“ En þetta voru tóm orð og hljómur þeirra var ekki sannur. Hpr voru ekki tvær jafna.idra vinkonur að tala samíin, heldur stjúpmóðirin og dóttirin, sem áttu ekki lengur samleið að fullu. Þó voru engin misklíðarefni uppi. Ef til vili hefði farið betur, ef svo hefði verið. Þáð varð engin hrukka séð á yfir- borði sambúðarinnar. Meisemdin lá of djúpt til' þess að merki hennar sæjust á yfirtaorðinu. Það var orsökin. Öll orð, sem þeim fóru á milli, voru vúngjarnleg og innileg, eii undirtónninn var holur sýndarhljómur, sém enginn ókunn- ur heyrði en þau fundu öll. Hvert og eitt þeirra vissi, að þau gerðu öll sitt ýtiásta til að vera eðlileg, og þau vissu livert um sig, að það hlutverk var harla erfitt. Þau streitt- ust öll við aö ná íyrri stöðu sinni, en vegurinn þangað var glataður. Þegar eftir dauða Hudsons læknis, styttist bilið á milli stjúpmæðgnanna verulega. Fyrstu dagana eftir hina hræði- legu atburði þrýstu þær sér af alefli hvor aö annarri í leit að samúð og trausti, og um stund virtist leiðin að fyrri vin- áttu vera greið. En það stóð' ekki lengi. Sorg Joyce átti sér ekki djúpar rætur á yfirborði, og eftir viku kvaðst hún kasta sorgarbúningnum og snúa sér að gleði lífsins. Viðhorf Helenar var annað. Hún ætlaði ekki að sækja lífsgleöi sína til annarra, heldur lifa sínu eigin lífi öðrum óháð. „Bíddu mín ekki í kvöld, vina mín,“ sagði Joyce klukkan níu um kvöldið. „Ég ætla að fara út með Ned.“ (Eða Tom, eða Pat, eða Phil). „Ég kem kannske seint heim. Hvar? Ég veit það varla, við dönsum einhvers staðar, kannske í Cristal Palace eða þá í Gordon.“ „Mér er ekkert uiii þessar ferðir þínar í Gordon gefið. Joyce. Það er ekki heppilegur skemmtistaður. Gerðu það fyrir rnig að fara ekki þangaö.“ Á rósrauðu borðinu lágu nokkur bréf, eitt þeirra var frá Montgomery Brent, innilegt, bróðurlegt og ástríkt til „litlu systur“ sem átti nú í erfiðleikum og var kannske ekki þeim vanda vaxin, sem að henni steöjaöi á viðskiptasviðinu. „Mér er það sönn gleði að rétta þér hjálparhönd í þeim efnum sem varðar ráðstöfun eigna, skuldabréfa eða trygg- inga. Slíkt heyiTr til mínu daglega starfi.“ „Blessaður drengurinn,“ hvíslaði hún hálfhátt, er hún laS1 bréf hans á nýjan leik. „Þetta er fallega boðið af honum og alls ekki heimskuleg hugmynd. Hann er vafalaust vel að

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.