Tíminn - 04.01.1953, Blaðsíða 4

Tíminn - 04.01.1953, Blaðsíða 4
 4. TÍMINN, sunnudaginn 4. janúar 1953. 2. blað. Sökum þess að eigendur Olíufélagsins h.f. eru fjölmenn samtök og félög í landinu, sem ekki verður náð til nema á opinberum vettvangi, telur félagið sig ekki geta komizt hjá þvi að gera nokkra grein fyrir afstöðu sinni til þess dóms, sem kveðinn hefur verið upp vegna olíufarms þess, sem olíu- skipið „Esso Memphis" flutti til landsins í marzmánuði 1950. Gerir félagið þetta enda þótt því sé ljóst, að almennt kann það að vera óæskilegt, að gerð séu að umtalsefni opinberlega mál, sem eru fyrir dómstólum landsins. En sökum blaðaskrifa og rógs um þetta mál á félagið ekki annarra kosta völ. /. Málavextir. Olíufélagið h.f. hefur frá stofnun þess 1946 flutt inn olíur og benzín frá Esso Export Corporation í New York, en félagið sjálft og Hið íslenzka steinolíuhlutafélag hafa selt þessa vöru til innlendra aðila um land allt, svo og erlendra aðila á Kefla- víkurflugvelli. Sá háttur hefur, með samþykki innflutnings- yfirvaldanna, verið hafður á greiðslum fyrir þennan inn- flutning, að allar dollaratekjur fyrir sölu á Keflavíkurflug- velli hafa verið færðar í reikning Olíufélagsins hjá Esso Export Corporation í New York. Innflutt olía frá þessu ame- ríska félagi hefur síðan verið greidd úr þessum reikningi, auk þess sem gjaldeyrisleyfi hafa verið veitt fyrir þeim upphæð- um, sem skort hefur til viðbótar. Gengi íslenzkrar krónu var lækkað 19. marz 1950. Voru þá kannaðar birgðir olíufélaganna, og breyttist olíuverð sam- kvæmt ákvörðunum verðlagsyfirvaldanna til hækkunar 1. apríl. Nú hafði olíuskipið „Esso Memphis“. komið til landsins 10. marz, en þar sem Olíufélagið átti ekki dollara í reikningi sínum í New York til greiðslu á öðru en þeim hluta farmsins, sem ætlaður var erlendum aðilum á Keflavíkurflugvelli, en olía og benzín úr skipinu til innlendrar notkunar voru ógreidd 19. marz, var þessi farmur ekki talinn með þeim birgðum, sem keyptar höfðu verið á eldra genginu. Olíusalan á Keflavíkurflugvelli hefur hins vegar ekki áhrif á verð olíu til innlendra aðila, og var því ekki um það spurt, hvort sá hluti af farmi „Esso Memphis“, sem þangað fór, hefði verið greiddur fyrir eða eftir gengisbreytinguna. Úrskurður sá, sem Verðlagsdómur Reykjavíkur kvað upp fyrir nokkru, virðist byggjast á því, að dómurinn telur Olíu- félagið hafa átt dollara fyrir öllum farminum, framkvæmda- stjóra félagsins þvi hafa gefið verðlagsyfirvöldunum rangar upplýsingar og félagið hafa hagnazt ólöglega á innanlands- sölu þessa farms. Byggir dómurinn þetta á því, að Olíufélagið hafi 19. marz átt til greiðslu á umræddum farmi bæði þá dollara, sem því höfðu verið færðir til tekna í reikningi hjá Esso Export Corp., og þá dollara, sem búið var að afhenda olíuvörur fyrir á Keflavíkurvelli fram til 19. marz, enda þótt kaupendur hefðu ekki greitt þá, og þeir því verið ókomnir í reikning Olíufélagsins. Augljóst má þó vera, að ekki gat fé- lagið greitt vörur með peningum, sem því höfðu sjálfu ekki verið greiddir. í þessu sambandi skal tekið fram, að olíuvörur þær, sem seldar eru á Keflavíkurflugvelli, eru aldrei greiddar við móttöku, heldur er reikningum til hvers kaupanda safnað saman á vissum fresti, sem getur verið mismunandi eftir því hvers konar reikningsviðskipti kaupandinn hefur samið um, og síðan sendir vestur um haf til innheimtu. Líður því að jafnaði talsverður tími frá því að varan er afhent á Kefla- víkurflugvelli og þar til andvirði hennar er komið í reikning Olíufélagsins hjá Esso Corporation. Verðlagsdómur telur þannig, að Olíufélagið hafi átt að koma til skila á ákveðnum degi gjaldeyri, sem því hafði sann- anlega ekki verið greiddur þann dag. Þó kom fram í máls- vörninni, að margír útflytjendur drógu, jafnvel svo mánuð- um skipti, að afhenda Landsbankanum gjaldeyri, sem þeir höfðu afhent útflutningsvörur fyrir og fengið greiddan frá erlendum aðiljum fyrir 19. marz 1950, til þess að geta eftir þann dag fengið hann greiddan á nýju gengi. En banki'nn hefur keypt allan gjaldeyri, sem til hans er skilað, á því kaup- gengisverði, sem er í gildi þann dag, sem skilin fara fram, án tillits til þess, hvenær gjaldeyrisins hefur verið aflað. Vitað er einnig, að þeim kaupsýslumönnum, sem eignazt höfðu umboðslaun í erlendum gjaldeyri fyrir 19. marz, var ekki gert að skyldu að afreikna þau miðað við eldra gengið. Framkvæmdastjóri Olíufélagsins taldi í marz 1950, —tel- ur enn og hefur að sínni hyggju fært fullar sannanir fyrir því, að félagið hafi ekki átt erlendan gjaldeyri fyrir öðrú af farmi „Esso Memphis“ en því, sem fara átti til erlendra kaupenda. Annar hluti farmsins var allur ógreiddur éftir gengisbreytinguna. Hann taldi sig þá og telur si'g enn hafa gefið fullkomlega réttar upplýsingar og telur félagið á eng- an hátt hafa hagnazt ólöglega af sölu umrædds farms vegna gengisbreytingarinnar. II. Vörn Olíufélagsins. Þaö er skoðun Olíufélagsins, að lögfræðingur þess hafi fyrir réttinum fært fullar sönnur á eftirfarandi höfuðatriði þessa máls: 1) Að framkvæmdastjóri félagsins hafi talið þann hluta af farmi „Esso Memphis“, sem ætlaður var innlendum not- endum, ógreiddan 19. marz 1950, og hafi eftir beztu samvizku hagað upplýsingum sínum til verðlagsyfirvaldanna eftir þeirri skoðun. 2) Að Olíufélagið skuldaði 19. marz 1950 í reikningi sínum hjá Esso Export Corp. hærri upphæð en verðmæti þess farms „Esso Memphis“, sem seldur var innlendum notendum. Ennfremur er það óumdeilt, að heildsöluskattur, leyfisgjald, bankakostnaður, verðtollur, vörumagnstollur og smásölu- skattur fyrir olíu þessa voru greidd miðað við hið nýja gengi. Farmurinn var þannig tollafgreiddur á nýja genginu og tryggingargj öld fyrir hann voru einnig greidd á nýja geng- inu. 3) Að það var mjög eðlilegt, að Olíufélagið ætlaði dollara- tekjur sínar af sölu á Keflavíkurflugvelli fyrst og fremst til greiðslu á vörum fyrir flugvöllinn, þar sem H.Í.S. var og ér’“i: ,J“ • M 'JL) samningsbundið til þess að hafa ávallt nægar birgðir af olíu. og benzíni á vellinum. Auk þess hafa viðskiptin á flugvellin- um tryggt þjóðinni allmikinn gjaldeyri til kaupa á nauðsyn- legum olíum fyrir sjálfa sig, og því var mjög mikilvægt að tryggja, að þeim viðskiptum yrði haldið áfram. 4) Að áætlun Olíufélagsins um skiptingu á farmi „Esso, . Memphis“ milli innlendra og erlendra notenda var í alla staði eðlileg og heimil, enda var skiptingu þeirri fylgt í rey-nd- • inni. -íííj III. Hinn „ólöglegi hagnaður“. Niðurstöður Verðlagsdóms Reykjavíkur hafa komið Olíu- félaginu og Hinu íslenzka steinolíuhlutafélagi mjög á óvart, eins og séð verður af skýringunum hér að ofan, þar á meðal sú niðurstaða dómsins, að félögin hafi hlotið „ólöglegan gróða“ að upphæð 1.600.165 krónur. Það leiðir af því, sem hér hefur verið sagt, og ítarlegum rökstuðningi lögfræðinga félaganna fyrir réttinum, að félögin hafa engan slíkan gróða hlotið. Við réttarhöldin kom ekkert fram, sem á nokkum hátt benti til þess, að Olíufélagið eða H.Í.S. hefðu selt einn ein- asta líter af olíuvörum, hverju nafni sem nefnast, hærra verði en leyft var með tilkynningum verðlagsyfirvaldanna, eða hækkað verð á vörum sínum, fyrr en slík hækkun var leyfð af sömu yfirvöldum. Loks er það skoðun félagsins, að upphæðin, 1.600.165 kr. fái ekki staðizt, og sýndi lögfræðingur Olíufélagsins fram á það fyrir réttinum, að hún er byggð á útreikningum, sem eru í verulegum atriðum rangir. IV. Málinu áfrýjað. Hér er ekki hægt að gefa nema örstutt yfirlit yfir mjög umfangsmikið mál, en það, sem sagt hefur verið, gefur vís- bendingu um það, að Olíufélagið og Hið íslenzka steinolíu- hlutafélag geta ekki sætt sig við úrskurð Verðlagsdóms og hafa því, svo sem framkvæmdastjórar félaganna og fyrrver- andi' framkvæmdastjóri Olíufélagsins, ekki hikað við að á- frýja honum til hæstaréttar í þeirri öruggu von, að þar fái þau leiðréttingu mála sinna. Olíufélaéið h.f. 5 IMMIMMMIIIIIIMMMIMMMMMMMIMIMMMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMMMMMMMMMMMIIMMIMIMMIMMMMMMMMMMMMMHMMMMMIIMMMMMMMMIMMMMMIMMMMMMMMMHMMMMIMMMMIMMMMMMMMMMMMMMMHMMIMMMMMMMMMMHMMMMMIMMMIMMMMMMMIMMIMMMMMMMMIIMIMIMMMMMMMMMIIMMIIIMIIIIIIIIMIMMIIIIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIMIIMIIIIIIIIIIIMIMMIMMIIIMIIIIIMIIIMIMIIIMMIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIMIIIIMMMC

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.