Tíminn - 04.01.1953, Blaðsíða 4
4.
TÍMINN, sunnudaginn 4. janúar 1953.
2. blað.
Sökum þess að eigendur Olíufélagsins h.f. eru fjölmenn
samtök og félög í landinu, sem ekki verður náð til nema á
opinberum vettvangi, telur félagið sig ekki geta komizt hjá
þvi að gera nokkra grein fyrir afstöðu sinni til þess dóms, sem
kveðinn hefur verið upp vegna olíufarms þess, sem olíu-
skipið „Esso Memphis" flutti til landsins í marzmánuði 1950.
Gerir félagið þetta enda þótt því sé ljóst, að almennt kann
það að vera óæskilegt, að gerð séu að umtalsefni opinberlega
mál, sem eru fyrir dómstólum landsins. En sökum blaðaskrifa
og rógs um þetta mál á félagið ekki annarra kosta völ.
/. Málavextir.
Olíufélagið h.f. hefur frá stofnun þess 1946 flutt inn olíur
og benzín frá Esso Export Corporation í New York, en félagið
sjálft og Hið íslenzka steinolíuhlutafélag hafa selt þessa vöru
til innlendra aðila um land allt, svo og erlendra aðila á Kefla-
víkurflugvelli. Sá háttur hefur, með samþykki innflutnings-
yfirvaldanna, verið hafður á greiðslum fyrir þennan inn-
flutning, að allar dollaratekjur fyrir sölu á Keflavíkurflug-
velli hafa verið færðar í reikning Olíufélagsins hjá Esso
Export Corporation í New York. Innflutt olía frá þessu ame-
ríska félagi hefur síðan verið greidd úr þessum reikningi, auk
þess sem gjaldeyrisleyfi hafa verið veitt fyrir þeim upphæð-
um, sem skort hefur til viðbótar.
Gengi íslenzkrar krónu var lækkað 19. marz 1950. Voru þá
kannaðar birgðir olíufélaganna, og breyttist olíuverð sam-
kvæmt ákvörðunum verðlagsyfirvaldanna til hækkunar 1.
apríl. Nú hafði olíuskipið „Esso Memphis“. komið til landsins
10. marz, en þar sem Olíufélagið átti ekki dollara í reikningi
sínum í New York til greiðslu á öðru en þeim hluta farmsins,
sem ætlaður var erlendum aðilum á Keflavíkurflugvelli, en
olía og benzín úr skipinu til innlendrar notkunar voru ógreidd
19. marz, var þessi farmur ekki talinn með þeim birgðum, sem
keyptar höfðu verið á eldra genginu.
Olíusalan á Keflavíkurflugvelli hefur hins vegar ekki áhrif
á verð olíu til innlendra aðila, og var því ekki um það spurt,
hvort sá hluti af farmi „Esso Memphis“, sem þangað fór,
hefði verið greiddur fyrir eða eftir gengisbreytinguna.
Úrskurður sá, sem Verðlagsdómur Reykjavíkur kvað upp
fyrir nokkru, virðist byggjast á því, að dómurinn telur Olíu-
félagið hafa átt dollara fyrir öllum farminum, framkvæmda-
stjóra félagsins þvi hafa gefið verðlagsyfirvöldunum rangar
upplýsingar og félagið hafa hagnazt ólöglega á innanlands-
sölu þessa farms. Byggir dómurinn þetta á því, að Olíufélagið
hafi 19. marz átt til greiðslu á umræddum farmi bæði þá
dollara, sem því höfðu verið færðir til tekna í reikningi hjá
Esso Export Corp., og þá dollara, sem búið var að afhenda
olíuvörur fyrir á Keflavíkurvelli fram til 19. marz, enda þótt
kaupendur hefðu ekki greitt þá, og þeir því verið ókomnir í
reikning Olíufélagsins. Augljóst má þó vera, að ekki gat fé-
lagið greitt vörur með peningum, sem því höfðu sjálfu ekki
verið greiddir. í þessu sambandi skal tekið fram, að olíuvörur
þær, sem seldar eru á Keflavíkurflugvelli, eru aldrei greiddar
við móttöku, heldur er reikningum til hvers kaupanda safnað
saman á vissum fresti, sem getur verið mismunandi eftir því
hvers konar reikningsviðskipti kaupandinn hefur samið um,
og síðan sendir vestur um haf til innheimtu. Líður því að
jafnaði talsverður tími frá því að varan er afhent á Kefla-
víkurflugvelli og þar til andvirði hennar er komið í reikning
Olíufélagsins hjá Esso Corporation.
Verðlagsdómur telur þannig, að Olíufélagið hafi átt að
koma til skila á ákveðnum degi gjaldeyri, sem því hafði sann-
anlega ekki verið greiddur þann dag. Þó kom fram í máls-
vörninni, að margír útflytjendur drógu, jafnvel svo mánuð-
um skipti, að afhenda Landsbankanum gjaldeyri, sem þeir
höfðu afhent útflutningsvörur fyrir og fengið greiddan frá
erlendum aðiljum fyrir 19. marz 1950, til þess að geta eftir
þann dag fengið hann greiddan á nýju gengi. En banki'nn
hefur keypt allan gjaldeyri, sem til hans er skilað, á því kaup-
gengisverði, sem er í gildi þann dag, sem skilin fara fram, án
tillits til þess, hvenær gjaldeyrisins hefur verið aflað.
Vitað er einnig, að þeim kaupsýslumönnum, sem eignazt
höfðu umboðslaun í erlendum gjaldeyri fyrir 19. marz, var
ekki gert að skyldu að afreikna þau miðað við eldra gengið.
Framkvæmdastjóri Olíufélagsins taldi í marz 1950, —tel-
ur enn og hefur að sínni hyggju fært fullar sannanir fyrir
því, að félagið hafi ekki átt erlendan gjaldeyri fyrir öðrú af
farmi „Esso Memphis“ en því, sem fara átti til erlendra
kaupenda. Annar hluti farmsins var allur ógreiddur éftir
gengisbreytinguna. Hann taldi sig þá og telur si'g enn hafa
gefið fullkomlega réttar upplýsingar og telur félagið á eng-
an hátt hafa hagnazt ólöglega af sölu umrædds farms vegna
gengisbreytingarinnar.
II. Vörn Olíufélagsins.
Þaö er skoðun Olíufélagsins, að lögfræðingur þess hafi fyrir
réttinum fært fullar sönnur á eftirfarandi höfuðatriði þessa
máls:
1) Að framkvæmdastjóri félagsins hafi talið þann hluta
af farmi „Esso Memphis“, sem ætlaður var innlendum not-
endum, ógreiddan 19. marz 1950, og hafi eftir beztu samvizku
hagað upplýsingum sínum til verðlagsyfirvaldanna eftir
þeirri skoðun.
2) Að Olíufélagið skuldaði 19. marz 1950 í reikningi sínum
hjá Esso Export Corp. hærri upphæð en verðmæti þess
farms „Esso Memphis“, sem seldur var innlendum notendum.
Ennfremur er það óumdeilt, að heildsöluskattur, leyfisgjald,
bankakostnaður, verðtollur, vörumagnstollur og smásölu-
skattur fyrir olíu þessa voru greidd miðað við hið nýja gengi.
Farmurinn var þannig tollafgreiddur á nýja genginu og
tryggingargj öld fyrir hann voru einnig greidd á nýja geng-
inu.
3) Að það var mjög eðlilegt, að Olíufélagið ætlaði dollara-
tekjur sínar af sölu á Keflavíkurflugvelli fyrst og fremst til
greiðslu á vörum fyrir flugvöllinn, þar sem H.Í.S. var og ér’“i: ,J“
• M 'JL)
samningsbundið til þess að hafa ávallt nægar birgðir af olíu.
og benzíni á vellinum. Auk þess hafa viðskiptin á flugvellin-
um tryggt þjóðinni allmikinn gjaldeyri til kaupa á nauðsyn-
legum olíum fyrir sjálfa sig, og því var mjög mikilvægt að
tryggja, að þeim viðskiptum yrði haldið áfram.
4) Að áætlun Olíufélagsins um skiptingu á farmi „Esso, .
Memphis“ milli innlendra og erlendra notenda var í alla
staði eðlileg og heimil, enda var skiptingu þeirri fylgt í rey-nd- •
inni. -íííj
III. Hinn „ólöglegi hagnaður“.
Niðurstöður Verðlagsdóms Reykjavíkur hafa komið Olíu-
félaginu og Hinu íslenzka steinolíuhlutafélagi mjög á óvart,
eins og séð verður af skýringunum hér að ofan, þar á meðal
sú niðurstaða dómsins, að félögin hafi hlotið „ólöglegan
gróða“ að upphæð 1.600.165 krónur. Það leiðir af því, sem
hér hefur verið sagt, og ítarlegum rökstuðningi lögfræðinga
félaganna fyrir réttinum, að félögin hafa engan slíkan gróða
hlotið.
Við réttarhöldin kom ekkert fram, sem á nokkum hátt
benti til þess, að Olíufélagið eða H.Í.S. hefðu selt einn ein-
asta líter af olíuvörum, hverju nafni sem nefnast, hærra verði
en leyft var með tilkynningum verðlagsyfirvaldanna, eða
hækkað verð á vörum sínum, fyrr en slík hækkun var leyfð
af sömu yfirvöldum.
Loks er það skoðun félagsins, að upphæðin, 1.600.165 kr. fái
ekki staðizt, og sýndi lögfræðingur Olíufélagsins fram á það
fyrir réttinum, að hún er byggð á útreikningum, sem eru í
verulegum atriðum rangir.
IV. Málinu áfrýjað.
Hér er ekki hægt að gefa nema örstutt yfirlit yfir mjög
umfangsmikið mál, en það, sem sagt hefur verið, gefur vís-
bendingu um það, að Olíufélagið og Hið íslenzka steinolíu-
hlutafélag geta ekki sætt sig við úrskurð Verðlagsdóms og
hafa því, svo sem framkvæmdastjórar félaganna og fyrrver-
andi' framkvæmdastjóri Olíufélagsins, ekki hikað við að á-
frýja honum til hæstaréttar í þeirri öruggu von, að þar fái
þau leiðréttingu mála sinna.
Olíufélaéið h.f.
5 IMMIMMMIIIIIIMMMIMMMMMMMIMIMMMIMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMIMMMMMMMMMMMMMIIMMIMIMMIMMMMMMMMMMMMMHMMMMMIIMMMMMMMMIMMMMMIMMMMMMMMMHMMMMIMMMMIMMMMMMMMMMMMMMMHMMIMMMMMMMMMMHMMMMMIMMMIMMMMMMMIMMIMMMMMMMMIIMIMIMMMMMMMMMIIMMIIIMIIIIIIIIMIMMIIIIIIMIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIMIIMIIIIIIIIIIIMIMMIMMIIIMIIIIIMIIIMIMIIIMMIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIMIIIIMMMC