Tíminn - 30.04.1953, Blaðsíða 2

Tíminn - 30.04.1953, Blaðsíða 2
2. TÍMINN, fimmtudaginn 30. april 1953. 96. blað. Vildu ekki eiga á hættu, að ham- arinn steyptist yfir þorpið Fólkið í smábænum Bulk- en á Vesturlandinu norska hefir átt yfir höfði sér hættu,1 sem það vildi ekki lengur, búa undir. Uppi í snarbrattri| fjallshliðinni, 300 metra ofan við bæinn, skagaði fram geysimikill klettur, sem hang ið hefir þar í marga manns- aldra eins og geysimikil varta á ásýnd fjallsins. Síðastliðið haust virtist allt benda til þess, að kletturinn væri að losna og myndi þá og þegar hrynja niður á sléttlendið,1 þar sem þorpið er. 19. októ-. ber í haust héldu íbúarnir borgarafund, og þar var ein-J róma samþykkt að sprengja klettinn. 200 borholur, smá- lest af sprengiefni. Verkfræðingar voru fengn ir til þess að leggja á ráðin, og þeir töldu að gera þyrfti ( 200 borholur í hamarinn, sex metra djúpar, og fylla þær' með einni smálest af sprengi efni, svo að grjótið sundrað- ist svo vel við sprenginguna, að ekki ylli stórskemmdum á þorpinu undir fjallshlíðinni, þar sem standa 10—12 íbúð- arhús og um sextíu manns! áttu heimili sín. J Nú hefir kletturinn verið, sprengdur, svo að varla er urmull eftir af honum, eða, minnsta kosti svo lítið, að, engin hætta er á, að það ÚtvarpÍB Útvarpið í dag: Kl. 8,00—9,00 Morgunútvarp. 10,10 Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádegis útvarp. 15,30 Miðdegisútvarp. 16,30 Veðurfregnir. 17,30 Enskukennsla; II. fl. 18,00 Dönskukennsla; I. fl. 18.30 Þetta vil ég heyra! Hlustandi velur sér hljómplötur. 19,15 Tón- leikar (plötur). 19,25 Veðurfregnir. 19.30 Tónleikar (plötur). 19,45 Aug- lýsingar. 20,00 Préttir. 20,20 íslenzkt mál (Halldór Halldórsson dósent). 20,40 Tónleikar (plötur). 21,00 Er- indi: Skólar og kennsla í Banda- ríkjunum (Guðmundur Þorláksson magister). 21,25 íslenzk tónlist: Lög eftir Kalrl O. Runólfsson (pl.). 21,45 Frá útlöndum (Jón Magn.s- son fréttastjóri). 22,00 Fréttir og veðurfregnir. 22,10 Sinfóniskir tón leikar (plötur). 23,00 Dagskrárlok. íltvarpið á morgun: Kl. 8,00—9,00 Morgunútvarp. 10,10 Veðurfregnir. 12,10—13,15 Hádegis- útvarp. 15,30 Miðdegisútvarp. 16,30 Veðurfregnir. 19,25 Veðurfregnir. 19,30 Tónleikar (plötur). 19,45 Aug- lýsingar. 20,00 Fréttir. 20,20 Há- tíðisdagur verkalýðsfélaganna: — Ávörp flytja: Steingrímur Stein- þórsson félagsmálaráðherra, Helgi Hannesson forseti Alþýðusambands íslands og prófessor Ólafur Björns son formaður Bandalags starfs- manna ríkis og bæja. 21,00 Leikrit Þjóðleikhússins: „Skugga-Sveinn" eftir Matthías Jochumsson. — Leik stjóri: Haraldur Bjömsson. Söng- stjóri: Dr. Victor Urbancic. Leik- endur: Haraldur Björnsson, Guð- björg Þorbjarnardóttir, Valdimar Helgason, Nína Sveinsdóttir, Bessi Bjarnason, Ævar R. Kvaran, Sigrún Magnúsdóttir, Lárus Ingólfsson, Ró bert Arnfinnsson, Baldvin Halldórs son, Jón Aðils, Rúrik Haraldsson, Gestur Pálsson, Klemenz Jónsson o. fl. 23,30 Veðurfregnir. Danslög (plötur). 01,00 Dagskrárlok. Árnað helLla Sjötugsafmæli. Sjötíu ára afmæli á i dag frú Guðríður Guttormsdóttir frá Stöð í Stöövarfirði, nú til heimilis að Grundarstíg 15. hrynji og valdi tjóni, fólki að óvöru. Viðvörunarmerkið. Það var fyrst um mitt síð- astliðið sumar; að fólki í Bulken fór að standa alvar- legur geigur af þessum kletti. Þá losnaði úr þessum kletti að næturlagi stórt bjarg, en til allrar hamingju tvístrað- ist það á leiðinni niður hlíð- ina. 1000 punda þungur steinn hæfði þó íbúðarhús eins bóndans í þorpinu og mölbraut eldhúsið. Hann stöðvaðist að hálfu leyti í eldhúsrústunum og að hálfu leyti inni í stofu, er næst því var, þar sem barnarúm sundr aðist í smásprek. En barninu, sem í þvi hafði verið. varð það til lífs, að það hafði ver- ið órólegt um nóttina, svo að móðir þess hafði tekið það upp í til sín, fáum mínútum áður en hrunið kom úr fjall- inu. Eftir þennan atburð flúði bóndinn úr húsinu með fólk sitt, en aðrir íbúar þorpsins tóku að gerast mjög órólegir, því að sýnt þótti, að höfuð- kletturinn sjálfur myndi losna þá og þegar. Nýtt hrun kom svo einn af fyrstu dögunum í október, mun meira hinu fyrra, og það herti enn á íbúum þorps ins að bíða ekki lengur á- tekta. Hættulegt starf. j Það var þó-ekki hættulaust starf að undirbúa sprengingu klettsins. Á milli tíu og tutt- ugu menn unnu að því að gera holur, og voru þeir allir látnir síga fyrir klettinn. Ekki þótti með öllu víst nema þetta myndi ríða klettinum að fullu og hann falla fram meðan mennirnir voru þarna við störf, svo að geta má nærri, að ekki hafi allir ver- ið ginkeyptir fyrir þessari vinnu. Fólkið niðri í þorpinu kaus líka að fjarlægja sig meðan á þessu stóð, ekki sízt þar sem það varð hvort eð var að flytja úr húsum sínum með- an kletturinn var sprengdur. Það fór þó svo, að þetta á- hættusama fyrirtæki heppn- aðist eins vel og hægt hafði verið að gera sér vonir umJ Kletturinn lét ekki undan meðan mennirnir voru þarna við vinnu sína, og þegar sprengingin var framkvæmd,' tvístraðist hann svo rækilega,1 aö tjón af skriðunni, sem hrundi fram, og einstökum steinum, sem þeyttust úr henni niöur alla fjallshlíðina og niður á jafnsléttu, gerðu minna tjón á húsum og mann1 virkjum en hefði mátt ætla1 fy’-irfram. Nú getur fólkið í Bulken á Vesturlandinu norska sofið óttalaust undir hiuni bröttu fjallshhð sinni. NY BÓK FRAMSÓK^AKFIOKKURIM Síörf hans og' stcfna Framsóknarflokkurinn, störf hans og stefna.Theítir iiý: bók, 128 blaðsíður að stærð, gefin út af Miðstjörri: , Framsóknarflokksins. Fjallar hún um sögú flo'kksins'' frá byrjun, störf hans og stefnu í nútíð og framtíö. Þetta er nauðsynleg bók fyrir alla þá að lesa, er vilja mynda sér skoðanir byggðar á þekkingu iTaridsmálum. Bókin fæst hjá trúnaðarmönnum Framsóknarflokks ins og bóksölum og kostar 20 krónur. Þeir, sem vilja fá hana beint frá flokksskrifstofunni, skrifi eða sími, og verður þeim þá send bókin gegn póstkröfu. - NÝLENDUVÖRUVERZLUN Opnum nýlenduvöruverzlun að Nesvegj,.3;3 á;morgún, föstudaginn 1. maí. - Sendum heini ——1 Sparið tímann, notið símarin. Verzlunin Straumnes Sími 82 837. Afli báta frá Bolung- arvík frá áramótum Aðalfundur Veiði- og fisktrœktarfélags Kanyasinya verður haldinn að Hvolsvelli 6. maí n. k. kl. 2 e. h. ^ Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál, er upp kunna verða borin. Stjórnin. Skýrsla sú, sem hér fer báta frá 1. janúar til 24. __ á eftir, sýnir afla Bolungarvíkur- apríl »»-«.-3» —. . Nöfn bátanna: r—i 'd s C/2 c3 o ÍO f-i & m Janúar, smál. Febr., smál. *o5 s CG tsf f-i ci s Apríl, smál. r—4 s w CG rH oS -t-3 s cS CO Flosi 40 1 71 44 38 115 I 268 Einar Hálfdán 40 1 71,5 | 54 47 | 117 i 289,5 Heiðrún 100 21,0 | 111,5 107 | 110 1 349,5 Hugrún 100 1 1 10 57 | 67,0 Kristján 4 1 16,0 | 15,0 5 í 18 j 54,0 Særún 12 1 30,0 | 15,5 4,5 4 í 54,0 Vikingur 68 1 55,0 44,0 23,0 j 88 1 210,0 Ölver 5 1 1 9,0 1,0 12 i 22,0 Samtals I 264,5 | 293,0 ! 235,5 | 521 ‘| 1314,0 AUGLYSING um skoðun bifreiða í Keflavíkurkaupsfað ' Allir bátarnir hafa stund- j að línuveiðar nema Hugrún, ^sem er á togveiðum og byrj- aði síðari hluta marzmánað- ar. Særún hóf veiðar með þorskanet síðari hluta marz- mánaðar, hefir sú veiðiað- ferð lítt verið reynd hér við Djúp áður, en hefir ekki gef- ið góða raun enn sem komið er. Heiðrún er á útilegu meö línu, hún hóf veiðar eftir miðjan janúar. Ölver hefir ekki stundað róðra að stað- aldri. — Einn bátur hefir stundað rækjuveiðar héðan í vetur, og aflað vel. Hefir vinna við nýting rækjunnar verið allmikil, og drjúg tekju bót fyrir mörg heimili hér í þorpinu. Afli bátanna í apríl hefir verið þvínær eingöngu stein- bítur, og afli góður, en þó öllu meiri í sumum öðrum verstöðvum á Vestfjörðum, t. d. 1 Súgandafirði. Vinna i landi hefir verið mjög mikil svo að komið hefir fyrir að börn úr efstu bekkjum ungl-j inga- og barnaskólans hafa; verið tekin í vinnu vegna vöntunar á verkafólki. Hey til sölu > Get selt 60 hesta af § góðri, súgþurrkaðri töðu. i; Ellert Jónsson, Akrakoti, sími um Akranes. iiiumiimhiu Bergur Jónsson | Hæstaréttarlögmaður.........| Skrifstofa Laugavegi 65. | Símar: 5833 og 1322. •■•MiiiMiiiiMmuiiiuétniHiMniiiitiMittmiMtMMtnM * Samkvæmt bifreiðalögum er hér með tilkynnt að aðal skoðun bifreiða fer fram í Keflavík frá mánud. 4. maí til fimmtud. 7. maí n. k. að báðum dögum meðtöldum. Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðir sínar að vörubílastöð Keflavíkur og fer skoðunin þar fram, ofan i • greinda daga kl. 10—12 og 13—17,30. j J Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild öku- skírteini. :: j J Ógreiddur bifreiðaskattur, skoðunargjáld og vátrygg " ingaiðgjald ökumanna fyrir allt árið 1952 verða inn-,|J heimt um leið og skoðun fer fram. Séu gjöldin eí^i ^ ( greidd við skoðun eða áður, verður skoðunin ékki frarn-^ kvæmd og bifreiðin tekin úr umferð þar til gjöidjn^' eru greidd. Sýna ber skilríki fyrir því að lögboðin v,á-. JJ trygging fyrir hverja bifreið sé í gildi. i Jio Athygli skal vakin á því, að umdæmismerki bífréiðá" skulu ávallt vera vel læsileg. Er því hér með lagt f-yrir - 0 þá bifreiðaeigendur, sem þurfa að endurnýja eða!lagUIU færa númeraspjöld á bifreiðum sínum, að gefa það"(' tafarlaust nú eða áður en bifreiðaskoðunin fer framv'' J Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar >á ofangreindum dögum, verður hann látinn sæta ábyrgð,; samkv. bifreiðalögum og bifreið hans tekin úr urnferð, hvar sem til hennar næst. Ef bifreiðaeigandi (eða um^. > ráðamaður) getur ekki af óviðráðanlegum ástæðum komið með bifreið sína til skounar á réttum tíma, er áríðandi að þeir tilkynni það skoðunarmönnum. Slikar tilkynningar í síma nægja ekki. Þetta er hér með til- kynnt öllum, sem hlut eiga að máli. I Bæjarfógeti Keflavíkur, 27. apríl 1953. TÓMAS TÓMASSON, settur. ' r í

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.