Tíminn - 15.07.1953, Page 3
156. blað.
TÍMINN, miðvikudaginn 15. júlí 1953.
í slendingajDættir
Árbók íþróttamanna! Sexfíu 09 fimm ára 1 dag:
Alexander Jóhannesson
háskólarektor
1953 komin út
Dánarminning: Gróa Jakobsdóttir
Mánudaginn 29. júní s. 1.
andaðist á heimili sínu, Heys-
holti á Landi, merkiskonan
Gróa Jakobsdóttir 85 ára að
aldri. Enginn héraðsbrestur
verðúr við fráfall hennar, því
að'. hún var ein hinna kvrr-
lát'u kvenna lands vors, en
hun var „góður stofn“, sem
öðlázt hafði þanþólið og þrek
ið fyrir innri og ytri reynslu.
Þegar stormarnir æddu og
beljáhdUækir og steypiflóð —
þá bognaði -hún- fyrir guði —
með-auðmýkt, en brotnaði
ekki. ...;
Gróa. fæddist.á Borg á Landi
árið. 1868 :—var því 85 ára á
dánardægri. Borg er löngu
komin- í oyði, eyddist í hinum
miklu sandbyljum 1882. For-
eldfár hennar flu'ttu þá bú-
férluin að Néðra-Seli í Land-
sveitr og flúttu með sér frá
hínni eyddii Borg nokkur börn
og fátæktina og vanheilsuna.
Minnir. mig, að Jakob, faðir
hennar lægi rúmfastur í ellefu
ár. Hann var stakur stillingar
maður, en kona hans, Guð-
láúg Paisdóttir, skörungur
mikill og hjartarík. Fátæk-
lega búrið hennar var öllum
þurfandi mönnum opið um
éfni fram, Gróa varð snemma
gjörfulegT frlð sýnum og góð
lynd. Hún giftist nokkru fyrir
aldamót síðustu. Guðmundi
Jónssyni ;fcá: JHoltsmúla, eink
ar göðum dréng. Fóru þau aö
búa í Heysholti. Þeim varð
5 eða 6 barna auðið og undu
ýél hág sínum á hólnum í
Hevsholti. Þau unnu hvort
öðrú og varð því flest til ynd
ís. En einn tíapran veðurdag
kom dauðinn og þá varð Gróa
ekkja með börn í ómegð. Guð
mundur dó '29. júní 1912 —
réttu 41 ári á undan konu
sinni. Nú var úr vöndu að
ráða hjá ekkjunni, efni lítil
og-fyrirvinna engin, en næg
tryggð og þrá til dvalar í
heimareitnum. Hélt hún
afram hokrinu og minntist
með þakklæti jafnan síðan,
er sveitarstjórnin gamla mest
öll hvatti hana til þeirra dáða
að halda hópnum saman.
Svona liðu árin næstu og Gróu
lagðist gitthvað til, góðir
menn veittu henni liðsinni og
sj álf - átti hún hinn mestan
fjársjóð trúaröryggis og þolin
mæði.'
cÁrið 1917 giftist hún öðru
Sinni Guðjóni Þorsteinssyni
faðsmanni sínum, er áður var
þóndi á Neistastöðum í Flóa,
ög nú ekkjumaður. Þau Gróa
og Guðjón lifðu síðan í far-
sælu hjónabandi til dauða
Guðjóns 1946, en hann lézt
úr krabbameini eftir hetju-
lega baráttu. Ég hygg, að
Gróa og Guðjón hafi virt
hyort annað og metið að verð
leikum. Guðjón var að ýmsu
léyti merkur maður og vel
greindur. og vinum sínum eft
irminniíegur. Sakna ég þeirra
beggja, ér ég leiði hugann að
sglum þeirra. Var ég oft gest
lir þeirra og naut ástúðar
þéirra í .ríkuftr mæli. Blessuð
Sé minning þeirra. Dauðinn
tjók frá Gróu unga dóttur
hennar meðan hún var í
ekkjudómi hið fyrra sinn.
Voru mikil harmkyæli í för
Kíeð honum þá og' margar
vökunætur og harmur í hljóði.
Síöar löngu missti hún upp-
komna dóttur, efnilega —
Elísabetu að nafni, en eigi
haggaðist konan á hólnum —
i guðstrúin var hennar styrkur
og góðvild til annarra manna.
Það var ævilán Gróu að eiga
‘gott hjartaþel og fá að njóta
| barnaláns. Sonur hennar Ósk
ar og Sigriður dóttir hafa all
ar stundir með henni dvalizt
tþegar frá er tekin vertíða-
dvöl Óskars um nokkur ár)
og borið hana á höndum sér
' og veitt henni þá gæfu gam-
alla kvenna í húsfreyjustétt,
' að mega ráða háttum sínum
1 að hinzta kvöldi. Þessi systkin
eiga í vændum sigurlaun fyrir
ljúfa fórnarþjónustu.. Nú er
þó Gróa í Heysholti horfin og
‘sést eigi framar fagna gest-
um, brekkusæknum, hýrieg á
' svip og góðmannleg. Er henn-
;ar saknað af fornum vinum,
| en um leið fagnað lausn lienn
ar eftir síðasta hretið.
Sá, er línur þessar ritar, sá
Gróu fyrst viö kirkju, er hann
var barn að aldri. Var hún þá
prúðbúin. Síðar komst ég að
raun um, að hún var kirkju-
rækin að hætti Maríu, er sat
(Framh. á 6. síðu).
H r j ó s t u r
Orkt í Hlíðardal.
Öræfanna andinn hljóði,
yndi þúsundfalt,
það er eins og þagnarljóði
þrungið sé hér allt!
Hér er fátt, sem gleði grandar.
Guð veit, það er satt,
að hrjóstur dýrðleg,
hraun og sandar,
hafa margan glatt.
Hérna fána Fróns ég reisti
og finn þess huldumál.
Þetta glæsta gróðurleysi
græðir mína sál.
Liítt ég sakna lýðsins ferða,
löngum draumagjarn,
enda mun ég alltaf veröa
eyðimerkurbarn!
Ljúfir fossar, lautir nógar,
lyngi vaxin börð,
hraun og lækir, holt og móar,
hvílík blessuð jörð!
Er sem lands vors sál hér syngi
sorgblíð vögguljóð.
Alltaf verður íslendingi
auðnin ljúf og góð! —
Gretav Fells.
Arbók íþróttamanna fyrir
árið 1953 er nýlega komin út.
Bókin er hin eigulegasta að
vanda, og er efnisniðurröðun
og fráganru allur til mikils
sóma fyrir útgefendurna sem
er Bókaútgáfa Menningar-
sjóðs. Ritstjóri árbókarinnar
er Kjartan Bergmann.
Eins Oo áður eru greinar-
flokkar um frjálsar íþróttir
og knattspyrnu ítarlegastar,
en um þessar íþróttagreinar
skrifa Brynjólfur Ingólfs-
son og Sigurgeir Guðmanns-
son. Bókin hefst með for-
mála eftir Þorstein Einars-
son, íþróttafulltrúa, og er þar
getið um aðdraganda að út-
gáfu árbókarinnar. Má segja
að 10 ár séu liðin frá því
fyrsta bókin kom út, en þá
gáfu Brynjólfur Ingólfsson
og Jóhann Bernhard út Ár-
bók frjálsíþróttamanna* en
hún varð vísir að þessari ár-
bók íþróttamanna. Köflum
um íþróttagreinar hefir stöð-
ugt verið bætt við, og eru nú
íþróttagreinarnar orðnar 11
auk kafla um störf fram-
framkvæmdastjórnar ÍSÍ, en
árbókin að þessu sinni hefst
á þeim kafla, en í honum
eru ýmsar gagnlegar greinar,
t. d. um veltuskýrslu ís-
lenzkra getrauna.
Annar kaflinn í bókinni er
um badminton, og skrifar
Friðrik Sigurbjörnsson um þá
íþróttagrein. Er efnisniður-
röðunin því breytt frá fyrri
árbókum, en þær hófust all-
ar á greinum um frjálsar í-
þróttir. Næsti kafli er um
frjáisar íþróttir, ritaður af
Brynjólfi Ingólfssyni, eins og
áður getur. Er þessi kafli
mjög ítarlegur og mestur að
vöxtum. Er þar meðal ann-
ars getið um frjálsíþrótta-
keppnina á síðustu Ólympíu-
leikum, og nokkrar myndir
frá þeim leikum. Þriðji kafl-
inn er um glímu, skrifaður af
ritstjóranum Kjartani Berg-
mann. Er þar meðal annars á
grip af sögu glímunnar,
þriðja grein.
Næst kemur kafli um golf
eftir Þorvald Ásgeirsson, og
því næst grein um handknatt
leiksárið 1952, eftir Hauk
Bjarnason. Þorkell Magnús-
son skrifar um hnefaleika og
Sigurgeir Guðmannsson um
knattspyrnu. Er þátturinn
um knattspyrnuna mjög ítav
legur og greinargóður. Er þar
skrifað um heimsóknir er-
lendra liða, og utanfarir ís-
lenzkra, auk greinar um
knattspyrnuna á Ólympíu-
leikunum.
Því næst kemur ágrip af
sögu körfuknattleiks á ís-
landi, skrifuð af Magnúsi Sig
urðssyni. Er þar skrifað um
upphaf þessa leiks og hvern-
ig hann barst til íslands. Er
þessi feafli einkar skemmti-
legur og gefur góða hugmynd
um þessa nýju keppnisgrein
hér á landi. Þá er grein um
röðraríþróttina eftir Toft
Helgaron, og Jón D. Ármanns
son skrifar um skautaí-
íþróttina veturinn 1951—
1952. ítarleg grein er um
skíðaárið 1952, og tók Gísli
B. Kristjánsson þann kafla
saman. Eru margar skíða-
myndir með kaflanum.
Síöasti kafli árbókarinnar
cr um sund eftir Ragnar
Vigni. Er sá kafli sá þriöji
mesti að vöxtum í bókinni,
(Framh. á 6. síðu).
Rektor háskólafts, prófess-!
or Alexander Jóhannesson,
verður hálf sjötugur í dag.
Lærisveinar hans nokkrir og
samverkamenn hafa af því
tilefni gefið út rit helgað
honum á þessum tímamót-
um ævi hans. Mun sú bók
koma í bókaverzlanir í dag.
Undir afmæliskveðjunni í
þessari bók munu standa um
150 nöfn innlendra og er-
lendra manna. Er þetta lítill
vottur um vinsældir þær og
virðingu er prófessor Alex-
ander hefir áunnið sér með
löngu vísindastarfi og frá-
bærri mannlund, prúð-
mennsku og góðfýsi, sem
honum hefir gefið verið um-.
fram flesta menn.
Alloft heyrist sú kenning,
að lærðir menn, sem svo er
kallað, sé til smárra nytja,
nema þeir stundi fræði sín,
sem alloft eru þó talin lítil
askafylli á vegum alls fjölda
manna. Að mínu viti er
þetta hin mesta fásinna. Mað
ur, sem þjálfað hefir hugsun
sína við fræðilegar rannsókn
ir, mun að öðru jöfnu færari
til þess að leysa flókin vanda
mál en aðrir menn. Prófessor
Alexander Jóhannesson er
einmitt glöggt dæmi um
þetta. Bjartsýni hans og á-
ræði, samfara ríkri hug-
kvæmni og óþreytandi elju,
hafa leyst margan vanda,
sem ýmsum svokölluðum
framkvæmdamönnum og
stjórnmálagörpum hefði
reynzt ofurefli.
Það er ánægjulegt fyrir
vísindamann við slík tíma-
mót sem þessi, að líta yfir
mikið dagsverk, fjölda rit-
gerða og stór verk, er
geyma árangurinn af elju-
sömu og árangursríku vís-
indastarfi. Hin mikla upp-
runaorðabólc próf. Alexand-
ers, sem nú er að koma út,
er ein fyrir sig mikið æviaf-
rek. Nú er það lítt á mínu
færi að ræða margt um mál-
vísindi, enda munu aðrir mér
færari til þess verða að minn
ast þess þáttar í ævistarfi
próf. Alexanders. En hér er
margs fleira að minnast. Mér
kæmi það ekki á óvart, þótt
próf. Alexander þætti sjálfum
litlu minna vert um ýms önn
ur verk sín, er til verklegra
framkvæmda teljast, enda
munu þau og lengi halda
minningu hans á lofti. Há-
skólahverfið hér í bænum er
eins og kunnugt er, að mest-
um hlut upp komið fyrir
dugnað hans og atfylgi. Há-
skólinn á honum því mikla
skuld að gjalda, enda hvort
tveggja, að mönnum háskól-
ans hefir ekki missýnzt í því,
að fela honum forstöðu sinna
mála og kjósa hann rektor
sinn oftar og lengur miklu
en nokkurn annan einn
manna, né hefir próf. Alex-
ander brugðist því trausti. En
háskólarektor hefir hann
verið á árunum 1932—1935,
1939—1942 og síðan 1948. Á
þessum tíma hafa allar hin-
ar miklu byggingar á há-
skólalóðinni risið og lóðin
sjálf orðið ein mesta prýði
höfuðstaðarins. Og þegar að
því kom, að ríkiö léti reisa
nýtt þjóðminjasafnshús í
minningu um endurreisn lýð-
veldissins, varð próf. Alex-
ander skipaður formaður
bygginganefndar af hálfu rík
isstjórnarinnar. Mun hún
ekki hafa komið auga á ann-
an mann, er betur mætti
treysta til að leiða þá miklu
framkvæmd til góðra lykta.
Sextíu og fimm ár er ekki
hár aldur og eflaust á próf.
Alexander enn eftir að vinna
mörg þarfleg verk og góð,
bæði í fræðum sínum, fyrir
Háskóla íslands og ættjörð
sína. Sú er ósk okkar vina
hans og samverkamanna, að
hann megi enn um langa
hríð „safna árum góðvitrari
og yngri,“ eins og skáldið
kvað. Ég þekki engan, sem
þau orð eiga betur við, og það
ætla ég líka, að ekki verði á
betra kosið.
Þorkell Jóhanftesson.
StnrnnntitiitiinmwutfHmmitiimmm
Gerist áskrifendur
að TÍMANUM
Áskriftasími 2323
EFTIRTALDAR niðursuðuvörur frá
Pylsugerð K E A
& Akureyri, fást að jafnaði í heildsölu hjá okkur:
Nautgripakjöt
Vínarpylsur
Bæjarabjúgu
Blóðmör
i M og y2 dósum
í Ví og y2 dósum
í Ví og i/2 dósum
í Vi og 1/2 dósum
HERÐUBREIÐ
Sími 2678,