Tíminn - 27.10.1953, Síða 5

Tíminn - 27.10.1953, Síða 5
243. blaö. TÍMINN, þriðjudaginn 27. október 1953. 5 27. oht. Endurnýjun bátaf lotans Við athugun á skýrslum um skráningu skipa, kemur í ljós, að allmargir fiskibátar (100 smál. og minni) hafa horfið af skipaskrá síðustu árin. Mörg þessara skipa hafa farizt, en önnur orðið ósjófær vegna aldurs og slits, því að ævi skips eru takmörk sett, jafnvel þótt það sé í öndverðu vel byggt og til þess vandað að öðru leyti. Það skarð, sem þannig er höggv- ið í bátaflotann, er að mestu ófyllt, því að sáralítiö hefir verið byggt eða flutt inn af hinum stærri vélbátum á þessum tíma. Þar að auki hefir svo bátaílotinn í heild að sjálfsögðu elzt og gengið úr sér á þessum árum. Hér er um að ræða alvarlega stað- reynd, sem óhjákvæmilegt er að gefa gaum aö. Um það geta sjálfsagt flest ir verið sammála, að. æskileg ast væri, að öll bátasmíöi geti farið fram innanlands, og það því fremur, sem inn- lendir bátar eru taldir standa erlendum bátum fyllilega á sporði um styrkleika og sjó- hæfni. Reynslan er hins veg- ar sú, að undanfarin ár hefir ekki tekizt að koma við nauð synlegri endurnýjun bátaflot ans með nýsmíði innanlands. Síðasta .tlþingi veitti ríkis- stjórninni heimild til að gefa eftir tolla á innfluttu efni til bátasmíða, og hefir stjórn in verið reiðubúin til að nota þá heirnild, en tollar þessir nema ekki það hárri upphæð, að það ráði úrslitum í þessu máli. Verð innlendu bátanna hefir að dcmi útvegsmanna verið of hátt -miðað við fjár- hagsgetu og verð jafn stórra báta erlendis. Þá hefir þótt á því bera, að ekki hafi tekizt að útvega nógu gott efni er- lendis til bátasmíða eftir styrjöldina, og hafa komið fram gailar í nokkrum nýleg- um skipum af þeim ástæð- um. Niðurstaðan er því sú, að undanfarin tvö ár hefir verið mjög sótt eftir innflutn ingi fiskibáta, notaðra eöa nýsmíðaðra. Til þessa hafa innflutningsyfirvöld, bæði af gjaldeyrisástæðum og með tilliti til hins innlenda skipa- smíðaiðnaðar, yfirleitt staðið gegn slíkum innflutningi. Nú nýlega hefir þó verið ákveöið að leyfa innflutning á um 20 vélbátum frá Norðurlöndum, enda sýnt, að ekki mátti við svo búið standa. Þess er þó að vænta, að hér þurfi ekki að vera um framtíðarlausn að ræða, heldur takizt að koma þessum málum svo fyr- ir, að fiskibátar verði al- mennt smíðaöir innanlands á komandi árum, jafnt stærri skip sem smærri. Stundum verður vart við þann hugsunarhátt í seinni tíð, að ekki sé hundrað í hættunni þótt fiskibátum fækki nokkuð og vélbátaút- vegurinn dragi eitthvað sam- an seglin frá því, sem verið hefir. Þeir sem slíkt mæla, benda á, að þessi atvinnuveg- ur hafi barizt í bökkum og hafi hvað eftir annað þurft ísland og Norðurlönd Erindi eftir Bjarna Ásgeirsson sendlherra, íluít sa iitbreiHslu* fimdi Norræna félagsms í Osló Ef .einhver meðal stórþjóðanna veitti íslenzku þjóðinni sérstaka athygli, þar sem hún kemur fram sem sjálfstæður aðili í fylkingu þjóðanna, þá held ég að sá hinn sami hlyti að telja hana eitt hið ljósasta dæmi þess, hve sjálfstæð- isþráin getur verið ómótstæðilegt afl í lífi einstakra þjóða. Það er mikil og margvísleg ábyrgð og hlut- fallslega þungar fjárhagslegar byrðar, sem fámenn þjóö tekur á sig með því að bera uppi nútíma menningarþjóðfélag. Og þegar 100 —150 þúsund manna hópur afræð- ur að gerast sjálfstætt fullvalda ríki, þá er það augljóst mál, að hann telur meira en lítið við liggja. En það er óþarfi fyrir mig að skýra þetta fyrirbrigði fyrir þess- um áheyrendum. — Það hefir um allar aldir verið einkenni og aöal hins norræna kynstofns, aö leggja líf sitt og frelsi nokkurn veginn að jöfnu. Þao þarf því engan að undra sem veit að íslenzka þjóðin er af hinni norrænu þjóöa-fjölskyldu, þó að frelsisþráin sé rík i blóði henn- ar. Og enn síöur, ef það er hug- leitt, að álitlegur hópur frelsiselsk- andi sona hinnar frjálshuga norsku þjóðar, lagði á sínum tíma grundvöllinn að íslenzka þjóðfélag- Nú vildi e. t. v. einhver spyrja: Hvað kemur þessi sjálfstæðisþrá og einstakiingshyggja því við þegar rætt er um norræna samvinnu? Bendir það ekki einmitt til þess, að íslendingar og hinar norrænu þjóðir yfirleitt séu lítt til samstarfs fallnar? Verður það ekki einmitt þeirra æðsta takmark og innsta þrá, að vera hver sjálfri sér nóg, eins og þursinn í Pétri Gaut? — Nú ætti hin myndarlega starfsemi Norræna félagsins, til eflingar nor- rænna menningartengsla og sí- aukið samstarf norrænna þjóða undanfarin ár, á fjölmörgum svið- um, að vera sönnun þess, aö svo er ekki. Og í þessu tvennu er ekk- ert ósamræmi, því að sjálfstæðis- þi'áin og þörfin fyrir samstarf og samfélag annarra, eru mönnunum báðar jafn eðlilegar, og þurfa að fylgjast að, ef vel á að vera. Hinn mildi misskilningur í þessurn efn- um hefir hins vegar alltof oft veriö í þvi fólginn, að þjóðirnar ekki síð- ur en einstaklingarnir hafa viljað þrengja þessu „samstarfi" hver upp á aðra. En það er segin saga, að hver sú þjóð, sem er þvinguð til samstarfs af einhverri annarri, sér nær aðeins það sem skilur þær að, og reynir því að fjarlægjast hana sem mest hún má. En um leið og þjóðirnar standa frjálsar hver gagnvart annarri og hafa öðlazt þann siðferðisþroska að meta hver annarrar sjálfstæði sem sitt eig- ið, opnast augu þeirra óðar fyrir , því sem þær eiga sameiginlegt og J sem þá laðar þær hverja að ann- arri. i Þetta er skýringin á hinum sí- aukna samhug og heilbrigða sam- starfsvilja sem svo mjög hefir færzt í aukana meðal Noröur- landaþjóðanna nú undanfarið. Og I þessa fyrirmynd mættu aðrar og st'ærri þjóðir heimsins gjarna láta sér að kenningu verða. j í samræmi við það, sem ég nú hefi sagt, er það ekki óeölilegt að j við íslendingar, þrátt fyrir óslökkv j andi sjálfstæðislöngun, kostum I kapps um það, eftir veikum mætti, . að taka sem ríkastan þátt í sam- starfi frfálsra þjóða. Vegna þess, að land okkar ligg- ’ ur utarlega á vesturmörkum hinna 1 norrænu þjóða, hefir orðið vart ! nokkurs ótta meðal ýmsra vina og frænda okkar á Norðurlöndum, um að örlög íslenzku þjóðarinnar muni verða þau, að hún dragist ómótstæðilega frá uppruna sínum, að segulskauti hins tröllaukna at- hafna- og menningarlífs vestræna heimsins. En ég tel rétt að segja i það hér, að ég ekki aðeins vona j og trúi, heldur er sannfærður um, j að rætur vors norræna uppruna . muni ætíð verða nægilega sterk- ! ar til að varna því. Okkur íslendingum finnst sem hulin örlög hafi fengið oss bað verkefni, að varðveita ríkan og merkan þátt norrænnar menning- ar, sem ella mundi aö miklu leyti : hafa glatazt Norðurlöndum og glat , azt heiminum. Þetta hlutverk okk- ar á löngum dimmum öldum lið- á opinberri aðstoð að halda. Hinn svokallaði „bátagjald- eyrir“ heyrist oft nefndur í því sambandi, en það fyrir- -komulag var á sínum tíma upp tekið til að tryggja báta- útveginum viðunandi útflutn ingsverð, er hlutfallið milli útflutningsverðs og tilkostn- aðar hafði stækkað vegna verðbreytinga innanlands og óhagstæðs viðskiptaárferðis. En hér verður að hafa það í huga, að þeim, sem verðmæt anna afla úr skauti náttúr- unnar, hvort sem er á sjó eða landi, vegnar að jafnaði og ekki sízt í seinni tíð, nokkuð þunglega, er til skipta kemur á þjóðartekjunum, og mun svo vera um heim allan. Þó er hér um að ræða, hvað sem hver segir, undirstöðuat- vinnuvegi þjóðanna, sem þær mega sízt án vera. Eða hvar myndi komið gj aldeyrismál- um íslendinga á næstu ár- um, ef hinn „óarðbæri“ báta- útvegur hyrfi úr sögunni? Hætt er við, að þjóðinni þætti þá nokkúð á skorta, jafnvel þótt hún þá að sjálfsögðu losnaði við hin margnefndu rekstrartöp, bátagjaldeyri og aðrar slíkar „plágur“, sem menn nú bera oftast í munni. Fyrir nokkrum árum var það mikil tízka í þéttbýlinu, að láta í ljós vanþóknun á ís- lenzkum landbúnaði, og vildu sumir þá helzt gera hann út- lægan úr þjóðarbúskapnum. Nú er þar komið nokkuð ann- að hljóð í strokkinn, sem betur fer. En af ýmsum er nú talaö um bátaútveginn í svip úðum tón og áður um land- búnaðinn. Slíkt ætti sú þjóð að varast, sem í 1000 ár hefir lifað mestmegnis af þessum tvennu bj argræðisvegum Framtíðin ber að vísu fleiri möguleika í skauti sér. Þess mun þó ærið langt að bíða að þjóðin geti verið án þeirra einstaklinga og stétta, sem baráttuna heyja við náttúru öflin, hvort sem verðmætin eru sótt í skaut jarðar eða djúp hafsins. ins tíma er okkar stolt og þessi menningararfur er okkar mesti andlegur fjársjóður. Það er hann sem fyrst og fremst hefir gefið okk ur siðferðilegt þrek til að láta okk- ur dreyma um að vera sjálfstæð þjóð og keppa aö því. Á þessum fornnorræna menningararfi lifir hin íslcnzka þjóðarsál. Eg er ekki blindur fyrir þvf, að við íslendingar, ekki síður en aðr- ir menn og þjóöir, höfum miklar þrái og þarfir, sem bundnar eru efnisheiminum, um aukin lifsgæði og miklar verklegar framkvæmdir. Þar verðum við sannarlega víða að leita fanga og liafa augu á hverjum fingri. En ég hefi þá sannfæringu, að hvenær sem freistingin eftir hinum veraldlegu gæð'um lifsins fer að krefjast of mikilla fórna á kostnaö hinna and legu og þjóölegu verðmæta, verði jafnan nægilega sterk rödd í brjósti íslenzku þjóðarinnar, sem . segir: Hvers virð'i er það' þjóðinni,! þótt hún eignist allan heiminn, ef hún líður tjón á sálu sinni. — Ef það ætti fyrir oss aö liggja, að týna uppruna vorum, máli og menn- ingu vegna einhlið'a kapphlaups eftir tímanlegum gæðum, teldi ég íslenzkt þjóðarsjálfstæði lítils virði cnda mundi þá skammt í land, að vi'ð segðum oss þar til sveitar, er beztrar veraldlegrar afkomu væri að vænta. Einmitt af því eigum við íslendingar að taka norrænu sam- starfi með' mestum fögnuði. Meðal norrænu frændþjóðanna höfum við sterkasta átthagatilfinningu, utan okkar eigin lands. Meðal þeirra teljum vér oss fyrst og Zremst hafa tryggt oss félagsrétt- indi, með framlagi okkar til sam- eiginlegrar þjóðamenningar. Og frá þeim væntum vér fyrst og fremst viöurkenningar og stuðn- ings í okkar sögulega hlutverki — við varðveizlu og eflingu hins nor- ræna þjóð'arfs, sem þó sérstaklega er fjöregg okkar fámennu þjóðar. Hinum almenna kirkjufundi lokið Hinum almenna kirkju- fundi, sem hófst í Reykjavík 16. þ.m., er lokið fyrir nokkru. Aöalmál fundarins voru, ríki og kirkja og kirkjubyggingar. AÖalgúð'sþj ónusta fundarins fór fram í dómkirkjunni fyrra sunnudag, þar sem dr. theol. Bjarni Jónsson vígslubiskup predikaöi, en séra Óskar Þor iáksson þjónaði fyrir altari. Á fundinum var samþykkt svohlj óöandi tillaga um kirkjumál: Hinn almenni kirkjufundur 1953 heitir á stjórnarvöld landsins, að láta kirkju þjóðarinnar njóta réttar síns í hvívetna, sem henni ber samkv. stjórnar- skránni, svo hún veröi þess megnug með fullum stuðn- ingi ríkisvaldsins, stj órnar og alþingis að inna af hönd um hið mikla hlutverk í þjóðlífi íslendinga sem henni er falið og hún hefir köllun til. Heyrir hér til meðal ann ars að fullur stuðningur sé veittur til kirkjubygginga, svo og að allar ákvarðanir um mál þjóðkirkjunnar séu gerðar meö ráöi fulltrúa klérkdómsins og safnaðanna. Við kosningu í undirbún- ingsnefnd voru kjörnir 4 að alfulltrúar þeir Gísli Sveins- son fv. sendiherra, sr. Sigur- björn Á. Gíslason, Páll Kolka héraðslæknir og sr. Þorgrím ur Sigurösson. Villuljós, en ekki morgunstjarna Ritstjórar Frjálsrar þjóðar senda ritstjóra Tímans kveðj ur sínar í seinasta blaði og verður ekki sagt, að þær séu neitt vandaðar. Hann er sagð ur sokkinn í svað hinnar verstu siðspillingar og því verði honum það eitt til ráðs, þegar upp rís hin „bjarta morgunstjarna“, en svo nefna ritstjórar Frjálsr- ar þjóðar sig, að reyna að Ijúga á hana öllum vömmum og skömmum. En raunar geri það ekkert til. Sigurganga hinnar „björtu morgun- stjörnu“, þ. e. Bcrgs, Jóns og Valdemars, verði ekki stöðv- uð og hin hása rödd í svaðinu muni skjótt þagna! Ekki mun þó umrædd grein verða til þess að greiða fyrir sigurgöngu þessarar gerfi- „morgunstjörnu“ eða auka trú manna á það, að Bergur, Jón og Valdimar séu hinir út- völdu til að bæta siðferði þjóðai'innar og ráðamanna hennar. í seinustu blöðum Frjálsrar þjóðar hafa þeir þeir verið bólgnir af vandlæt ingu yfir því, að hið opin- bera eyddi ofmiklu fé í bíla kostnað starfsmanna sinna og þó einkum ráðherranna." Þeim var þá bent á það með mestu hógværð hér í blað- inu að ekki gætu forsprakk- ar Þjóðvarnarflokksins frómt úr flokki talað, því að einn þeirra, Þórhallur Ilalldórs- son, fengi 14—15 þús. kr. bíla styrk frá Reykjavíkurbæ, án þess að hægt væri að rétt- læta þá fjárveitingu á nokk- urn hátt. Formaður Þjóð- varnarflokksins, Valdimar Jóhannsson, kynni hinsveg- ar vel að meta þennan styrk, því að Þórhallur legði honum til bíl sinn, er hann færi í áróðursferðir út um land. Forsprakkar Þjóðvarnarflokks ins hefðu þannig síður en svo á móti opinberum bíla- styrkjum, þegar þeir gætu sjálfir notið þeirra. Skammargreinin, sem áð- ur er vitnað til, er sprottin af þessu. Hún síður en svo hnekkir því, sem hér hafði verið sagt, heldur staðfestir það á allan hátt. í henni er viðurkennt, að Þórhallur hafi umræddan styrk og því bætt viö, að það sé alveg sjálf sagt, að hann hafi hann. Störf Þórhalls eru þó ekki önnur en þau að fara á milli búða í Reykjavík og er vitan lega fjarri lagi að greiða hon um nokkurn bílastyrk til þess. Bílastyrkinn hefir hann ekki heldur raunveru- lega vegna þess, heldur af þeirri ástæðu, að hann er tengdur borgarstjóranum f Reykjavík. Vitanlega er það algert hneyksli að veita slík- um manni bílastyrk. En þre- menningarnar, sem kalla sig hina „björtu morgun- stjörnu“ siðferð'isins, leggja yfir þetta fulla blessun sína' vegna þess, að það er Þjóð- varnarmaður, selm styrkinn fær, og formaður Þjóðvarn- arflokksins, sem nýtur góðs af honum. Svo þykjast þessir piltar, vera útvaldir til að bæta op- ; inbert siðferði á íslandi og | kalla sig hina „björtu morg- |unstjörnu“ siöferöisins! Þessum þremenningum skal siagt það í fullri vinsemd, vegna gamalla kynna, sem ritstjóri Tímans hefir af þeim haft, að þeir gera sig i (Framh. á 6. slðu.) j

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.